Morgunblaðið - 20.06.1982, Side 2

Morgunblaðið - 20.06.1982, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ1982 Lúðrasveit Reykja- víkur sextíu ára Afmælistónleikar á mánudagskvöld LUÐRASVEIT Reykjavíkur á 60 ára afmæli þann 7. júlr nk., og er hún elsla starfandi lúðrasveit landsins. í tilefni þessara tímamóta efnir sveit- in til afmælishljómleika í Austur- bæjarbiói nk. mánudagskvöld kl. 20.30. Stjórnandi afmælishljómleik- anna nk. mánudagskvöld verður Ernest Majo, þekktur þýskur lúðrasveitarstjórnandi, sem feng- inn hefur verið hingað til lands gagngert til þess að stjórna tón- leikunum. Majo hefur unnið að því að semja og setja út verk fyrir lúðrasveitir um 50 ára skeið og starfað við það víða um heim. Flest verk á efnisskránni eru ýmist samin eða útsett af Ernest Majo. Þar á meðal eru tvö verk sem hann hefur samið i tilefni dvalar sinnar hér á landi. Nýju messusiðirnir tekn- ir upp í Dómkirkjunni Ernest Majo Ekki þarf að kynna fyrir íslend- ingum riddarann sjónumhrygga, Don Kíkótí. Nafn hans er að verða hér jafn þekkt og nafn Egils Skalla-Grímssonar eða Gunnars á Hlíðarenda, ekki síst eftir sýn- ingar Alþýðuleikhússins á leikriti um hann síðastliðinn vetur og prýðilegan framhaldsmyndaflokk í sjónvarpinu um hann undir heit- inu Kiddarinn sjónumhryggi. En söguna um hann höfum við ekki eignast á íslensku nema í stuttum útdrætti fyrr en nú, að við fáum hana óstytta í afbragðsþýðingu Guðbergs Bergssonar. Með Don Kíkótí byrjar Al- menna bókafélagið útgáfu bóka- flokks sem það nefnir Úrvalsrit heimsbókmcnntanna. I þessum flokki mun koma margt sígildra rita, svo sem leikrit Shakespeares í þýðingu Helga Hálfdanarsonar, Karamazoo-bræður eftir Dosto- Guðbergur Bergsson Almenna bókafélagið: Annað bindi Don Kíkóta í þýðingu Guðbergs komið út ALMENNA bókafélagið hefur sent jevskij, í þýðingu Gunnars Árna- frá sér 2. bindi af Don Kíkótí frá Maneha eftir spænska meistarann Cervantes, í þýðingu Guðbergs Bergssonar. Fyrra bindið kom út síð- astliðið haust og 3. bindið er vænt- anlegt í september næstkomandi. sonar o.s.frv. Annað bindið af Don Kikótí er 216 bls. að stærð og unnið í Vík- ingsprenti og Félagsbókbandinu. (Frá AB) Nýr fram- kvæmda- stjóri SSA Kgilstöðum, 18. júní SIGURÐUR Hjaltason, sveitarstjóri í Höfn á Hornafirði, hefur verið ráð- inn framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjör- dæmi. Alls sóttu 5 um stöðuna, en tveir þeirra óskuðu nafnleyndar og ákvað stjórn SSA því, að leyna nöfn- un allra er sóttu um. Samband sveitarfélaga í Aust- urlandskjördæmi var stofnað árið 1966 og sérstakur framkvæmda- stjóri þess ráðinn 1968 með aðsetri á Egilsstöðum. Fyrsti fram- kvæmdastjóri SSA var Bergur Sigurbjörnsson, sem gegnt hefur starfinu fram til þessa, að árunum 1971—1974 undanskyldum, þegar hann gegndi starfi framkvæmda- stjóra Framkvæmdastofnunar ríkisins. Að sögn Bergs mun skrifstofa SSA nú flytja til Hafnar í Horna- firði, en samkvæmt lögum sam- bandsins er það á valdi fram- kvæmdastjóra þess hvar höfuð- stöðvar þess eru hverju sinni. Þó taldi Bergur líklegt að Sigurður hefði einhverja aðstöðu áfram á Egilsstöðum og myndi koma hing- að 1—2 sinnum í mánuði. Sigurður mun taka við starfinu 1. septem- ber nk. — óufur. SÍÐASTLIÐINN sunnudag tók Dómkirkjan í Reykjavík upp nýtt messuform í samræmi við hina nýju helgisiöabók, sem lögð var fram full- gerð á prestastefnu fyrir um ári. Þá hefur nú verið tekin í notkun ný biblíuþýðing, en Nýja testamentið hefur verið þýtt upp að nýju og Gamla testamentið verið lagfært. Þessi þýðing var gerð til þess að gera textann meira í samræmi við hinn upprunalega og að færa hann nær nútímamáli. Prestar landsins eru frjálsir að því að styðjast við hið eldra mess- uform, en að sögn Þóris Stephen- sen, Dómkirkjuprests, fannst hon- um ekki stætt á öðru en að Dóm- kirkja landsins styddist við það form, sem er í gildandi helgisiða- bók. Helstu breytingar frá hinu eldra messuformi eru þær, að messan er nokkuð aukin, en þó er notast við sama tónlag og verið hefur, sem er kennt við Sigfús Einarsson. Séra Þórir Stephensen sagði, að verið væri að sveigja messuna að hinu klassíska formi sem tíðkast hefur, þótt við hefðum ekki notað það fullkomið nokkuð lengi. Það sem bætist inn í al- menna messugjörð er miskunn- arbæn (kyrie), dýrðarsöngur (gloria) og trúarjátning. í síðustu grein trúarjátningarinnar hefur orðið sú breyting á, að nú segja menn hvorki „upprisa holdsins" né „upprisa dauðra" heldur hefur verið sameinast um nýja þýðingu, sem Sigurbjörn Einarsson, fv. biskup, lagði til og er nú sagt „upprisa mannsins". Bænin eftir predikun úr stól fellur niður, en þess í stað er flutt frá altari, í nokkrum liðum, svokölluð almenn kirkjubæn og söfnuðurinn svarar með orðunum: „Drottinn heyr vora bæn“, þ.e. taka undir orð prestsins. Jafnframt hefur verið bætt við einum ritningarlestri úr Gamla testamentinu, hann er fluttur í tengslum við pistilinn. Nú verður ekki lengur staðið upp þeg- ar pistillinn er lesinn en hins veg- ar er staðið upp þegar dýrðarsöng- urinn er sunginn. Séra Þórir Stephensen sagði þetta nýja messuform kalla á aukna þátttöku safnaðarins og væri það góður hlutur. Búast mætti við að kirkjugestir þyrftu sinn tíma til að venjast þessu messuformi áður en þeir gætu notið þess, á sama hátt og þeirra hluta sem þeir hefðu iðkað í ára- tugi. Þá gat Þórir þess, að þessir nýju messusiðir hafi nú þegar ver- ið teknir upp víða um land. Birgir ísl. Gunnarsson á afvopnunarráðstefnu SÞ: Erfitt að ná samkomulagi „ÞAÐ SEM einkennt hefur störf þingsins þessa viku eru ræður ým- issa forystumanna," sagði Birgir ísl. Gunnarsson alþingismaður í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann er nú staddur á afvopnunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna i New York. „Þeir sem sérstaka athygli hafa vakið eru Ronald Reagan, sem tal- aði á fimmtudag, Andrei Grom- yko, Helmut Schmidt, Menachem Ný stefnuskrá samvinnuhreyfingarinnar samþykkt: Samvinna um stærri við- fangsefiii við aðra aðila Músavík 19. júní. Frá Arna Johnsen hlaðamanni Morgunhlaðsins. AÐALFUNDI Nambands íslenskra samvinnufélaga var fram haldið á Húsavík í dag. Aðalmál fundarins var afgreiðsla á stefnuskrá sam- vinnuhreyfingarinnar og var hún samþykkt mótatkvæðalaust um síðdegisbilið. Ntefnuskráin hefur verið í vinnslu undanfarin þrjú ár og hef- ur mikil umræða farið fram um hana innan samvinnuhreyfingar- innar. Allmiklar umræður fóru fram á aðalfundinum um stefnu- skrána og greindi menn eilítið á. Formaður stefnuskrárnefnd- ar, Hjörtur Hjartar, kvað kjarn- ann í stefnuskránni vera það að samvinnuhugsjónin væri lífs- viðhorf sem virti jafnan rétt allra til lífsbjargar og andlegs þroska, þar sem samvinnustefn- an væri byggð á grundvelli fé- lagshyggju og hefði mannúð og réttlæti í heiðri. Það sem helst má telja til nýmæla í stefnu- skránni er afstaða til samstarfs við aðila utan samvinnuhreyf- ingarinnar, t.d. í formi sameign- ar- eða hlutafélaga. Segir í stefnuskránni að þetta eigi eink- um við um hin stærri viðfangs- Frá aðalfundi SÍS á Húsavík. Valur Arnþósson í ræðustól, en til hliðar við hann sitja Erlendur Einarsson og Teitur Björnsson. Fréiuriuri. efni sem ríki, sveitarfélög og önnur almanna samtök vinni að. Er þó lögð áhersla á að í slíku samstarfi séu virt grundvallar- sjónarmið samvinnufélaganna. Lögð er áhersla á það í stefnu- skránni að samvinnufélögin séu opin öllum og að þeim sé stjórn- að eftir lýðræðislegum leiðum. í 15 atriðum, sem eru meginþáttur stefnuskrárinnar, er fjallað um starfshætti og leiðir. Hjörtur sagði í samtali við Morgunblaðið að mikil vinna margra manna hefði verið lögð í smíði stefnu- skrárinnar, þar sem áhersla hefði verið lögð á að stefnuskrá- in væri vel úr garði gerð. Sagði Hjörtur að öll umræða á þessum vettvangi hefði skapað mikið fé- lagsstarf á meðal samvinnu- manna, sem hefði tengst ýmsum öðrum þáttum en beinni gerð stefnuskrárinnar. Reiknað er með að aðalfundi SÍS ljúki í dag, laugardag, á Húsavík, en á morgun verður há- tíðarsamkoma í íþróttahúsinu að Laugum í tilefni aldarafmælis samvinnuhreyfingarinnar. Þar verður fjölþætt dagskrá og með- al ræðumanna er forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir. Begin og Pierre Trudeau. Einnig hafa forystumenn á Norðurlönd- um talað, t.d. talaði Anker Jörg- ensen nú í vikunni. I ræðum sínum hafa menn lýst viðhorfum sínum til afvopnunarmálanna," sagði Birgir. „Nú um helgina fara nefndar- störf í gang og menn eru að reyna að ná samkomulagi um ályktanir og texta, en það verður greinilega mjög erfitt. Fyrir liggur uppkast sem enn er mikið ósamkomulag um og þetta skýrist varla fyrr en töluvert verður liðið á þingið. Við íslensku þingmennirnir höfum átt fundi með þingmönnum ýmissa annarra ríkja og höfum rætt þau mál sem helst snerta okkur. Við höfum þegar rætt við fulltrúa allra Norðurlandanna, Ira og Bandaríkjanna. I næstu viku mun- um við svo eiga fundi með Sovét- mönnum, Kanadamönnum, Bret- um og fleirum," sagði Birgir ísl. Gunnarsson að lokum. Sérkennileg- ur formáli að veðurfréttum í FRETTATÍMA sjónvarpsins, föstu- daginn 18. júní sl., hóf Páll Berg- þórsson veðurfræðingur, kynningu veðurfrétta með eftirfarandi hætti: „Fallegt er nú landið okkar og vinalegt á svona degi og raunar ekki síður séð utan úr geimnum, eins og þessi mynd sýnir. En kannski gleður hún ekki augu allra af sömu ástæðu, stríðsglaðar konur úti í heimi kynnu að líta það hýru auga til að æfa sig í dásam- legri hernaðarárás og vinna sér lof og dýrð á einhverju öðru út- skeri. En það er sem sagt að mestu heiðskírt ailt í kringum landið ...“ 0 INNLENT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.