Morgunblaðið - 20.06.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1982 \ 23
JORGE LUIS
BORGES
Hann er núorðið jafnan nefndur „risi argentínskra
bókmennta“, Jorge Luis Borges. Sumir fullyrða að þetta sé
slæmur dómur um argentínska bókmenningu, því Borges
sé enginn risi í verkum sínum, Ijóð hans knöpp og sögur
stuttar. Og ef dæma má af smásögum þeim, sem Guðberg-
ur Bergsson hefur snaraö og Almenna bókafélagið gefið
út, er Borges ekki beinlínis aðlaðandi höfundur. Hann er
húmorlaus í sínum verkum — en þeir sem hafa komist í
gegnum bækur hans segja að Borges sé engum líkur og
afburða höfundur. Hvernig sem því er varið og hvort
Borges á skilið Nóbelsprís eða ekki — þá er maöurinn
mikill gáfumaður og svo kann hann að meta bókmennta-
arfleifð okkar íslendinga. Hann hefur komið þrívegis til
íslands, pílagrímsferöir hefur hann kallað þær reisur, og
nú í nokkur ár hefur hann lært norrænu ásamt einkaritara
sínum, Maríu Kodama, sem er mjög handgengin gamla
manninum. En því er sagt hér af Jorge Luis Borges, að
hann er orðinn ástfanginn á gamals aldri. Ekki af konu —
heldur franska hverfinu í New Orleans!!
Ungur í anda
Borges hefur sagt í samtali
við M að Borg í nafni hans
sé sama orðið og borg í ís-
lensku. Svo vonar hann að amma
hans sé af norrænum uppruna:
„Hún er ættuð af víkingaslóðum
í Norðymbralandi og er kannski
af norrænu bergi brotin. Ég
vona það. Og ég held í vonina
eins lengi og ég get.“
Borges fæddist í Buenos Aires
24ða ágúst 1899. Hann var af
efnafólki, en Borges finnst lítið
til um þau efni: „Við höfum ein-
ungis sex þræla," segir hann,
„aðrar fjölskyldur höfðu 30 til
6G.“ Það var ekkert götuuppeldi
á Borges. Hann hafði enska
barnfóstru og missti aldrei úr
máltíð. Faðir hans var lögfræð-
ingur og rithöfundur og átti
bókasafn gott. Drengurinn gerð-
ist snemma bókelskur og félagar
hans í æsku voru Keats, Shelley,
Byron, Swinburne og Browning.
Borges lærði ensku á undan
spænsku og las Don Kíkóta fyrst
í enskri þýðingu.
Borges menntaði sig í Evrópu,
aðallega í Englandi og lagði
stund á málvísindi. Hann settist
ekki að í heimalandi sínu fyrr en
1921. Borges var um tíma í tygj-
um við spænska útgáfu á ex-
pressíónismanum (ultraisma) en
kvaddi þær kenningar um það
bil sem hann sneri til heim-
kynna sinna í Suður-Ameríku.
Enskur spekingur segir að hann
hafi ekki vakið verulega athygli
á sér fyrr en seint á fullorðinsár-
um, þegar „Fictions" var þýdd á
enska tungu árið 1962. Síðan
hefur hann verið í miklum met-
um víða um heim, einkum meðal
bókmenntamanna því bækur
hans eru enginn skemmtilestur.
Borges hefur í mörg ár verið
blindur, en hann hefur ekki lagt
árar í bát, heldur verið sífellt á
ferðinni og fylgst með og starfað
mikið. Þegar hann kom í Mos-
fellsdal sagði hann:
„Ég á gott. Ég sé móta fyrir
fjöllunum. Það kemur sér vel
fyrir mig að vera blindur. Ég sé
ekki bæina. Ég sé ekki sveitina.
En ég sé fjöllin eins og Egill sá
þau, þegar hann var orðinn
blindur. Þannig stend ég í spor-
um Egils en ekki þið. Það eru
forréttindi að vera blindur á
þessum stað.“
káldið segir á öðrum stað í
samtali við M:
„Ég held, að bezta sagan
sem ég hef skrifað — kannski
eina sagan, sem ég hef skrifað —
sé frásögnin Sú óboðna, með
skírskotun í 2. Konungabók. Ég
skrifaði þessa sögu í stíl og anda
íslendinga sagna: „Einhver nam
hana af vörum einhvers ... “
segir í upphafinu. Samt er um-
hverfið annað, eða slétturnar
utan við Buenos Aires og mann-
lífið þar fyrir hundrað árum. En
ég reyndi að segja þessa sögu á
sama hátt og sögur eru sagðar í
forníslenzkum stíl; reyndi að
segja hana með ákveðnu sak-
leysi, enda þótt ég vissi öllum
stundum hvað ég var að fara. Ég
var að segja frá ruddalegu efni á
einfaldan hátt. Við móðir mín
höfðum verið að lesa Sögurnar
og hún vissi, að hverju ég
stefndi. Þegar ég kom að lykil-
setningunni, lenti ég í erfiðleik-
um. Þá sagði móðir mín: „Bíddu
andartak, ég veit hvað bróðirinn
sagði.“ Hún sagði ekki: „Hann
hefði getað sagt,“ eða „ég sting
upp á að hann hefði sagt... “ En
hún sagði: „Ég veit hvað hann
sagði." Og þegar hún sagði mér
setninguna: „Göngum til verks
bróðir," sá ég í hendi mér, að
Jakob F. Ásgeirsson
tók saman
hún var sönn og átti, eins og
augljóst má vera, rætur í íslend-
inga sögum."
En nú hefur kall hreiðrað
um sig í New Orleans.
Blaðamaður nokkur að
nafni Miguel Acoca gekk þar á
fund hans og Falklandseyjadeil-
una milli Argentínumanna og
Breta bar náttúrlega fyrst á
góma.
„Þetta er viðbjóðslegt stríð,"
segir gamli maðurinn skelfdum
rómi. Hann hleypti í brýnnar og
kreppti hnefann: „Það er hrylli-
legt. Allur heimurinn gæti lent í
styrjöld. Hryllilegt."
„Ekki, Borges minn, við skul-
um ekki halda áfram," segir
María, einkaritari hans, og
klappar stillilega á hönd hans:
„Við erum komin aftur til New
Orleans."
Borges er orðinn ástfanginn af
New Orleans. Hann er gersam-
lega töfraður af „einni fallegustu
borg heimsins", eins og hann
segir sjálfur og myndar bros-
vipru um munnvikin. Áttatíu-
ogtveggja ára gamall er hann
jafnvel að hugsa um að yfirgefa
heimaland sitt fyrir fullt og allt
og setjast að í New Orleans.
Hann ætlar að kveðja Buenos
Aires, þá borg sem setur svo
mikinn svip á verk hans, og eyða
ævikvöldinu í jassborginni
frægu, þar sem hann getur rölt
um sérkennilegar götur ilmandi
af franskri, spænskri, afrískri
menningu og hlýtt á þokulúðr-
ana á Mississippi. En það er ekki
bara rómantíkin — peningar
spila líka inní:
„Pesóinn er orðinn verðlaus,"
segir Borges. „Verðbólgan er
stjarnfræðileg í Buenos Aires,
matföng, húsaleiga etc. Það er
mikil ógæfa.“
Síðustu mánuði hefur þessi
hrörlegi maður, blindur en samt
glæsilegur, með stafprik í hendi,
klæddur eins og enskur lord,
gengið um franska hverfið í New
Orleans og öllum finnst hann
eiga þar heima. Hann styður sig
við Maríu sem segir honum hvað
hún sér og hvar þau eru stödd.
Málarar og teiknarar í kringum
Jackson-torgið og St. Louis-
dómkirkjuna, skáld sem syngja
við gítarleik í Royal-stræti,
saxafónleikarar, lúðrablásarar,
götutrúðar og eftirhermur,
gleðikonur og hórmangarar,
fatafellur og dansarar, bóksalar
og þjónar — allt þekkir þetta
fólk hann orðið sem „Mr. Borg-
es“. Og það umgengst hann með
virðingu. Mr. Borges á orðið
heima í þessum stað.
Borges kveðst óttast að
Falklandseyjamálið geti
leitt til þriðju heimsstyrj-
aldarinnar og jafnvel kjarnorku-
styrjaldar milli Sovétta og
Bandaríkjamanna.
„Slíkt yrði óhugsanlegur
harmleikur. Okkur yrði öllum
eytt með kjarnerkuvopnum.
Imyndaðu þér, að bækur mínar
myndu eyðast, öll bókasöfn
myndu eyðast og það yrði enginn
eftir til að lesa. Það má aldrei
verða."
Svo hlær hann kuldalega:
„Kannski myndi ein bók lifa.
Kannski Sandbókin mín. Eins og
við vitum, þá eyðir kjarnorku-
sprenging ekki sandinum, heldur
bræðir hann, svo hann kristall-
ast. En hver yrði þá eftir til að
lesa Sandbókina mína?“
Jorge Luis Borges segir að
kollurinn sé í góðu lagi ennþá.
Hann er sífellt með ný söguefni í
huganum, hann lætur sig
dreyma eins og ungur væri,
ævinlega með pennann á lofti og
alltaf að endurskrifa og fága.
„En ég hugsa aldrei um lesand-
ann,“ bætir hann við.
ÞAÐ BÝÐUR ENGINN BETRA VERÐ EN ÚRVAL
LONDON
Brottfarir: Alla þriöjudaga til og meö 15. september 1—4
vikur aö vild. Ótakmarkaöur akstur um Bretlandseyjar —
hagstæð verö. Val um fjölmargar bílategundir. Bílnum má
skila í Glasgow eða London. Úrval býður fjölbreytta gist-
ingu á Bretlandseyjum sem greiða má hér heima.
Verö pr. mann Flokkur 2 — 1 í bifreiO 2 i bifreiö 3 i bifreiö 4 i bifreiö 1 vika 5.491.- 4 646,- 4.364- 4.223- 2 vikur 7.181- 5.491,- 4.927.- 4.645- 3 vikur 8.872.- 6.336.- 5.761.- 5.068.- 4 vikur 10.562- 7.181.- 6.054,- 5.491.-
Flokkur 3 — 1 i bifreiö 5.732- 7.664,- 9.596.- 11.528.-
2 í bifreiö 4.766.- 5.732.- 6.698- 7 664 -
3 i bifreiö 4 444.- 5.088,- 5.732.- 6.376.-
4 í bifreiö 4.283.- 4.766,- 5.249.- 5.732.-
Flokkur 7 — 2 i bifreiö 5.088,- 6.376- 8.026- 8.952,-
3 i bifreiö 4.659- 5.517,- 6.618,- 7.235.-
4 i bifreiö 4.444,- 5.088.- 5.913- 6.376,-
5 i bifreiö 4.315.- 4.830,- 5.491- 5.861.-
Flokkur 8 — 2 i bifreiö 5.209.- 6.618.- 8.026.- 9.435,-
3 i bifreiö 4.739.- 5.678,- 6.618.- 7.557,-
4 i bifreiö 4.505- 5.209.- 5.913.- 6.618-
5 i bifreiö 4 364,- 4.927.- 5491.- 6.054,-
URVAL
við AusturvöH — Sími 26900.
Umboðsmenn um allt land.
GLASGOW
Brottfarir: Alla miövikudaga til og meö 16. september.
1—4 vikur aö vild. Hagstæð verð og ótakmarkaöur akstur
um Bretlandseyjar. Bílnum má skila í London eöa aftur í
Glasgow. í tengslum við „Flug og bíl“ býður Úrval gistingu
um allar Bretlandseyjar er greiða má hér heima.
Varö pr. mann. Flokkur 2 — 1 i bifreiö 2 í bifreiö 3 i bifreiö 4 i bifreiö 1 vika 4.733- 3.888 - 3 606 - 3 465 - 2 vikur 6.423 - 4.733.- 4 169- 3.887 - 3 vikur 8.114 - 5.578.- 5 003.- 4 310- 4 vikur 9.804 - 6 423.- 5 296 - 4 733 -
Flokkur 3 — 1 i bifreiö 4.974,- 5.906- 8 838,- 10 770 -
2 i bifreiö 4 008,- 4 974 - .5 940,- 6 906 -
3 i bifreiö 3 686 - 4.330.- 4 974 - 5 618 -
4 í bifreiö 3.525.- 4.008 - 4.491 - 4.974 -
Flokkur 7 — 2 i bifreiö 4.330 - 5 618 - 6 906 - 8 194 -
3 i bifreiö 3 901,- 4 759.- 5.618 - 6 477,-
4 i bifreiö 3 686- 4 330,- 4 974.- 5 618 -
5 i bifreiö 3.557,- 4.072.- 4.588.- 5 103 -
Flokkur 8 — 2 i bifreiö 4.451- 5 860 - 7 268.- 8 677 -
3 i bifreiö 3 981,- 4 920- 5860,- 6 799 -
4 i bifreiö 3.747,- 4 451 - 5 155.- 5 860 -
5 í bifreiö 3.606 - 4.169- 4.733 - 5 296 -