Morgunblaðið - 13.12.1981, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
„Gvendur Jóns - prakkara
sögur úr Vesturbænum“
BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá, Hafnar
firði, hefur sent frá sér bókina
„Gvendur Jóns — prakkarasögur úr
Vesturbænum" eftir Hendrik
Ottósson.
Hendrik Ottósson sendi frá sér
fjórar bækur um Gvend Jóns á ár-
unum 1949—1964, en hér hafa þær
verið sameinaðar í eina bók. 1
fréttatilkynningu frá útgefanda
segir m.a.: „Fyrri útgáfurnar af
þessum sögum hafa verið ófáan-
legar um langt skeið, en margir
munu kannast við þær og sögurn-
ar eru fyrir löngu orðnar sígildar.
Gvendur Jóns og félagar hans eru
öllum ógleymanlegir, sem þeim
hafa kynnzt, og fleiri skemmtileg-
ar persónur koma fyrir í þessum
sögum úr Vesturbænum."
Hendrik Ottósson
JSLENSK
BOKAMENNIIálG
ER VERDMÆTI "
BÆKUR MENNINGARSJÓÐS =
Þri: leieL- ■
ÞÆTTIR UM NÝJA TESTAMENTIÐ
29 ritgerðir um Nýja testamentið og Kristfræði eftir dr. Jakob Jónsson.
ÞRÍR LEIKIR UM HETJUR
Þrjú sígild forngrísk leikrit í þýðingu dr. Jóns Gíslasonar.
LITLI PRINSINN
Hin sígilda bók fyrir unga sem aldna, ein vinsælasta saga sem þýdd hefur
verið úr frönsku.
FERÐIR UM ÍSLAND Á FYRRI TÍÐ
Fróðlegir og skemmtilegir ferðaþættir sem lýsa vel muninum á ferðalögum
fyrr og nú.
ANDVARI
Aðalgrein í Andvara er æviþáttur um Þórberg Þórðarson eftir
Sigfús Daöason skáld.
BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS
OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS
Skálholtsstíg 7 — Reykjavík
V,
Jól án áfengis
Eftir Vilhjálm
Hjálmarsson
Nú líður mjög að jólum og við-
búnaður er mikill að vanda.
Klerkar og kórar og annað starfs-
fólk safnaða undirbýr guðsþjón-
ustur i öllum kirkjum landsins.
Heimilin eru búin jólaskarti og
jólaskapið tekur völdin smátt og
smátt.
I annan stað eru verslanir
skreyttar og verslunarhverfi og
vöruval fram boðið. Menn kaupa
jólagjafir og hvað annað, sem
hæfa þykir jólahaldi og eru örari á
fé en endranær og tilgangur helg-
ar meðalið, hugsa menn, að gleðja
aðra nær og fjær.
Og það er aldrei meira úrval í
verslunum en einmitt fyrir jólin,
úrval jólagjafa og matvæla, fatn-
aðar, húsgagna og heimilistækja.
Mönnum er ærinn vandi á hönd-
um, því valið er alls ekkert einfalt.
Sama gildir þegar að því kemur
að ákveða hvernig verja skuli hin-
um óvenjulega langa frjálsa tíma,
sem til fellur um hátíðirnar. Því
einnig á þeim vettvangi er margt á
boðstólum.
En eitt er það val — á jólum —
sem ekki er flókið, og kann þó að
vera erfiðleikum bundið fyrir
ýmsa: Höldum við jól án áfengis
— eða gagnstætt?
Vilhjálmur Hjálmarsson
A þessu ári hefir útvarpið —
eftir fyrirframgerðri áætlun —
flutt þætti um áfengismál í því
skyni að stuðla að minni áfengis-
neyslu. A sama máta er leitast við
að leggja nokkuð af mörkum í
sjónvarpi.
Utvarpsráð hefir nú sem fyrr
mótað þá stefnu að Rikisútvarpið
skuli taka þátt í baráttunni gegn
áfengisbölinu, og það þarf fólk að
vita. — Um þetta er enginn ágrein-
ingur.
A meðan ég var menntamála-
Matseðillinn kynntur. Frá vinstri: Örn Baldursson veitingamaður, Friðrik
Sigurðsson yfirkokkur og Guðmundur Erlendsson yfirþjónn.
LjÓNm. Mb. Ól.K.Mmg.
Torfan kynnir
nýjan matseðil
VEITINGAHÚSIÐ Torfan hóf nýlega
að bjóða upp á nýjan og fjölbreyttari
matseðil og af því tilefni voru blaða-
menn boðaðir á staðinn og þeim kynnt-
ar helstu nýjungarnar á seðlinum. Sem
fyrr leggja Örn Baldursson veitinga-
maður og hans fólk mesta áherslu á
fiskréttina, enda aukast vinsældir
þeirra stöðugt hjá íslenzkum og erlend-
um gestum hússins.
Það kom fram hjá Erni veitinga-
manni að mjög jöfn og góð aðsókn
væri að Torfunni og hefði það gert
honum kleift að halda verði í lág-
marki, nú væru t.d. veitingar að
hækka í fyrsta skipti í 8 mánuði og
verð á matseðli dagsins væri enn
óbreytt eftir sama tíma. Algengt
verð á rétti dagsins með súpu væri
45— 60 krónur.
Meðal helstu nýjunga á matseðli
hússins má nefna karfa pate, sítr-
ónumarineruð ýsuflök, pönnukökur
með skeldýrafyllingu og snigla í
hvítlaukssmjöri, sem finna má á for-
réttamatseðlinum. Ný súpa er
krabbasúpa. Nýjungar á fiskrétta-
seðli eru heilsteikt rauðspretta, heil-
agfiski og soðinn saltfiskur og skata,
sem ekki munu hafa verið á matseðli
íslenzks veitingahúss um áraraðir.
Alls er að finna 13 rétti á fiskrétta-
seðlinum. Á smáréttaseðlinum er
boðið upp á nýjungar, hleypt egg
indianne, smjördeigslengju fyllta
með steiktri kjúklingalifur og steikt
rauðsprettuflak. Á eftirréttaseðli
eru aðalnýjungarnar Ostafondue,
kalt súkkulaðikaffi og marineraðar
perur. Samtals á öllum seðlum býður
Torfan upp á 51 rétt, og eru þá með-
taldir barnaréttir, sem eru nýjung
hjá húsinu. Mat-og vínlistum hefur
verið komið fyrir á smekklegan hátt
í ljósprentun af Morgunblaðinu frá
árinu 1936 og getur fólk rifjað upp
fréttir frá þessum tíma á meðan það
bíður.
Smávegis breytingar verða gerðar
á efri hæð veitingahússins eftir ára-
mót og starfsólk fær þá nýja bún-
inga. Torfan er opin kl. 10—23.30
alla daga og er matur framreiddur
til klukkan 23.
Það kom fram hjá Erni veitinga-
manni og Friðrik Sigurðssyni yfir-
kokki að það færi sífellt í vöxt að
íslendingar borðuðu úti og jafn-
framt gerðist landinn djarfari við að
reyna nýja rétti. í dag seldust vel
réttir, sem ekki hefði þýtt að bjóða
fyrir 10—15 árum. Kváðu þeir félag-
ar þetta mjög ánægjulega þróun.
Sögðu þeir að lokum að æ fleiri
gerðu sér grein fyrir því að í dag
væri ódýrt að fara út að borða á
íslandi.
florflMttblaOií
mm- Loi. km rnmmmmt
fa oií cl.ka.