Morgunblaðið - 21.02.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982
Alltaf er blessuð
ullin jafn vinsæl
íslenska ullin er þekkt gæða-
vara og hefur um langan aldur
verið ákaflega eftirsótt. Á síðustu
árum hafa fleiri og fleiri aðilar
framleitt og flutt út íslenskar ull-
arvörur og hvarvetna hafa þær
hlotið hinar bestu móttökur. Auð-
vitað geta gæðin verið misjöfn, en
hin íslensku fyrirtæki, sem standa
í þessum útflutningi, gera sér far
um að selja aðeins fyrsta flokks
vöru og forráðamenn þessara
fyrirtækja gera sér ljóst, að svo
verður að vera, ef vinna á upp góð-
an markað erlendis.
Hins vegar er það því miður
staðreynd, að ekki er alltaf unnt
að standa við gefin loforð, þ.e.a.s.
að varan er ekki alltaf afgreidd á
áður lofuðum tíma. Slíkt gerir það
auðvitað að verkum, að erlendir
kaupendur vantreysta hinum ís-
lensku framleiðendum og sölu-
mönnum, og eins og allir vita,
gengur slíkt ekki í svona viðskipt-
um. Gagnkvæmt traust og upp-
fylling gefinna loforða er frum-
skilyrði þess að góð viðskiptasam-
bönd geti komist á. En þetta heyr-
ir til allrar hamingju til undan-
tekninga, en samt ættu íslenskir
framleiðendur að standa betur á
bak við sölumenn sína erlendis og
styðja þá með því að lofa ekki upp
í ermina á sér og geta ekki afgreitt
pantanir, sem sölumaðurinn í
bestu trú er búinn að lofa. Með
öðrum orðum, framleiðendur og
seljendur hér heima verða að
styðja umboðsmenn sína og sölu-
menn erlendis með öllum ráðum.
Nýtt fyrirtæki
íslensk fyrirtæki, sem hafa með
útflutning á ullarvarningi að gera.
skjóta upp kollinum um alla Evr-
ópu. Eitt slíkt, umboðsfyrirtækið
ISPRO (stytting úr Islandsk Pro-
duktion) sá dagsins ljós í Kaup-
mannahöfn í apríl í vor.
Eigendur ISPRO eru félagarnir
Ólafur Ragnarsson og Baldvin R.
Baldvinsson, báðir 22 ára og úr
Reykjavík. Þeir eru með söluum-
boð fyrir Les-prjón og ennfremur
leita þeir fyrir sér um sölu á ís-
lenskum skinnavörum og á öðrum
sviðum.
Ólafur og Baldvin hafa einmitt
nú nýlega fengið fasta sýningar-
deild í stærstu sýningarhöll Norð-
urlanda, Bella Center í Kaup-
mannahöfn. Deild þeirra er á
hinni svonefndu „permanent trade
rnart" í Bella Center og er alltaf
opin sýningargestum, hvaða sýn-
ingar sem svo eru í höllinni. Það
er reyndar fyrirtækið Stand-deko,
sem er í eigu íslendinganna Hans
Björnssonar og Björns Árnasonar,
sem séð hefur um hina smekklegu
innréttingu sýningardeildarinnar.
Þeir félagar, Baldvin og Ólafur,
sem reyndar hafa þekkst síðan
þeir gengu í barnaskóla, hafa búið
í Danmörku meira og minna sl.
þrjú ár og vinna nú að því að
byggja fyrirtæki sitt upp. Baldvin
hefur verslunarskólamenntun, en
hefur auk þess unnið mikið við
vélprjón, og Ólafur er menntaður
frá verslunardeild gagnfræða-
skóla og hefur auk þess stundað og
lokið námi í sölumennsku hjá
danska fyrirtækinu Christian
Bruhn.
Fleiri litir
„Málið er í dag, að flestir ís-
lenskir ullarfatnaðarframleiðend-
ur, halda sig við sauðalitina, svo
til eingöngu. Þótt sauðalitirnir séu
að sjálfsögðu alltaf vinsælir og sí-
gildir og eigi allsstaðar við, þá
hefur viðskiptavinurinn líka
áhuga fyrir öðrum litum. Enda
eru nokkrir framleiðendur farnir
að taka við sér og nota nú fleiri
liti. Sem dæmi má taka bláan
grunnlit með marglitum íslensk-
um mynstrum. Þetta hefur Les-
prjón gert og við höfum fengið
fjölmargar fyrirspurnir, sem sýna
að viðskiptavinirnir hafa greini-
lega mikinn áhuga á hinni litríku
stefnu. Unga fólkið í dag vill klæð-
ast litríkum fatnaði og þá er að
koma til móts við þær óskir,"
segja Baldur og Ólafur. Þeir telja
ennfremur að markaðurinn fyrir
hina sígildu sauðalitaframleiðslu
sé að mettast, t.d. hafi þessi mark-
aður náð hámarki á sl. ári.
Margir möguleikar
„Við erum lengi búnir að vera
með stofnun þessa fyrirtækis
okkar í bígerð og það er líka
margt, sem okkur langar til að
reyna annað en umboð fyrir ull-
arvörur. Við viljum ekki koma
nánar inn á það hér, það verður
tíminn að leiða í ljós,“ segja þeir.
Þeir félagar telja ekki að Dan-
mörk sé of góður markaður fyrir
íslenska ull, þ.e.a.s. það eru ekki
Danir sjálfir sem kaupa þessa
framleiðslu, heldur eru það mest
erlendir ferðamenn er til Dana-
veldis koma. „Við höfum farið í
nokkrar söluferðir hér, mest
reyndar til Jótlands, og það hefur
gengið framar öllum vonum.
Einnig hafa ferðir þessar opnað
fyrir okkur aðrar leiðir og við lær-
um mikið á þessu, fyrir utan hve
þetta er þroskandi og það hefur
ekki svo lítið að segja.
Svo sem kunnugt er, var hér
geysistór tískufatnaðarsýning í
byrjun september. Við getum ekki
sagt nákvæmlega til um hvað við
fengum út úr þessari sýningu, þar
sem niðurstöður liggja ekki end-
Tveir framtakssamir ungir íslend-
ingar stofna fyrirtæki í Kaupmanna-
höfn og selja meðal annars vinsælan
íslenskan ullarfatnað.
anlega fyrir enn, en við vitum að
okkar útkoma er mjög jákvæð
miðað við aðra íslenska aðila sem
sýndu og seldu ullarfatnað hér í
Kaupmannahöfn á umræddri sýn-
ingu.
Við erum ekki hræddir við
danska aðila sem sýna og selja ull-
arfatnað, hreinlega vegna þess að
dönsku vörurnar eru ekki nærri
eins góðar og þær íslensku. Þessa
dagana vinnum við að því að
fylgja eftir öllum þeim fyrir-
spurnum, sem við fengum á sýn-
ingunni og erum að auki komnir
vel á veg með stóra við-
skiptavinaskrá."
63
Góð þjónusta
Og Ölafur og Baldvin halda
áfram að segja frá: „Við erum
mjög ánægðir yfir að vera komnir
hér inn í Bella Center, því að
sjálfsögðu getum við ekki alltaf
verið við í okkar deild, sérstaklega
ekki þegar við erum í söluferða-
lögum og þess vegna er þjónustan
í BC ómetanleg. Við höfum t.d. að-
gang að telex, það er tekið á móti
öllum skilaboðum til eða frá okkur
og margt fleira. Þetta gerir við-
skiptin bæði auðveldari og mun
fljótlegri. Við erum að byggja upp
nýtt fyrirtæki og höfum heilmikið
af ólíkum hugmyndum, sem enn
eru í mótun.
En það hefur geysilega mikið að
segja að geta boðið upp á snögga
og góða afgreiðslu á þeim vörum
sem við höfum umboð fyrir. Því
miður höfum við rekið okkur á að
sumir innkaupendur vantreysta
Islendingum, því það hefur svo oft
komið fyrir að þeir standa ekki við
gefin loforð um afgreiðslu á pönt-
uðum vörum. Þetta forðumst við
eins og heitan eldinn og gefum
aldrei nein loforð um afgreiðslu,
nema við séum 100% vissir um að
geta staðið við þau. Hingað til hef-
ur það alltaf gengið vel, Les-prjón
hefur alltaf staðið við það sem
þeir lofa, svo við höfum ekki átt í
neinum vandræðum.
Framtíðin? Ja, við höfum áhuga
á mörgu og t.d. mun Les-prjón
taka áðurnefnda sýningardeild í
Bella Center alveg að sér þegar frá
líður, einmitt vegna þess að við
erum að leita fyrir okkur á öðrum
sviðum. Svo verður tíminn að sýna
hvernig okkur tekst til. Við erum
líka að reyna fyrir okkur í öðrum
löndum, því eins og við áður höf-
um sagt, möguleikarnir eru marg-
ir ...?
Texti: Gudný Bergsdóttir
•Ryðvörn er innifalin í verði.
Hjá öðrum eru gæði nýjungr
hjáVohrahefð!
343 DL
345 DL
Á meöan aðrir bjóða Jitla bíla" á
u.bb. 150.000 krónur bjóðum
við Volvo 340 í bremur mis-
munandi útfærslum. Þetta eru
dæmigerðirVolvoar, barsem
gæðin sitja í fyrirrúmi, en verðið
er lægra en flestir gera sér í
hugarlund. Þaðerekkiáhverjum
degi, að bú getur fest kaup á
nýjum Volvo fyrir lægra verð
en almennt gerist og gengur á
bílamarkaðnum.
Volvo 340 bílarnir eru allir fram-
Volvo B14. Það er snörp vél og
lipur, 70 hestöfl DIN. B14er
hljóðlát og viðbragsðgóð
1,41 vél.
Hinn kosturinn heitir Volvo B19.
Það er kraftmeiri vél, sem margir
sækjast eftir. B19 er 95 hesöfl
DIN og 2 lítra.
leiddir samkvæmt gæða og
öryggiskröfum Volvo - munur-
inn liggur í hurðum, innrétt-
ingum, hestöflum og gírkassa.
Þú getur valið á milli 2ja vélar-
stærða í Volvo 343 og 345.
Annars vegar er um að ræða
Volvo 340 bílarnir eru allir bein-
skiptir, - með 4ra gíra Volvo gír-
kassa. Þá má einnig fá bílana
sjálfskipta. Bæði beinskiptu og
sjálfskiptu gírkassarnir eru við
afturöxul, en bað er einmitt
lykillinn að frábærum byngdar-
hlutföllum Volvo 340.