Morgunblaðið - 24.08.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1982
15
ríkisstjórnarinnar,
Magnús L. Sveinsson
eðlilegt væri að mæta þeim áfdllum
sem að steðja."
Þessar ráðstafanir eru því miður
aðeins bráðabirgðaráðstafanir og
bjarga engu til lengri tíma. Þannig
hefur þetta gengið á undanförnum
árum, hvað sem liður öllu tali ráð-
herranna á þriggja mánaða fresti um
niðurtalningu og hjöðnun verðbólgu.
Gengið mun halda áfram að falla,
verðbólgan helst áfram í 50—60%,
kaupmátturinn minnkar, skattbyrð-
in vex og er að sliga launafólk.
Þó heimilt sé samkvæmt lögunum
að greiða 50 milljónir til láglauna-
fólks á þessu ári, er það aðeins lítill
hluti miðað við það, sem tekið verð-
ur af launþegum samkvæmt sömu
lögum.
Kg legg hins vegar áherzlu á, að
þessi fjárhæð verði notuð til að
hækka lágtekjumarkið, sem samið
var um nóvember 1981, svo tryggt
verði, að þessi upphæð renni til
þeirra, sem í raun hafa lægstu tekj-
urnar,“ sagði Magnús L. Sveinsson.
Bjarni Jakobsson
Bjarni Jakobsson, for-
maður Iðju, félags
verksmiðjufólks:
Fráleitt að
ráðast alltaf
á kaupgjaldið
„ÞAÐ er fráleitt að ætla sér alltaf að
ráðast á kaupgjaldið og allt á að lag-
ast við það,“ sagði Bjarni Jakobsson
formaður Iðju, félags verksmiðju-
fólks, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Aðspurður um hver hann teldi að
yrðu viðbrögð verkalýðshreyfingar-
innar við vísitöluskerðingunni sem
felst í bráðabirgðalögunum sagðist
Bjarni telja að fara yrði varlega í
sakirnar og væri hann sáttur við
afgreiðslu Miðstjórnar ASÍ, þar
væri málinu haldið opnu og færu
aðgerðirnar eftir framhaldinu.
Bjarni sagði að miðstjórn ASÍ gæti
ekki bundið hendur félaganna og fé-
lögin væru frjáls að grípa til þeirra
aðgerða sem þau sjálf ákvæðu. Hjá
Iðju væri venjan að leita álits fé-
lagsfólksins, það yrði gert nú og
síðan farið eftir því hvað félags-
fólkið yrði tilbúið til að gera. Bjarni
sagði að lokum að ef til vaxta-
hækkunar kæmi þá myndu erfið-
leikar margra launamanna aukast
mikið, nóg væri komið með 40%
vöxtum eins og nú væri.
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Kennsla hefst 6. sept-
ember í grunnskól-
um Reykjavíkur
GRUNNSKÓLAR Reykjavíkur
hefja starf í byrjun september og
eiga nemendur að mæta í skólann
6. september. En kennarafundur
verður í hverjum skóla þriðjudag-
inn 1. september. Einnig verða
kennarar á starfsfundum fyrstu
þrjá daga setembermánðar. Að
sögn Þráins Guðmundssonar hjá
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur
verða um 12.000 nemendur í
grunnskólum Reykjavíkur á vetri
komanda og er það svipaður fjöldi
og undanfarin ár.
Pantaðu þér
PANEL!
Ertu alltaf að mála eða veggfóðra?
Leysum vandann
endanlega!
með viðarklæðningu frá Húsasmiðjunni
Komu og skoðaðu úrvalið, höfum örugglega eitthvað við þitt hæfi.
Veldu þér viðarklæðningu, hún gerir vistarveruna hlýlegri og
sparar þér heilmikla vinnu.
HÚSASMIÐJAN HF.
Súðavogi 3-5,104 Reykjavík, sími: 84599