Morgunblaðið - 21.02.1982, Síða 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982
Bilið brúað
í eftiavopnum
eftir Drew Middleton, sérfræðing The New York Times í hermálum
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna leggur nú höfuðáherslu á, að hafin verði
framleiðsla á efnavopnum til að svara Sovétmönnum á því sviði. Telur ráðu-
neytið framleiðslu á efnavopnum óhjákvæmilega, eigi með raunhæfum hætti
að bregðast við hernaðarútþenslu Sovétríkjanna á síðasta áratug.
Að sögn háttsetts embætt-
ismanns í Pentagon, aðsetri
varnarmálaráðuneytisins, munu
Bandaríkjamenn ekki grípa til
efnavopna að fyrra bragði, en
hann bætti við: „Hitt er óviðun-
andi, að við séum ekki færir um
að svara Sovétmönnum í sömu
mynt, grípi þeir til efnavopna."
Bæði Bandaríkjamenn og Sovét-
menn hafa undirritað alþjóða-
samning um bann við notkun
efna- og sýklavopna.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið stefnir að því, að komið
verði upp hæfilegum birgðum af
binary-gasi, sem ekki er hættu-
legt, fyrr en því hefur verið
komið fyrir í kúlu eða sprengju.
Þá verður lögð meiri áhersla en
áður á að þjálfa hermenn til að
berjast í efnahernaði, þeir fá
verndarklæði og fjarskipti verða
æfð við slíkar aðstæður. Emb-
ættismaðurinn í Pentagon sagði,
að efnavopn Bandaríkjanna
yrðu geymd þar í landi en ekki
erlendis.
Embættismaðurinn fullyrti,
að Sovétmenn hefðu beitt efna-
vopnum í Afganistan og Kamb-
ódíu. Sérfræðingar leyniþjón-
ustunnar segja, að Sovétmenn
hafi sérþjálfað 60 þúsund
manna lið til efnahernaðar, og
geti liðið beitt ólíkum eiturefn-
um, auk þess ráði sérhver sovésk
herdeild í Mið-Evrópu yfir
flóknum búnaði til að verjast
áhrifum eiturgass.
Hinn háttsetti starfsmaður í
Pentagon sagði, að umræður um
„notkun eiturgass skelfdu al-
menning, en það gæti verið talið
ódýrara og viðaminna að nota
eiturefni en beita kjarnorku-
vopnum, eitrið myndi auk þess
valda miklu minna tjóni utan
vígvallarins sjálfs". Við upphaf
síðari heimsstyrjaldarinnar
áttu bæði Bretar og Þjóðverjar
miklar birgðir af eiturgasi.
Hvorugir þeirra beittu því þó í
stríðinu af ótta við getu hins.
Sú fyrirætlan að brúa bilið
gagnvart Sovétríkjunum í efna-
hervæðingu er aðeins einn þátt-
urinn í marghliða áætlun
Bandaríkjastjórnar, sem miðar
að því að mynda jafnvægi í sam-
keppninni við Sovétmenn bæði í
venjulegum og kjarnorku-
vopnabúnaði. Sovétmenn verja
um 15% af þjóðarframleiðslu
sinni til hermála, að því starfs-
maðurinn í Pentagon telur.
Hann áleit, að það myndi taka
fimm til sex ár að koma aftur á
hernaðarjafnvægi og ríkisstjórn
Reagans „geti ekki stöðvað
núna“, eftir að hún hefur hafist
handa. Með því að verja nálægt
260 milljörðum dollara til her-
mála á fjárlögum fyrir 1983, tel-
ur ríkisstjórnin, að sér takist að
efla viðbúnað sinn í venjulegum
vopnum og kjarnorkuvopnum
nægilega mikið til að fæla hugs-
anlegan andstæðing frá árásar-
áformum sínum.
Embættismaðurinn taldi, að
við núverandi aðstæður gæti til
þess komið, að Bandaríkjamenn
yrðu þátttakendur í takmörkuð-
um hernaðarátökum í fjarlæg-
um heimshlutum, þar sem bar-
ist yrði með venjulegum vopn-
um, en hitt væri mjög fjarlægur
möguleiki, að slík átök breyttust
í kjarnorkustríð. Hann sagði, að
þessi möguleiki væri að breyta
viðhorfi manna í Pentagon, það
væri nú annað en á áttunda ára-
tugnum, þegar hæst bar spurn-
ingarnar „hvers vegna“ Banda-
ríkjamenn þyrftu ef til vill að
berjast og „þá með hvaða vopn-
um“. Nú legðu menn meiri
áherslu á svör við spurningunni
um „hvernig" takmarkað stríð
yrði háð og við hvaða aðstæður,
til dæmis í eyðimörkum Mið-
Austurlanda, frumskógum Afr-
íku og greniskógum Þýskalands.
„Gömlu hugmyndirnar um að
sérhver átök muni á örskömm-
um tíma breytast í strategísk
kjarnorkuátök eru ekki eins
hátt skrifaðar nú og fyrir 20 ár-
um,“ sagði hinn háttsetti við-
mælandi minn í Pentagon. Þess
í stað, sagði hann, verða menn
að búa sig undir takmörkuð
stríð og leggja meiri áherslu en
áður á gildi landhers og land-
gönguliðs í slíkum átökum. Og
hann bætti því við, að vegna
hernaðarstöðunnar á þessum
áratug yrðu Bandaríkjamenn að
krefjast meiri samvinnu af
bandamönnum sínum.
Japanir hafa samþykkt að
leggja meira fé af mörkum til
varnarmála. Sú ákvörðun sýnir,
að þeim stendur ekki á sama,
þegar litið er til útþenslu sov-
éska hersins umhverfis þá.
Starfsmaðurinn í Pentagon
spáði því, að það mundi gera
Bandaríkjamönnum kleift að
minnka eftirlit sitt og umsvif
Efniviðurinn í línuritið er feng-
inn frá bandaríska varnarmála-
ráðuneytinu og sýnir það fjár
festingu Sovétmanna í herbún-
aði í milljörðum dollara, lóð-
rétta línan sýnir fjárupphæðir en
hin lárétta ár.
Þeir mega hvorki fara né vera
Eftir Eövarð T.
Jónsson
Eftir nokkrar vikur, eða í síð-
asta lagi 21. mars nk., munu ír-
anskir þegnar fá í hendur per-
sónuskilríki, útgefin af yfirvöld-
um, sem þeir eiga að sýna þegar
keypL er matvara, eldsneyti fyrir
heimiii og bifreiðir, við innritun í
skóla, ráðningu í vinnu o.s.frv.
Þeir, sem ekki geta sýnt þessi
skilríki eftir 21. mars, munu verða
handteknir og leiddir fyrir dóm-
stóia og eiga yfir höfðu sér dauða-
refsingu. Það er yfirlýst og opin-
ber stefna klerkastjórnarinnar, að
allir íranskir þegnar fái þessi
skilríki nema þeir sem játa Bahá’i
trúna. Talið er að nú séu í íran
hátt á fjórða hundrað þúsund
Bahá’íar, en mikill fjöldi þeirra
hefur verið fangelsaður, horfið
sporiaust eða verið tekinn af lífi á
undanförnum árum og þúsundir
Bahá’ía hafa flúið land. Nú er þó
svo komið, að Bahá'íar geta ekki
farið frá íran nema þeir sýni vott-
orð upp á að þeir hafi gengið af
trú sinni og játast Isiam. Þeir
mega því hvorki fara né vera og
geta nú aðeins beðið þess að hinir
hempuklæddir böðlar, sem nú
stjórna landinu, taki til óspilltra
málanna við „endanlega lausn“ á
vandamáli Bahá’ía í Iran.
En í hverju er þá þetta vanda-
mál fólgið? Hver er glæpur þessa
fólks? Hversvegna telja íranskir
klerkar sér stafa slíka ógn af
Bahá’íum, að þeir séu „mahdour
ad-damm“ — þeir, hverra blóði
skal úthellt? Hafa þeir staðið í
hermdarverkum eða andspyrnu
gegn stjórnvöldum eins og Muja-
heddin-skæruliðarnir eða ógnað
öryggi þjóðarinnar á einhvern
hátt? Svarið er nei.
Sannleikurinn er sá, að Bahá’íar
í íran hafa í nærfellt eina og hálfa
öld verið friðsamasti og upplýsasti
þjóðfélagshópur í íran. Þrátt fyrir
stöðugar ofsóknir og harðræði og
samfellda kúgun í 140 ár, hafa
þeir byggt upp bestu sjúkrahúsin
og fremstu skólana í landinu.
Ólæsi er nánast óþekkt meðal
Bahá’ía og hlutfall háskólamennt-
aðs fólks er hærra þeirra á meðal
en annarra írana. Astæðan er sú,
að í Bahá’í-trúnni er öflun mennt-
unar slíkt grundvallaratriði, að
hún er hluti af trúariðkuninni
sjálfri. Meðal Bahá’ía hafa til
skamms verið hæfustu embætt-
ismenn og læknar írönsku þjóðar-
innar. Einn þeirra, dr. Manuchir
Hakim, heimskunnur sérfræðing-
ur á sviði líffærafræði, var skot-
inn til bana á skrifstofu sinni af
„byltingarvörðum" fyrir nokkrum
vikum, er hann neitaði að afhenda
þeim lista yfir Bahá’ía í lækna-
stétt.
Skynsamleg skýring á blindu
hatri klerkanna í garð Bahá’ía er
ekki auðfundin. Þó má ljóst vera,
að það ofurkapp sem þeir leggja á
að ganga á milli bols og höfuðs á
Bahá’í í samfélaginu kemur upp
um ótta, sem nær dýpra en svo að
útskýra megi hann sem einbera
umhyggju fyrir Islam. Klerkar í
íran hafa frá ómunatíð haft gíf-
urleg áhrif meðal þjóðarinnar og
notið ómældra forréttinda. Jafn-
vel keisararnir til forna beygðu
sig undir forræði og duttlunga
höfuðklerkanna. í Bahá’í-trúnni
er hinsvegar engin prestastétt,
engin „ritúöl" og engin veraldleg
forréttindi. Hin gífurlega út-
breiðsla, sem þessi trúarbrögð
náðu um miðbik síðustu aldar,
varð til þess að efnt var til bóðug-
ustu trúarofsókna sögunnar að
undirlagi klerkanna og milli
20—30.000 manns voru líflátnir.
Meðal þeirra voru nokkrir fremstu
menntamenn og skáld írana á
þeim tíma. Skáldkonan Tahirih,
sem kenndi opinskátt eina af
meginreglum Bahá’í-trúarinnar
— jafnrétti karla og kvenna — var
kyrkt opinberlega í Teheran 1852.
Fullyrða má hiklaust, að margir
bestu synir og dætur írönsku þjóð-
arinnar hafi fallið fyrir morð-
ingjahendi á þessum árum. í skjóli
ríkisvalds, sem lét blóðsút-
hellingar á saklausum og fram-
farasinnuðum minnihlutahóp af-
skiptalausar, hafa siðblindir menn
náð því kverkataki á írönsku þjóð-
inni sem raun ber vitni.
Löghlýðni Bahá’í-samfélagsins
hafa ekki einu sinni prestarnir
getað dregið í efa. Það er alkunna
í íran, að Bahá’íar hafa aldrei tek-
ið þátt í stjórnmálastarfsemi né
þáð pólitísk embætti, þótt þau
hafi staðið þeim til boða. í Bahá’-
í-trúnni er þátttaka í stjórnmál-
um bönnuð að viðlagðri þyngstu
refsingu, sem þessi trúarbrögð
geta beitt fylgjendur sínum —
sviftingu stjórnarfarsréttinda
innan trúarinnar, sem þýðir ein-
faldlega að þeir eru útilokaðir frá
allri Bahá’í-starfsemi. Litið er á
pólitískan undirróður sem eitt al-
varlegasta brot sem Bahá’íi getur
gert sig sekan um. Þessari megin-
reglu hefur verið fylgt eftir af
fullkominni einurð og alvöru hvar
sem er í heiminum, ekki síst í ír-
an, þar sem oftast hefur reynt á
hana. Iranskir Bahá’íar neituðu að
ganga í Rastakhiz, stjórnmála-
flokk Reza Pahlavis, keisara, þótt
þeir ættu yfir höfði sér þunga
fangelsisdóma og pyntingar, og
þeir neituðu að taka þátt í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni um stjórn-
arskrá islömsku byltingarstjórn-
arinnar, þótt þeim væri gert full-
komlega Ijóst, að slík neitun yrði
þeim dýrkeypt, eins og síðar kom á
daginn. Bahá’íar hafa aldrei gert
neina tilslökun hvað varðar þessa
meginreglu trúar þeirra og munu
ekki gera það í framtíðinni.
Það er því ljóst, að þótt
klerkarnir taki Bahá’ía af lífi fyrir
„síonisma" og „njósnir" í þágu
Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og
Israel" og fyrir að ástunda „laus-
læti, vændi og siðspillingu á jörð-
unni“ (þ.e. halda fram jafnrétti
kynjanna), þá trúa prestarnir ekki
þessum ákærum sjálfir — málið
snýst um allt annað. Hinn raun-
verulegi glæpur Bahá’ía í Iran og
sá glæpur, sem nú á að útrýma
þeim fyrir, er þessi: Þeir hafa
staðfastiega neitað að ganga á
hönd einangrunarstefnu og of-
stækisfullri þjóðernishyggju ír-
anskra valdhafa og halda fast við
helgustu kenningu trúar sinnar,
sem er eining allra þjóða heimsins
„Hinn raunverulegi
glæpur Bahá’ía í íran og
sá glæpur, sem nú á að
útrýma þeim fyrir, er
þessi: Þeir hafa stað-
fastlega neitað að ganga
á hönd einangrunar-
stefnu og ofstækisfullri
þjóðernishyggju ír-
anskra valdhafa og
halda fast við helgustu
kenningar trúar sinnar
«
og bræðralag allra manna. Þeir
hafa viðurkennt gildi annarra trú-
arbragða heimsins og hafnað
hefðbundinni túlkun Múslima á
Múhammeð sem innsigli spá-
mannanna. Þeir trúa því að Guð
hafi frá öndverðu opinberað sig í
stighækkandi trúarbrögðum
mannskynsins og það muni aldrei
verða neitt lát á þeirri opinberum
meðan heimurinn stendur. Af
þessum sökum hafa Bahá’íar verið
ásakaðir um fjandskap í garð Is-
lam, þótt sjálft hugtakið „fjand-
skapur" sé framandi tungutaki
Bahá’í-trúarinnar, sem boðar
sættir og einingu allra þjóða og
kynkvísla jarðarinnar. Bahá’u’l-
láh, höfundur þessarar trúar,
krefst þess af fylgjendum sínum,
að þeir sýni í lífi sínu og gerðum
samúð, réttlæti, umburðarlyndi og
ástríki gagnvart öllum mönnum
og forðist ofbeldi, neikvæða gagn-
rýni og bitur orð. Þessar kjarn-
S