Morgunblaðið - 19.12.1981, Page 1
64 SÍÐUR
279. tbl. 68. árg. LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„Gestapo, Gestapo — þannig er
kommúnisminn í framkvæmd“
— hrópaði fólk á götum Varsjár að hermönnunum — Vaxandi andstaða og víðtæk verkfóll
18. deNember. AP.
„GESTAPO, Gestapo" og „þannig er kommúnisminn í fram-
kvæmd“ hrópaði fólkið, einkum ungmenni, til hermannanna, sem
beittu táragasi og kylfum gegn mótmælendum á götum Varsjár í
gær. Fréttir fara nú af vaxandi andstöðu í landinu og er sagt, að
víðtæk verkföll séu í kolanámahéruðunum. Afstaða kaþólsku kirkj-
unnar fer harðnandi og krefst hún þess, að Lech Walesa verði látinn
laus en talið er, að hann sé nú í fangelsi fyrir utan Varsjá.
Pólskir hermenn á verði á götu í Gdansk. Myndin var tekin sl. mánudag, á öðrum degi eftir að pólski
kommúnistaflokkurinn beitti fyrir sig hernum til að kveða niður vonir landsmanna um frelsi og mannréttindi í
landinu. AP-s(m»mynd.
Reagan hegnir
fsraelsstjórn
U ashington. 18. desember. AP.
Lögreglumenn og hermenn beittu'
táragasi og kylfum gegn miklum
fólksfjölda, einkum ungmennum,
sem safnast hafði saman fyrir utan
Kirkju hins heilaga kross. Fólkið
hrópaði „Gestapo, Gestapo" og
„þannig er kommúnisminn í fram-
kvæmd" að hermönnunum, sem
réðust þá á fólkið. Margir leituðu
inn í kirkjuna en þeir voru dregnir
út og barðir á tröppunum. Annar
hópur fólks fór eftir aðalgötu
Varsjárborgar, söng þjóðsönginn og
hrópaði „Pólland, Pólland" en
óeirðalögreglan lét fljótt til skarar
skríða gegn honum. Margt manna
safnaðist einnig saman á Sigurtorg-
inu í Varsjá þar sem er minnis-
merki um Stefan Wysynski kardin-
ála en þar voru fyrir þúsundir her-
manna, sem beindu byssum að fólk-
inu.
Fréttir eru um víðtæk verkföll í
kolanámahéruðum Póllands og er
Kosningabanda-
lagið hlyti helm-
ing atkvæða
lx>ndon, 18. desomber AP.
KOSNINGABANDALAG jafnað-
armannaflokksins nýja, sem stofn-
aður var fyrir níu mánuðum, og
Frjálslynda flokksins nýtur nú
stuðnings helmings bresku þjóðar
innar segja niðurstöður skoðana-
könnunar, sem birt var í Bretlandi í
dag.
Skoðanakönnunin var gerð á
vegum Gallup-stofnunarinnar og
þar kemur fram, að jafnaðarmenn
hafa tvöfaldað fylgi sitt frá því i
september en Ihaldsflokkur og
Verkamannaflokkur hafa hins
vegar minna fylgi en nokkru sinni
frá lokum síðari heimsstyrjaldar.
í könnuninni voru kjósendur
spurðir um afstöðu sína til flokk-
anna. 36% kváðust mundu styðja
jafnaðarmenn, 14,5% frjálslynda,
23,5% Verkamannaflokkinn og
23% íhaldsmenn.
sagt, að námamenn hafist víða við
niðri í námunum og séu reiðubúnir
að veita viðnám ef á þá verði ráðist.
Námurnar eru umkringdar her-
mönnum en talið er að þeir þori
ekki að ráðast til atlögu af ótta við,
að námamennirnir fylli þá námurn-
ar vatni. Heimildir innan Samstöðu
segja frá verkföllum í öllum héruð-
um Póllands og eftir ferðamanni,
sem kom til Belgtu í dag, er haft, að
30 verkamenn hafi verið drepnir
þegar herinn gerði árás á verk-
smiðju í Wroclaw í Suður-Póllandi.
Annar ferðamaður sagði, að sums
staðar hefði fólk þann hátt á að
mæta til vinnu stundvíslega en
sitja auðum höndum allan daginn
þar til vinnutíma lyki.
Afstaða kaþólsku kirkjunnar fer
nú harðnandi. Yfirmenn hennar
krefjast þess, að Lech Walesa verði
látinn laus og ef ekki verði að því
gengið muni prestar hennar hefja
beinan áróður gegn stjórnvöldum
úr ræðustólum kirknanna. Frönsk
fréttastofa flutti þær fréttir í dag,
að Walesa væri í fangelsi fyrir utan
Varsjá og var sagt, að hann hefði
neitað að eiga samstarf við stjórn-
völd en farið fram á fund með Jozef
Glemp, yfirmanni kirkjunnar.
Norska útvarpið skýrði frá því í
dag, að 40.000 starfsmenn Sam-
stöðu væru nú flestir í fangelsi en
hins vegar hefðu þeir verið búnir að
koma undan prentvélum og öðrum
búnaði af ótta við að til þeirra tíð-
inda drægi, sem nú hafa orðið.
Viðbrögð vestrænna ríkja við at-
burðunum í Póllandi fara harðn-
andi með degi hverjum. Vestur-
þýska þingið samþykkti í dag ein-
róma að hætta efnahagslegum
stuðningi við pólsk stjórnvöld þar
til herlögum hefði verið aflýst og
verkamenn leystir úr haldi og í dag
sagði Reagan Bandaríkjaforseti, að
það væri barnaskapur að halda, að
Sovétmenn hefðu ekki ráðið mestu
um ofbeldið, sem pólska þjóðin væri
nú beitt. Bandaríkjamenn hafa
einnig ákveðið að hætta allri aðstoð
við Pólverja á meðan núverandi
ástand ríkir.
KONALI) KKAGAN forseti ákvað í
dag að hætta við að hrinda í fram-
kvæmd samningnum við (srael um
hernaðar- og hergagnasamvinnu og
frestaði samkomulagi í tengslum við
þann samning, um nokkra aðstoð við
landið, í hefndarskyni við einhliða
innlimun Golan-hæða í tsraelsríki.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins, Dean Fischer, skýrði frá
ákvörðuninni og sagði að ráðstöfun
ísraelsmanna hefði valdið Banda-
ríkjastjórn alvarlegum vonbrigð-
um, þar sem hún hefði verið gerð
þegar stjórnmálakreppan í Pól-
landi stóð sem hæst og án þess að
banadaríska stjórnin hefði fyrir-
fram verið látin vita.
Fischer sagði að samkvæmt anda
hernaðarsamvinnusamningsins
bæri hvorum aðila um sig að hafa
hliðsjón af málum sem snertu
heildarstefnu hins aðilans í
ákvörðunum sínum. „Okkur finnst
ekki að staðið hafi verið við anda
samningsins með ákvörðun ísraels
um Golan-hæðir," sagði hann.
Akvörðun Reagans fylgir í kjöl-
far þess að Öryggisráðið samþykkti
einróma að innlimun Golan-hæða í
Israel væri „dauð og ómerk".
Bandaríkjamenn greiddu ályktun-
inni atkvæði.
Hershöfðinginn fangi Rauðu herdeildanna
James L. Dozier hershöfðingi.
Verona, 18. desember. AP.
ÍTÖI.SKl' hryðjuverkasamtökin
Kauðu herdeildirnar kváðust í dag
hafa bandaríska hershöfðingjann
James L. Dozier í haldi í „fangelsi
fólksins" og að hann biði þess að
verða dreginn fyrir „dómstól al-
þýðunnar“. Lögreglan leggur trún-
að á þessar yfirlýsingar og fer nú
fram mikil leit að hershöfðingjan-
um um alla Norðurítaliu.
Hringt var í dag til Ansa-
fréttastofunnar í Verona og
sagði sá, sem hringdi, að hers-
höfðinginn væri í haldi hjá
Rauðu herdeildunum og að sér-
stök tilkynning yrði send um
það síðar. Lögreglan hefur kom-
ið fyrir vegartálmunum á
Norður-Ítalíu og víða gert hús-
leit. James L. Dozier er næst-
æðsti yfirmaður Bandaríkjahers
í Suður-Evrópu.
Mannránið fór þannig fram,
að fjórir menn, búnir sem pípu-
lagningamenn, ruddust inn á
heimili Doziers siðdegis í gær,
slógu hann með byssuskefti,
bundu og kefluðu konu hans og
flúðu síðan á braut með fangann
í flutningabíl. Einnig tóku þeir
með sér skjalabunka úr bóka-
safni Doziers.
Giovanni Spadolini, forsæt-
isráðherra Ítalíu, átti í gær
skyndifund með samráðherrum
sínum og yfirmönnum leyni-
þjónustunnar og í dag var efnt
til fundar í þjóðaröryggisráðinu.
Talsmaður forsætisráðherrans
sagði, að ítalska stjórnin hefði
nána samvinnu við Bandaríkja-
menn vegna þessa máls og að
allt væri gert til að hafa uppi á
mannræningjunum og Dozier
hershöfðingja.