Morgunblaðið - 21.02.1982, Síða 24
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982
Orðrómurinn komst fljótt á kreik
Nýju Marantz-tækin eru nú á allra vörum sem fjalla um
hágæða hljómtæki.
Þctta er sýnishorn afþví sem sagt er:
„Hljómurinn frá magnaranum er kristaltær og
laus við bjögun.w
POPULAR HI-FI.
„Ég gat ekki gagnrýnt neitt. Tækið skilaði framúr-
skarandi vel.“___________________________
APKiL. mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
„Góður, hreinn kraftur, nóg til þess að drífa al-
vöruhátalara er sjaldgæfur yfirleitt, svo ég fagna
því sérstaklega þegar hægt er að finna slíkt á
svona hagstæðu verði.“
POPULAR H-FI, SEPTEMBER. ■■■■■■■■■■I
„Við mælum hiklaust með þessum tækjum fyrir þá
sem vilja góða vöru á hagstæðu verði.“
m-FI FOR PLEASURE,
Auðvitað er endanlegur dómur hjá þér.
Við bíðum eftir að heyra þitt álit.
Verð á samstædunni DC-350: Kr. 14.283.-
með öllu DC-310: Kr. 16.839.-
Greiðslukjör
VERSLIÐ í
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800
Útborgun frá kr. 2000.- og eftirstöðvar á
2—8 mánuðum.
3ja ára ábyrgð.
Ár fatlaðra —
• •
Onnur grein
þjónusta en spítalavist verið við
hæfi. Heilbrigðisþjónustur þær
sem fyrir hendi eru hefðu því ekki
getað svarað þörf sjúklinga sem
nutu hjúkrunar á heimili.
(c) Hvernig meta sjúklingar og
venslamenn samtökin?
Svar: Samtökin hafa hlotið ein-
róma stuðning. Níu af hverjum tíu
sem skipt hafa við samtökin hafa
lýst yfir ánægju sinni og enginn
sjúklingur eða venslamaður hefur
dregið úr gildi hjúkrunar á heim-
ili.
(d) Er líklegt að HÁH verði
fyrir valinu ef sjúklingur er í
þeirri aðstöðu að velja um tvo
kosti?
Svar: Það er ljóst að HÁH yrði
fyrir valinu hjá verulegum fjölda
sjúklinga. Fimm af hverjum sex
sjúklingum hafa sagt aðspurðir að
þeir hefði ekki kosið vist á al-
mennu sjúkrahúsi fremur en
hjúkrun í heimahúsi.
(e) Er HÁH að skapi starfs-
fólks á sjúkrahúsum, fólkinu á
svæðinu og starfsliðs HÁH?
Svar: Fyrirkomulagið er að
skapi allra þessara aðilja.
(f) Hver eru líkleg áhrif ef
Heilbrigðismálastjórn ríkisins
tekur upp slíkt kerfi í enn rík-
ara mæli?
Svar: Það er vel hugsanlegt að
það hafi þau áhrif að biðlistar
sjúkrahúsa styttist og sjúkrarúm-
um fækki.
(g) Er rekstrarkostnaður HÁH
sambærilegur við venjulegt
sjúkrahús?
Svar: Þegar hefur verið á það
minnst að erfitt er að gera sam-
anburð. Vel má vera að spara megi
fé að fenginni meiri reynslu. En
það er almennt álitið að ekki sé
hægt að telja HÁH kostnað of há-
an, á þessu stigi málsins, miðað
við rekstur venjulegs sjúkrahúss.
Ef fleiri slík samtök yrðu stofnuð
myndu þau vissulega geta haft
áhrif á fjárveitingar í framtíðinni.
Heilbrigðismálastofnunin í
Cambridgeshire hefur nú viður-
kennt „Hjúkrun á Heimili" sem
hiuta af heilbrigðisþjónustunni í
Peterborough-héraði og vitað er
að lögð hefur verið til hliðar
£100.000 fjárveiting málinu til
stuðnings á þessu ári.
Að lokum.
Þannig mætti leysa
vandann í heimahúsum,
þar sem hreyfihamlaðir
búa.
Nú er því komið að okkur sjálf-
um, hvar í stétt eða stöðu, sem við
kunnum að vera. Stjórnvald í bæj-
ar- eða sveitarfélögum, á Alþingi
okkar. Meðlimur eða í framvarða-
sveitum hinna mörgu frjálsu fé-
laga. Meðlimur eða í forystusveit
starfsstéttarfélaganna í landinu.
Já, hver sem þú ert og hvar sem þú
ert. Vilt þú taka í útrétta hönd
þeirra einstaklinga, sem sviptir
hafa verið hluta hreyfimáttar
síns, en vilja með atorku sinni,
áræðni og ferskum hugmyndum
stofna til sameiginlegra liðsveita
þar sem þeirra litla félag SEM
(Samtök endurhæfðra mænu-
skaddaðra) býður fram krafta
sína til sameiginlegs átaks til
betra lífs og bættra kjara allra
þeirra er fyrir ellihrörnun, sjúkd-
óma, slysfara, eða á einhvern ann-
an hátt hafa farið og fara enn á
mis við þau lífsgæði, er þeir gætu
orðið aðnjótandi eftir Gagnvega
leiðum, ef að stofnun þeirra sam-
taka verður.
Til þess þarf stuðning þinn,
vilja og mátt.
Afsláttur
af flísum
og húsgögnum til
mánaðamóta
Ath. Vorum aö fá glæsilegt úrval ítalskra flísa.
Tökum heim í næstu viku úrval ítalskra
stálhúsgagna.
Nýr stíll. — Hagkvæmt verð.
áþ Nýborg
Armúla 23 — Síml 86755
Nýborgarhúsgögn
Smiðjuvegi 8, sími 78880.