Morgunblaðið - 19.12.1981, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981
31
r,
• Sigmar Þröstur markvörður er nú valinn í fyrsta sinn í karlalandsliðshóp-
inn í handknattleik. Sigmar hefur átt mjög góða leiki i marki að undanförnu.
Ljósm. Sijjurjjeir
Mengun sjávar áhyggjuefni siglingamanna
Næsta norræna þing hér á landi
8. ársþing Siglingasambands ís-
lands var haldið nýlega á Hótel Loft-
leiðum. Þingið sátu 27 fulltrúar frá 4
héraðssamböndum ásamt fulltrúa
ÍSÍ.
Aðalmál þingsins voru aukin
erlend samskipti. Fram kom að
fulltrúar SÍL sátu ársþing Nor-
ræna siglingasambandsins 17. og
18. október sl. í Osló. Samþykkt
var þar að haida næsta ársþing
Norræna siglingasambandsins í
Reykjavík næsta haust, en SÍL
hefur nú gerst fullgildur aðili að
hinum norrænu samtökum. Fram
kom í skýrslu forseta SÍL, Bjarna
Hannessonar, að starfsemi sam-
bandsins stendur með miklum
blóma. Alyktað var um mengun-
armál. Mengun sjávar í nálægð
þéttbýlisstaða er vaxandi
áhyggjuefni siglingamanna um
land allt. Ályktun þar að lútandi
hefur verið send viðkomandi
bæjarfélögum.
Að lokum fór fram stjórnarkjör.
Bjarni Hannesson var einróma
endurkjörinn forseti. Aðrir í
stjórn eru Ari Bergmann Einars-
son, varaforseti, Steinar Gunnars-
son, gjaldkeri, Ingi Ásmundsson,
erl. ritari, Erling Ásgeirsson, rit-
ari. Varamenn Páll Hreinsson,
Baldvin Einarsson og Sigurgeir
Einarsson.
Þess má að lokum geta, að sigl-
ingaklúbbarnir og Siglingasam-
band íslands munu í sameiningu
hafa „opið hús“ í Leifsbúð Hótel
Loftleiða þriðjudaginn 29. des-
ember nk. Dagskrá er ekki full-
mótuð en væntanlega verða um-
ræður um kynningu á siglinga-
íþróttinni út á við, kvikmyndasýn-
ing og umræða um framtíðarað-
stöðu siglingaklúbbanna í Reykja-
vík og nágrenni.
Samkoman er öllum opin og
hefst klukkan 20.
Annáll um íslenska
knattspyrnu gefinn út
Bókaforlagið Bókhlaðan gefur frá
sér þrjár íþróttabækur um þessi jól.
Allar fjalla þær um knattspyrnu. Þá
eru knattspyrnubækurnar sem Bók-
hlaðan hefur gefið út orðnar fimm.
Þær sem koma út þessi jól eru: Pele,
Saga Manchester United og íslensk
knattspyrna árið 1981. Áður hafa
komið bókin um Liverpool og Kevin
Keegan.
Bókin íslensk knattspyrna ’81,
er samantekt um allt það sem
skeði á árinu sem er að líða í
knattspyrnu hér á landi. Sigurður
4SLENSK
KNATTSPYRNA *81
.%ií)i»rv»gtirxmum »
isiv'MKísmótt og BíkcV'kepjíni
t ÖHutn Hirkkum
Sverrisson blaðamaður hefur tek-
ið efnið saman jafnframt því sem
hann annaðist uppsetningu bókar-
innar sem er hin eigulegasta fyrir
knattspyrnuunnendur. í bókinni
eru litmyndir af íslandsmeistur-
um í öllum aldursflokkum í
knattspyrnu á síðasta ári.
Formaður KSÍ skrifar formála í
bókina og segir þar meðal annars:
„Það hefur lengi verið draumur
knattspyrnuforystunnar að gefa
út bók, nokkurskonar annál hvers
árs um knattspyrnuna, leiki, úrslit
og helstu viðburði. Nú hefur
Bókhlaðan hf. ráðist í þetta verk-
efni og á þakkir skildar. Vonandi
getur þetta orðið árlegur viðburð-
ur í framtíðinni."
Saga Manchester United með
formála eftir Bobby Charlton er
þýdd af Sigurði Sverrissyni. Bók
þessi rekur sögu þekktasta
knattspyrnufélags Englands fyrr
og síðar. í bókinni er iíka greint
frá öllum frægustu leikmönnum
félagsins, George Best, Nobby
Stiles, Dennis Law og mörgum
fleirum. Bókin er prýdd mörgum
myndum.
Pele, líf mitt og knattspyrna, er
hin eigulegasta bók. Þar er fjallað
um frægasta knattspyrnumann
veraldar. Hvernig hann braust úr
fátækt til frægðar og frama.
Landsliðshópurínn gegn Dönum valinn:
Höfum aðeins unnió fimm
sigra á Dönum f landsleikjum
f handknattleik frá upphafi
MILLI jóla og nýárs fara fram þrír landsleikir í handknattleik við Dani hér á
landi. Fyrsti leikurinn er 27. des. í Laugardalshöll og hefst kl. 20.00. Daginn
eftir er leikið aftur á sama stað kl. 20.00, en þriðji leikurinn fer fram á
Akranesi kl. 19.00. í þeim þrjátíu og einum landsleik sem liðín hafa mæst,
hafa íslendingar aðeins unnið fimm sinnum en Danir tuttugu og fjórum
sinnum. Tvívegis hefur verið jafntefli.
Hilmar Björnsson hefur valið landsliðshópinn gegn Dönum og er hann
skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir: Kristján Sig-
mundsson Víking, Einar Þor-
varðarson HK, Sigmar Þröstur
Óskarsson Þór.
Aðrir leikmenn: Guðmundur
Guðmundsson Víking, Ólafur
Jónsson Víking, Þorbergur Aðal-
steinsson Víking, Sigurður Gunn-
arsson Víking, Haukur Geir-
mundsson KR, Alfreð Gíslason
KR, Þorgils Óttar Mathiesen FH,
Kristján Arason FH, Sigurður
Sveinsson Þrótti, Páll Ólafsson
Þrótti, Þorbjörn Jensson Val,
Steindór Gunnarsson Val, Bjarni
Guðmundsson Nettelsted, Gunnar
Gíslason KR.
Tveir nýliðar eru í landsliðs-
hópnum að þessu sinni, þeir Sig-
mar Þröstur Óskarsson mark-
vörður og Gunnar Gíslason. En
báðir þessir leikmenn stóðu sig
mjög vel á nýafstöðnu handknatt-
leiksmóti í Portúgal.
Á blaðamannafundi sem HSÍ
boðaði til í fyrradag þar sem
Hilmar Björnsson tilkynnti lands-
liðshópinn var hann spurður að
því af hverju Viggó Sigurðsson
sem leikur með Leverkusen væri
ekki valinn í hópinn og hvort hann
kæmi ekki til greina. Hilmar sagði
„Samskipti mín við Viggó hafa
ekki verið þess eðlis að, ég velji
hann í landsliðshópinn. Hann hef-
ur ekki komið hreint til dyranna.
Þá skapar hann líka óróa í hópn-
um.“ Ekki vildi Hilmar ræða það
nánar hvað hann ætti við með því
að Viggó skapaði óróa meðal
landsliðsmannanna. Það verður
því aðeins einn leikmaður sem
ieikur erlendis, Bjarni Guð-
mundsson sem leikur með Nett-
elsted, með í landsliðshópnum að
þessu sinni. Hilmar sagði á blaða-
mannafundinum að hann væri að
stefna að því að byggja upp sam-
heldinn og sterkan landsliðs-
kjarna með því að velja mikið til
sömu leikmennina og verið hafa í
liðinu að undanförnu-. En samt
sem áður væri hópurinn mjög
opinn ef einhver leikmaður sýndi í
þeim leikjum sem framundan eru í
1. deild að hann ætti heima þar.
Danir eru með sterkt lið um
þessar mundir. Þeir eru að undir-
búa sig af miklum krafti undir
HM-keppnina í handknattleik sem
fram fer í Vestur-Þýskalandi í
febrúar. Það má því búast við
hörkuleikjum í handknattleik á
milli liðanna er þau mætast.
— ÞR.
í TILEFNI
FLUTNINGANNA í SKIPHOLT 7
BJÓÐUM VIÐ
LLR?
Skipholti 7 símar 20080 — 26800
1.150
VERÐ SEM EKKI VERÐUR
ENDURTEKIÐ