Morgunblaðið - 14.04.1982, Side 48
2 8 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1982
Liverpool stendur með pálmann
í höndunum eftir frækna sigra
— fjör hins vegar heldur betur að færast í botnslaginn
Liverpool stendur stórvel aö vígi gagnvart hclstu keppinautum sínum í
kapphlaupinu aó Englandsmeistaratitlinum eftir leikjaörtröó síöustu dag-
anna. A dagskrá Liverpool voru tveir afar erfióir leikir á pappírnum, útileikir
gegn Manchester-lióunum. Fyrst gegn IJnited á Old Trafford og síðan gegn
('ity á ('ity Ground. Og Liverpool gerði sér lítið fyrir og vann báða leikina.
Mikill harningur á Old Trafford þar sem Bruce Grobbelaar í marki Liverpool
varði snilldarlega vítaspyrnu frá Frank Stapleton snemma í síðari hálfleik og
síðan enn stórkostlegar þrumuskot Steve Coppell af stuttu færi á siðustu
mínútu leiksins. Craig Johnstone skoraði sigurmark Liverpool um miðjan
síðari hálfleik. Síðan sótti „Pollurinn" Man. City heim á laugardaginn og er
skemmst frá að segja, að liðið sýndi meistaratakta, gersigraði City 5—0 og
hefði sá sigur hæglega getað orðið mun stærri miðaö við gang leiksins. 2—0
í hálfleik, þrumufleygur fyrst frá Sammy Lee beint úr aukaspyrnu og síðan
viti frá Phil Neal. Tvö mörk á sömu mínútunni frá Craig Johnstone og Alan
Kennedy sökktu City með manni og mús, en Ian Kush bætti fimmta markinu
við áður en yfir lauk. Annars skulum við renna yfir leiki hátíðanna í þeirri
röð sem þeir fóru fram og byrja á miðvikudagskvöldinu 7. apríl.
Garth Crooks skoraði tvívegis gegn Arsenal og Tottenham á enn all góða
möguleika á því að hreppa titilinn.
Man. Utd. — Liverpool 0—1
Sunderland — Ipswich 1—1
Aður er getið um sigur Liver-
pool á Old Trafford, en Ipswich,
einn helsti keppinautur liðsins,
mátti þakka fyrir eitt stig gegn
failkandídötunum í Sunderland.
Pickering skoraði fyrir Sunder-
land, en Alan Brazil jafnaði met-
in.
Laugardagur, 10. apríl, I. deild:
Birmingham — Leeds 0—1
Brighton — Arsenal 2—1
Everton — Man. Utd. 3—3
Man. City — Liverpool 0—5
Middlesbr. — N. County 3—0
N. Forest — Wolverhampt. 0—1
Southampton — Aston Villa 0—3
Stoke — Sunderland 0—1
Tottenham — Ipswich 1—0
WBA — Coventry 1—2
West Ham — Swansea 1 — 1
Mikilvægur leikur var á White
Hart Lane, þar sem Tottenham
sigraði Ipswich með eina marki
leiksins. Glenn Hoddle skoraði
sigurmarkið átta mínútum fyrir
ieikslok, en fyrr í leiknum braut
Ray Clemence gróflega á Alan
Brazil innan vítateigs, en varði
síðan meistaralega vítaspyrnu
Johns Wark sem kom í kjölfarið.
Tapið rýrði verulega möguleika
Ipswich, en staða Tottenham er
eftir atvikum góð.
Hinum toppliðunum gekk ekki
nægilega vel, Southampton fékk
stórskell á heimavelli og Swansea
og Man. Utd náðu aðeins jafntefl-
um. Southampton átti aldrei
möguleika gegn Villa, sem sýndi
snefil af þeim töktum sem færðu
liðinu titilinn á síðasta keppnis-
tímabili. Liðið fékk líka óskabyrj-
un í síðari hálfleik er Chris Nich-
oll skoraði sjálfsmark, en hann
var árum saman lykilmaður hjá
Villa áður en hann gekk til liðs við
Southampton. Markið kom í byrj-
un síðari hálfleiks og skömmu síð-
ar bætti Ken McNaught öðru
marki við. Yfirburðir Villa voru
miklir og Tony Morley skoraði
þriðja markið tveimur mínútum
fyrir leikslok.
Mikið fjör var í leik Everton og
Man. Utd. Þrívegis náði United
forystu, en hin annars sterka vörn
liðsins brast jafn oft og Everton
náði að jafna hverju sinni. 1—1 í
hálfleik, Steve Coppell skoraði
fyrir United, en Graeme Sharpe
jafnaði. Mikið markaregn var síð-
an fyrri hluta síðari hálfleiks,
Coppell skoraði aftur fyrir United,
Mick Lyons jafnaði, en Ashley
Grimes færði Manchester-liðinu
forystu rétt einu sinni. Lokaorðið í
leiknum átti síðan Adrian Heath
og bæði liðin fengu færi til að
krækja í sigurmarkið áður en yfir
lauk.
Swansea hafði forystu gegn
West Ham allt fram til lokasek-
úndu leiksins, er Paul Goddard
jafnaði með umdeildu marki, en
það var mál manna að hann hefði
stjakað illilega við markverði
Swansea. En dómarinn sá ekkert
athugunarvert, var reyndar illa
staðsettur að sögn fréttaskeyta.
Robbie James skoraði mark
Swansea, afar glæsilegt mark af
30 metra færi.
Middlesbrough vann óvæntan
stórsigur gegn Notts County og
vissulega á liðið möguleika á því
að bjarga sér frá falli þó það kosti
stórátök. 17 ára piltur, Darren
Wood, skoraði fyrsta markið með
þrumuskoti af 25 metra færi á 43.
mínútu. í síðari hálfleik bættu
þeir Joe Bolton og Ian Bailey
mörkum við. Aðeins 10.000 manns
urðu vitni að þessum stærsta sigri
Boro á keppnistímabilinu.
Nágrannaliðið Sunderland berst
einnig um hæl og hnakka, sigraði
Stoke á útivelli og á liðið nú sömu
möguleika og Boro á því að bjarga
sér. Það var léleg knattspyrna sem
boðið var upp á á Victoriu-leik-
vanginum, en það var Mick Buckl-
ey sem skoraði sigurmarkið rétt
fyrir leikhlé, nýtti þá vel ljót mis-
tök í vörn Stoke.
Það hallaði hins vegar undan
fæti hjá Birmingham, sem fékk
Leeds í heimsókn, en Leeds er í
síst minni fallhættu og því verra
en ella að tapa fyrir liðinu. Peter
Barnes lék með Leeds að nýju og
það var fyrirgjöf frá honum sem
Paul Hart skallaði í netið á 56.
mínútu.
Coventry bætti stöðu sína í
deildinni með fyrsta útisigri sín-
um í óratíma. Garry Thompson
skoraði fyrir Coventry með skalla
á 2. mínútu, en Steve McKenzie
jafnaði á 45. mínútu með fallegu
skoti af 25 metra færi. Coventry
var betri aðilinn í síðari hálfleik
og rétt fyrir leikslok brunaði
Steve Whitton í gegn um vörn
WBA og skoraði sigurmarkið.
WBA hefur sogast í fallbaráttuna
og staða liðsins batnaði ekki við
þennan ósigur.
Brighton vann sinn fyrsta sigur
gegn Arsenal síðan liðið kom upp í
1. deild, er liðin mættust á
Goldstone-vellinum. Brian Talbot
náði forystunni fyrir Arsenal með
þrumuskoti frá vítateigslínu, en
Andy Ritchie jafnaði i síðari hálf-
leik. Sigurmarkið skoraði Mick
Robinson 8 mínútum fyrir leiks-
lok.
Þá vakti sigur Wolverhampton
gegn Forest talsverða athygli. Sá
sigur var verðskuldaður og virðast
Úlfarnir vera að skríða saman.
Andy Gray kom inn á sem vara-
maður og skoraði sigurmarkið í
síðari hálfleik. Hann var óheppinn
að skora ekki fleiri mörk, Peter
Shilton stóð í veginum.
2.deild:
Barnsley 0 — Derby 0
Bolton 2 (Henry, Reid) — Wrex-
ham 0
Cambridge 1 (Reilley) — Luton 1
(Turner)
Cardiff 2 (Bennett, Kitchen) —
Orient 1 (Foster)
Chelsea 2 (Droy, Lee) — QPR 1
(Gregory)
Newcastle 0 — Leicester 0
Norwich 5 (O’Neil, Deehan 3,
Jack) — Charlton 0
Rotherham 2 (Seasman, Fern) —
Grimsby 2 (Whymark, Ford)
Shrewsbury 0 — Sheffield W. 1
(Bannister)
Hér koma svo úrslit þeirra leikja í 1.
deild sem fram fóru á mánudaginn,
12. apríl.
Arsenal — Tottenham 1—3
STAÐAN
1. DEILD
STAÐAN eftir leikina á mánu-
daginn:
I.ivcrpool 33 2« 6 7 65 26 66
Ipswich Town 33 19 4 10 58 43 61
Swansea C'ily 34 IK 6 10 49 39 60
Manchcsicr l’ld. 34 1». II 7 47 26 59
-Southampton 35 17 8 10 60 52 59
Tollcnham 30 17 6 7 51 29 57
Arsenal 35 15 10 10 34 32 55
Wesl llam 34 13 13 8 55 42 52
Manchester (’ily 35 13 II II 45 43 50
Nollincham For. 34 13 II 10 35 37 50
Hrighlon 35 12 13 10 38 39 49
Kverlon 34 12 12 10 44 41 48
Aslon Villa 34 12 10 12 47 45 46
NoILs ('ounty 34 II 7 16 49 54 40
Wesl Hromwich 32 8 11 13 37 41 35
Covenlry 34 9 8 17 40 54 35
Wolverhamlpon 36 9 8 19 26 54 35
Stoke 33 9 6 18 35 51 33
lx*eds 32 8 9 15 24 43 33
Hirmingham 34 7 II 16 41 52 32
Sunderland 34 7 9 18 24 45 30
Middlcsbroough 33 5 12 16 26 42 27
2. DEILD
l.uion 34 20 10 4 66 33 70
Walford 35 18 10 7 59 36 64
Sheffield Wed. 36 18 8 10 48 40 62
Holhcrham 36 17 5 14 52 44 56
Newcaslle. 36 16 8 12 43 35 56
Hlackhurn 36 15 10 11 40 32 55
(iueen’s l*ark K. 35 16 6 13 46 33 54
Harnsley 35 15 8 12 51 37 53
Norwich 35 16 5 14 49 46 53
l/cicesler 32 14 10 8 44 33 52
( helsea 35 15 7 13 51 48 52
(Hdham 35 12 13 10 41 41 49
( harllon 35 12 10 13 45 54 46
Derby 35 10 10 15 45 59 40
Kolton 36 II 6 19 32 47 39
( amhridge 35 10 8 17 38 47 38
Wrexham 34 10 8 16 33 44 38
( ardiff 34 11 5 18 37 49 38
Shrewshury 34 8 12 14 29 44 36
( rysial l'alacc 33 9 8 16 24 36 35
(frimshy 33 7 : 12 14 39 53 33
Orienl 33 8 7 18 26 47 31
Aston Villa — Brighton 3—0
Man. Utd. - WBA 1-0
N. County — N. Forest 1—2
Sunderland — Birmingham 2—0
Wolverhampton — Man. City 4—1
Kraftur botnliðanna Sunder-
land og Wolverhampton vakti
mestu athyglina og greinilegt að
leikmenn beggja liða hafa ekki
lagt upp laupana. Úlfarnir hrein-
lega tættu Man. City í sig, einkum
í fyrri hálfleiknum og stóð þá ekki
steinn yfir steini hjá Manchester-
mönnum, sem mættu til leiks
glóðvolgir frá rassskellingunni
gegn Liverpool á laugardeginum.
Andy Gray, Wayne Clarke, Mel
Eaves og Ken Hibbitt skoruðu
fyrir Wolverhampton í fyrri hálf-
leiknum, en leikurinn jafnaðist
títillega í þeim síðari og þá tókst
Bobby McDonald að laga stöðuna
aðeins með þokkalegasta marki.
Hinn kornungi Colin West var
hetja Sunderland, en hann skoraði
bæði mörk liðsins gegn Birming-
ham, það fyrra á 28. mínútu og
það síðara á 44. mínútu. Staða
Birmingham er nú uggvænleg og
raunar einnig staða Sunderland.
En munurinn er sá, að Sunderland
fékk 7 stig af 9 mögulegum úr
páskaieikjum sínum og virðist
vera á uppleið. Birmingham hins
vegar á niðurleið, einmitt á þeim
tíma sem slíkt getur orðið dýr-
keypt.
Stórleikur var á Highbury þar
sem erkifjendurnir Arsenal og
Tottenham mættust. Mike Hazz-
ard skoraði snemma leiks fyrir
Tottenham, en John Hawley jafn-
aði fyrir Arsenal snemma í síðari
hálfleik. Ricardo Villa lék í stöðu
Osvaldo Ardiles sem er nú staddur
í Argentínu. Áhorfendur bauluðu
mjög á hann í tilefni Falklands-
eyjadeilunnar, en Villa lét það lít-
ið á sig fá, lagði upp tvö mörk sem
Garth Crooks sá um að reka
smiðshöggin á.
Man. Utd vann loks sigur, en
framherjar liðsins voru ekki á
skotskónum frekar en áður nú eft-
ir áramót. Það var Kevin Moran
sem skoraði sigurmarkið á 64.
mínútu og United skaust í fjórða
sætið á sama tíma og WBA hrap-
aði enn neðar í botnsvelginn. Un-
ited hefur trúlega tapað of mörg-
um stigum til að hreppa titilinn að
þessu sinni, en reikna má með lið-
inu í eitt af UEFA-sætunum.
Nágrannaliðin frá Nottingham,
Forest og County, áttust við á
Meadow Lane, heimavelli County,
og hefndi Forest fyrir tapið á
heimavelli sínum í fyrri leik lið-
anna í vetur. Gamla kempan Ian
Bowyer náði forystunni fyrir For-
est, en Trevor Christie jafnaði.
Sigurmarkið skoraði táningurinn
Calvin Plummer í síðari hálfleik.
Loks í 1. deild. Aston Villa hélt
sínu nýfengna striki og gersigraði
Brighton auðveldlega á heima-
velli. Liðið fékk óskabyrjun er
Dave Geddis skoraði strax á 3.
mínútu. Geddis skoraði aftur síðar
og Alan Evans bætti þriðja mark-
inu við.
2. deild:
Blackburn 0 — Bolton 2 (Thomp-
son 2)
Cr. Palace 0 — Chelsea 1 (Walker)
Derby 3 (Skivington, Wilson,
Buckley) — Rotherham 1 (Seas-
man)
Luton 2 (Stein, Jennings) — Nor-
wich 0
Orient 0 — Cambridge 0
QPR 0 - Watford 0
Sheffield W. 2 (Shelton, Pearson)
— Newcastle 1 (Barton)
Wrexham 1 (Carrodus) —
Shrewsbury 0.