Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982 !.* >- «a»«gag Í^llífesi«KÍÍ » i** . ..^.-.r >•• " • ■• *M£**L~' <*&’■»* T /'."■■ . ..: - K. "'*?* ** * ., .«* ' ^ ^ . '-• , ' 1 ~**V - **»£zc *'***‘fL. '■' 5* ~. %„ .yfc. ••' ■*’- .:„ ■#*,:*%," i.n* ■ • •'—; . i. „ ,5*-: Preiueiu Bild „Belos“, sérsmíðaö skip til aö bjarga áhöfnum sokkinna kafbáta er nú til taks á svæðinu þar sem óþekkta kafbátsins er leitaö. Vertol-þyrla er að taka sig á loft frá skipinu. Á þessu korti er skerjagarðurinn afmarkaöur meö brotinni línu en innan rammans hefur eltingarleikurinn viö óþekkta kafbátinn staðið. Til suðurs eru sundin viö Herrön, Yxlö og Skramsö-sund en þau eru svo grunn að þar út kemst kafbáturinn ekki. Einasta undankomuleið hans er sundið á milli Vitsgarn og Alvsta Lángholm en þar hefur sænski sjóherinn girt fyrir með kafbátagirðingum. Talið er, að sl. fimmtudag, þegar kafbátur- inn reyndi að komast undan, hafi hann siglt á eina slíka. Sænski teiknarinn Hans Olof Dahlgren hefur gert þessa teikningu, sem skýrir nokkuð aðferðir sænska sjóhersins við að fylgjast með óþekkta kafbátnum í Hárs-firði. 1.2, og 3. Hljóðnemar eru látnir síga niður í sjóinn frá tveimur Vertol-þyrlum. Að auki er sá þriðji notaður til að staðsetja bátinn betur. A. : Segulmögnuð hljóðsprengja er fest við bátsskrokkinn sem stanslaust gefur frá sér hljóðmerki. B. : Elma-sprengja með stefnumarkaðri virkni. Með henni er unnt að sprengja gat á skrokkinn. 4. og 5. Ef skipstjórinn gefst ekki upp er djúpsprengjum varpað beint á bátinn. Svíþjóð: Óþekkti kafbáturinn á enga undankomuleið Eltingarleikurinn við óþekkta kafbátinn úti fyrir einni helstu flotastöð sænska sjóhersins í Berga, í skerja- garðinum fyrir sunnan Stokkhólm, hefur nú staðið í Sænskir hermenn með hunda eru á hverju strái á ströndinni og fylgjast með þvf hvort nokkuð óvenjulegt reki i fjörurnar. Fremst á myndinni sér i kafbátagirðingu. heila viku. Nokkuð mót- sagnakenndar fréttir hafa farið af leitinni enda hafa talsmenn sænska sjóhersins ekki viljað gefa um hana miklar upplýsingar af örygg- isástæðum. Síðastliðinn fimmtudag var t.d. talið, að kafbáturinn hefði sloppið út en það hefur nú verið borið til baka. Hann reyndi það að vísu, en sigldi á kafbátagirð- ingar sænska sjóhersins í sundinu milli Alvsta Lángholm og Vitsgarn, einu undankomuleiðinni. Að því búnu fór hann aftur á fyrri stað og liggur nú á botninum þar sem dýpið er mest, um 60 metrar. Bretar í uppnámi — með og á móti förunaut Andrews Ixindon, 8. október. AP. TALSMAÐUR Buckingham-hallar vísaði í dag á bug frétt í blaðinu Sun, sem birtist í dag og snerist um það að Elisabet drottning hefði krafizt þess, mjög ill, að Andrew prins, sonur hennar, kæmi tafarlaust heim úr leyfi sínu með leikstirninu Koo Stark, sem einkum hefur komið fram í svokölluðum bláum myndum. Brezkt tímarit boðaði í dag að það myndi birta nektarmyndir af Koo Strak eftir helgina og vakti það fjaðrafok og hugaræsing hjá brezkum almenningi. í Sun sagði að drottningin væri fjúkandi reið vegna þess fé- lagsskapar sem prinsinn hefði valið sér í fríinu og þar var sömuleiðis tekið fram að drottn- ingin hefði gefið ný fyrirmæli varðandi veru næturgesta í Buckingham-höll eftir að Koo Stark hefði dvalið þar nætursak- ir um síðustu helgi. AP-fréttastofan segir, að enda þótt verðbólga og atvinnuleysi ásamt veðrinu sé það sem þegnar Bretaveldis tala mest um sín í milli, hafi allt slíkt vikið síðustu daga og kappræddu menn nú hvarvetna, á krám, heimilum og samkomustöðum, um framferði prinsins og sýndist sitt hverjum. Sun sagði að prinsinn væri svo heillaður af leikstirninu, að hann myndi vísast óhlýðnast boðum móður sinnar ef honum byði svo við að horfa. Daily Express sagði að Andrew hefði kynnt Koo Stark fvrir móður sinni nýlega í fjölskylduboði í Balmoral-kast- a!a í Skotlandi. Hefði drottning- in þá ekki haft hugmynd um að stúlkutetrið hefði komið fram í nektarmyndum. Andrew prins Faðir Koo Stark, sem er bandarísk að uppruna, sagði í dag að sér fyndist fréttaflutning- ur brezku síðdegisblaðanna „við- urstyggilegur" og með öllu órétt- mætur. Elísabet drottning og Filippus prins eru um þessar mundir á ferð í Ástralíu. Rússar reyndu að ræna tæki Washington, 8.október. AP. BANDARÍSKIR tollverðir afstýrðu fyrr á þessu ári tilraun Rússa til að stela leynilegu leitartæki, sem er notað í bandarískum njósnahnöttum og könnunarflugvélum, að sögn Caspar W. Weinberger varnarmálaráðherra, sem minntist á máiið i ræðu. Hann kvað þetta ágætt dæmi um hvernig Rússar beittu löglegum og ólöglegum ráðum til þess að stela bandarískum tæknibúnaði. Sem bet- ur fer hefði tækið náðst, þegar reynt hefði verið að smygla því úr landi með áætlunarflugvél. Samkvæmt heimildum í Pentagon voru þar að verki starfsmenn banda- ríska fjármálaráðuneytisins, sem hefur komið upp sérstakri deild, „Exodus", til þess að koma í veg fyrir ólöglegan flutning bandarísks tæknibúnaðar til Sovétríkjanna og annarra ríkja, sem kunna að vera fjandsamleg Bandaríkjunum. Leitartækið átti að fara til Sovét- ríkjanna um Mexíkó og Sviss sam- kvæmt heimildunum. Tækið var fjarlægt úr flugvélinni í Los Angeles og tollverðir komu fyrir sandpokum í staðinn. Atvinnuleysi í Japan Tókýó, 8. október. AP. JAPANSKA stjórnin samþykkti í dag að verja fjárhæð, sem nemur 7,4 milljörðum Bandaríkjadollara til þess að efla efnahag landsins sem nú býr við of litla eftirspurn heima fyrir, of lítinn útflutning en vaxandi atvinnuleysi. Fjöldi atvinnulausra var í ágúst 2,31% vinnufærra manna í landinu og hafði því lækkað aðeins eða úr 2,48% í júní sl., en þá var atvinnuleysið meira en nokkru sinni í 26 ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.