Morgunblaðið - 13.12.1981, Síða 45

Morgunblaðið - 13.12.1981, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981 45 ráðherra var ekki veitt vín á veg- um ráðuneytisins. Með því vildi ég afsanna þá útbreiddu falskenn- ingu, að góðra vina fundur gaeti trauðla átt sér stað án áfengis. Enginn álasaði mér en margir þökk- uðu þessa nýbreytni. Fyrir nokkru var talið, að ferm- ingarveislur væru teknar að snú- ast upp í drykkjusamkvæmi. Með samstilltu átaki var horfið frá þeirri óheillaþróun. — Enginn harmar það. Og þá kem ég aftur að jólunum. Þau eru fæðingarhátíð frelsarans, sem boðaði umfram allt kærleika og bróðurþel og umhyggju fyrir öðr um. Og jólin hafa orðið hátíð barn- anna. Með þetta í huga verður valið einfalt: Það á ekki að auka vín- drykkju á jólum heldur minnka hana. Og það á ekki að innleiða erlenda drykkjusiði á jólum. — Fátt samrýmist þeirri hátíð verr en áfengisneysla fjölskyldunnar. Gildir það jafnt hvort litið er á stöðu barns í hópi ölvaðra, ung- mennis sem er að hefja sína áfengisdrykkju, og enginn veit hvernig reiðir af síðar á ævinni, ellegar aðstöðu þeirra sem ekki hafa lengur vald á áfengisneyslu sinni. Þetta bið ég menn að hugleiða í tómi. — og Það var nú erindi mitt með þessum pistli. Við getum talsvert bætt fyrir hugsanleg mis- tök í hinu flókna vali jólagjafa og jólamatar, og í því hvernig við verjum okkar frjálsa tíma um há- tíðirnar, með því að haga hinu ein- falda vali skynsamlega og halda áfengislausa jólahátíð. Fjögur skip seldu erlendis í gær FJÖGUR íslenzk fiskiskip seldu afla í Englandi og Þýzkalandi í gær, þrjú skipanna seldu í Englandi og eitt f Þýzkalandi. Ólafur Ingi KE seldi 61,5 smá- lestir í Hull fyrir 575.200 kr. og var meðalverð á kíló kr. 9,36. Arnar ÁR seldi síðan 54,7 smálestir í Grimsby fyrir 510.800 kr. og var meðalverð á kíló kr. 9,34. Þá seldi Rifsnes SH einnig í Grimsby 78,1 smálest fyrir 822.600 kr. og meðal- verð og meðalverð á kíló var kr. 10,53. Skarðsvík SH seldi síðan 90,7 smálestir í Bremerhaven fyrir 712.600 . kr. og var meðalverð á kíló kr. 7,86. af öndvegisverkum “ íslenskrar leikritunar — eru nú aftur fáanleg á hljómplötum 4 plötur Verö aöeins kr. 390 Islandsklukkan eftir Halldór Kiljan Laxness Leikstjóri: Lárus Pálsson Á þessum upptökum af verkum tveggja af höfuöskáldum íslenskrar tungu koma fram margir af vinsælustu leikurum þjóöarinnar fyrr og síöar. Meö þessum hljómplötum fylgja vandaöir bæklingar meö upplýsingum um verkin, leikstjóra, leikara og höfundana. Einnig eru upplýsíngar á ensku. Heildsölubirgdir fyrirlíggjandi Verk þessi eru fáanleg í hljómplötuverslunum um land allt FALKINN Suöurlandsbraut 8 — sími 84670. Laugavegi 24 — símf 18670. Austurvari — aími 33360. M.C. Andersen Bráðskemmtilegt söngsevintýrí í útfærslu Gyjfa Ægis- sonar. Þetta er önnur híjóöiplata hans í eevintýraflokknum. í fyrra kóm út „Söngævintýrið“ með ævíntýrunum um Hauðhettu og Hans & Gétu sem gerði stormandi lukku hjá yngri kynslóðínni, Nú eru ELHFÆRIN komin á markað, og ekki mínnkar spennan. Flytjendur eru m.a. Gylfi Ægisson, Hermann Gunnarsson, Ingibjörg Björnsdóttir, Júlíus Brjánsson, Rúnar Júlíusson og Þórir BaldutS3on. Gefíð eftírmínnílega gjöf. Hreint ævintýri, Fæst í öllum híjómpiötuverslunum. l{aufa™&Llans'*G Dreifing Ótgefandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.