Morgunblaðið - 20.06.1982, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1982
3
Margir gera sér ekki grein
fyrir afleiðingum verkfalls
— segir Jóhanna Sveinsdóttir, einkaritari framkvæmdastjóra Eimskips
„Ástæðan fyrir því að ég for af stað með þessa undirskriftasöfnun var
einfaldlega sú, að ég var að berjast fyrir minni eigin sannfæringu“ sagði
Jóhanna Sveinsdóttir, einkaritari Pórðar Magnússonar og Valtýs Hákonar-
sonar, framkvæmdastjóra Eimskipafélags íslands, í viðtali við Morgunblað-
ið. Undirskriftasöfnun hennar á meðal starfsfólks Eimskipafélagsins innan
Verslunarmannafélags Reykjavíkur til að kanna viðhorf félagsmanna til
hugsanlegs verkfalls, sem skella átti á í gær, hefur valdið fjaðrafoki og að
hcnnar mati rangtúlkuð. Gerði Þjóðviljinn m.a. mikið verður út af því að
nafn hennar skyldi standa efst á undirskriftalista þeim sem kom frá Eim-
skip. Þá þótti það grunsamlegt, að sami texti skyldi vera á undirskriftalistun-
um, sem bárust frá Eimskip og Flugleiðum.
„Sú tenging, sem Þjóðviljinn er
að ræða um er eingöngu til komin
vegna þess, að einkaritari Sigurð-
ar Helgasonar, forstjóra Flug-
leiða, sem reyndar var erlendis
þegar þessar undirskriftir fóru
fram, er kunningjakona mín og
við erum báðar félagar í klúbbi
ritara. Sömu sögu er að segja um
starfsstúlkur, sem ég þekkti hjá
Heklu og Heimilistækjum. Eg
hafði samband við þær og bar
þetta undir þær. Þær tóku vel í
þann texta, sem ég las fyrir þær í
símann og skrifuðu hann upp. Það
er því ekki að undra þótt hans sé
eins eða líkur hjá öllum fyrirtækj-
unum,“ sagði Jóhanna.
Sagðist hún hafa farið að velta
því fyrir sér, nokkru eftir tveggja
daga verkfallið í fyrri viku, hvort
fólk vildi virkilega fara í verkfall.
Hvort nokkur hefði efni á því á
sama tíma og verðbólgan nálgað-
ist 70%, fiskurinn í sjónum væri
að verða uppurinn, togararnir
stöðvuðust einn af öðrum vegna
skorts á rektrarfé og fjármunir til
að reka þjóðfélagið væru hrein-
lega af skornum skammti. „Ég
hafði samband við fjölda fólks og
spurði það álits. Svarið var á sama
veg hjá langflestum. Fólk vildi
ekki og hafði ekki efni á að fara í
verkfall."
Undirskriftasöfnunin hjá Eim-
skip fór síðan fram að frumkvæði
Jóhönnu. Sendi hún lista af stað
og fékk hann í hendur fjórum tím-
um síðar. Höfðu þá 65 þeirra 80
starfsmanna Eimskips, sem eru
innan vébanda VR skrifað undir
áskorun þess efnis að verkfallinu
yrði frestað.
Sami háttur var hafður á hjá
Flugleiðum nema hvað þar gekk
einkaritarinn um með listann þar
sem tíminn var orðinn naumur.
Ætlunin var að VR fengi listann í
hendurnar á hádegi á miðvikudag
í síðasta lagi.
„Mér finnst það undarlegt
starfsfólk, sem ekki vill hag fyrir-
tækja sinna sem bestan," sagði Jó-
hanna. „Margir gera sér ekki grein
fyrir því að með því að fara í verk-
fall er fólk um leið að hætta þeirri
atvinnu, sem það hefur. Eimskip
og Flugleiðir eru fyrirtæki með
viðskipti víða um heim. Það þýðir
ekkert að senda telex-skeyti um
allan heim og tilkynna að allt sé í
hershöndum vegna verkfalls.
Flugleiðir hafa verið að berjast
fyrir því að ná aftur fyrri virðingu
undanfarin tvö ár og verkfall nú
gæti gert út af við fyrirtækið. Það
virðist ekki vera hugsað út í slíkt."
Að lokum sagði Jóhanna: „Mér
Símaskráin
1982 í dreif-
ingu á mánudag
SÍMASKRÁIN fyrir árið 1982 er kom-
in út og hefst afhending á henni, til
notenda á höfuðborgarsvæðinu, á
mánudag og fljótlega upp úr því verður
hún send til dreifingar út á lands-
byggðina.
Að sögn Hafsteins Þorsteinssonar
hjá Pósti og síma er símaskráin með
hefðbundnu sniði. Upplag hennar er
111 þúsund, blaðsíðutal hið sama og
í síðustu skrá. Breytingar vegna
flutninga nýrra númera, aukanafna
o.fl. nema að hans sögn 20—24% af
innihaldi. Ný nöfn á Reykjavíkur-
svæðinu eru 4.500 og kvað Hafsteinn
þar mikið um aukanöfn.
finnst það kyndugt í 9.500 manna
félagi ef ekki þarf nema 100 at-
kvæði, rúmlega 1% félagsmanna,
til að samþykkja verkfallsboðun.
BR gerir ekki neitt til að ná til
sinna félagsmanna. Félagið sendir
aldrei út fundarboð, auglýsir að-
eins í blöðum og útvarpi. Þegar
svo 200 manns sækja fund nægir
að 100 samþykki verkfallsboðun.
Á þessum fundi greiddu 20 at-
kvæði á móti og 80 sátu hjá. í lýð-
ræðislegum félögum þarf % at-
kvæða félagsmanna til að hlutir
nái fram að ganga. Þarna er ein-
hvers staðar pottur brotinn.
VR ætti að ganga í lýðræðisátt
og breyta vinnulöggjöfinni þann-
ig, að verkfall megi aðeins boða
eftir leynilega allsherjaratkvæða-
greiðslu þar sem ákveðinn hundr-
aðshluti félaga tekur þátt og sam-
þykkir. Með þessu gæfist öllum
aðildarfélögum kostur á að taka
ákvörðun um hvað rétt sé að gera
í svo afdrifaríku máli sem verkfall
er.
Ég vil í lokin koma því á fram-
færi að með þessu er málinu lokið
af minni hálfu. Það rétta hefur
komið fram og þær missagnir og
misskilningur sem orsakast hefur
með blaðaskrifum verið leiðrétt-
ur“.
Tveir fyrsta daginn í Vatnsdalsá
VEIÐI i Vatnsdalsá hófst fimmtudag-
inn 17. júní sl., og veiddust þá tveir
laxar, samkvæmt upplýsingum sem
MorgunblaóiA fékk i veióihúsinu við
ána.
Einn lax kom síðan á Iand fyrir
hádegi í gær. Laxarnir eru af
stærðinni 11—13 pund og tóku þeir
ánamaðk. Aðstæður við ána eru
góðar og var þar 10 stiga hiti í gær,
en undanfarnar vikur hefur verið
haldur kalt í Húnavatnssýslu.
Veiðin í Norðurá að glæðast
Veiðin er heldur að glæðast í
Norðurá, samkvæmt upplýsingum
sem Mbl. fékk í veiðihúsinu þar, og
eru nú komnir 64 laxar á land. AU-
ar aðstæður við ána eru góðar og
var þar í gær 22 stiga hiti, en slíkt
veður er að vísu ekki álitið gott til
veiða. Veiðin í Norðurá skiptist
nokkuð jafnt á milli flugu og
maðks, og eru gjöfulustu flugurnar
„Þingeyingur", „Francis“, „Rækja“
og „Krafla".
Lélegt í Laxá í Leirársveit
Veiðin í Laxá í Leirársveit hófst
þann 13. júní sl. og hefur veiðin ver-
ið mjög treg, samkvæmt upplýsing-
um sem Mbl. fékk hjá Sigurði Sig-
urðssyni bónda í Stóra-Lambhaga.
Sagði hann að í gærmorgun hefðu
verið komnir upp 3 laxar og lítið af
laxi hefði sést í ánni. Þó hefðu
nokkrir fiskar sést í Laxfossi. Sagði
Sigurður að veiðin í Laxá hefði
sjaldan eða aldrei byrjað jafn illa
og í ár. ój
nýi staóurinn, sem hrífur fólk næstu ferðir:
30. júní 3 vikur #21. júlí 2 vikur • 4. ágúst — uppselt
Hvergi gefst annað eins tækifæri til að njóta
veðurblíðu, frábærrar gistiþjónustu og fjölbreytni, — hingað streymir fólk
alls staðar að til að skemmta sér, njóta lífsins og verða vitni að heimsvið-
burðum í fþróttum og á sviði lista
Næsta ferð 24. júní — 1, 2 og 3 vikur. 1. og 8. júlí — uppselt.
—- vlð t ..........
Torremol‘n ■ okku ,„ievrnanlegt■s 1
tz°*,Ma ut°",
' skemmtiatrx var vel varið kunna siU faZ ýnarferðin. V,
‘ °g SÝNber af. **> "U
I ’ veljum vlð aLrl(eki bjóði f‘á J, og þj<>nus,u .. Farþegar á
. Jr Wrfj*«fakt TJ“
Mallorca
Vinsælustu
baðstrendurnar
og gististaðirnir í
Palma Nova og Magaluf.
NÆSTA FERD: 7. JÚLÍ -3 VIKUR.28. JÚLÍ OG 18. ÁGÚST— UPPSELT
Lignano
Hinn orðlagði
sumarleyfisstaður fyrir alla
fjölskylduna, betri og
vinsælli en nokkru sinni
fyrr.
23. JÚLÍ — ÖRFÁ SÆTI LAUS. 27. ÁGÚST. UPPSELT 9. JÚLl
Austurstræti 17, Reykjavík, símar 20100 og 26611.
Kaupvangsstræti 4, Akureyri, sími 96-22911.