Morgunblaðið - 21.02.1982, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982
57
Beðið eftir
dauðanum
í 27 ár
Tókýó, 18. febrúar. AP.
JAPANINN Sadamichi Hiras-
awa, som sagður er elsti fanginn
í heimalandi sínu, hélt í dag upp
á nírædisafmæli sitt í Sendai-
fangelsinu. Afmælisdagur hans
væri í sjálfu sér ekki í frásögur
færandi ef sá gamli biði ekki
aftöku sinnar enn þann dag í
dag, 27 árum eftir að hann var
dæmdur til dauða.
Hirasawa var höfuðpaurinn
í einhverjum frægasta glæp í
Japan eftir stríð er hann
dulbjó sig sem heilbrigðis-
fulltrúa og byrlaði 12 starfs-
mönnum banka eitur og rændi
síðan 160.000 yenum. Hann
játaði glæpinn á sig eftir
handtöku, en lýsti síðan yfir
sakleysi sínu í rétti. Hæsti-
réttur dæmdi hann til dauða
1955. Hirasawa hefur 12 sinn-
um farið fram á að mál hans
verði tekið fyrir á nýjan leik,
en ávallt verið synjað.
Þrettánda beiðni hans sama
eðlis er nú til meðferðar.
Múrarafélag Rvíkur:
Sjálfkjörið
í stjórn
og trúnað-
armannaráð
MIÐVIKUDAGINN 10. febrúar sl.
rann út frestur til að skila listum til
kjörs stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs í Múrarafélagi Reykjavíkur
fyrir árið 1982.
Einn listi barst, listi stjórnar og
trúnaðarmannaráðs, og var hann því
sjálfkjörinn.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
skipa eftirtaldir menn: Helgi
Steinar Karlsson formaður, Gisli
Dagsson varaformaður, Rafn
Gunnarsson ritari, Örn Karlsson
gjaldkeri félagssjóðs og Hans
Kristinsson gjaldkeri sjúkrasjóðs.
Varastjórn: Óli Kr. Jónsson,
Eiríkur Tryggvason og Jóhannes
Æ. Hilmarsson.
Trúnaðarmannaráð: Gunnar M.
Hansen, Gísli Magnússon, Ólafur
Veturliðason, Jón G.S. Jónsson,
Gunnar Sigurgeirsson og Jónas
Garðarsson.
Varamenn: Trausti L. Jónsson,
Hörður Runólfsson og Sveinn Páll
Jóhannesson.
Flaggskip
í árekstri
HofAaborg, 18. febrúar. AP.
FLAGGSKIP suðurafriska sjóhers-
ins, freigátan „President Kruger“,
sökk í morgun eftir árekstur við
birgðaskipið „Tafelberg", en flest-
um af áhöfninni var bjargað.
Engan sakaði af áhöfn birgða-
skipsins, sem er 19.000 lestir, og
þótt miklar skemmdir hafi orðið á
því reyndist unnt að sigla því til
lands.
Flaggskipið sökk á einni klukk-
ustund í miklum sjógangi og
hvassviðri og samkvæmt frétt
blaðsins „Star“ var 180 af 184
manna áhöfn skipsins bjargað,
þótt fréttin fengist ekki staðfest.
„Kruger" var hleypt af stokkun-
um 1960, en endurbætur voru
gerðar á skipinu tuttugu árum síð-
ar til að auka hæfni þess til þess
að berjast gegn kafbátum og gera
þyrlum kleift að lenda um borð.
Missir skipsins er mikið áfall
fyrir Suður-Afríku þar sem
vopnabannið á landið gerir að
verkum að nær ógerningur er að
kaupa nýtt herskip erlendis frá.
Merkjasala
og námskeið í
skyndihjálp
í TILKENI öskudagsins gefur
Rauða krossdeild Kópavogs bæjar
búum og öðrum, sem hafa áhuga,
kost á námskeiði í almennri skyndi-
hjálp.
Námskeiðið verður í Víghóla-
skóla og hefst þriðjudaginn 23.
feb. kl. 20.00. Leiðbeinandi verður
Guðlaugur Leósson. Námskeiðið
verður 6 kvöld, samtals 12 tímar.
Þátttaka tilkynnist í síma 41382
kl. 14—18, þann 21. febrúar.
A námskeiðinu verður reynt að
veita sem mesta verklega þjálfun
jneð raunhæfum verkefnum.
Einnig verða sýndar kvikmyndir
um blástursaðferðina og áhrif
kulda á mannslíkamann.
Að venju verður Rauða kross-
deild Kópavogs með merkjasölu á
öskudaginn. Merkin verða afhent
kl. 9.30 í Digranesskóla, Kárs-
nesskóla, Kópavogsskóla og Snæ-
landsskóla.
REGINA C MEÐ LEIÐRÉTTINGU
Nýja rafritvélin frá Olympia er léttbyggó og fyrirferóar-
lítil, en hefur þó kosti
stærri ritvéla.
,,Skjalataska“, 31 sm vals,
8 endurtekningarvinnslur,
hálft stafabil,
léttur ásláttur
og áferóarfalleg skrift.
Sjálfvirkur leiöréttingarbúnaöur léttir og eykur afköstin.
o Olympia
IRÍDÆS@IMU)© KJARAIM HF [
ARMULI 22 - REYKJAVIK - SlMI 83022
CARINA LÚXUSKLASSA!
TOYOTA
Nýtt og rennilegt straumlínuútlit.
Stærri og rúmbetri aö innan.
Lúxus innrétting sem gleöur augað,
full af velgerðum smáþægindum.
Veltistýri og gott farangursrými.
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SÍMI44144
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
UMBOOIÐ A AKUREYRI: BLAFELL S/F OSEYRI 5A — SlMI 96-21090
TOYOTA LANDCRUISER
- torfærubíll með kosti lúxusbílsins
Landbruiser Station er einn glæsilegasti 4 hjóladrifsbíll
sem komið hefur á markað.
Toyota Landcruiser Station sameinar kosti lúxus-
fólksbifreiðar og jeppabifreiöar, sterkbyggöur, með
heila grind í undirvagni, mjúkur og lipur í akstri,
enda búinn vökvastýri, og veltistýri.
Landcruiser Station er með rúllubelti, höfuðpúðum,
útvarpi, klæddur í hólf og góif.