Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982 |«V Sigríður Guðjóns- dóttir - Minning Fædd 11. maí 1921 Dáin 1. október 1982 „Far þú í friói, frióur («uós þig blessi, hafóu þökk fyrir alli og 8111.“ Haustið 1971 hóf ég nám í ní- unda bekk Vogaskóla. Ég þekkti þar engan, hvorki kennara né nemendur, en mamma sagði mér, að þar kenndi handavinnu skóla- systir hennar, Sigríður Guðjóns- dóttir, og henni væri óhætt að treysta. Ég kynntist krökkunum fljót- lega og einnig kennurunum. En Sigríður reyndist mér alveg sér- stök. Ég var nýkomin utan af landi, ókunnug öllum, og setti traust mitt á Sigríði, af því að ég fann að það var óhætt, og því trausti brást hún aldrei. Hún kenndi mér aðeins einn tíma í viku, en þeir tímar urðu mér mik- ils virði. Alltaf var hún reiðubúin að aðstoða okkur nemendurna við flest það sem við stungum upp á. Allar nýjungar kynnti hún sér jafnóðum og þær komu fram, og hvatti okkur til þess að læra eitthvað nýtt, heldur en að fást við það sem flestir kynnu. Hún vildi að við ynnum handa- vinnuverkefnin sem mest sjálfar, þ.e. teiknuðum munstrin og röðuð- um síðan litunum, þannig að engin tvö verkefni yrðu eins, og það bar oft góðan árangur. Með þessu móti hvatti hún okkur til þess að vinna meira sjálfstætt og ef vel tókst til urðu þessir hlutir okkur mikils virði. Ég var aðeins einn vetur nem- andi Sigríðar, en sá vetur er mér ógleymanlegur. Það er hverjum nemanda ómetanlegt að lenda hjá kennara eins og henni, sem leggur sig allan fram til þess að ná fram því besta hjá hverjum og einum. Kynni okkar urðu ekki ýkja mikil, en í hvert skipti sem ég hitti hana urðu mér betur ljósir hennar miklu mannkostir. I síðasta skipti, sem ég kom til hennar, var hún á sjúkrahúsi, og þá var henni vel ljóst, að hverju stefndi. En þrátt fyrir það var hún enn sama góða og glaða Sigríður, og samtal okkar snerist mest um lítinn dótturson, sem var stærsti sólargeislinn hennar. Ég þakka Sigríði öll kynni okkar og allt það góða, sem ég naut hjá henni. Éiginmanni hennar og fjöl- skyldu sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Anna Sólveig Gunnarsdóttir Löngum hefur viðgengist hér að skólar væru vanbúnir húsnæði til íþróttakennslu, einkum fyrstu ár- in. Sumum þótti því Vogaskóli vel settur hvað þetta snerti, er hann hóf störf haustið 1959, því að skammt frá skólanum stóð gamall hermannabraggi, arfur frá setu- liðinu. Sá hafði einnig verið byggður og búinn með það fyrir augum m.a., að þar gætu stríðs- menn fengið nokkra líkamsþjálfun við sitt hæfi. Skólar og íþróttafé- lög borgarinnar fengu þar strax inni er stríði lauk, og leysti vissu- lega úr þörf, þótt ekki væri vist- arveran hlý eða þægileg. Þarna hóf Sigríður Guðjóns- dóttir störf sín ásamt öðrum íþróttakennurum þegar á fyrsta ári skólans. Ekki skorti rýmið, hátt til lofts og vítt til veggja, á gólfi gátu jafnvel hundruð manna verið að sýningu eða æfingum, og til beggja handa voru hækkandi bekkjaraðir fyrir þúsund áhorf- enda. Hins vegar fór minna fyrir hreinlætisaðstöðu, jafnvel fá sal- erni og lítt fýsileg. Verra reyndist, að hús þetta, sem aðrar íverur setuliðsins, var ekki reist fyrir ís- lenskt veðurfar og aldrei ætlað til frambúðarnota. Fór svo oft, að tæpast var þar líft fyrir kulda, og stundum var ís á gólfi að morgni fyrstu kennslustunda, enda hélt kumbaldinn hvorki vindi né vatni þrátt fyrir ýmsa viðleitni til úr- bóta. Við þennan búnað varð þó að una um árabil, en kannske hefur su vosbúð m.a. leitt til þess að Sig- ríður varð eftir nokkur ár að hverfa frá íþróttakennslu að læknisboði. Varð hún nú að hverfa einvörð- ungu að handmenntakennslu. Enginn nauðungarkostur var það skólanum, slík var fjölhæfni henn- ar og þekking á því sviði. Nemend- ur hennar, piltar eigi síður en stúlkur, námu hin fjölbreyttustu handbrögð við ólíkustu efni, sam- an virkjuðust hugur og hönd svo að mótuðust hinir fegurstu og eigi síður gagnlegustu gripir. Kom Sigríði þar allt að gagni: með- fæddir hæfileikar hennar og fyrri starfsreynsla, menntun hennar sem handavinnu- og myndlistar- kennara svo og sífelld viðleitni til að afla sér nýrrar þekkingar. Þar naut hún eigi síst hagleikshanda og kunnáttu eiginmanns síns við ný viðfangsefni er hún síðan flutti nemendum sínum. Glettist hún með það, er ég heimsótti hana fyrir fáum dögum á Landspítalann, hvernig bóndi hennar hafði kennt henni að kvöldi þá málmsmíði, er hún svo lét nemendur sína glíma við að morgni næsta dags. Og allt fór þetta vel. Eitt sinn að hausti, er skóla- starf skyldi hefja, vantaði smíða- kennara handa hópi fjórtán ára stráka, sem þóttu heldur seinfærir og stundum gustmiklir. Leitaði ég nú til Sigríðar, en hún hafði þá eigi kennt piltum hér „smíði", enda handavinnugreinar á þeim árum mjög kynskiptar. Gaf hún þess kost að reyna. Heldur tóku piltar ráðstöfun minni þunglega, kváðust ekki kæra sig um neina „kellingu", hvað gæti hún kennt þeim í smíði? Sumir þeirra leyndu heldur eigi ógleði sinni í fyrstu tímum hjá kennaranum, en við- horfin breyttust svo að um mun- aði. Þegar nær dró skólalokum og próftaflan birtist í apríl og þar stóð að venju, að öll kennsla félli niður frá byrjun prófa, stormuðu piltar á minn fund og kröfðust sinnar handavinnukennslu allt til síðasta starfsdags skólans hvað sem liði öllum prófum og lestri fyrir þau. Var mér ljúft að flytja Sigríði þessa ósk piltanna og varð hún vel við henni. Mun sá próf- mánuður hafa reynst öllum vel, og hvergi fréttist af skólaleiða. Svona er margs góðs að minnast við ferðalok, þótt fleiri dæmi verði ekki rakin. Sigríður Guðjónsdóttir var fædd að Litlu-Háeyri á Eyrar- bakka 11. maí 1921. Foreldrar hennar voru hjónin Guðjón Jóns- son, en ætt hans mun mega rekja ausur í Skaftártungu, og Jóhanna Jónsdóttir ættuð úr Gnúpverja- hreppi. Uppeldi sitt átti Sigríður í foreldragarði, en systkinin voru 8 og fjögur þeirra eru enn á lífi. Tæpast mun hafa verið rúmt fjár- muna á kreppuárunum til að veita slíkum barnahópi langskóla- menntun eða listnám, en góð und- irstaða var Sigríði þó lögð fyrir ævistarfið. Fyrst lá leiðin í Hér- aðsskólann á Laugarvatni árin 1937—’39, og íþróttakennaraprófi lauk hún 1942. Var nú fengin grundvöllur til starfa, og næstu ár kenndi hún sund, leikfimi og aðrar íþróttir við ýmsa skóla og víðs vegar á vegum UMFÍ. Jafnhliða annaðist hún handavinnukennslu í heimabyggð sinni. Fýsti hana að hljóta frekari menntun og réttindi á því sviði og lauk prófi sem handavinnukennari frá Kennara- skólanum vorið 1953 og ári síðar teiknikennaraprófi frá Handíða- og myndlistarskólanum. Var nú traustur grundvöilur lagður. Síðar kenndi hún nokkuð við þessa sömu skóla auk annarra, og lýsir það best hvert álit hún hafði þegar hiotið. En lengstan starfsferil átti hún við Vogaskóla, 22 ár samfellt frá stofnun skólans og þar til í fyrra, er hún veiktist af krabbameini. Hún lést 1. þessa mánaðar. Sigríður var grandvör kona og góður starfsmaður. Hún reyndist nemendum sínum vel, mat þá fremur eftir vilja og viðleitni heldur en upplagi og eðlisgáfum. Hún var hæversk og hæglát, eigi afskiptin um annarra mál og lagði aldrei illt til neins það ég vissi. Þótt Sigríður fagnaði ekki alltaf stjórnunarákvörðunum mínum frentur en vænta má á svo löngum ferli, þá eru mér minnisstæðari öll hin atvikin, þar sem hún leysti með sínum hljóða og hæverska hætti störf sín af hendi svo að skólinn mætti eflast að orðspori og athöfn. Mér fannst Sigríður jafnan bera með sér þann listræna ungmennafélagsanda, sem átti svo sterkar rætur í bernsku- og æsku- stöðvum hennar, litlu þorpunum við brimótta suðurströndina. Ekki er það tilviljun að þaðan komu frömuðir á tónlistarsviði svo sem ættbogi ísólfs Pálssonar, mynd- listarmenn sem Sigurjón Ölafsson eða ungmennafélagsleiðtoginn Eiríkur J. Eiríksson, skólamaður og prestur, svo að nefnd séu nöfn einhverra þeirra, er fæddir voru eða uppeldi áttu á Stokkseyri og Eyrarbakka. Sigríður var trygg landi sínu og þjóð og naut þess oft að ferðast hér um vegi og vegleysur með manni sínum og dóttur, sækja sér orku og unað um fjöll og sléttur fósturjarðarinnar. En líklega hafa þó sterkastar taugar dregið hana til bernskuslóða. Þangað leitaði hún m.a. hvert sumar til sáningar- og uppskerustarfa, og í dag verður hún lögð þar til hinstu hvíldar að eigin ósk. Ég hygg að Sigríður Guðjónsdótt- ir hafi verið hamingjusöm. Nefni ég þar fyrst, hversu henni auðnað- ist að gefa mögum veikburða nem- enda trú á eigin getu til mótunar fagurra og gagnlegra muna. Marg- ur á henni því að þakka gott hugð- arefni í tómstundum eða jafnvel verkefni til arðbærrar iðju. Hún var ein þeirra góðu kennara, sem kenna nemendum handbragðið en hvetja þá til eigin frumkvæðis um gerð eða myndræna mótun verks- ins. Slíkir gripir urðu því vinsælir til eignar eða gjafa. Sigríður var því gæfusöm í starfi. En heimilið hygg ég þó að hafi verið besti unaðsreitur og griðastaður hennar. Það hafði hún byggt svo upp með manni sínum, völundinum Sigurði ó. Haralds- syni, ættuðum úr Fljótshlíðinni. Allt þar bar á einfaldan hátt vitni þess listfenga handbragðs er þeim lét svo vel að beita. í þessu um- hverfi hinnar ævafornu íslensku verkmenningar og nútíðartækni ólu þau upp einkadóttur sína Val- gerði Kristínu. Hún gegnir nú starfi sem handavinnukennari og ber í öllu foreldrum sínum fagurt vitni. Síðustu ævimánuðir Sigríðar urðu erfiðir, en hún bar þrautir sínar og örlög með rósemi og jafn- aðargeði. Svo var því líf hennar allt. Við hjónin, samstarfsfólk henn- ar og nemendur úr Vogaskóla kveðjum Sigríði Guðjónsdóttur með söknuði og þökk og vottum eiginmanni hennar, dóttur og dóttursyninum litla sem og öðru venslafólki innilega samúð. Helgi Þorláksson. Hver má lýsa þeim heljar harm,/ horfandi lífs af yztu nöf,/ dauðann leggja óvægnum arm/ elskaðan vin í kalda gröf? Trúlega getur enginn lýst því — jafnvel ekki einu sinni sá, sem reynir ... Þegar bært er við sjálf- um innviðum lífsins, verður mönnum jafnan orðfátt. En þó svo sé, erum við samt ekki eftir skilin huggunarlaus. Tvennt er það jafnan, sem bregður birtu yfir svið sorgarinnar og saknaðar- ins. Annars vegar ljómi ljúfra minninga, hins vegar eilífðarvonin sjálf. Þegar ég lít um öxl við fráhvarf Sigríðar Guöjónsdóttur, blasir við sjónum litríkur og fagur minn- ingaljómi. Hún var grandvör, ein- kenndist af yfiveguðu rólyndi og óhagganlegu jafnvægi. Næmt feg- urðarskyn hennar birtist í mark- vissri listsköpun og vinnubrögð- um. Að mennt var hún kennari í fimleikum og handíð. Á handíða- sviðinu eyddi hún mestri starfs- ævi sinni. Þar komu fram og nutu sín vel meðfæddar listrænar og óvenju fjölþættar gáfur hennar. Allt sem hún gerði, bjó til eða framreiddi, var fagurt. Á það jafnt við um munina, sem hún bjó til og veizluborðin sem hún reiddi fram. Þau voru listileg skrautverk í sjálfu sér. Gestrisni, rausn, höfð- ingslund og örlæti voru henni í blóð borin, enda var hún gestgjafi mikill. Ekki var Sigríður margorð. En ígrunduð viðhorf hennar birtust í hnitmiðun athugasemdanna. Þessi eiginleiki kom fram, hvort heldur var snert við alvarlegri hliðum lífsins eða léttari strengir látnir hljóma. Hún kunni vel að litast um á vettvangi alvörunnar. En í góðvinahópi á glaðværri stund var hún heilsteypt í hjartanlegri gleði, sem og öllu öðru, og var þá hót- fyndin, hnyttin og orðheppin — allt með þessari sérstæðu mark- vissu hnitmiðun, sem einkenndi öll verk hennar. Sigurður Haraldsson, eftirlif- andi eiginmaður Sigríðar, er móð- urbróðir konu minnar. Voru leiðir því alopnar okkar millum, sem veitti aftur það innsæi í þá eigin- leika Sigríðar, sem hér eru saman dregnir í þessum fáu orðum. Sjálf- ur er Sigurður listilegur völundur af Guðs náð eins og fagrir smíðis- gripir hans sýna. Yndislegt var að sjá, hve samstillt hjónin voru í því að fylla heimilið sitt heimatilbú- inni fegurð ... Að sækja þau heim var alltaf gleðilegt. Að dvelja með þeim var alltaf mikil ánægja, og frá þeim fórum við jafnan endur- nærð af fögnuði. Þess vegna ríkir angurblíð gleði yfir heimi minn- inganna, og þakkiæti í huga fyrir samfylgdina við slíka mannkosta- veru. Eilífðarvonin er hinn annar þátturinn, sem lýsir ofar skuggum dauðans. Jesús sagði: „Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. í húsi föður míns eru marg- ar vistarverur ... Þegar ég er far- inn burt og hef búið yður stað, kem ég aftur og tek yður til mín, svo að þér séuð einnig þar sem ég er.“ ... „Sjá, eg gjöri alla hluti nýja.“ ... „Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið." Kæru, syrgjandi ástvinir, ætt- ingjar og tengdafólk. Látum ljóma þessara fyrirheita sameinast bjarma minninganna, styrkja okkur öll og hugga á skilnaðar- stundinni, í fullvissu um sæla endurfundi. Jón Hjörleifur Jónsson l m sumardag blómið í sakleysi hló en sólin hvarf, og élió til foldar þaó sló. M J. Það var fyrir 31 ári, haustið 1951, að 16 stúlkur, sitt úr hverri áttinni, komu til náms í handa- vinnudeild Kennaraskólans. Nú sitjum við hnípnar með löngun til að setja á blað minn- ingar og þakkir, þegar ein úr hópnum kveður skóla lífsins. Sirrí, eins og við kölluðum hana alltaf, hét Sigríður Guðjónsdóttir, fædd 11. maí 1921 að Litlu-Háeyri á Eyrarbakka. Hún var yngsta barn hjónanna Jóhönnu Jónsdótt- ur og Guðjóns Jónssonar. Ólst hún upp í stórum, samrýndum systk- inahópi. Áður en Sirrí kom í Kennara- skólann hafði hún lokið prófi frá Héraðsskólanum á Laugarvatni 1939 og íþróttakennaraskólanum 1942. Handavinnukennaraprófi lauk hún 1953 og teiknikennaraprófi ári síðar. Á árunum 1940—1950 kenndi Sirrí á Stokkseyri og Eyr- arbakka, en lengst kenndi hún við Vogaskólann í Reykjavík. Sirrí var þróttmikill og röskur íþrótta- kennari. Síðari árin sneri hún sér alfarið að mynd- og handmennta- kennslu og komu þar vel í ljós list- rænir hæfileikar helinar og ein- stök vandvirkni. Árangur af starfi hennar mun varðveitast í vitund og verkum þeirra sem kennslu hennar nutu. Árið 1956 giftist Sirrí Sigurði Haraldssyni og eignuðust þau eina dóttur, Valgerði Kristínu. Heimili þeirra var fallegt og traust, enda hjónin bæði listfeng og fjölhæf og samvinnan góð. Alls þess besta naut dóttirin og stöðugt hélst sterkt samband systkina og systkinabarna. Það sáum við glöggt á samskiptum þeirra systra sem lengst hafa búið í sama húsi og ferðum Sirríar austur að Eyrarbakka um sauð- burðinn til hjálpar á æskuheimil- inu. Og aldrei munu ættingjarnir hafa staðið þéttar saman en í erf- iðleikum síðustu mánaða. Sjálf horfðist Sirrí í augu við sjúkdóm sinn af hreinskilni og kjarki. 1. október síðastliðinn leysti dauðinn hana frá þrautum og í dag kveðjum við einlæga vinkonu. Alltaf var hún tilbúin að hitta okkur á góðri stundu. Ýmist tók hún á móti okkur á heimili þeirra Sigurðar eða við hittumst á öðrum heimilum. Margar ógleymanlegar ferðir fórum við saman, m.a. til Noregs 1953. Sú venja myndaðist að fara í ferðalag á fimm ára fresti, síðast fórum við í Eyjafjörðinn fyrir fjórum árum. Þá var glatt á hjalla, margt skemmtilegt rifjað upp frá skóla- árunum, t.d. vísurnar hennar. Við þökkum Sirrí samfylgdina og biðjum henni blessunar á ókunnum leiðum. Innilegar samúðarkveðjur send- um við eiginmanni, dóttur, tengdasyni, dóttursyni, litla sól- argeislanum, og öllum ættingjum og vinum. Hve sæl, ó, hve sjel er hver leikandi lund, ojj lukkan hún er eilíf, þótt hverfi um stund. MJ. Skólasystur ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.