Morgunblaðið - 09.10.1982, Síða 1
44 SÍÐUR OG LESBÓK
224. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kafbátar orðnir tveir
og harka Svía eykst
Stokkhólmi, 8. október. Frá (iuðfinnu Ragnarsdóttur fréttaritara Mbl. AP.
SÆNSKA herstjórnin staðfesti í kvöld að kafbátarnir í skerjagarðinum fyrir
utan Stokkhólm væru orðnir tveir. Nýja bátsins hefur orðið margsinnis vart
í nótt og í dag i Mysingen-firðinum, rétt við Hárs-fjörðinn, þar sem útlendur
kafbátur hefur verið innilokaður i rúma viku.
Olof Palme forsætisráðherra sagði er stjórn Jafnaðarmannaflokksins tók
við völdum í dag, að hann mundi ekki hika við að fyrirskipa aðgerðir er
laska mundu kafbátana til þess að knýja þá upp á yfirborðið.
Þyrlur og herskip héldu vörð á
EITT þeirra varðskipa, sem
fylgst hafa með ferðum
óþekkts kafbáts í sænska
skerjagarðinum síðustu
daga. Nú eru kafbátarnir
orðnir tveir og hefur mörg-
um djúpsprengjum verið
varpað að þeim. Eins og sjá
má er skipið búið skeytum
og sprengjum til kafbáta-
leitar.
Mysingen-firðinum í nótt og í dag,
og vörpuðu djúpsprengjum að
nýja kafbátnum. Talið er að nýi
báturinn sé kominn hinum til
hjálpar og sé að reyna að villa um
fyrir leitarmönnum og draga at-
hyglina frá innilokaða bátnum.
Þá var staðfest að fyrri bátur-
inn hefði í nótt gert tilraun til að
komast undan um nyrðra mynni
Hársfjarðarins, en hörfað aftur
eftir að hafa siglt á rammgerða
kafbátagirðingu, búna neðansjáv-
arsprengjum, sem þar er. Var
Sendiherra
í Ósló
flýr
Ósló. 8. október. Frá Jan Erik Laure
frétlaritara Mbl.
SENDIHERRA frans í Noregi hefur
beðið um hæli sem pólitískur flótta-
maður í Noregi og lýst stuðningi við
Mujahedin-samtökin, sem unnið
hafa gegn stjórn Khomeinis erki-
klerks, sem sendiherrann segir villi-
mannlega einræðisstjórn.
Sendiherrann hefur beðið um
lögregluvernd, þar sem hann
óttast að reynt verði að ráða sig af
dögum. Búast má við að orðið
verði við beiðni sendiherrans um
hæli.
Þrír diplómatar, sem aðsetur
höfðu í Svíþjóð og trúir eru Khom-
eini, tóku stjórn mála í sendiráð-
inu í Ósló í sínar hendur í dag.
Að sögn sendiherrans hafa 20
þúsund manns verið leiddir fyrir
rétt í íran frá því Khomeini komst
til valda, og 50 þúsund pólitískir
fangar sitja í fangelsi.
fjórum djúpsprengjum varpað að
bátnum þegar hann reyndi að
komast út, en hann hvarf þá niður
á meira dýpi.
Leitarmenn hafa hvað eftir
annað orðið beggja kafbátanna
varir í dag, sögðu talsmenn hers-
ins í kvöld. Spennan eykst stöðugt
og allt bendir til að innilokaði
kafbáturinn verði að gefast upp
fyrr en seinna, þar sem útilokað
virðist að hann komist á brott.
Talið er mjög takmarkað hversu
lengi kafbáturinn geti þraukað til
viðbótar, en þó er talið að nóg sé
fyrir hann að skjóta sjónpípunni
20 sentimetra upp fyrir yfirborðið
í 5—10 mínútur til að endurnýja
súrefnisbirgðir. Og öruggt er talið
að það hafi tekist í skjóli nætur,
en vika er liðin frá því bátsins
varð fyrst vart.
Sérfræðingar eru sammála um
að álagið á áhöfninni hljóti að
vera gífurlegt. Hingað til hefur
sprengjum verið varpað í mesta
lagi í 10—12 metra fjarlægð frá
bátnum, annars væri líf áhafnar-
innar í hættu, og ekki er talið trú-
legt að Svíar taki áhættu af því
tagi.
Getgátur hafa verið uppi um að
kafbáturinn komi aldrei upp og
áhöfnin kjósi að láta lífið á hafs-
botni. Litið er svo á, að heiður
sænska flotans sé í veði, og að yf-
irmenn flotans sætti sig við ekkert
minna en að báturinn komi upp.
Talsmaður sjóhersins neitaði ekki
orðrómi um að Svíar hefðu sent
fjárstýrðan tveggja metra kafbát,
búinn sjónvarpsmyndavélum, inn
á svæðið. Beita Svíar stöðugt nýj-
um aðferðum og hættulegri við
eltingarleikinn.
Starfsemi Samstöðu
endanlega bönnuð
Varsjá, H.október. AP.
PÓLSKA þingið samþykkti nýja
verkalýðslöggjöf með yfirgnæfandi
meirihluta í kvöld og hefur óháðu
verkalýðshreyfingunni þá verið
greitt endanlegt rothögg. Aðeins tíu
Finnar lækka aftur
gengi í kjölfar Svía
Stokkhólmi, llelsinki og Ósló, S.október. Irá rréttáriturum MorftunblnAtrin.s.AI*.
NÆR ÖRIJGGT er talið að Finnar verði að fella gengi marksins vegna
gengislækkunar sænsku krónunnar, sem felld var um 16% i dag, og sagöi
Kalevi Sorsa forsætisráðherra, að lækkun sænsku krónunnar væri mikið
áfall fyrir Finna, sem lækkuðu markið í siðustu viku um 4%. Búist er við
gengislækkun marksins jafnvel um helgina.
Rolf Presthus, fjármálaráð- í dag. Hann neitaði að fallast á að
herra Noregs, sagði að gengisfell-
ingin í Svíþjóð væri til þess fallin
að auka atvinnuleysi í Noregi, en
þar í landi yrði þó ekki svarað með
gengisfellingu norsku krónunnar.
Hins vegar yrði ríkissjóður neydd-
ur til að styrkja atvinnuvegi, sem
harðast verða úti vegna lækkunar-
innar í Svíþjóð.
Fyrsta verk nýju sænsku stjórn-
arinnar var að fella gengi krón-
unnar um 16%. „Það gerum við til
að bæta aðstöðu iðnaðarins og
styrkja efnahagsstöðu landsins,“
sagði Olof Palme forsætisráðherra
gengisfellingin væri slæm byrjun,
en sagði að stjórnin hefði neyðst
til að fella gengið vegna slæmrar
stöðu krónunnar og veikrar stöðu
atvinnuveganna.
Talið er að gengisfellingin í Sví-
þjóð samsvari 4—5% kauplækkun
og meðfylgjandi skerðingu kjara.
Verðstöðvun verður komið á, en
hún nær þó ekki til innfluttra
vara, en það þýðir m.a. hækkað
verð á olíu og þar með hærri leigu,
hækkað verð á benzíni, bílum, inn-
fluttum matvörum o.fl. Innan
skamms verður einnig söluskatt-
urinn hækkaður um tvö prósentu-
stig.
Palme mæltist til í dag að
launasamtökin stilltu launakröf-
um sínum í hóf í komandi samn-
ingum. Jafnaðarmenn lofuðti að
koma hreyfingu á iðnaðinn og
berjast gegn atvinnuleysinu.
Styrkir til iðnaðarins verða lækk-
aðir, en teknar upp sérstakar *
áætlanir er miða skuli að því að
örva m.a. trjávöru- og málmiðnað-
inn. Einnig er lofað að hleypa nýju
blóði í byggingariðnað, vegalagn-
ingu, orkumál og umhverfismál.
Viðbrögð stjórnarandstöðunnar
í Svíþjóð voru neikvæð og Ola
Ullsten talaði um svik við kjósend-
þingmenn greiddu atkvæði á móti og
níu sátu hjá, en 460 þingmenn sitja á
pólska þinginu. Þar með er lokið
tveggja ára tilraun með launþegalýð-
ræði, sem á sér enga fyrirmynd eða
hliðsta'ðu í löndum austan járn-
tjalds. Búist er við að samþykkt
frumvarpsins eigi eftir að hafa í lor
með sér róstur í Póllandi, þar sem
við og við hefur komið til uppþota
frá því herlög gengu i gildi í desem-
ber sl.
Hin nýja löggjöf felur í sér
verkfallsrétt, verulega takmark-
aðan þó og háðan margflóknum
skilyrðum. Hún felur einnig í sér
stofnun nýrra verkalýðssambanda
á rústum rúmlega eitthundrað
sambanda, sem leyst voru upp við
setningu herlaga.
Að sögn kunnugra hafa leiðtog-
ar Samstöðu ekki ákveðið hvernig
bregðast skuli við samþykkt nýju
löggjafarinnar, og var ekki efnt til
neinna mótmælaaðgerða í landinu
í dag, að því er bezt var vitað.
Öryggisverðir við þinghúsið
heyrðust segja, að óttast væri að
sendinefndir frá ýmsum verk-
smiðjum myndu leggja leið sína til
þinghússins, sem úrslitatilraun til
að fá frestun á samþykkt frum-
varpsins.
Við umræður sagði Edmund
Osmanczyk, sem er óflokksbund-
inn þingmaður, að frumvarpið
væri ekki fram komið vegna þess
að pólska þjóðin væri óalandi.
heldur vegna þess að ríkið væri
illa hrörnað.
Ræða Osmanczyk þótti óvænt,
og andóf af þessu tagi er sjaldgæft
í þinginu, en hann kvartaði undan
að ekki hefði verið haft samráð við
hinar vinnandi stéttir við samn-
ingu frumvarpsins. Hann sagði
stjórnina koma í veg fyrir nýjar
samningaviðræður við óháðu
verkalýðssamtökin, „og vegna alls
þessa mun ég greiða atkvæði gegn
frumvarpinu," sagði hann við um-
ræðurnar.
Janusz Zablocki, talsmaður
hóps ólærðra kaþólskra þing-
manna, lýsti stuðningi þingmann-
anna við Samstöðu og sagði að
leyfa ætti samtökunum að starfa
með því skilyrði að þau hefðu ekki
afskipti af stjórnmálum. „Við
skulum ekki leysa Samstöðu upp,
það ættum við ekki að gera,“ sagði
Zablocki, en flestir aðrir sem tóku
til máls, lýstu stuðningi við frum-
varpið.
Öflugur lögregluvörður var við
þinghúsið í dag og hermenn stóðu
á þaki þinghússins og munduðu
sjónauka.
Fjórir andófsmenn úr KPN-
samtökunum hlutu í dag fang-
elsisdóma, mest sjö ár, fyrir „til-
raunir til vopnaðs valdaráns", að
sögn PAP-fréttastofunnar. Einn
fjórmenninganna er Leszek Mocz-
ulski leiðtogi KPN. Dómarnir
þykja „léttvægir".