Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982 21 Hryðjuverkamenn teknir í Beirút? Félagar í Baader-Meinhof og Rauðu herdeildunum segja Llbanir Heirúl, 8. október AF. LÍBANSKIR hermenn hafa handtekið 11 liðsmenn úr þýska hryðju- verkahópnum Baader-Meinhof og þrjá „forsprakka" úr Rauðu herdeild- unum ítölsku að því er segir í hinu hægrisinnaða dagblaði Al-Amal í dag. Dagblaðið, sem er málgagn fal- angista, hefur það eftir öryggis- lögreglumönnum, að handtökurn- ar hafi farið fram í Vestur-Beirút þegar líbanskir hermenn leituðu þar afbrotamanna, sem tekist hefur að flýja úr fangelsi, manna, sem komið hafa á ólöglegan hátt til landsins, og leynilegra vopna- birgða. Rúmlega 1.000 manns hafa verið handteknir í þessum aðgerðum í Vestur-Beirút og nú er hermt, að Amin Gemayel, for- seti, hyggist láta fara fram sams konar leit í Austur-Beirút, sem kristnir menn ráða. Veður víða um heim Akureyri 6 skýjaó Amslerdam 14 rigning Aþena 25 heióskfrt Barcelona 20 skýjaó Berlin 13 akýjað BrUssel 13 skýjaó Chicogo 18 heióakirt Dyflinni 12 skýjaó Feneyjar 16 hélfskýjaó Frankfurt 13 rigning Færeyjar 7 alskýjaó Genf 13 skýjaó neisinKi 12 skýjað Hong Kong 27 heióskírt Jerúsalem vantar Jóhennesarborg vantar Kaupmannahöln 14 rigning Kairó 37 heíðskirt Las Palmas 24 lóttakýjaó Lissabon 19 heióskfrt London 14 skýjaó Los Angeles 23 heióskfrt Madrid 187 heióskirt Malaga 23 lóttskýjaó Mallorca 21 hólfskýjaó Mexíkóborg 25 skýjaó Miami 29 skýjaó Moskva 11 skýjað Nýja Delhí 34 heióakfrt New York 23 skýjaó Osló 11 skýjaó París 14 skýjaó Perth 19 heióskfrt Poking 28 heióskfrt Rio de Janeiro 31 skýjaó Reykjavík 7 alskýjaö Rómaborg 22 heióskfrt San Francisco 19 heióskírt Stokkhólmur vantar Sydney 29 heiðskfrt Tel Aviv vantar Tókýó 18 rigning Vancouver 13 skýjaó Vínarborg 15 skýjaó Þórshófn Faar. vantar í Al-Amal voru hryðjuverka- mennirnir, sem sagðir eru vera, ekki nefndir á nafn en líbanskir öryggislögreglumenn segjast hafa undir höndum sannanir fyrir tengslum PLO við alþjóð- lega hryðjuverkastarfsemi. Tals- maður vestur-þýska sendiráðsins í Beirút kvaðst ekki geta staðfest þessar fréttir en sagði ekki loku fyrir það skotið, að einhverjir Vestur-Þjóðverjar hefðu verið handteknir í Líbanon. Nýrri ríkis- stjórn fagn- að í Líbanon Beirút, 8. október. AP. SKIPUN nýrrar ríkisstjórnar í Líb- anon hefur verið vel tekið, ekki sízt vegna þess að hún er skipuð tiltölu- lega ungum mönnum, sem hafa ekki fengizt við stjórnmál áður. Shafik Wazzan forsætisráð- herra birti ráðherralista sinn eftir langar viðræður við þingfulltrúa og Amin Gemayel forseta. Til- kynning um skipun stjórnarinnar var síðan birt þegar Gemayel, Wazzan og Kemal Assad þingfor- seti höfðu ræðst við á síðustu stundu í forsetahöllinni. Óháða blaðið „An-Nahar“ segir að ríkisstjórnin sé skipuð hagsýn- um, vísindalega sinnuðum mönnum, sem hafi náð árangri í starfi og séu steyptir í sama mót og forsetinn. Samsetning ríkis- stjórnarinnar hafi verið meiri- háttar áfall fyrir „furstana" í líb- önskum stjórnmálum. Ráðherrarnir, sem eru allir nýgræðingar í stjórnmálum og úr efri millistétt, eru á aldrinum 40 til 59 ára, en ráðherrar fyrri ríkis- stjórna hafa verið á sjötugs- og áttræðisaldri. Falangistablaðið „Al-Amal“ segir að þingmenn, sem hafi reynt að þröngva kröfum sínum upp á forsetann, hafi „hundsað veru- leika og þarfir núverandi ástands og látið eins og þeir væru í skógar- ferð“. Vinstrablaðið „A1 Liwa“ skoraði á nýju ríkisstjórnina að láta strax hendur standa fram úr ermum, vinna vel saman, færa allar nauð- synlegar fórnir og láta einskis ófreistað til að standa við skuld- bindingar sínar. Fósturskaðar af völdum marijúana Y> ashini'lon, 8. október. AP. EF KONUR reykja marijúana meðan þær eru þungaöar eru meiri líkur en ella, að börn þeirra fæðist óeðlilega smá og með einhverja fæðingargalla. Að þessari niðurstöðu hafa vísindamenn við Læknaháskólann í Boston komist og er það í fyrsta sinn sem tekist hefur að sýna fram á bein tengsl milli marijúanareykinga og vanskapnaðar í Það var ekki aðeins, að börn marijúananeytenda eru minni en eðlilegt er, heldur er andlitsvöxtur þeirra og ýmis önnur líkamsein- kenni með óeðlilegum og stundum afskræmdum hætti, líkt og gerist með börn, sem eiga forfallna áfengissjúklinga fyrir mæður. Á fundi, sem vísindamennirnir efndu til, tóku þeir fram, að þótt þeir treystu niðurstöðunum full- komlega, yrði að endurtaka þær nokkrum sinnum áður en því væri börnum. slegið föstu í eitt skipti fyrir öll, að marijúananeysla hefði þessi al- varlegu áhrif á fóstrið. Vísindamennirnir, dr. Ralph Hingson og Joel J. Alpert, sögðu, að við rannsóknirnar hefði verið fylgst með um 1.700 mæðrum og börnum þeirra á Boston-sjúkra- húsinu til að komast að því hvaða atriði það væru, sem hefðu þessi geigvænlegu áhrif á einstakling- inn meðan hann væri enn í móð- U^kviði. Francois Mitterand Frakklandsforseti og Helmut Kohl, hinn nýi kanslari Vestur-Þýzkalands komu saman til fundar í París í þessari viku og var þessi mynd tekin þá. Markmiðið með for Kohls til Parísar svo fljótt eftir að hann var kjörinn kanslari, var að fullvissa frönsku stjórnina um áframhald á þeirri eindregnu samvinnu, sem ríkt hefur með stjórnum Vestur-Þýzkalands og Frakklands. Stórslys í Líberíu London, 8. október. AP. MIKILL fjöldi leitarmanna reyndi í dag að grafa sér leið í gegnum heilt fjall af aur og leðju, sem féll á miðvikudag yfir þorp námu- manna í Afríkuríkinu Líberíu og gróf undir sér fjölda námumanna. Meira en 150 manns er þegar saknað og óttast er, að þeir hafi allir farizt í þessu námuslysi, sem er hið mesta í sögu landsins. Slys þetta átti sér stað í námu- bæ í norðvesturhluta landsins og sögðu stjórnvöld í dag, að því færi fjarri, að vitað væri um alla þá, sem farizt hefðu. — Vera kann, að meira en 200 manns hafi misst lífið, sagði James Eesiah, fulltrúi líberíska upplýsingaráðuneytisins í dag. — Alit þorpið hefur grafizt undir aur og leðju. Talið er, að þessu slysi svipi mjög til slyss, sem varð í Wales í Bretlandi 21. október 1966, er úr- gangshaugur frá kolanámu hrundi yfir þorp í grennd með þeim afleiðingum, að 144 manns biðu bana þar af 116 börn. Ausairstm ti JO .u'i.) i LIJ lj »*jn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.