Morgunblaðið - 13.12.1981, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 13.12.1981, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981 47 nái yfirhöndinni á markaðnum, en í augnablikinu höldum við okkur á floti sökum meiri gæða. Þá leiðir svona óréttlæti af sér að við stöðn- um, náum ekki að vaxa. Annars virðist áhugi stjórn- valda á þessari framleiðslu að vaxa hægt og hægt. Hins vegar er fjármögnunin erfið fyrir hinn al- menna kaupanda og eftir því sem lánshlutfall Húsnæðismálastofn- unar lækkar, verður þetta erfið- ara. Það er mest fólk sem á íbúðir í annaðhvort raðhúsi eða góða íbúð í blokk, sem getur fjárfest í svona húsi, auk þess sem fram til þessa hefur verið mjög erfitt að fá lóðir undir einbýlishús," segir Guðmundur. Iðnaðarmenn héldu að þeir töpuðu vinnunni Snorri Halldórsson í Húsa- smiðjunni er sá maður hérlendis, sem mesta reynslu hefur í bygg- ingu einingahúsa. Á árinu 1945 hófst hann handa við að undirbúa framleiðslu þeirra. „Ég fylgdist með uppsetningu sænsku húsanna en um þau stóð mikið þvarg á sínum tíma,“ segir Snorri. „Á þessu árum var það illa séð, ekki síst á Reykjavíkursvæð- inu, ef brugðið var út af hinum hefðbundnu byggingarmáta, hvað þá ef húsin voru unnin hér heima. Bæði var, að iðnaðarmenn héldu að þeir myndu tapa vinnunni, ef um einingahús væri að ræða, allt átti að vinna á staðnum og borgar- yfirvöld höfðu enga trú á þessum húsum. Svo var það í Heklugosinu 1947, að aftur var rætt um þessa framleiðsiu, þar sem búist var við að einhverjir á gossvæðinu þyrftu að yfirgefa hús sín. Var mér falinn undirbúningur að fjöldafram- leiðslu húsa, sem reyndar ekkert varð úr og ég vil sem minnst um tala. Það tók síðan góð 10 ár að koma þessum málum á skrið aft- ur, en þó smíðaði ég ávallt eitt og eitt einingahús, sérstaklega fyrir fólk í dreifbýlinu. Það hélt þessari framleiðslu minni uppi, og það er ekki fyrr en nú á allra síðustu ár- um að ég sel töluverðan fjölda húsa á Reykjavíkursvæðið. Þá var það líka í Vestmanna- eyjagosinu, að ráðist var í inn- flutning mikils fjölda eininga- húsa, en ekkert samband haft við okkur, sem gátum framleitt þessi hús hér heima. Eini munurinn á okkar húsum og þeim erlendu var sá að okkar eru betri. Það var kannski þessvegna sem ekki var haft samband við okkur." 1800 fermetra hús nú reist úr Barkareiningum Fyrir nokkru hóf fyrirtækið Börkur hf. í Hafnarfirði fram- leiðslu á einingum, úr polýureþan, sem klætt er annaðhvort með stáli, vatnsklæddum krossviði eða hypolon-dúki. „Við ákváðum að fara út í þessa framleiðslu til að nýta okkur þá geysilegu möguleika, sem plast- einangrunin býður upp á,“ segir Runólfur Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Barkar, þegar rætt er við hann. Nú þegar hafa risið þó nokkur hús úr þessum einingum okkar. Má þar nefna hluta af húsi Ölgerðarinnar Egill Skallagríms- 3on og svo nýtt hús Fjarðarkaups í Hafnarfirði. Er það 1800 fermetr- ar að grunnfleti og eru bæði vegg- ir og þak úr einingum frá Berki. Það liðu aðeins tveir mánuðir frá því að byrjað var að grafa fyrir húsinu, þar til að það var orðið fokhelt, og var þá ekkert eftir að leggja í það, nema pípu- og raf- lagnir, enda koma okkar einingar fullmálaðar á staðinn. Þá má geta þess, að Vifilfell hf. er nú að hefja byggingu á húsi, sem byggt verður úr Barkareiningum," segir Runólf- ur. Það kom fram hjá Runólfi að forráðamenn atvinnufyrirtækja hafa mikinn áhuga á einingunum frá Berki og nú þegar er búið að semja um söiu á um 14 þús. fer- metrum af einingum. „Þessi byggingaraðferð er í flestum tilfellum ódýrari en aðrar aðferðir og miðað við sambæri- legan frágang miklu ódýrari eða 15—25%. Þá er það feikilegt atriði að geta lokið við byggingarnar á sem skemmstum tíma, því þá er hægt að ljúka þeim á áætluðu kostnaðarverði, sem annars er ekki hægt í svona verðbólguþjóð- félagi.“ Að sögn Runólfs þá er þessi að- ferð mjög hentug við byggingu á frysti- og kæligeymsium, þar sem ekkert efni á boðstólum er jafn gott til einangrunar og úreþan. Þá henta þessar einingar einnig mjög vel til bygginga fiskverkunarhúsa og gripahúsa. „Það er einnig mjög heppilegt að byggja íþróttahús úr svona ein- ingum, enda er það svo, að það er ekkert vit í hvað sveitafélögin úti um allt land þurfa að leggja í mik- inn kostnað við byggingu slíkra húsa. Þessi steinbákn, sem flest íþróttahús eru, kosta millj. kr. en með því að byggja þau úr tilbún- um einingum, væri hægt að minnka byggingakostnaðinn mik- ið,“ sagði Runólfur að síðustu. Guðmundur Sigurðsson fyrir framan einingahús frá Trésmiðju SG á Selfossi. Runólfur Halldórsson framkvæmdastjóri Barkar stendur hér við stafla af tilbúnum einingum frá Berki. HÉRER8ÓKIN HJARTA ER TROMP eftir Barböru Cartland Hin kornunga og fagra Cerissa er óskllgetln dóttlr fransks hertoga og enskrar hefðarmeyjar. Faólr hennar var teklnn af lifi i frönsku stjómarbyltlngunnl og Cerissa ótt- ast um líf sitt. Hún ákveður því að flýja til Englands. f Calais hittir hún dularfullan Englending, sem lofar að hjálpa henni, en þegar tll Englands kemur, gerast margir og óvæntir atburðir. — Bækur Bar- böru Cartland eru spennandl og hér hittir hún beint í hjartastað. DRAUMAMAÐURINN HENNAR eftir Theresu Charles Lindu dreymdl alltaf sama draum- inn, nótt eftir nótt, mánuð eftir mánuð. Draumurinn var orðinn hennl sem veruleiki og einnig mað- urinn í draumnum, sem hún var orðin bundin sterkum, ósýnilegum böndum. En svo kom Mark inn í lif hennar, honum giftist hún og með honum elgnaðlst hún yndlslegan dreng. Þegar stríðið brauzt út, flutti hún út i sveit með drenginn og fyrir tilviljun hafna þau i þorpinu, sem hún þekkti svo vel úr draumnum. Og þar hitti hún draumamanninn sinn, holdi klæddan... HULIN FORTÍÐ eftir Theresu Charles Ung stúlka missir minnið i loftárás á London, kynnist ungum flug- manni og giftist honum. Fortiðin er henni sem lokuð bók, en haltr- andi fótatak í stiganum fyllir hana óhugnanlegri skelflngu. Hún miss- ir mann sinn eftlr stutta sambúð og lltlu síöar veltir henni eftirför stórvaxinn maður, sem haltrandi styðst við hækjur. Hann ávarpar hana nafni, sem hún þekkir ekki, og hún stirönar upp af skelfingu, er i Ijós kemur, að þessum mannl er hún glft. — Og framhaldið er æsilega spennandi! VALD VILJANS eftir Sigge Stark Slf, dóttir Brunke óóalseiganda, var hrífandi fögur, en drambsöm, þrjósk og duttlungafull. Hún gaf karlmönnunum óspart undlr fót- inn, en veittist erfitt aö velja hinn eina rétta. Edward var ævintýramaöur, glæsl- mennl með dularfulla fortíð, einn hlnna nýríku, sem kunningjar Brunke forstjóra lltu nlður á. Hann var óvenju viljasterkur og trúði á vald vlljans. En Slf og Edward fundu bæði óþyrmilega fyrir því, þegar örlögln tóku í taumana. VALD VILJANS SICNE BJORNBERG Hættulegur leikur HÆTTULEGUR LEIKUR eftir Signe Björnberg f Bergvik fannst stúlkunum eltt- hvaö sérstakt vlð tunglskin ágúst- nóttanna. Þá var hver skógarstígur umsetinn af ástföngnu ungu fólki og hver bátskæna var notuð tll aö flytja rómantíska elskendur yfir merlaðan, spegilsléttan vatnsflöt- inn. Tunglskiniö og töfraáhrif þess hafðl sömu áhrif á þær allar þrjár. Elsu, dóttur dómarans, fröken Mörtu og litlu „herragarösstúlk- una*. Allar þráðu þær Bertelsen verkstjóra, — en hver með sinum sérstaka hætti. ÉG ELSKA ÞIG eftir Else-Marie Nohr Eva Ekman var ung og falleg, en upprunl hennar var vægast sagt dularfullur. Ekki var vltað um for- eldra hennar, fæðingarstað eða fæðingardag. Óljósar minnlngar um mann, Ijóshærðan, bláeygan, háan og spengilegan, blunda i und- irvltund hennar. Þennan mann tel- ur hún hugsanlega vera föður slnn. Alíka óljósar eru minnlngarnar um móðurlna. Þegar Eva fær heimsókn af ung- um, geðþekkum mannl, sem býðst til að aöstoða hana viö leltina aö móöur hennar, fer hún með honum til Austurríkls. Hún velt hins vegar ekkl, að með þessari ferð stofnar hún lífi sínu i bráða hættu. SKUGGSJÁ BÓKABÚO OUVERS STEINS SF mmi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.