Morgunblaðið - 21.02.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982
39
við Japan og beina kröftum sín-
um annað, þegar Japanir hefðu
smíðað nýjar eftirlitsflugvélar
og aukið gagnkafbátaaðgerðir
með öðrum hætti, eins og þeir
áforma.
í hugmyndum manna í Penta-
gon um að styrkja bandaríska
heraflann virðist ekki tekið
nægilegt tillit til eins úrslitaat-
riðis: Hvar á að fá menn til að
sigla 600 skipa flota, skipa fimm
nýjar orrustuflugsveitir og tvær
nýjar herdeildir? Bjartsýni
varnarmálaráðuneytisins núna
um að þetta takist þrátt fyrir
allt á rætur að rekja til þess, að
á síðasta ári tókst að fullskipa
allar greinar heraflans sam-
kvæmt áætlun. Nýliðar reynd-
ust ágætlega hæfir og foringjum
fækkaði minna en við var búist.
í landhernum eru nú 775 þús-
und karlar og konur. Kalla þarf
37 þúsund fleiri til vopna til að
mynda tvær nýjar vélaherdeild-
ir fótgönguliða. Er unnt að
finna þennan mannafla í her,
sem sumstaðar er „fylltur upp“
með þjóðvarðliðum?
í flotanum eru 528 þúsund
menn um borð í 201 herskipi, 84
árásarkafbátum og 36 kjarn-
orkueldflaugakafbátum. Eins og
málum er nú hátta láta mörg
skip úr höfn með áhöfn, sem er
þannig skipuð, að þó nokkrir eru
„fengnir að láni“ frá öðrum
skipum. Talið er, að um 17 þús-
und tæknimenn vanti til að fylla
rúm þeirra, er hverfa úr þjón-
ustu vegna aldurs.
í flughernum eru 558 þúsund
menn og 3200 hervélar. Ætlunin
er, að fimm nýjar orrustuflug-
sveitir verði stofnaðar. Hvar á
að finna hæfan mannafla? Hef-
ur verið hugað að nýjum flug-
völlum og þjálfun flugvirkja?
Hinn háttsetti viðmælandi
minn í Pentagon fullyrti, að rík-
isstjórn Reagans hefði ekki í
hyggju að lögbinda herskyldu að
nýju, nema til almenns herút-
kalls kæmi. Þess vegna veit eng-
inn, hvernig fá á mannskap til
að framkvæma áformin um
aukna hervæðingu Bandaríkj-
anna.
lægu hugsjónir Bahá’í-trúarinnar
eru sá glæpur, sem íranskir Bahá’-
íar eru líflátnir fyrir, og þeir hafa
lýst því yfir með stolti, að þeir
munu aldrei láta af slíkri „glæpa-
starfsemi", þrátt fyrir morðtól og
pínubekki klerkanna og yfirvof-
andi útþurrkun Bahá’í-samfélags-
ins í Iran.
Þótt atburðirnir, sem eru að
gerast og eiga eftir að gerast í ír-
an, sýni fullkomna siðferðilega
lægingu prestastéttarinnar þar í
landi, þá er ekki hægt að líta á þá
sem einhvern allsherjar áfellis-
dóm yfir Islam eða islamskri
menningu yfirleitt. Margar is-
lamskar þjóðir hafa lýst yfir
viðbjóði sínum á þessum ofsókn-
um, m.a. stjórnir Súdan, Marokkó
og Egyptalands. Hvergi í Kóranin-
um er að finna stafkrók, sem rétt-
lætir slíkar aðgerðir gegn trúar-
minnihluta. Þar er þvert á móti
lögð áhersla á að fylgjendum ann-
arra trúarbragða skuli sýnt um-
burðarlyndi og ekki skert hár á
höfði þeirra. Ekki er ósennilegt, að
hinn mikli höfundur Islam hafi
séð fyrir það sem verða myndi. Til
er í shí’ah Islam (þeirri grein Mú-
hameðstrúar, sem íranskir
klerkar játa) sérkennilegur spá-
dómur, sem hafður er eftir Mú-
hammeð sjálfum, og shí’ítar telja
áreiðanlegan. Hann hljóðar svona
í lauslegri þýðingu:
„Sá dagur mun renna yfir þjóð
mína, þegar ekkert er orðið eftir
af Islam nema nafnið tómt og af
Kóraninum svipurinn einn. Fræði-
menn þeirrar aldar verða versta
illþýði sem heimurinn hefur
nokkru sinni augum litið. Frá
þeim munu illræðin út ganga, og
til þeirra munu þau aftur snúa.“
ísafirði, 1. febr.,
Kðvarð T. Jónsson.
Nú er þaö sem sagt hægt því
aö 10 hljómplötuútgefendur
gáfu góöfúslega leyfi sitt til
aö þessi plata gæti oröiö til.
komin út platan „Næst á
dagskrá“ sem allir landsmenn hafa
beöiö eftir. Aldrei áöur hefur veriö
hægt aö fá mest spiluöu íslenzku
lögin úr útvarpinu saman á einu
plötualbúmi.
Þá er hún
ÚTVARPSMAÐURINN PÁLL
ÞORSTEINSSON SÁ UM SAM-
TEKT ÚTVARPS VINSÆLDAR-
LISTANA 1981 OG SVONA LÍTUR
HANN ÚT:
1. Af litlum neista —
Pálmi Gunnarsson
2. Stolt siglir fleyiö mitt —
Áhöfnin á Halastjörnunni
3. Traustur vinur — Upplyfting
4. Ég fer í fríið — Þorgeir
Ástvaldsson og Sumargleðin
5. Skammastur þin svo —
Þórhallur Sigurðsson
6 Prins Póló — Magnús Ölafsson
og Sumargleðin
7. Búkolla-----
Þórhallur Sigurðsson
8. Endurfundir — Upplyfting
9. Ut á hafið bláa — Hermann Gunn-
arsson og Ahöfnin á Halastjörnunni
10. Við freistingum gæt þin —
Haukur Morthens og Mezzoforte
11. Litla flugan — Björgvin Halldórsson
12. Seinna meir — Start
13. Siglt i norður — Örvar Kristjánsson
14. Sönn ást — Björgvin Halldórsson
15. Eftir ballið — Miðaldamenn
16. Sigurður var sjómaður —
Utangarðsmenn
17. Stjörnuhrap — Mezzoforte
18. Jón spæó — Þórhallur Sigurðsson
19. Sagan af Nínu og Geira — Björgvin
Halldórsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir
og Brimkló
20. Þjóðvegurinn — Brimkló
21. Á áfangastaö — Pálmi Gunnarssoh
22. Nú liggur vel á mér — Lummurnar
23. Fréttaauki —
Guðmundur Benediktsson
24. Söngur veiðimannsins —
Hermann Gunnarsson
25. Vikivaki — Hljómsveit Magnúsar
Ingimarssonar
• Þú færð vinsælustu lög síðasta
árs á plötunni.
• „Næst á dagskrá“ í flutningi
okkar vinsælustu tónlistarmanna.
• „Næst á dagskrá“ fæst í næstu
hljómplötuverzlun.
'ÉfrKARNABÆR
WV Laugavegi 66 — Glæsibæ — AusturstfTU í.
r Simi Iré skiptiborói 85055
Heildsöludreifing
sUinor hf
Símar 85742 — 85055.