Morgunblaðið - 19.12.1981, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981
25
veiddu og sýnir það vel öðlings-
lund hans.
I dag er Sigurður kvaddur
hinstu kveðju. Hann var mikil-
hæfur samræmingaraðili í mikl-
um umsvifum þeirra bræðra.
Ljúfmennska hans, fjölhæfni og
ósérhlífni til allra starfa naut sín
til fulls í þessu samstarfi. Mér er
hann og minnisstæður vegna nær-
færni hans og skilnings á dýrum.
Sérstaklega minnist ég sem ungl-
ingur samstarfs hans við Kiddu
systur sína um sauðburðinn, þá er
vaka varð yfir ánum.
Sigurður var lífsglaður maður
að eðlisfari og hvellur hlátur hans
var innilegur og skar sig oft úr í
góðra vina hópi. Gæfuna reyna
menn að smíða sér hver með sín-
um hætti eftir því sem lífið býður
þeim og þeir fá sjálfir um ráðið.
Sigurður fyllti út í sinn lífsramma
með einstökum mannkostum og
manngæsku, sem fáir munu eftir
honum leika.
Nú þegar Sigurður frændi minn
er allur sakna ég vinar í stað.
Hann skilaði miklu og góðu dags-
verki sem kunnugir kunna að
meta. Skarðið sem hann skilur
eftir sig í fjölskyldunni er vand-
fyllt, en illa þekki ég yngra fólkið
á bænum, ef það heldur ekki
merkinu uppi með forystu Ög-
mundar, sem nú er einn eftir
þeirra bræðra.
Sigurður kvæntist eftirlifandi
konu sinni Hólmfríði Þórðardótt-
ur frá Tannastöðum í Ölfusi árið
1949. Þau eignuðust 6 börn: Þórð,
Hannes, Jens, Árúnu Kristínu,
Margréti og dreng er þau misstu
skömmu eftir fæðingu.
Ég og fjölskylda mín sendum
þeim og öðrum aðstandendum
innilegar samúðarkveðjur.
Hannes Þ. Sigurðsson
veldur öll systkini sín. Ég veit
minnst um þau kjör sem fjölskyld-
an bjó við, en þau hafa sennilega
verið síst verri en almennt gerðist
á þeim tíma. Svo kom vorið 1914.
Þá drukknaði Teitur ásamt tveim-
ur nánast uppkomnum börnum
sínum, þeim Þórunni og Jóni á
Borgarfirði. Svona slys hafa að
sjálfsögðu ekki aðeins mikil áhrif
á afkomuna, heldur líka á alla
hugsun og allt líf þeirra sem eftir
stóðu. Inga lýsti þessum degi oft
fyrir mér. En þau sem eftir stóðu
létu ekki bugast enda var Oddný
mikil dugnaðarkona. Maður Ing-
veldar varð Jónas Kristjánsson
síðar kaupmaður í Borgarnesi.
Jónas féll frá árið 1964. Þau
bjuggu alla tíð í Borgarnesi og
eignuðust tvö börn, Teit og Krist-
ínu og nú eru bæði komin barna-
og barnabarnabörn.
Ég kynntist Ingu ungur, svo
ungur að ég man ekki annað en áð
ég hafi þekkt hana, enda afasystir
mín og við bjuggum lengi í sama
húsi. Því er ekki að neita að oft
kom upp misskilningur alls konar
milli okkar krakkanna og hennar,
þar sem helsta leiksvæði okkar
var jafnframt gróðurreitur henn-
ar. Okkur gekk fremur illa að
skilja þennan áhuga á trjám og
blómum. En slíkt breytist og ég er
alveg viss um að ef ég einhvern
tíma eignast gróðurreit, sem ég
hef ræktað, munu krakkaleikir
líka valda mér áhyggjum. Eftir að
þessum leikjum lauk urðu sam-
skiptin önnur. Stundum var spil-
að, Inga hafði gaman af slíku og
ég líka eða bara spjallað yfir
kaffibolla. Inga var nokkur ár bú-
in að vera elst þeirra sem fæddir
eru í Borgarnesi og búið hafa þar
alla tíð. Hún var hafsjór af fróð-
leik um Borgarnes og Borgnesinga
fyrri ára, enda bilaði minnið aldr-
ei. Mér þykir verst að hafa ekki
meðtekið meira af þessum fróð-
leik. Þetta er mitt umhverfi og
þess vegna jafnframt mín fortíð.
Inga varð mér æ sterkari brú til
þessarar fortíðar og ég var ansi
oft farinn að leita gagngert til
hennar eftir upplýsingum og fróð-
leik. Ég sakna þessa og einnig þess
að hún er ekki þarna lengur í
næsta húsi, en auðvitað er söknuð-
ur nánustu aðstandenda mun
meiri. Ég flyt þeim mínar bestu
samúðarkveðjur og þakka Ingu að
lokum allar góðar stundir og ára-
tuga langa hlýju í minn garð og
mínnar fjölskyldu.
Trausti Jónsson.
Myndarammar úr tré
Stærðir Verð
9 x 13 sm 29.50
18x24 sm 42.00
24 x 30 sm 59.50
Sendum ípóstkröfu. Pöntunarsími 13135
EYMUNDSSON
Austurstræti 18
SAGA
HtJSAVÍKUR
1. BINDI
Aðalhöfundur og safnari
Karl Kristjánsson
Bókin er í köflum. Fyrsti kaflinn er mikil
ritgerö eftir Sæmund Rögnvaldsson og
heitir Húsavík fyrri tíma, meö undirfyrir-
sögninni: Verslun, brennisteinsnám og
kirkja. Er hér fjallað rækilega um efni sem
lítið hafa veriö rannsökuö fyrr.
Yfirleitt er mikil persónusaga í bókinni,
svo sem þættir af sveitarstjórnar- og bæj-
arstjórnarmönnum, læknum, prestum,
sýslumönnum og bæjarstjórum. Alllangir
þættir eru um Kaupfélag Þingeyinga og
um Fundafélag Húsvíkinga, merkilegt fé-
lag, sem átti á sínum tíma drjúgan hlut aö
framfaramálum kauptúnsins.
Bókin er prýdd miklum fjölda mynda af
fólki, mannvirkjum og staöháttum.
Almenna Bókafélagið,
Austurstræti 18, sími 25544.
Skemmuvegi 36, Kópavogi, sími 73055.
Eins og venjulega sendir Sögusafnið frá sér fyrir jólin
vinsælar skáldsögur. Þessar bækur eru komnar á mark-
aðinn:
Kamelíufrúin eftir Alexander Dumas í þýðingu Karls ís-
felds. Heimsfræg ástarsaga.
Kroppinbakur eftir Poul Féval. Bók sem alltaf er spurt
um.
Ást og drenglyndi eftir Hermann Lienhart. Hugljúf ástar-
saga.
Þræll arabahöfðingjans eftir Albert M. Treynor. Þetta er
ein af þeim gömlu sögum sem alltaf erspurt um og hefur
verið ófáanleg árum saman.
Glettni örlaganna eftir Marjorie Curtis í þýðingu Elín-
borgar Kristmundsdóttur. Viðburðarík og spennandi
nútímasaga.
Ævintýri Sherlock Holmes eftir A. Conan Doyle í heild-
útgáfu. 4. bindið er komið og fjallar um afrek þessa
fræga leynilögreglukappa.
Sögusafn heimilanna