Morgunblaðið - 20.06.1982, Page 26

Morgunblaðið - 20.06.1982, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ1982 MYNDLIST Á LISTAHÁTÍÐ Myndlist Bragi Ásgeirsson Aðalframlag Norræna húss- ins til myndlistar á Listahátíð að þessu sinni, er sýning á steinhöggmyndum eftir danska myndhöggvarann John Rud. Hér er um að ræða eitt merki- legasta framlagið til myndlistar á Listahátíð ef ekki það merkasta því að myndirnar eru mjög áhugaverðar í viðkynn- ingu. Jafnframt er það aðdáun- arvert að hægt skuli hafa verið að flytja allar þessar þungu steinblokkir hinn langa veg. Tókst líka einungis fyrir frá- bæra fyrigreiðslu margra aðila og tel ég að hér komi fram besta hliðin á norrænni samvinnu. Svo sem segir í formála Ann Sandelin þá kom John Rud í Eftir að hafa flutt steinana heim skoða ég þá nákvæmlega, krítarmerki og hegg af vankanta. Höggmyndir John Rud Granít 200x100x100. 1980. heimsókn hingað til lands á síð- astliðnu sumri og kom þá til Norræna hússins með hug- mynd, sem nú er orðin að veru- leika. Hann langaði til að vinna og sýna höggmyndir sínar á ís- landi og fá tækifæri til að vinna með íslenskan efnivið og kynn- ast sýningargestum hér. Enn- fremur segir þar, að John Rud sýni verk unnin í granít og aðr- ar steintegundir. Steinar þessir bárust til Danmerkur frá Nor- egi og Svíþjóð á ísöld. Og nú hafa flutningaskip nútímans flutt þessa steina hingað til ís- lands frá Danmörku ...“ Sennilega grunar fæsta hve merkilegt framtak er hér á ferðinni, sem getur átt eftir að marka spor í þróun íslenzkrar höggmyndalistar í framtíðinni. Síðan Sigurjón Ólafsson hætti að vinna í stein hafa fáir ís- lenzkir myndhöggvarar reynt fyrir sér á því erfiða sviði. En nú vinna fjölmargir erlendir af kappi í hinar ýmsu stein- og marmarategundir og getur t.d. að líta mikið af slíkum myndum á árlegum sýningum í Veksöl- und fyrir utan Kaupmanna- höfn. Þá sýningu hef ég tvisvar heimsótt og haft mikinn lær- dóm af og m.a. ritað um í Lesb- ók fyrir tveim árum. Það sem mesta athygli mína vekur í sambandi við myndir John Rud fyrir utan húsið er hve þær auðga mikið svip húss- ins. Ávöl form höggmyndanna mýkja hinar hörðu línur húss- ins og skapa vina-og mannesku- legra andrúm. Einhvern veginn er Norræna húsið á þann hátt einangrað í Vatnsmýrinni að það væri upplagt að staðsetja nokkrar höggmyndir umhverfis það svo sem nú hefur verið gert. En það verður að gerast á þann veg, að margir leggi hönd á plóginn þannig að um samor- rænan skúlptúrgarð yrði að ræða. En víkjum nú aftur að myndurn myndhöggvarans John Rud. Hér skal því skotið inn, að það er næsta merkilegt nú á tímum að geta notað nafnið myndhöggvari í orðsins fyllstu merkingu, og ánægjulegt um leið. John Rud er kappsfullur ung- ur myndlistarmaður með ríka tilfinningu fyrir því efni sem hann hefur hverju sinni á milli handanna enda leitast hann við að draga fram eiginleika þess svo sem best verður á kosið. Hann á sér engin leyndarmál frekar en flestir framsæknir myndlistarmenn og er óhrædd- ur við að sýna vinnuaðferðir sínar og kynna hugsanir sínar í rituðu máli. M.a. segir hann: „Önnur for- vitnileg aðferð við skoðun höggmynda er að greina hvort þær bera í sér skírskotun eða ekki. Þegar vísað er til fyrir- myndarinnar er boðskapurinn sóttur út fyrir verkið, t.d. í ljóð, stríð, stælt dýr eða fallega konu. Fyrir nokkrum árum kom til sögu konkretstefnan svonefnda, uPPgjör við alla isma. Gildi höggmynda skyidi felast í eigin verðleikum, hinu áþreifanlega verki! Enginn symbolismi eða utan- aðkomandi útskýringar. Hið skírskotunarlausa er áþreifan- legt efnið með eiginleikum sín- um og eftirlíkjanlegu verkun- um. Hið sterka, strengda, þanda, samanþjappaða fljót- andi, fasta, þunga, létta, innri spenna, rofið ferli, birta, tími, stærð og margt fleira. — I stuttu máli: Að vinna ýmist með eða á móti eiginleik- um efnisins. — Þar er ég vel heima. — O. — Bleyta hann (steininn) og gera svo sleipan að hrafninn og máv- arnir geta ekki með góðu móti tyllt sér þar niður. Láta hann svífa, fljóta í vatninu og feykj- ast með vindinum. Ég vil að regnið fái notið andartakshvíld- ar á steininum, því för þess er haldið lengra áfram. - O - í mínum heimabæ tekur maður ekki 15.000 króna lán í bankan- um heldur 15 kíló! Gæti ég fengið fólk til að taka hendurnar úr vösunum og snerta höggmyndir þá hef ég haft jafn mikil áhrif og banka- ræningjarnir og löggan...“ — Á þennan veg útskýrir John Rud hugmyndir sínar og gerir það oft á skilmerkilegan og sláandi hátt, aðalatriðið er að hugmyndirnar komist til skila til þess er les eða hlustar. Ég hafði mikla ánægju af að skoða stein-höggmyndir danska listamannsins John Rud, ein- kum þar sem hann leikur á fjöl- breytni steinategundanna svo sem í myndunum úti: „Samsetn- ing I og II. (6 og 7). Þá þótti mér mikið samræmi í myndinni „Granít á stalli" (9). Stóra myndin fyrir framan húsið er til mikillar prýði og mætti gjarnan vera þar til frambúðar. Litlu myndirnar inni eru margar listilega vel gerðar og þess skal getið hér að þær verða fjarlægðar eftir helgi en úti- myndirnar verða á sínum stað fram í ágúst. Svo ber að þakka listamann- inum framlag sitt og öllum þeim er stuðluðu að því að sýn- ingin varð að veruleika. Meira af slíku ... Ljósmyndir Erlu Eyjólfsdóttur Eftir að hafa skoðað myndir Ken Reynolds í Norræna hús- inu átti ég af tilviljun leið fram hjá Mokka-kaffi og leit þar inn og dvaldi um stund. Á veggjunum hanga fram yfir helgi myndir eftir Erlu Olafsdóttur, er ég kann engin deili á. En mér þótti fróðlegt að bera saman myndir þessara tveggja áhugamanna á sviði Ijósmyndunar. Myndir Erlu eru einnig mjög tærar í út- færslu og hún hefur einnig til- finningu fyrir hinu smágerða og einfalda í náttúrunni. En hún kemur víðar við og ein- angrar sig ekki alfarið við hið smágerða í umhverfinu. Myndir hennar eru allt í senn landslag, blóm, klettar, biðu- kollur, skýjamyndanir og allt mögulegt úr hlutveruleika um- hverfisins. Fallegar myndir, sem sýna glögglega hvað ljós- opið er orðið fullkomið og hvernig hægt er að þjálfa kenndir sínar gagnvart nátt- úrunni með markvissri þjálf- un. Það gladdi mig að sjá þessar tæru ljósmyndir á þessum stað og mér fannst Listahátíð- in einnig í fullum gangi á veggjum þessa sígilda lista- kaffistaðar borgarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.