Morgunblaðið - 21.02.1982, Page 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRUAR 1982
„Trúið á ljósið, til þess að
þér verðið ljóssins synir“
Við skulum biðja.
Drottinn, þú lífsins og ljóssins
Guð, ver með okkur í dag og alla
daga. Blessa þessa stund í húsi
þínu og vegferð okkar alla. Gef
okkur þá yfirvegun hugans og
þann frið, sem öllum mönnum er
vissulega eðlilegt að þrá, en hjart-
að eitt skilur.
— Amen —
Ihugunarorð mín eru tekin úr
þriðja guðspjalli þessa Drottins-
dags, sem er hinn annar í níu
vikna föstu, úr 12. kafla Jóhannes-
arguðspjalls og hljóðar þannig í
Jesú nafni:
„Þá sagði Jesús við þá: Stutta
stund er Ijósið enn á meðal yðar.
Gangið meðan þér hafið ljósið, til
þess að myrkrið komi ekki yfir yð-
ur. Og sá sem gengur í myrkrinu,
veit ekki hvert hann fer. Meðan
þér hafið Ijósið, þá trúið á ljósið,
til þess að þér verðið ljóssins syn-
ir. Þetta talaði Jesús og fór burt
og fól sig fyrir þeim.“
„Meðan þér hafið ljósið, þá trúið
á Ijósið," segir í texta þessa dags.
Ilvenær öðlumst við Ijósið eða undir
hvaða kringumstæðum? Kr mismun-
ur forms og raunveru í því efni?
Ég hygg, að seinni spurningunni
megi svara bæði játandi og neit-
andi, þ.e.a.s., að auðvitað sé formið
eitt tóm skurn og næsta brothætt,
en hinsvegar búi raunveran í
sjálfu forminu, sé vel að gáð, og
einstaklingurinn þekki a.m.k. til
nokkurrar hlítar sitt eigið sjálf og
rætur eða upphaf þess sjálfs.
Fyrri spurninguna er vert að
skoða nokkuð frekar. Tilvikin eru
vafalaust mörg og kringumstæð-
urnar misjafnar. Okkur er það þó
eðlilegt, íbúum þessara norðlægu
slóða, að skynja fegurð ljóssins
hvað best, þegar það er fjærst
okkur í skammdeginu og njóta
þessarar fegurðar því betur sem
ferskari er minningin um nýliðið
skammdegi.
I þessu gæti þó falist sú ályktun,
að það þurfi einhvers konar sál-
arneyð myrkursins, í beinum eða
óbeinum skilningi, og ferska eða
sísára minningu um þessa neyð til
að við hugleiðum, munum eða
skiljum þýðingu ljóssins í skiln-
ingi texta þessa dags, að við finn-
um návist Drottins og handleiðslu.
Hér sýnist næsta lítil ástæða vera
til fullyrðinga, en nærtæk eru
dæmi, og ég hygg mörgum kunn,
af huggun endurnýjaðrar barna-
trúar eða alnýrrar trúarreynslu
syrgjenda, sem náttúruhamfarir
eða áföll þeim fylgjandi hafa lost-
ið. En samt er hér ekki vísað á
einskonar neyðarúrræði.
Það er stutt í tímanum, síðan
við, íbúar þessarar borgar, höfð-
um miklar náttúruhamfarir að
segja má inni í stofu hjá okkur, á
sjónvarpsskerminum, hamfarir
sem þó til þessa dags voru án ann-
ars tjóns en þess sem venjulegir
fjármunir fá bætt. Þá hljóp
Skaftá og Skeiðará byltist fram,
hvort tveggja af margföldu venju-
|egu magni og afli og hvort
tveggja algerlega handan venju-
legra mælieininga hins daglega
lífs. Síðan ummyndaðist bæjar-
lækur Reykvíkinga, Elliðaárnar,
og urðu á einum degi sem stór-
fljót, ógnandi og illúðlegt, en
kyrrðust síðan í sömu andrá, nán-
ast svo sem hendi væri veifað.
Hver urðu viðbrögð okkar?
Hurfu áhrifin í næstu frétt? Var
þetta aðeins sérkennilegt og síðan
liðið sjónarspil, næstum góð
skrýtla, vorleysing á miðjum
þorra, eða snart okkur mikilfeng-
leiki þessara hamfara náttúrunn-
ar? Fundum við ómæli þeirrar
getu sem að baki býr? Settumst
við e.t.v. niður og hugleiddum
kraft, rúm og tíma, mann, ævi og
eilífð? Hér svarar að sjálfsögðu
hver fyrir sig og á sitt eigið sálar-
uppgjör ef svo ber við. En engu að
síður ber okkur á ný að krossgöt-
um spurnarinnar.
Hvert samband, ef eitthvað, er á
milli guðstrúar og venjulegra
Kinar Birnir
Predikun
Einars
Birnis,
frkvstj. í
Dómkirkjunni
sl. sunnudag
náttúruhamfara, annað en óskin
og bænin um að þær sömu ham-
farir valdi ekki tjóni? Hve langt er
frá mildum sumardegi til miðs-
vetrarflóðs í einn stað og frá þess-
ari stundu — núinu — til eilífðar-
innar í hinn annan staðinn? Er
ekki stórflóð mikið aukið eða
mesta magn, og er ekki eilífðin
lengstur tími? „Stutta stund er
ljósið enn á meðal yðar,“ segir í
guðspjallinu. Er sú stund liðin eða
stendur hún kannski enn? Var
hún svona stutt aðeins með við-
miðun til hins lengsta tíma? Hér
sem oftar má gæta sín og reyna að
fara vel með margar merkingar
orða og setninga.
★
í fyrsta kafla Jóhannesarguð-
spjalls segir svo um Jóhannes
skírara: „Ekki var hann ljósið
heldur átti hann að vitna um ljós-
ið.“ — og síðan segir: „Hið sanna
ljós, sem upplýsir hvern mann,
var að koma í heiminn."
Hér kemur fram þessi merki-
lega yfirlýsing, að hið sanna ljós
var ekki komið í heiminn, heldur
var á leiðinni. Samt voru uppi og
höfðu verið uppi um langan aldur
menn, sem gátu vitnað um ljósið,
menn sem þekktu það og voru í
raun og sann ljósberar sjálfir,
menn hugleiðslu og víðsýni sinna
tíma og allra tíma.
Ætli við séum ekki komin æði
nærri skýringu hinnar marg-
flóknu spurnar? Getur ekki verið,
að svarið sé miklu einfaldara en
spurningarnar gefa til kynna?
Gömlu spekingarnir og lærimeist-
ararnir gáfu sér án efa tima til í
ró og gát að staldra við og íhuga
sitt eigið sjálf og umhverfi.
Hvaðan er yfirvegun og viska?
Hver stillti fram fegurðinni,
trúmennskunni og vináttunni? Og
hver lagði manninum kærleikann í
brjóst? Eru þetta ekki allt geislar
úr litrófi ljóssins? Og ef svo, er þá
mannshjartað, sem vissulega á í
upphafi, í bernsku hvers manns,
hlutdeild allra þessara eiginleika,
er það þá ekki móttökustöð ljóss-
ins og eiginleikarnir endurskin
þess?
Hvað köllum við annars guðs-
neistann í brjósti mannsins, ef
ekki endurskin hins sanna ljóss?
Tilheyrandi minn. Ég trúi því,
að svona einfalt sé svarið við þeim
margbreytilegu spurningum, sem
upp geta komið um raunveru hins
sanna ljóss og möguleika mann-
anna að eiga hlutdeild í því. Að
Guð sé „í alheims geimi" og að
Guð sé „í sjálfum þér“, eins og
Steingrímur Thorsteinsson komst
að orði, enda skiljast þá á ný
kveðjuorð Jesú við lærisveina sína
í síðustu setningu Mattheusar-
guðspjalls, og marka lengd stund-
arinnar eða samverunnar: „Sjá, ég
er með yður alla daga allt til enda
veraldarinnar."
★
Rétt er að muna hér, að nú er
ljóst, að endurnýjun trúar eða trú-
arstyrks í sorg eða nauð er ekki
neyðarúrræði. Þvert á móti er það
styrkleikamerki, í raun og sann
endurnýjun loga guðsneistans eða
skerping lita í litrófi trúarvitund-
arinnar. Hitt er svo annað mál, að
jafneinfalt og svarið reyndist með
allri sinni lífsfylling og marg-
breytilegu áhrifum, vaknar æ
oftar með manni sá grunur, að hið
stöðuga og háværa áreiti nútíma-
tækniþjóðfélags gefi manninum
sífellt færri tækifæri að njóta
fyrirheitanna sem í svarinu búa.
Það gefi æ færri tækifæri til að
setjast niður og íhuga rök tilver-
unnar, til þess rétt sem að skyggn-
ast í eigin barm og síðan en ekki
síst til þess að eiga kyrra stund
með Drottni sínum og Guði eða
með orðalagi texta þessa dags, til
þess að leita á fund ljóssins.
Mér er enda satt að segja til efs,
að stórmerki sem fréttir af nátt-
úruhamförum eða upplifun nátt-
úrufegurðar nái að stöðva okkur
af. Hvenær gefum við okkur tíma
til hljóðrar íhugunar? Förum við
t.d. í stuttar eða langar ferðir án
ferðabæna í einu eða öðru formi?
Tökum við nýju starfi án þess svo
mikið sem að tala til Drottins, að
ekki sé minnst á bæn um styrk og
handleiðslu, svo dæmi séu tekin úr
daglegu lífi? Hér svari að sjálf-
sögðu hver fyrir sig og eigi þau
svör við sig einan og Guð sinn. En
hlýtur ekki fyrsta skrefið í göng-
unni út úr myrkrinu að vera að
gefa sér tíma til að hlusta eftir
rödd hjartans og tíma til að leita á
vit ljóssins?
„Gangið á meðan þér hafið ljós-
ið til þess að myrkrið komi ekki
yfir yður.“
„Meðan þér hafið ljósið þá trúið
á ljósið til þess að þér verðið ljóss-
ins börn.“
Dýrð sé Guði föður, syni og heil-
ögum anda um aldir alda.
— Amen —
GRIKKLAND
AÞENUSTRENDUR
LANDIÐ HELGA
OG EGYPTALAND
15—22 daga ferðir, flogið alla þriðju-
daga í sumar
Heillandi land sögu og söngva, lands-
lagsfegurðar og baöstranda. Búiö á
glæsilegum hótelum og íbúðum á eftir-
sóftustu baðstrandarbæjunum við
Aþenustrendur, skammt frá Aþenuborg,
sem býöur upp á ótal margt, sem heillar
feröafólk. Fjölbreyttar skemmti- og
skoðunarferöir með íslenskum farar-
stjóra til heillandi sögustaða.
22 dagar, broltför 8. júní og 5. októbor
Ovenjulegt tækifæri til þess að heimsækja þess
tvö sögufrægu lönd og njóta náttúrufeguröar oj
veðursældar viö sagnalindir, þar sem sagan tala
til fólks Dvalið í Jerúsalem og heimsóttir allii
helstu sögustaöir Biblíunnar i landinu helga. Farif
yfir Sinaieyöimörk og Súezskurö frá israel til Kairc
i Egyptalandi Skoöaöar gull og gersemar úr gröf
um Faróanna, pýramidarnir miklu og siglt um Nii
Viöburóarríkar feröir. sem aldrei gleymast Búi<
á góöum hótelum, morgunmatur og hádegismatui
innifalinn alla feröina á enda.
Fhigferöir
Airtourícéfaijct
Adalstræti 9. Miðbæjarmarkaönum 2. hæó
Simar 10661 og 15331.
ÆVINTÝRAFERÐ
TIL BRASILÍU
Brottför 22. apríl, 20 dagtr
Vegna fjölda áskorana þeirra sem ekki komust
meö i Brasilíuferöina okkar, 20. febrúar, veröur
efnt til annarrar ævintýraferöar til Suöur-Ameríku
22. apríl. Flogiö meö Boeing 747 risaþotu til Rio de
Janeiro, sem af mörgum er talin fegursta borg í
heimi. Búiö á glæsilegum hótelum á hinni heims-
fraagu Copacabana baöströnd. Fjölbreyttar
skemmti- og skoöunarferöir. meöan dvaliö er í
Brasiliu. Fariö til höfi öborgarinnar Brasilía, sem
talin er eitt af furöuverkum veraldar. Komiö til
Igacu fossanna, mestu vatnsfalla í veröldinni. Hægt
aö heimsækja fornar byggöir íslensku Brasilíufar-
anna i Curitiba. Fáriö i svifbrautum upp á „Krists-
fjalliö“ og horft viö sólsetur yfir fegursta borgar-
stæöi i heimi. Siglt um Rio-flóann og dvaliö á
„Paradísareyjum“. Þaö er því miöur ekki pláss til
aö telja hér fleira sem býöur Brasiliufaranna. Slik
ferö er ævintýri, sem ekki er hægt aö lýsa i oröum.
— Og veröiö, er hreint ótrúlegt. Þér spariö um
20.000 krónur miöaö viö þaö aó kaupa venjulega
flugfarseöla og greiöa gistingu á hinum glæsilegu
hótelum á einstaklingsveröi.
LAXVEIÐIFERÐ TIL
SUÐUR-ARGENTÍNU
Brottför 28. mar», 17. dagar (oöa 24 dagar maö
vióbótardvöl í Rio)
Þetta er sannkölluö ævintýraferö stangaveiöi-
manna. Flogiö meö risaþotu Boeing 747 til Buenos
Aires og þaöan til Suöur-Argentinu þar sem dvaliö
veröur viö laxveiöar viö fögur fjallavötn og veiöi-
legar bergvatnsár. Þarna er góö laxveiöi, (At-
lantshafslax af sama stofni og sá islenski) og risa-
stór og baráttuglaöur urriöi sem algengt er aö sé
10—15 kg kominn á land eftir mikil átök. Dvaliö
veröur i 10 daga viö laxveiöar i þessu undurfagra
fjallalandslagi, og veiöar stundaöar i 15 bergvatns-
ám og 30 silfurtærum stööuvötnum. Siöan er dval-
iö nokkra daga í hinni undurfögru höfuborg Arg-
entinu, Buenos Aires, „París Suöur-Ameriku“ og
loks er hægt aö framlengja dvölina á baöströnd
Copacabana i Rio de Janeiro, og kynnast Rio og
lifinu þar — Og hvaö kostar svo þetta ævintýri. Jú
jafnmikiö og veiöileyfi í fimm daga í dýrustu lax-
veiöiánum á Islandi.