Morgunblaðið - 20.04.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
55
Svölurnar gefa Meina-
fræðideild H.í. tæki
Sviilurnar — félag fyrrverandi og
núverandi flugfreyja, hefur gefið
Meinafræðideild Rannsóknastofu
lláskólans, nánar til tekið litninga-
rannsóknadeild, tvær smásjár og
frystikistu, þar sem hægt er að
geyma viðkvæm efni, sem nauðsyn-
leg eru til rannsóknanna.
Smásjárnar, önnur Leitz Dialus
rannsóknarsmásjá og hin Leitz
Laborlux kennslusmásjá, munu
notaðar við litningagreiningu, en í
þeirri síðarnefndu geta tveir í einu
skoðað sama sýnið. Litningarann-
sóknir hafa farið fram hér á landi
síðan 1967. Þessari starfsemi hef-
ur verið sniðinn þröngur stakkur
til þessa, en að sögn Jóhanns
Hreiðars Jóhannssonar, meina-
fræðings og forstöðumanns
meinafræðideildarinnar, koma
þessi tæki sér mjög vel, því hingað
til hafa meinafræðingarnir þurft
að skiptast á smásjám við rann-
sóknir sínar. Sagði hann að verk-
efnin hafi stöðugt verið að aukast
á litningarannsóknadeildinni og
sem dæmi nefndi hann að á síð-
ustu tveimur árum hefur sýnum
til rannsókna fjölgað úr 100 í tæp
400 á ári.
Litningarannsóknadeild Rann-
sóknastofu Háskólans fæst við
sjúkdómsgreiningar hjá einstakl-
ingum, sem grunaðir eru um vissa
meðfædda sjúkdóma. Tveir megin-
þættir starfseminnar eru annars
vegar sjúkdómsgreiningar hjá
vansköpuðum börnum og hins veg-
ar greining litningasjúkdóma á
fósturskeiði. Stærsti hluti starf-
seminnar felst nú í rannsókn á
legvatni frá þunguðum konum,
sem af ýmsum ásætðum geta átt á
hættu að fæða börn með þá sjúk-
dóma, sem litningarannsókn getur
greint.
Undanfarin ár hafa Svölurnar J
beitt sér fyrir aðstoð við fjölfötluð
börn, einkum með því að styrkja
sérkennara og fóstrur til fram-
haldsnáms erlendis. Þá hefur fé-
lagið einnig gefið tæki á sjúkrahús
í Reykjavík.
Helga Hjálmtýsdóttir, formað-
ur Svalanna, afhenti tækin og
sagði frá félagsstarfseminni en
Davíð Gunnarsson, forstjóri Rík-
isspítalanna, veitti tækjunum við-
töku.
Frá afhendingu tækjanna. Davíð Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna,
Helga Hjálmtýsdótir, formaður Svalanna, og Jóhann Hreiðar Jóhannsson,
meinafræðingur. MorpinbuaiA/Köe.
Nýtt verk-
fræðingatal
VERKFRÆÐINGAFÉLAG íslands
hefur gefið út þriðju útgáfu verk-
fræðingatals með 962 æviskrám ís-
lenzkra verkfræðinga og annarra fé-
lagsmanna verkfræðingafélagsins.
Dr. Jón E. Vestdal annaðist ritstjórn
meðan hans naut við, en hann and-
aðist 1979 og annaðist Hinrik Guð-
mundsson ritstjórn þess, sem þá var
eftir.
Fyrsta verkfræðingatalið kom
út 1956 með 270 æviskrám, í ann-
arri útgáfu 1966 voru æviskrárnar
439. Nú eru þær orðnar 962, sem
fyrr segir, en einnig eru í nýju
útgáfunni ritgerð um menntun ís-
lenzkra verkfræðinga eftir
Sveinbjörn Björnsson og skrár yf-
ir mannanöfn, fyrirtæki og stofn-
anir. Verkfræðingatalið er 623
blaðsíður og er bókin unnin hjá
Steindórsprenti hf.
Verkfræðingafélag íslands
verður 70 ára 19. apríl nk. og verð-
ur að lokinni afmælishátíð 21.
apríl haldinn á Húsavík fundur
norrænu verkfræðingafélaganna.
Góður afli
KáxbníAxnrbi. 16. apríl.
HEILDARBOTNFISKAFLI á land
kominn á Fáskrúðsfirði um páskana
var þrjú þúsund lestir. Hoffellið hefur
fengið 1017 lestir í 9 veiðiferðum, að
verðmæti 4.897.000 og Ljósafellið 882
lestir í 8 veiðiferðum, aflaverðmæti
þess er 4.230.000 krónur. Á sama tíma
í fyrra hafði togarinn Hoffell fengið
1344 en Ljósafell 989.
Fjórir netabátar hafa verið gerðir
út í vetur og er heildarafli þeirra,
1.054 lestir. Afiahæsti báturinn er
Sólborg með 443 lestir.
þetta segja atvinnubílstjórar um
Tire$tone
S-211 radial hjólbarda
Asgrímur Guðmundsson ekur á Toyota Crown
Ég hef ekki ekið á betri dekkjum en Firestone S-211, endingin er mjög
og þau fara einstaklega vel undir bílnum.
Miðað við rúmlega 7.000 kílómetra akstur á malarvegum hafa
Firestone S-211 komið verulega á óvart. Þau eru ótrúlega
mjúk, steinkast er svo til úr sögunni og bíllinn lætur
vel að stjórn.
Verð á Firestone S-211 erafar hagstætt
og þess ber einnig að geta að bensín-
eyðsla er mun minni ef ekið er á radial-
dekkjum.
Ég get því með góðri
samvisku mælt með
Firestone S-211.
Tirestone
Fullkomið öryggi - alls staðar
*
ÚTSÖLUSTAÐIR í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI
REYKJAVÍK: KÓPAVOGUR: GARÐABÆR
MOSFELLSSVEIT: KEFLAVÍK:
Nýbarði sf. Hjólbarðaviðgerð Kópavogs Nýbarðisf. Holtadekk Hjólbarðaþjónustan
Borgartúni 24, simi 16240 Skemmuvegi 6, sími 75135 Bensínafgr. OLÍS, simi 50606 Bensinafgr. ESSO, sími 66401 Brekkustig 37 (Njarðvík)
sími 1399
Hjólbarðaþjónustan
Fellsmúla 24, (Hreyfilshúsinu)
sími 81093
AlberL