Morgunblaðið - 14.04.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1982
37
Reykjavíkur- og Islandsmeistarar í bridge 1982, sveit Sævars Þorbjörnsson-
ar. Talið frá vinstri: Valur Sigurðsson, Þorlákur Jónsson, Jón Baldursson og
Sævar Þorbjörnsson. t.jósm. Arnór.
Skemmtileg keppni í íslandsmótinu í bridge:
Sveit Sævars Þorbjörnssonar
íslandsmeistari
Sveit Sævars Þorbjörnssonar sigr-
aði í úrslitakeppni íslandsmótsins í
bridge sem lauk á páskadag. Mikil
spenna var í lokaumferð mótsins þar
sem þrjár sveitir áttu mörguleika á
að sigra.
Sveitir Þórarins Sigþórssonar
og Arnar Arnþórssonar voru í
efstu sætunum fyrir siðustu um-
ferðina og spiluðu saman í síðustu
umferðinni. Lauk þeirri viðureign
með sigri Þórarins, 15—5. Sveit
Sævars spilaði gegn sveit Stein-
bergs Ríkarðssonar og vann sinn
leik 19—1, en úrslitin í leik efstu
sveitanna voru Sævari afar hag-
stæð, þannig að hann stóð upp
sem sigurvegari mótsins.
I sveit Sævars Þorbjörnssonar
eru ungir spilarar. Með Sævari í
sveitinni eru Jón Baldursson,
Þorlákur Jónsson og Valur Sig-
urðsson. Þeir félagar hafa unnið
öll sterkustu mót sem haldin hafa
verið í vetur, ef undan er talið
stórmót Flugleiða. Nánar verður
sagt frá mótinu í bridgeþætti
blaðsins síðar.
Tvær nýjar
myndir í
Bíóhöllinni
BÍOHÖLLIN frumsýndi nú um
páskana tvær myndir, Lögreglu-
stöðina í Bronx, sem á frummál-
inu heitir „Fort Apache, The
Bronx" og Lifvörðinn, „My
Bodyguard", en báðar eru mynd-
irnar bandariskar.
Kvikmyndin Lögreglustöðin
í Bronx er að sögn bíósins í
algjörum sérflokki og fjallar
um lögreglulið í áðurnefndu
hverfi New York-borgar. Aðal-
hlutverk leikur hinn vinsæli
kvikmyndaleikari Paul New-
man og segir í leikskrá að þetta
sé kvikmynd, sem enginn að-
dáandi hans megi láta fram
hjá sér fara. Sýningartími er
123 mínútur.
Myndin Bodyguard eða Líf-
vörðurinn eins og hún nefnist á
íslenzku er sögð fyndin og
hugljúf mynd, sem gæti gerzt
hvar sem er. Sagan fjallar um
ungt fólk, en aðalhlutverk leika
Chris Makepeace, Adam Bald-
win, Matt Dillon o.fl.
\t (.I.VSIM,ASIMINN Klt:
22480
iflovjjunblníHb
Purrkurinn kveður landann að sinni.
5 flokkar troða
upp á Borginni
„Ný tónlist fyrir annan takt“, er
yfirskrift tónleika sem haldnir verða
á Hótel Borg í kvöld. Koma þar fram
fimm hljómsveitir, þar af fjórar, sem
getið hafa sér gott orð.
Fyrsta ber að telja Purrk Pill-
nikk, sem kveður landann að sinni,
áður en haldið verður á vit Engil-
saxa. Plata hljómsveitarinnar,
Googooplex, er væntanleg fljótlega.
Auk Purrksins troða Q4U, Bodies
og Jonee Jonee upp. Ennfremur
verður boðið upp á „hljómsveitina"
Pakk, sem ekki hefur heyrst til áð-
ur.
Tónleikarnir á Hótel Borg hefj-
ast stundvíslega klukkan 22 í kvöld
með framlagi Pakksins.
Nýtt — nýtt — bílaleiga
íslenskt fyrirtæki í Danmörku, býöur uppá nýja 1.
flokks þjónustu. Getum skaffaö flestar geröir af bíl-
um til leigu. Einnig Mini-bus, meö íslenskum bílstjóra.
Tökum á móti fólki á Kastrup-flugvelli, ef óskaö er.
Getum veitt mikinn afslátt og gerum föst verðtilboð.
Allt nýir og góðir bílar.
Hafiö samband viö Baldur Heiödal, hringiö eöa skrif-
iö.
Kær kveðja.
ísland-center
Kongensgate 6B.
3000 Helsingör. Dk.
Sími 90—452—215382.
BYGGIST Á
ÞESSU
Þiö fáiö
steypustál járnbindivír
mótavír gluggagiröi
þakbita þakjárn
pípur í hitalögn og vatnslögn
í birgöastöö okkar
Borgartúni 31 sími27222
Allt úrvals efni á hagkvæmu veröi.
Traust og ending
hvers mannvirkis
byggist á góöu hrá-
efni og vandaöri
smíöi.
ÞAÐ
SINDRA
STALHR
ad kaupa nýjan Skoda
einu sinni að brjóta baukinn sinn oglání
írá66.950
Honni litli þarf ekki einu sinni að brjóta bautónn sinn ogjána þér, því verðið er aðeins
kr.
I Ow>B*—Igántng 2ö 3 1882
og greiðslustólmálamir eins góðir og hugsast getur. Enda selst hann grimmt þessa
dagana nýi Skódinn og því betra að tryggja sér bíl strax.