Morgunblaðið - 13.12.1981, Side 35
MÖRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
35
Stutt litunarbók handa konum
náði líka sérstökum árangri í
„faginu" að skynbærra manna
dómi. Þetta voru leiftrandi grein-
ar, eiginlega kvikmyndir af því,
sem gerðist kringum þá Fischer og
Spasky. Þær birtust dag eftir dag
í Vísi sáluga og það hefði enginn
nema rithöfundur með góðan
penna getað gert — að ná slíkum
tilþrifum og föstum tökum eins og
birtust í þessum skrifum. Það var
blær yfir þeim — „geðugur" eins
og Austfirðingar segja.
Frúin ber inn bleksterkt kaffi
og reiðir fram Gallio-Jessen kon-
fekterí með í stað molasykurs —
það var hreinasta afbragð
hvorttveggja. Vindurinn gnauðaði
á gluggann og bílaumferðin á
Kringlumýrarbrautinni sýndist
æðisleg í rökkrinu, sem hafði
færzt yfir Metropolitan Reykjavík
— austursóninn.
Björn hafði kveikt á skrifborðs-
lampanum sínum, og þarna voru
myndir af börnum hans tveim,
Benedikt arkitekt og Guðbjörgu,
sem er gift kona í Reykjavík (þau
eru bæði Gröndal í móðurætt).
„Minn kæri Björn — þú virðist
hafa lagt þig í líma við að tala við
frægar persónur — hvers vegna?"
Hann varð þögull um sinn og
svo segir hann:
„Þetta er ekki góð spurning.
Aftur á móti er í þessari bók eins
konar þverskurður íslenzks
mannlífs eða öllu heldur „cream of
the crops" eins og Bretinn kallar
svo — rjómi uppskerunnar."
„Áttu þar við Laxness kannski,
Svein heitinn lénsherra á Egils-
stöðum, prófessor Hermann
bekkjarbróður várn í Edínaborg,
Jón Engilberts konstmaler og
hann Þórarin sáluga á Tjörn, föð-
ur Kristjáns Eidjárns fyrrum for-
seta okkar þjóðar?"
„Hreint ekki, heldur hitt, þarna
fara saman konstnarar, yrkjendur
jarðar, sjómenn, vísindamenn af
guðs náð, lærdómsmenn af
fremstu gráðu. Leikurinn er gerð-
ur til þess að svala mannlegri for-
vitni og fræða fólk um staðreyndir
og veruleika, sem er tilgangur
blaðamennsku ...“
Bókin lá opin á skrifborðinu og
beið þess að vera lesin vandlega í
góðu tómi. Þetta virðist í fljótu
bragði vera afar persónuleg bók,
skrifuð af lífsreyndum manni með
lögfræðimenntun, atvinnukennara
til margra ára og rithöfundi, sem
æ meira og meira er farinn að
stunda þá hina erfiðu list, rit-
mennsku, að aðalatvinnu, smbr.
sjónvarpsleikritun hans og þar er
átt við sjónvarpsleikritið Póker,
sem var sýnt í sjónvarpinu hér á
landi 1978 og um öll Norðurlönd
við orðstír og nú nýverið útvarps-
leikritið Jarðarfor, sem vakti at-
hygli, og hlaut viðurkenningu
margra. Baldvin Halldórsson,
leikstjóri og leikari, lét þau orð
falla við ritsmíðarhöfund, að Jarð-
arför væri gætt reisn og ákveðnum
styrk. Þess ber að vænta, að það
stykki eigi eftir að gera víðreist á
sama hátt og Póker ...
Svo var fengið sér kaffi og kon-
fekt og settur púnktur.
stgr
Mjnd úr Reykhólakirkju prýðir jóla-
kort kirkjunnar.
Jólakort
Reykhólakirkju
Midhúsum, 26. nóvember. 1981.
NÝLEGA hefur Reykhólakirkja gef-
ið út vandað jólakort til ágóða fyrir
kirkjuna.
Samkvæmt upplýsingum frá
sóknarpresti okkar, séra Valdimar
Hreiðarssyni, tók Jón Ögmundur
Þormóðsson lögfræðingur, Asp-
arfelli 12 í Reykjavík, myndina og
gaf Reykhólakirkju útgáfuréttinn.
Einnig vann Jón Ögmundur
mikið og fórnfúst starf við undir-
búning að útgáfu kortsins. Auk
þess hefur hann stutt og styrkt
útgáfuna á annan veg. Vill fólk í
sókninni koma á framfæri sér-
stökum þökkum til Jóns Ög-
mundar.
Áður hefur Reykhólakirkja gef-
ið út kort sem Sigfús Halldórsson,
tónskáld teiknaði og gaf kirkjunni
til útgáfu. Það kort er nú uppselt.
Skulu honum færðar þakkir hér.
Sveinn Guðmundsson
Basar
ÍSLENSKA íhugunarfélagið held-
ur basar að Hverfisgötu 18, ann-
arri hæð, gegnt Þjóðleikhúsinu
sunnudaginn 13. desember kl.
14.00. Á boðstólum verða m.a.
þurrkaðir blómvendir, kökur, alls
konar handavinna og margt fleira.
(Kréttalilkynning)
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
\l GLYSING.X-
SIMINN KK:
22480
endurútgefin af
Bókavörðunni
Stutt litunarbók handa konum
heitir smárit eitt, sem út kom á Ak-
ureyri 1877 í þýðingu og staðfærslu
Sigmunds Magnússonar. Bókavarð-
an í Reykjavík hefur sent frá sér
bókina Ijósritaða í flokki ýmissa fá-
gætra og lítt þekktra bóka frá fyrri
tíð, sem eiga það sameiginlegt að
eiga erindi við samtímann.
„í frétt frá Bókavörðunni vegna
útkomu þessa rits segir m.a.:
„Á okkar tímum þegar áhugi
fyrir hverskyns innlendum hand-
íðum fer hraðvaxandi er vissulega
margt í gömlum ritum sem að
gagni getur komið. Meðfylgjandi
kver lýsir í glöggu máli ýmsum
gömlum ráðum varðandi litun
líns, baðmullar og ullar og var hún
m.a. upphaflega útgefin eins og
útgefandi segir i riti sínu „gæti nú
þessi litla bók varnað mönnum frá
að kaupa útlenda dúka og komið
því til leiðar að menn gjörðu sig
ánægða með sína eigin, þá væru
það hin beztu laun er jeg gæti
æskt mér fyrir ómak mitt." Mörg
þeirra gömlu efna sem lýst er í
þessari bók eru enn fáanieg, en
mörg þeirra fást þó á okkar dög-
um í lyfjabúðum og sérverzlunum.
Það er svo önnur saga að líklega
fer heiti bókarinnar ekki saman
við jafnræðishugmyndir nútíma-
fólks,“ segir í frétt Bókavörðurnn-
ar.
...ALVEG ÆDI!
Maturinn tilbúinn strax
LITTON
örbylgjuofn
Litton örbylgjuofninn er bandarísk völundarsmíð með tölvuminni og snerti-
rofum. Þú getur alfryst, hitað, steikt og haldið matnum heitum.
Auðvelt að hreinsa og fljótlegt að elda, auk þess eyðir ofninn 60-70% minna
rafmagni en eldavél. Það er ekki spurning um hvort þú kaupir örbylgjuofn -
heldur hvenær.
Skipholti 7 símar 20080—26800
Ritsafn Guómundar Daníelssonar
l
I
I
ll L...
Guðmundur Daníelsson, frásagnameistari í 48 ár.
Ritsafn Guðmundar Daníelssonar er 10 bækur. öll verkin eru frá
árunum 1948-1970 og sum þeirra hafa verið ófáanleg um hríð.
I ritsafninu eru skáldsögumar Blindingsleikur, Musteri óttans,
Hrafnhetta, Húsið, Turninn og teningurinn, Sonur minn Sinfjötli
og Spítalasaga, skáldverk utanflokka í bókmenntunum.
Einnig ferðasagan Á langferðaleiðum, veiðisagan Lands-
hornamenn - sönn saga í há-dúr og smásagnasafnið Tapað stríð.
Viðtangsetnin eru margvísleg og tekin fjölbreytilegum tökum, en
þróttmikill stíll og hröð og lifandi frásögn eru samkenni á öllum
verkum Guðmundar Daníelssonar.
Ritsafninu fylgir ellefta bindið með ritgerð dr. Eysteins
Sigurðssonar um verk Guðmundar; ogskrá um útgáfur, ritdóma og
heimildir þeirra, sem Olafur Pálmason hefur tekið saman.
Góð bókmenntaverk í vönduðum búningi.
' lögbeig Bókaforlag
Þingholtsstræti 3, simi: 21960