Morgunblaðið - 21.02.1982, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982
53
Langdon er í fangelsi í Gren-
ada.“
Hvernig tekur Amnesty Inter
national á mannréttindabrotum í
þeim löndum þar sem samtökin
eru starfandi, eins og til dæmis í
Bandaríkjunum?
„Meðan Víetnam-stríðið stóð
yfir, eða árið 1972, var ég til
dæmis settur í fangelsi vegna
þess að ég neitaði að gegna her-
þjónustu af samviskuástæðum.
Ég var dæmdur í 2ja ára fang-
elsi, en var leystur úr haldi eftir
11 mánuði. Þegar þetta kom upp
var mál mitt tekið upp á vegum
Amnesty International í Hol-
landi en það er regla að það er
eitthvert annað landa innan
samtakanna, sem tekur upp mál-
ið en ekki samtökin í viðkomandi
landi.“
Nú eru ýmis lönd innan samtak-
anna, sem hafa minni alþjóðleg
áhrif en önnur, eins og til demis
íslandi. Hefur það eitthvert gildi
að slíkar þjóðir beiti sér í mann-
réttindamálum?
„Já, það er mikilvægt að allar
þjóðir leggi sitt af mörkum í
mannréttindamálum, því um
leið og við segjum að við getum
ekkert gert, þá erum við orðin
hluti af vandamálinu.
Bréf sem koma frá fjarlægum
löndum eins og til dæmis Islandi
skipta miklu máli, því þau sýna
að fylgst er með þessum málum
alls staðar í heiminum."
Hvernig líst þér á starfsemi
deildarinnar hér á íslandi?
Mér finnst augljóst að hér rík-
ir töluverður áhugi á mannrétt-
indamálum en nýlega gengu í
Amnesty International hér á
landi um eitt hundrað manns í
kjölfar herferðar til að kynna
mannshvörf í hinum ýmsu lönd-
um, þar sem mannréttindabrot
eiga sér stað. En það eru ekki
allir, sem hafa áhuga á mann-
réttindum, sem gera sér grein
fyrir því að það er ekkert skil-
yrði fyrir því að vera í samtök-
unum, að skrifa bréf til fanga út
um heim, heldur getur fólk einn-
ig verið styrktarmeðlimir og gef-
ið sem slíkir peninga til samtak-
anna, sem eru fjárþurfi því eins
og áður segir þá byggja Amnesty
International á frjálsum fram-
lögum einstaklinga en þau
þiggja ekki peningaaðstoð frá
ríkisvaldinu."
11E.
Norræn bóka-
kynning í Nor-
ræna húsinu
KINS og undanfarin ár munu nor
rænu sendikennararnir við Háskóla
Islands og bókasafn Norræna húss-
ins standa að bókakynningu. Verður
kynningin tvískipt að þessu sinni,
laugardaginn 20. febr. kl. 16.00
kynna finnski sendikennarinn Hel-
ena Porkola og norski sendikennar
inn Tor lllset bókaútgáfu ársins
1981 og ræða og kynna einstakar
bækur.
Laugardaginn 6. mars kl. 16.00
verða danskar og sænskar bækur
kynntar. Það verða sendikcnnararn-
ir Peter Söby Kristensen og Lennart
Pallstedt sem annast þá kynningu.
I bókasafni verður sýnt úrval
þeirra bóka, sem bókasafnið þefur
keypt á sl. ári.
Gestur Norræna hússins á
bókakynningunni 20. febr. er
norski rithöfundurinn Lars
Saabye Christensen.
Hann er fæddur 1953. Hann
fékk Vesaas-verðlaunin 1976 fyrir
fyrstu bók sína, „Historien om
Gly“. Síðan hafa komið út skáld-
sögurnar „Amatören" 1977, „Bill-
ettene" 1980 og „Jokeren" 1981, en
sú síðastnefnda verður ef til vill
kvikmynduð.
Lars Saabye Christensen hefur
einnig skrifað ljóðabækur og leik-
rit fyrir útvarp og sjónvarp.
Pappírseyðsla í Bretaveldi
Ixindon, 18. febrúar. AP.
RÍKISSTJÓRN Margaret
Thatchers viðurkenndi í gær, að
mörg þúsund þeirra eyðublaða,
sem notuð eru dags daglega á
vegum ríkisins, væru annað
hvort ófullkomin eða þá hrein-
lega ónýt.
Yfirlýsing þessi kom fram í
200 síðna bæklingi, sem vó um
eitt kíló. Baráttumenn fyrir
notkun einfaldara málfars á
opinberum skýrslum og eyðu-
blöðum eyddu tveimur
klukkustundum við að þæfa í
gegnum bæklinginn.
Tveir milljarðar eyðublaða
eru sendir út árlega í Eng-
landi og samsvarar það 36
eyðublöðum á hvert manns--
barn. Er þetta niðurstaða,
sem Sir Derek Rayner, for-
stjóri Marks & Spencer-versl-
unarhringsins, komst að er
hann rannsakaði pappírs-
eyðslu ríkisins að beiðni
Thatchers.
Alls rannsökuðu hann og
menn hans 93 eyðublöð frá 8
stofnunum og komust að
þeirri niðurstöðu að 26 þeirra
væru óþörf og eigi færri en 50
þyrftu endurritunar við.
At’GLYSINGA-
SÍMINN ER:
Vilt þú verða
■ ■ • i __ ■ /
þinn eiginn dagskrárstjóri?
Þá hefur Sanyo hannaö tækiö
fyrir þig, og okkur tekist aö fá
þaö á veröi sem á sér enga
hliðstæöu. Þú getur eignast þetta frá-
bæra myndsegulband meö hag-
stæöum greiðsluskilmálum, eöa meö
staögreiösluafslætti.
Losaöu þig og fjölskyldu þína úr
viöjum vanans. Faröu á skíöi eöa heim-
sóttu kunningjana, Sanyo CTC 5300P
tekur uppáhaldsefniö upp fyrir þig.
Pú veröur þinn eiginn dagskrárstjóri,
og átti safn af ógleymanlegu efni
til upprifjunar og skoðunar um
ókomin ár.
Pú sýnir sígild listaverk kvikmynd-
anna á þínu heimili meö VTC 5300P
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Simi 91 35200
Akurvík, Akureyri
myndsegulbandinu frá Sanyo. Ef þetta
er ekki aö vera sinn eiginn dagskrár-
stjóri hvaðerþað þá.
SANY0 VTC 5300P myndsegul-
bandstækið er útbúiö meö:
• 3 beindrifna mótora
• rafstýröa snerti rofa
• rafeindaklukku meö 7 daga minni
• 8 mismunandi stöðvamöguleikum
• sjálfvirk hraðspólun til baka
• teljari meö minni
• „AFC" sjálfvirk myndskerpustilling.
Komiö og skoöiö þetta frábæra mynd-
segulband.
Þetta verð á sér enga
hliðstæðu.
Verð kr. 14.700.-
Staðgreiðsluverð kr. 13.965.-