Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982 Notum ökuljósin — aukum öryggi Margt getur stuðlað að því að umferðaróhöppum og þar með slysum á fólki fjölgi í þéttbýli þegar haustar að hér á landi. Slíkt hið sama gerist í öðrum löndum. En skammdegið nær hér yfir lengri tíma ársins en víðast annars staðar, og veður eru oft rysjótt hér á landi. Eins og margt getur aukið á hætturnar má bægja þeim frá með ýmsum aðgerðum sem stuðla að auknu öryggi. Eins og ijóslaus bíll í dimmu skammdegi getur verið hættulegur og orðið skaðvaldur má koma í veg fyrir tjón ef sá hinn sami bílstjóri hefur hugsun á að kveikja Ijósin þegar þeirra er þörf. Þeir sem vilja meira öryggi í umferðinni — og viljum við það ekki öll — verða því að byrja fyrr og beita betur þeim aðgerð- um sem geta stuðlað að færri umferðarslysum. Frá Umferðarráði Á þessum árstíma er reyndar þörf á notkun ökuljósanna jafnt að degi sem nóttu. Jafnvel á fallegu hausti eins og verið hefur undanfarið getur birtan — þegar sól er lágt á lofti — aukið á hættur og því þarf að vera á verði gegn þeim hættum. Það má m.a. gera með því að hafa rúður hreinar og móöulaus- ar svo geislar sólarinnar — eða sterk ökuljós í myrkri — brotni ekki í óhreinindunum á rúðunum og geislaflæðið valdi glýju í aug- um ökumannsins og blindi hann. Jafnframt að nota ávallt sól- spjaldið til hlfðar gegn ofbirt- unni. í bílum sem mikið er reykt í ættu menn að minnast þess að tóbaksreykur sest mjög innan á rúður bílanna og getur valdið áð- urnefndum óþægindum. í bílum með blautar mottur er raki sem sest innan á rúðurnar sem móða eða hrím eftir kuldastigi. Þegar föt ökumanns eða farþega eru blaut ætti ávallt að opna glugga lítillega svo rakinn komist út, í það minnsta þar til miðstöðvar- blásari nær að þurrka rúðurnar. Þegar skyggja tekur eða áður en bjart er orðið að morgni, svo og þegar dimmviðri er, er sjálf- sagt að aka með ökuljósum. Stöðuljós eru gagnslaus enda ekki ætluð til nota við akstur. Margir gleyma því að nota ljósin eða kveikja þau. En full ástæða er til að líta á þá sem aka án ökuljósa í dimmviðri og þegar skuggsýnt er sem kærulausa og óábyrga ökumenn um eigið ör- yggi og annarra. Það er augljóst mál að bíll með ökuljósum sést miklu fyrr en sá sem ljóslaus er. Margir líta svo á að ljósanotkun hefjist ekki fyrr en svo myrkvað er orðið að annars sjáist vegur- inn ekki. Oft mætir maður ljós- lausum bílum í þoku eða snjó- fjúki á heiðum uppi að ekki séu nefndir þeir ábyrgðarlausu öku- menn sem skilja bíla sína eftir Ijóslausa — jafnvel án glit- merkja á veginum öðrum til hættu og óþæginda. Slíkir öku- menn eru ekki síður hættulegir en þeir sem aka hratt. Verst af öllu er að oft fylgist að ljósleysi bíla og hraður akstur þeirra. Næstum allt sem við gerum í umferðinni er háð því sem við sjáum. Ljósin sem við notum, þótt þau séu það besta sem völ er á, eru þúsund sinnum daufari en dagsbirtan. Þess vegna er miklu vandasamara að átta sig á um- ferðarskilyrðum í myrkri, og möguleikarnir á að árekstri verði forðað með því að hemla eða stýra framhjá hættunni verða æ minni eftir því sem birtuskilyrðin verða verri. Það er góð regla að aka ekki hraðar en svo að ökumaður hafi stöðvunarvegalengdina innan þess svæðis sem ljósið lýsir upp fyrir framan hann. Það er ekki hægt að reikna með því að öku- maður geti séð eins langt og ljóskerin lýsa, meðal annars vegna ljósa frá öðrum ökutækj- um sem valda glýju og villuljós- um við veginn. Og rannsóknir hafa leitt í ljós, að því hraðar sem ekið er því styttra sér mað- ur frá sér. Oft finnst ökumanni hann blindast af ökuljósum ökutækja á móti án þess að svo sé í raun og veru. Þessi sálræna eða ímynd- aða blinda gerir vart við sig er maður hefur ekið góða stund í myrkri og mætt stöðugt öku- tækjum með ljósum. Athugull ökumaður gerir allt til að forð- ast slíka truflun með því að hafa augun ávallt á sínum vegarhelm- ingi, jafnframt sem hann lætur augun beinast þangað sem hann á helst von á hættusvæði, og þá helst fram á veginn, en horfir ekki stöðugt á blettinn sem ljósgeislinn frá ökuljósum hans fellur á, það þreytir augun. Til þess að akstur í myrkri verði sem öruggastur er nauð- synlegt að ökutækið hafi ljósa- búnaðinn í fullkomnu lagi. Því þarf að athuga eftirfarandi: Gler í ljóskerum séu óbrotin og hrein bæði utan og innan, perur ekki gamlar og speglar óskemmdir. straumöryggi og leiðslusambönd — sérstaklega jarðsamband — laus við spanskgrænu og ryð og nægilegur vökvi og full hleðsla á rafgeymi fyrir kuldakast og frost. Talið er að perur endist ekki að ráði lengur en um það bil 100 klst. notkun, því er nauðsynlegt að skipta um perur áður en þær endanlega lognast út af. Flest af þessu geta menn athugað sjálfir en að sjálfsögðu er rétt að láta kunnáttumann yfirfara Ijós- styrkleika og stillingu ljósanna. Ljósastilling stendur nú yfir, og þann 31. október nk. eiga allir að hafa mætt með bíla sína til ljósaskoðunar. Innan tíðar mun lögreglan at- huga ástand ljósabúnaðar á öku- tækjum. Þá er mikill léttir að því að hafa ljósabúnaðinn á sín- um bíl í lagi. Sigurður Agústsson Ár aldraAra I»órir S. Guðbergsson XVI Vernd Virkni Vellíðan Hvernig komast sumir lífeyrisþegar af? í síðasta spjalli um félags- lega ráðgjöf og þjónustu nefndi ég fáein dæmi um líf- eyrisþega, á hvern hátt þeir geta leitað til sveitarfélaga um aðstoð og leiðbeiningar. Aður hefur verið bent á það skýrum orðum að ekki séu allir aldnir eins, þeir séu stundum ólíkir eins og svart og hvítt. Þeir eru ekki frem- ur einlit hjörð en börn og unglingar t.d. eða fullorðnir. Þeir hafa ólíkar skoðanir, mismunandi lífsviðhorf og ólíkar þarfir. Sumir eru fegnir þegar þeir geta hætt launavinnu, hafa litlar fjár- hagsáhyggjur, komast sæmi- lega af, eru við góða heilsu og hlakka því til að hætta starfslokum því að þeirra bíða svo mörg verkefni! Aðrir eru beinlínis til- neyddir til að vinna þó að heilsa sé léleg og aðstæður allar mjög erfiðar. Þeir kom- ast ekki af fjárhagslega. Þeir verða að vinna. Á undanförnum árum hef- ur lífeyrir frá Trygginga- stofnun ríkisins hækkað til muna frá því sem áður var þegar sveitarfélög þurftu að greiða ákveðið hlutfall af svokallaðri tekjutryggingu eða uppbót lífeyris og vissu- lega ber að þakka allt fram- tak í þessu sem öðru. Sömu- leiðis ber sérstaklega að minna á upplýsingaþjónustu Tryggingastofnunarinnar í Reykjavík sem tók hálfgerð- um stökkbreytingum þegar sérstakur upplýsingafulltrúi var ráðinn til stofnunarinn- ar. Bæklingar þeir sem gefn- ir eru út á vegum stofnunar- innar eru allir ágætir og mikið þarfaþing en til glöggvunar er unnt að nefna t.d. bæklinga um: Slysabæt- ur, bætur til ekkna, ekkla og einstæðra foreldra, ellilíf- eyri, örorkubætur, sjúkra- bætur, tannlækningar o.fl. Verður nánar rætt um elli- lífeyri í næsta þætti og hvaða rétt einstaklingar og hjón hafa til þess að sækja um uppbót á ellilífeyri í ein- stökum tilvikum. Fjárhagsafkoma fólks er misjöfn Eins og aldnir geta verið ólíkir innbyrðis er fjárhags- afkoma þeirra einnig mjög mismunandi. Því ber að fagna að meirihluti lífeyris- þega á íslandi lifir við sæmi- lega frjárhagsafkomu. Þó ber að minnast þess þegar það dæmi er reiknað að aldn- ir eru bæði nýtnir, sparsamir og hagsýnir og vilja heldur líða skort en að skulda of mikið. 70 ára ekkja kom til undir- ritaðs fyrir skömmu. Hún var í húsnæðisvandræðum eins og svo margir aðrir. Inn- an mánaðar átti að bera hana út á götuna og árang- urslaust hafði hún auglýst eftir húsnæði í langan tíma. I örvæntingu og neyð reyndi hún að auglýsa einu sinni enn og heppnin var með henni. Henni bauðst ein stór stofa með eldhúskrók, í kjall- ara á krónur 3.200 og sex mánuði fyrirfram! Það var hreint ótrúlegt hvað ekkjan varð glöð og hamingjusöm þegar í ljós kom að hún átti sjálf hluta þessarar fyrirframgreiðslu, vinir og ættingjar gátu lánað henni hluta og sveitarfélagið afganginn. Hagur hennar var tryggður um stund en nú var þrautin þyngri: Hvernig átti að standa skil á lánum? Ekkjan hafði aldrei unnið utan heimilis, hún hafði eng- an lífeyri eftir mann sinn sem var verkamaður og naut sjálf engra tekna utan lífeyr- is og fullrar tekjutryggingar frá Tryggingastofnun ríkis- ins, sem í allt voru rúmar 4.000 krónur á mánuði. Af þessum 4.200 krónum sem hún hafði í lífeyri átti hún að greiða 3.200 að meðaltali á mánuði einungis í húsaleigu. Þá átti hún eftir að greiða ljós og hita, fæði, og stræt- isvagna o.fl. o.fl. 75 ára einstaklingur sagði frá högum sínum fyrir skömmu. Áður hafði maður þessi verið öryrki, hreyfi- hamlaður og talsvert líkam- lega bæklaður, en hafði verið ellilífeyrisþegi um 8 ára skeið og notið fullrar tekju- tryggingar og heimilisupp- bótar frá Tryggingastofnun ríkisins og nam þessi upp- hæð tæpum 5.000 krónum. Þannig háttaði til hjá hon- um að hann bjó í húsnæði sem gamall maður átti og höfðu þeir búið þar saman hvor í sinni íbúð í 20 ár. Svo dó þessi gamli íbúðar- eigandi og húsið er selt. Hreyfihamlaði lífeyrisþeg- inn er á götunni. 600 manns eru á biðlista hjá Félags- málastofnun Reykjavíkur þegar þetta átti sér stað og biðin var löng ef hann ætlaði að bíða eftir jákvæðu svari. í öngum sínum kom hann og bar upp erindi sitt og enn var reynt að auglýsa á síðustu stundu áður en útburður ætti sér stað. Og viti menn. „Heppnin" var með honum. Hann fékk tilboð um litla, tveggja herbergja íbúð í risi (og hann gekk við tvo stafi) til eins árs og alla leiguna átti að greiða fyrirfram að meðaltali kr. 3.600 á mánuði! 84 ára gömul kona hafði einangrast félagslega, var hætt að treysta sér út á með- al vina sinna og kunningja,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.