Morgunblaðið - 24.08.1982, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1982
41
fólk í
fréttum
+ Kínverski lennisleikarinn Hu Na bað nýlega um landvistarleyfi í Bandaríkjunum. Hún kom til landsins
með tennisliöi frá Kína til þess að leika á „Federation Cup“-mótinu í Kaliforníu.
Ákvað Hu að snúa ekki aftur til heimalandsins og æfir nú meö tennisfélagi í Kaliforníu.
Vves spilar á uppáhalds kaffihúsinu
sínu.
\ V **m*MímZ -
Yves Montand í morgunmat fyrir framan fræga veggmynd eftir Léger.
I afslöppun á heimaslóðum
+ Yves Montand er franskur leik-
ari og söngvari sem að auki er
kvæntur leikkonunni Simone
Signoret, en nú liggur hún á spít-
ala vegna augnaaðgerðar. Yves er
aftur á móti nýlega kominn úr
söngferðalagi til Bandaríkjanna,
þar sem að hann m.a. söng í
Metropolitan-óperunni í New
York. Hann dvelur nú í Saint-
COSPER
— Þú hefðir heldur átt að kenna honum að þegja
en tala.
Paul-de-Vence í Suður-Frakklandi
og reynir að slappa af fyrir næstu
söngferð sína sem á að vera til
Japan.
Það var í Saint-Paul-de-Vence
sem Yves Montand hitti Simone
Signoret fyrst. Þá var hún gift
Yves Allegret, en tveimur árum
síðar var hún skilin og gift Yves
Montand. Síðan er Saint-Paul-de-
Vence sá staður sem þau helst
kjósa að dvelja á. Þau hafa her-
bergi á leigu allt árið um kring á
hótelinu „Gulldúfunni" og það er í
því sem Yves Montand dvelur
núna.
Á hverjum morgni fer Yves
Montand á fætur kl. 7 og borðar
morgunmat úti á svölunum fyrir
framan veggmynd eftir Léger.
Síðan fer hann á kaffihús og spil-
ar á spil og les blöðin. Eftir það
fer hann aftur heim á hótelið og
syndir í sundlauginni. Hádegis-
matinn borðar hann svo á sama
kaffihúsinu og hann spilar á á
morgnana. Það er alltaf fullt þar í
hádeginu af fólki sem kemur til
þess eins að sjá hann og biðja um
eiginhandaráritun. Og Yves er
ekkert nema elskulegheitin, hann
gefur öllum sem biðja hann eig-
inhandaráritun.
Þríleikur
Tónlíst
Jón Asgeirsson
Bræðurnir Staffan og Chrich-
an Larson ásamt Önnu Guðnýju
Guðmundsdóttur fluttu tónlist
eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Hans Kklund, Brahms og Beet-
hoven. Tríó fyrir fiðlu, selló og
píanó eftir Sveinbjörn Svein-
björnsson er hin ágætasta tón-
smíð, rómantísk og full upp með
stef, sem minna á ýmis sönglög
hans, eins og t.d. Hvar eru fugl-
ar? Flutningur verks eftir
Sveinbjörn gæti gefið tilefni til
útúrdúrs, hvað varðar réttar-
stöðu tónskálds gegn sjóræn-
ingjum og hugmyndalausum
höfundum, sem þurfa í fátækt
sinni að gramsa í kyrnum ann-
arra höfunda, þá ekki síður að
fjalla um þá ósvinnu, er
menntamálaráðuneytið svo gott
sem leggur blessum sína yfir
lögbrot og bæta svo við smáskýr-
ingum á höfundarétti, með því
að breyta um viðfangsefni og
spyrja, hverjum niyndu goðin reið-
ast, ef eitthvert bókmenntaverk,
myndverk eða kvikmynd og þá
væntanlega sú nýjasta, væri tek-
in og endurklyppt með sama
hætti og vesalings þjóðsöngur-
inn, sem menn með gervigremju
fyrir hjartanu halda sig verða
mikia menn á að böðlast á, undir
yfirdrepi listamennsku, sem er
nýtt orð yfir hugmyndaleysi og
sóðaskap, en hér er hvorki stað-
ur né stund til slíkrar umfjöllun-
ar. Ánægjulegt var að heyra
verk Sveinbjörns hér flutt
óskemmt og vel útfært af vönd-
uðum tónlistarmönnum, ungu og
vel menntuðu tónlistarfólki, sem
telur sig eiga annað erindi við
list en að skrumskæla hana.
Bra'ðurnir Staffan og Chrichan
eru góðir tónlistarmenn og ekki
spillir félagsskapur Önnu Guð-
nýjar, sem er frábær kammer-
tónlistarmaður. Annað verkið á
efnisskránni er eftir Hans Ek-
lund, Cante-Presto-Ostinato
fyrir selló og píanó. Verkið,
upphaflega ritað fyrir lágfiðlu
en hér flutt í umritun fyrir selló,
er vel unnið en ekki stórt skorið
í gerð sinni. Scherzo í c-moll
fyrir fiðlu og píanó eftir Brahms
var næst á efnisskránni en tón-
leikunum lauk með tríói op. 1 nr.
1 eftir Beethoven. Bræðurnir eru
mjög góðir tónlistarmenn og
með Önnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur mynda þeir „klassa“ eða
fyrirmyndar tríó. Allt var vel
gert á þessum tónleikum, en þó
var flutningur Beethovens í
bestu jafnva*gi, einkum tveir síð-
ustu kaflarnir.
7
! ^
INNHVERF IHUGUN
TÆKNI SEM TRYGGIR ARANGUR
Almennur kynn-
ingarfyrirlestur
verður annað kvöld, miðviku-
daginn 25. ágúst kl. 20.30 að
Hverfisgötu 18 (gengt Þjóð-
leikhúsinu). Allir velkomnir.
ÍSLENSKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ
_____________________J
Plasteinangrun
ARMAPLAST
Glerull — Steinull
X’—r/ ’Armúla 16 sími 38640
VO Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
TÖLVUNÁMSKEIÐ
FYRIR BÖRN 9—16 ÁRA
Námskeiðið er hvort tveggja í senn nám
og leikur.
Á daginn læra börnin grundvallaratriði forritunar-
málsins BASIC og geta aö loknu námskeiöi skrifaö
einföld forrit. Meö aöstoö litskyggna er þeim kynnt
bygging og eiginleikar tölva og tölvukerfa.
Á kvöldin eru leik- og æfingatímar.
Börnin fá viðurkenningarskjal aö loknu námskeiöi.
Námskeiöiö stendur yfir í 2 vikur, annan hvern dag, 2
tíma í senn, auk frjálsra tíma aö kvöldinu.
Viö kennsluna eru notaðar vandaöar einkatölvur frá
ATARI meö lit og hljóöi.
TÖLVUSKÚLINN
SkLpholti 1. Simi 2 5400