Morgunblaðið - 20.06.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ1982
5
Svipmyndir úr mánudagslcikritinu í sjónvarpinu.
Sjónvarp mánudag kl. 21.20:
„Næsta helgi“
LKIKRITIÐ í sjónvarpinu annað
kvöld er danskt eftir Erling Jepsen,
en leikstjórn hefur Ole Roos annast.
í leikritinu er fjallað um fjöl-
skyldu á leið heim úr sumarbú-
stað, sem hún hefur verið að dytta
að. Hún hlakkar til að komast aft-
ur í bústaðinn, en áður en það get-
ur orðið, þarf að fást við vandamál
hversdagsins. Með aðalhlutverk
fara Preben Nezer, Ditte Grau
Nielsen, Baard Owe og Ulla Jes-
sen. Þýðingu annaðist Veturliði
Guðmundsson. (Nordvision —
Danska sjónvarpið.)
Sjónvarp kl. 18.40:
Samastaður á jörðinni
í DAG kl. 18.40 eftir HM i knatt-
spyrnu, sunnudagshugvekjuna og
norska framhaldsmyndaflokkinn
Gurra, verður á dagskrá sjónvarps-
ins nýr sænskur framhaldsmynda-
flokkur, sem ber nafnið Samastaður
á jörðinni.
Verður sýndur fyrsti þáttur og
heitir hann Fólkið í guðsgrænum
skóginum. Þetta er mynd um þjóð-
flokk, sem lifir af veiðum og ban-
anarækt, og búa margar fjölskyld-
ur undir sama þaki. Nú berast því
sögur um stórar vélar, sem geta
unnið á skóginum og flutt hann til
framandi landa. Þýðandi og þulur
er Þorsteinn Helgason.
Frá útiskemmtun á Arnarhóli. Þátttaka í hátíðahöldunum 17. júní var meiri nú
en áður hefur verið. Óhætt er að giska á að um 30 þúsund manns hafí verið I
miðbænum þegar mest var og þátttaka í útiskcmmtunum um kvöldið var með
mesta móti.
Sjónvarp
kl. 20.45:
„Mynd-
listar-
menn“
Klukkan 20.45 er á dagskrá
sjónvarpsins þriðji þátturinn í
þáttaröðinni um myndlistar-
menn.
Þessi þáttur heitir: Um
SUM. Hann fjallar um, eins
og nafnið ber með sér,
SÚM-hreyfinguna, sem
dregið hefur dilk á eftir sér
í íslensku listalífi. Fulltrúar
SÚM í þættinum eru þeir
Guðbergur Bergsson, Jón
Gunnar Árnason og Sigurð-
ur Guðmundsson.
Umsjón með gerð þáttar-
ins hafði Halldór Björn
Runólfsson, en um stjórn
upptöku sá Viðar Víkings-
son.
Smeygdu þérmed í
síóustu
sætin
DANMORK
25. júní - Sumarhús í Karlslunde í
1 viku og ,,flug og bfll" í 1 eða 3 vikur
RIMINI
28. júní - örfá sæti laus m/ floúðar- eða
hótelgistingu -11 dagar, 21 dagur.
PORTOROZ/GRIKKLAND
1. júlí - laus sæti, íbúðargisting, hótel-
gisting - 21 dagur.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTFUETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899