Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982 5 Dagur Leifs Eirikssonar: Athöfn við Leifs- styttuna í TILEFNI þess að nú eru liðin 50 íslendingum styttu Leifs Eiríkssonar, Skólavörðuholti í dag kl. 11.30. Ávörp flytja forseti íslands, for- saetisráðherra, Marshall Bremeut, sendiherra Bandaríkjanna, Davíð Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík, og Patricia McFate, forstjóri Am- erican Scandinavian Foundation í New York. Sigurður Helgason, í dag ár frá því að Bandaríkjastjórn gaf fer fram stutt athöfn við styttuna á formaður Íslensk-ameríska fé- lagsins, stjórnar athöfninni. Það vill svo til að laugardagur- inn 9. október er einmitt sá dagur, sem Bandaríkjaforseti hefur til- skipað minningardag Leifs Ei- ríkssonar í Bandaríkjunum. Kirkjuþing: Kosningu lokið 6. október 1982 fór fram talning atkvæða í kosningu til kirkjuþings. Kosnir voru 20 kirkjuþingsmenn, 9 leikmenn og 9 prestar í 8 kjördæm- um. Auk þcss voru 2 guðfræðingar kjörnir, annar úr hópi guðfræðinga sem eru fastráðnir til sérstakra verkefna innan þjóðkirkjunnar og hinn nr hópi kennara guðfræðideild- ar Háskóla íslands, segir í fréttatiL kynningu frá dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu. Á kjörskrá voru samtals 127 prestlærðir menn og 1.115 leik- menn. Af hálfu prestlærðra kusu 104 en 475 af hálfu leikmanna. Úrslit urðu þessi. 1. kjördæmi Lærðir: Aðalmenn: Sr. Hreinn Hjartarson, sr. Þorbergur Krist- jánsson. Varamenn: Sr. Guðmundur Þorsteinsson, sr. Árni Pálsson, sr. Arngrimur Jónsson og sr. Árni Sigur- björnsson. Leikmenn: Aðalmenn: Otto. A. Michelsen, Reykjavík, Hermann Þorsteinsson, Reykjavík. Varamenn: Stefán M. Gunnarsson, Kópavogi, Hólmfríður Pétursdóttir, Reykja- vík, Einar Th. Magnússon, Reykja- vík, Þórður Kristjánsson, Reykja- vík. 2. kjördæmi Lærðir Aðalmaður: Sr. Bragi Frið- riksson. Varamenn: Sr. Gunnar Kristjánsson og sr. Sigurður H. Guðmundsson. Leikmcnn: Aðalmaður: Kristján Þorgeirsson, Mosfellssveit. Vara- menn: Jóhann Friðfinnsson, Vest- mannaeyjum og Helga Óskarsdótt- ir, Njarðvík. Grohe- skákmótið SVOKALLAÐ Grohe-skákmót verður haldið í dag og á morgun í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad-kerfi. Umhugsunartími er 15 mínútur á skák. Fyrirhugað er að verðlaunaafhending mótsins fari fram næstkomandi fimmtu- dag klukkan 20. Frá þessu er skýrt í fréttatilkynningu frá Taflfélagi Seltjarnarness. Landsráðstefna herstöðvarand- stæðinga Herstöðvarandstæðingar hafa landsráðstefnu sína i dag og á morgun að Hótel Heklu. Ráðstefn- an hefst klukkan 10 með setningu formanns. Fyrirhugað er að ráð- stefnunni ljúki sunnudaginn klukkan 17. 3. kjördæmi Lærðir Aðalmaður: Sr. Jón Ein- arsson. Varamenn: Sr. Ingiberg Hannesson og sr. Rögnvaldur Finn- bogason. Leikmenn: Aðalmaður: Halldór Finnsson, Grundarfirði. Varamenn: Páll Pálson, Borg, og Ragnheiður Guðbjartsdóttir, Akranesi. 4. kjördæmi Lærðir Aðalmaður: Sr. Lárus Þ. Guðmundsson. Varamenn: Sr. Jakob Hjálmarsson og sr. Baldur Vil- helmsson. Leikmenn: Aðalmaður: Gunnlaug- ur Finnsson, Hvilft. Varamenn: Gunnlaugur Jónasson, ísafirði, og Guðmundur Kristjánsson, Bolung- arvík. 5. kjördæmi Lærðir AAalmaður: Sr. Sigurpáll Óskarsson. Varamenn: Sr. Árni Sig- urðsson og sr. Róbert Jack. Leikmenn: Aðalmaður: Margrét Jónsdóttir, Löngumýri. Varamenn: Jón ísberg, Blönduósi, og Karl Sig- urgeirsson, Hvammstanga. 6. kjördæmi Lærðir AAalmaður: Sr. Sigurður Guðmundsson. Varamenn: Sr. Birgir Snæbjörnsson og sr. Bolli Gústafs- son. Leikmenn: Aðalmaður: Gunnlaug- ur P. Kristinsson, Akureyri. Vara- menn: Jón Kristjánsson, Fremsta- felli, og Friðgeir Steingrímsson, Raufarhöfn. 7. kjördæmi Lærðir Aðalmaður: Sr. Einar Þór Þorsteinsson. Varamenn: Sr. Svavar Stefánsson og sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Leikmenn: Aðalmaður: Margrét Gísladóttir, Egilsstöðum. Vara- menn: Ragnhildur Kristinsdóttir, Eskifirði, og Anna Frímannsdóttir, Reyðarfirði. 8. kjördæmi Lærðir Aðalmaður: Sr. Halldór Gunnarsson. Varamcnn: Sr. Sigurð- ur Sigurðarson og sr. Sigurjón Ein- arsson. Leikmenn: Aðalmaður: Jón Guð- mundsson, Fjalli. Varamenn: Pálmi Eyjólfsson, Hvolsvelli, og Óskar Helgason, Höfn. Guðfræðingar og prestar sbr. 3. tl. 4. gr. I. 48/ 1982 Aðalmaður: Sr. Jón Bjarman. Varamenn: Sr. Bernharður Guð- mundsson og sr. Magnús Guðjóns- son. Kcnnarar guðfræðideildar Aðalmaður: Sr. Jónas Gíslason. Varamenn: Sr. Bjarni Sigurðsson og sr. Kristján Búason. Reykjavík, 7. okt. 1982, Kjörstjórn við kosningu til kirkjuþings. Frá afhendingu afsteypa af Leifsstyttunni i Washington í ferð forseta íslands þangað á dögunum. Frá vinstri eru Hans G. Andersen, sendiherra, Marshall B. Boyne, hótelstjóri Madison-hótelsins, forscti íslands, Marshal Brement, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi og ITIfur Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Utflutningsmiðstöðv- ar iðnaðarins, sem afhenti stytturnar. 100 afsteypur af Leifsstyttunni í DAG, 9. október, er „dagur Leifs Eiríkssonar" í Bandaríkj- unum. Vegna opnunnar „Scand- inavia Today” var gefin út af- steypa af styttu Leifs Eiríksson- ar, sem stendur á Skólavörðu- holti í Reykjavík. Afsteypa þessi fékk verðlaun og viðurkenningu í samkeppni um minjagripi á veg- um Ferðamálaráðs og Iðntækni- stofnunar íslands 1981. Hluti upplagsins (25 stk.) var notaður vestra til gjafa til embætt- ismanna, sem sérstaklega höfðu unnið að undirbúningi sýn- inganna og þeirrar kynningar á íslenskum framleiðsluvörum, sem fra fór á sama tíma í Banda- rikjunum. Á næstunni munu koma til landsins 100 eintök af umræddri styttu, en á hverju eintaki er ágrafin gyllt plata með íslenskum texta, er tilgrein- ir tilefni útgáfunnar. Eins og íslendingum er kunn- ugt er styttan af Leifi Eiríkssyni gefin íslendingum í tilefni 1000 ára afmælis Alþingis árið 1930. Á sérstakri áletrun á bakhlið styttunnar staðfestir Banda- ríkjastjórn, að íslendingurinn Leifur Eiríksson hafi fundið Vínland hið góða árið 1000. Þessi áletrun er einnig á afsteypunum. Útgefandi styttanna er Myndaútgáfan. Bílaleigan hf. býöur nú sérstakt haustverð á bílaleigubílum sínum sem gildir frá 1. okt. til áramóta. Innifaliö í þessu fasta veröi er ótakmark- aður fjöldi ekinna km, tryggingar svo og söluskattur. Verðskrá pr. sólarhring. Toyota Starlet Toyota Tercel Toyota Corolla Toyota Corolla St. kr. 690 kr. 710 kr. 730 kr. 750 Erum einnig meö sérstök helgartilboð sem gilda frá kl. 16.00 á föstu- degi til kl. 9.00 á mánudagsmorgni. Verðskrá pr. helgi Toyota Starlet Toyota Tercel Toyota Corolla Toyota Corolla St. kr. 1500 kr. 1540 kr. 1580 kr. 1620 Nú er hægt aö láta veröa af því aö heimsækja Jónu frænku á Húsavík eða hann Palla frænda í Þykkvabænum verðsins vegna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.