Morgunblaðið - 20.06.1982, Page 48
pJnrjsnwliiliiíSiiS!*
AUGLÝSINGASIMINN ER:
22480
|H«reunblat>ið
SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1982
Qvissa ríkir um framhald viðræðna ASÍ og VSÍ vegna nýrrar þjóðhagsspár:
Spáin gerir ráð fyrir allt að
6% samdrætti þjóðartekna
— og að viðskiptahalli geti orðið 8—9% af þjóðarframleiðslu, en var 2,4% 1981
Óhætt er að segja, að frum-
legheitin finnist jafnt í dýra-
ríkinu sem hjá mönnunum.
Öndin sú arna bjó sér hreið-
ur undir bát grásleppukarls í
Grímsstaðavörinni. Svo ákveð
in liggur hún á eggjunum, að
þótt grásleppukarlinn dragi
bát sinn yfir hana eða slaki
ofan af, situr hún sem fastast
til að vernda afkomendur
sína.
Ljósmynd Mbl. KEE
NOKKUR óvissa rikir nú um framhald samningaviðræðna Alþýðusam-
bands íslands og vinnuveitenda eftir að endurskoðuð þjóðhagsspá var lögð
fram í gærdag, en samkvæmt henni hefur efnahagsástandið versnað tölu-
vert frá því í marz, þegar spáin var lögð fram, en viðræður hafa verið
byggðar að nokkru leyti á því, sem þar kom fram. í marz var gert ráð fyrir
um 1% samdrætti þjóðartekna, en samkvæmt endurskoðaðri þjóðhagsspá
nú, er gert ráð fyrir allt að 6% samdrætti.
í raun má segja, að um tvær
spár sé að ræða. I öðru tilfellinu er
gert ráð fyrir, að dragi úr aukn-
ingu botnfiskafla og engin loðnu-
veiði verði í haust. Þá er gert ráð
fyrir um 20% samdrætti afla-
verðmætis. Þorskaflinn yrði þá
350 þúsund tonn, samanborið við
460 þúsund tonn í fyrra. Miðað við
þessar forsendur er síðan gert ráð
fyrir um 12% samdrætti í sjávar-
afurðaframleiðslu. I hinu tilfell-
inu er gert ráð fyrir allt að 20%
samdrætti í sjávarafurðafram-
leiðslunni.
Varðandi þjóðartekjurnar, þá
gerir fyrra dæmið ráð fyrir, að
þær muni minnka um 3,5%, en
samkvæmt spánni frá því í marz
s.l. var gert ráð fyrir 1% sam-
drætti. Hins vegar gerir spáin
samkvæmt seinna dæminu ráð
fyrir allt að 6% samdrætti þjóðar-
tekna í ár.
í þjóðhagsspá frá í marz sl. var
gert ráð fyrir, að viðskiptahallinn
yrði um 5% af þjóðarframleiðsl-
unni, en í lakara dæminu hér að
framan er gert ráð fyrir, að hann
geti orðið allt að 8—9%, en til
samanburðar var þetta hlutfall
2,4%.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
var Ólafur Davíðsson, forstöðu-
maður Þjóðhagsstofnunar, kall-
aður í „Karphús" í fyrrakvöld til
að gefa skýrslu um niðurstöður
þjóðhagsspárinnar og voru málin
síðan rædd fram á nótt, en allar
forsendur fyrri viðræðna voru af
framangreindum ástæðum tölu-
vert breyttar. Síðan var ákveðið,
að viðræðunefndirnar kæmu aftur
saman til fundar í gærdag klukk-
an 15.00 og stóð fundurinn enn
þegar Morgunblaðið fór í prentun
í gær. Þeir menn sem Mbl. ræddi
við í gærdag voru mjög svartsýnir
á, að einhverjar ákveðnar tillögur
til lausnar málinu yrðu lagðar
fram um helgina.
Þórir Helgason, yfirlæknir á göngudeild sykursjúkra á Landspítalanum.
Mynd Mbl. Krinlján Örn.
Þórir Helgason, yfirlækir:
„Höfum sett okkur að komast
að hvernig sykursýki erfist"
„VIÐ HÖFUM sett okkur að reyna að
komast að því, hvernig sykursýki erf-
ist og fylgjast með næstu kynslóðum
músa og sjá hvert framhaldið verður,“
sagði Þórir Helgason, yfirlæknir á
göngudeild sykursjúkra á Landspital-
anum, í samtali við Mbl., en svo sem
skýrt var frá í Mbl. hafa dýra-
rannsóknir í Aberdeen leitt í Ijós, að
hangikjötsneysla veldur sykursýki i
músum.
„Vefjafræðilegar breytingar áttu
sér stað í músunum. í rafeinda-
smásjá mátti sjá insúlínið vella út
úr frumunum. A því stigi voru dýrin
ekki með háan sykur, en síðan átti
sér stað breyting í hina áttina; þá
kom fram hár sykur í blóðinu. Ef til
vill verður með rannsóknum hægt
að finna orsök allrar sykursýki; ekki
bara insúlínháðrar-sykursýki. Það
yrði stórkostlegt ef það tækist, en til
þess þarf mikið fé.
Þá tel ég að möguleikar hafi
opnast til rannsókna á öðrum sjúk-
dómum, til að mynda krabbameini,
en 85% af krabbameini er af
óþekktum orsökum. Þó ekki óþekkt-
ari en svo, að margir álíta að eitt-
hvað í umhverfinu eigi þar stóran
hlut að máli.“
— Hefur fjárskortur háð þessum
rannsóknum?
„Já, fjárskortur hefur dregið
rannsóknir á langinn og í seinni tíð
hefur verið spurning hvort skyn-
samlegt væri að halda þessum rann-
sóknum áfram vegna aðstöðuleysis
og fjárskorts. Vísindasjóður hefur
styrkt þessar rannsóknir. í fyrra
var 70 þúsund krónum úthlutað til
þessara rannsókna og 60 þúsund í ár
og auk þess hefur fé komið frá vís-
indasjóði Landspítalans. f seinni tíð
höfum við orðið að gera mjög dýrar
rannsóknir. Við hefðum getað farið
fyrr út í þær og gert þær betur,
hefði fé verið til staðar. Ekki er
lengur bara um að ræða mælingar á
sykri í blóði, insúlíni og smásjár-
breytingar; — við höfum litað fyrir
insúlíni í verksmiðjunum og notað
radioaktív efni til að athuga upp-
töku á efni í kjarnasýrufrumum,
sem þýddi að nýjar frumur væru að
reyna að koma í stað þeirra sem
væru að falla í valinn.
Þetta hefur verið mjög dýrt og
tímafrekt. Samstarfsmaður minn í
Aberdeen, Stanley Ewen, hefur
þurft að vinna aðra vinnu með og
við hefðum þurft að hafa aðstoðar-
mann, en til þess hafa engir pen-
ingar verið til staðar."
Bílvelta í
Hveradölum
LAUST fyrir hádegi í gær valt
nýleg Lada-bifreið neðst í
Hveradölum. Fór bifreiðin
margar veltur að sögn lögregl-
unnar á Selfossi. Ókumaður
var einn í bifreiðinni og var
hann fluttur á slysadeild Borg-
arspítalans í Reykjavík.
Ökumaðurinn leit ekki út
fyrir að vera alvarlega slasað-
ur að sögn lögreglunnar, en
bifreiðin er gjörónýt. Ekki var
vitað um ástæður óhappsins
er Mbl. ræddi síðast við lög-
regluna á Selfossi í gær.