Morgunblaðið - 24.08.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1982
17
Gengisskráning hófst aftur í gær.
Ljósm. Mbl. KÖE
Tillaga Seðlabank-
ans um 13% gengis-
fellingu samþykkt
í ríkisstjórninni
Morgunblaðinu hefur borizt eftir-
farandi fréttatilkynning frá Seðla-
banka íslands, vegna gengislækkunar
íslenzku krónunnar:
Ríkisstjórnin hefur nú samþykkt
tillögu Seðlabankans um 13% geng-
islækkun íslenzku krónunnar, og var
gengisskráning tekin upp að nýju kl.
9.15 í dag, og var þá skráð nýtt gengi
fyrir alla gjaldmiðla. Gengisskrán-
ingunni var háttað þannig, að gengi
bandarísks dollars var hækkað um
15%, sem samsvarar 13% lækkun á
íslenzku krónunni gagnvart dollar,
en aðrar myntir skráðar til sam-
ræmis við það. Síðan gengisskrán-
ing var felld niður 12. þ.m. hefur
gengi á dollar lækkað gagnvart
flestum öðrum myntum, en það
veldur því, að þessar myntir hækka
nú meira gagnvart íslenzku krón-
unni, en dollaragengið t.d. hækkar
gengi sterlingspunds um 18%,
danskrar krónu um 17,7% og þýzks
marks um 18,1%. Vegið meðalgengi
erlendra mynta gagnvart íslenzku
krónunni reyndist vera 16,7% hærra
en það var fyrir niðurfellingu geng-
isskráningar 12. þ.m., en það sam-
svarar 14,3% lækkun meðalgengis
krónunnar.
Sú gengisbreyting, sem nú hefur
verið framkvæmd, hefur fyrst og
fremst verið nauðsynleg vegna mjög
versnandi viðskiptajafnaðar á þessu
ári, sem bæði hefur átt rætur að
rekja til samdráttar í útflutnings-
framleiðslu og mikils innflutnings.
Það er því mikilvæg forsenda þess,
að gengisbreytingin hafi tilætluð
áhrif til að styrkja stöðu þjóðarbús-
ins út á við, að samtímis séu gerðar
ráðstafanir til þess, að hækkanir á
innlendu verðlagi vegna gengis-
breytingarinnar verði ekki til þess
að hækka framleiðslukostnað
innanlands, en að því marki er
stefnt með bráðabirgðalögum, sem
sett hafa verið samtímis gengis-
breytingunni.
Seðlabankinn telur nauðsynlegt,
að þessum aðgerðum fylgi einnig
frekari ráðstafanir til aðhalds í pen-
ingamálum og örvun innlends
sparnaðar, og verður nánar um þau
mál fjallað á næstunni.
Eftir innbrotin í úra- og skartgripaverslanir:
„Kaupmenn hafa
vaknað til lífsins“
— segir Sigurður Steinþórsson
„í KJÖLFAR innbrota i úra- og skart-
gripaverslanir í Reykjavik að undan-
fórnu hafa kaupmenn vaknað til lífs-
ins, t.a.m. hafa allir tekið þá ákvörðun
að koma lyrir þjófavarnarkerfi í versl-
unum sínum þar sem því var ekki til
að dreifa, og gera aðrar fyrirbyggjandi
ráðstafanir til að sama sagan endur-
taki sig ekki. Og raunar hafa margir
nú þegar látið setja upp slíkt kerfi,“
sagði Sigurður Steinþórsson eigandi
skartgripaverslunarinnar Gulls og Silf-
urs í viðtali við blm. Mbl.
„Af þeim 20 úra- og skartgripa-
verslunum sem nú eru starfræktar í
Reykjavík var brotist inn í 8 og gerð
tilraun til innbrots í a.m.k. þrjár til
viðbótar. Satt best að segja erum við
mjög hissa á slælegri framgöngu
lögregluyfirvalda í þessu máli.
Segja má að þau hafi alltaf verið
víðs fjarri meðan á þessari inn-
brotaöldu stóð,“ sagði Sigurður.
Tið núverandi rikisstjórnar:
Dollaraverð hefur
hækkað um 256,8%
Frá áramótum hefur dollaraverð svo hækkað um liðlega 75%
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti tillögu
Seðlabanka Islands um 13% gengis-
fellingu íslenzku krónunnar, og var
gengisskráning tekin upp að nýju i
ga-rmorgun. 13% gengisfelling hefur í
för með sér 15% hækkun á sölugengi
Kandaríkjadollars, sem var fyrir geng-
isfellingu skráður á 12,464 krónur, en
var skráður á 14,334 krónur i gærdag.
Aðrar myntir hafa síðan verið skráðar
i samræmi við þetta.
Frá því að núverandi ríkisstjórn
tók við vötdum 8. febrúar 1980 hefur
dollaraverð hækkað um 256,83%, en
þann dag var sölugengið skráð 4,017
krónur. Frá áramótum hefur doll-
araverð hækkað um 75,3%, en síð-
asta dag ársins 1981 var sölugengi
Bandaríkjadollars skráð 8,185 krón-
ur.
Sölugengi sterlingspunds var
skráð 21,117 krónur fyrir gengisfell-
ingu, en í gær var það skráð 24,920
krónur, sem þýðir um 18% hækkun.
Frá því að núverandi ríkisstjórn tók
við völdum hefur verð á hverju
sterlingspundi hækkað um 168,7%,
en það var skráð 9,2750 krónur 8.
febrúar 1980. Frá áramótum hefur
sölugengi sterlingspundsins hækkað
um 59,21%, en síðasta dag ársins
1981 var það skráð 15,652 krónur.
Við gengisfellinguna hækkaði
sölugengi dönsku krónunnar um
17,74%, en það var skráð 1,4183
krónur, en var í gær skráð 1,6699
krónur. Frá því að núverandi ríkis-
stjórn tók við völdum hefur sölu-
gengi dönsku krónunnar hækkað um
125,78%, en það var skráð 0,7396
krónur 8. febrúar 1980. Frá áramót-
um hefur sölugengi dönsku krón-
unnar hækkað um 49,24%, en síð-
asta dag ársins 1981 var það skráð
1,1189 krónur.
Sölugengi vestur-þýzka marksins
hækkaði um 18,11% við gengis-
fellinguna, en það var skráð 4,9333
krónur 12. ágúst sl., en í gær var það
skráð 5,8268 krónur. Frá því að nú-
verandi ríkisstjórn tók við völdum 8.
febrúar 1980 hefur sölugengi vest-
ur-þýzka marksins hækkað um
152,04%, en þann dag var það skráð
2,3119 krónur. Frá áramótum hefur
sölugengi vestur-þýzka marksins
hækkað um 60%, en síðasta dag árs-
ins 1981 var það skráð 3,6418 krón-
ur.
fyllir og þéttir á frábæran hátt
Evonor 165 - polyúreþan sem fyllir og þéttir milli veggeininga, viö glugga-
karma, huröarkarma, kringum rör, rafmagnsleiöslur o.fl. o.fl. Einstakt efni,
sem einangrar ótrúlega vel.
Evonor 165 er sprautaö i fljótandi formi, en þenst út og harönar á
skömmum tíma.
Polyúreþaniö rotnar hvorki né myglar, brennur ekki við eigin loga og þolir
flest tæringarefni auk vatns, bensins, oliu, hreingerningarefna og sýra.
Úreþaniö binst flestum efnum, s.s. steypu, pússningu, tré, spónaplötum
og plastefnum.
Fjöldi annarra
þéttiefna og áhalda til þéttingar
GLERBORG HF
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIROI - SÍMI 53333