Morgunblaðið - 09.10.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982
Viðræður um breytingar á fræðsluskrifstofu:
Gagnkvæmt traust
forsenda samstarfs
TILLAGA borgarráAsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins um að gengið skuli
til viðræðna við menntamálaráðu-
neytið um breytingar á stöðu og
rekstri fræðsluskrifstofunnar í
Reykjavík, var samþykkt á fundi
borgarstjórnar sl. fimmtudag með 12
atkvæðum sjálfstæðismanna gegn 9
atkvæðum fulltrúa vinstri flokk-
anna.
Hvalveiði-
banninu ekki
mótmælt enn
SAMÞYKKT Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins um algjört hvalveiðibann frá og
með árinu 1986 hefur enn ekki ver-
ið mótmælt af hálfu íslenzkra
stjórnvalda.
Samkvæmt upplýsingum sjáv-
arútvegsráðuneytisins er málið
nú í athugun hjá stjórnvöldum
og er ákvörðunar að vænta í iok
þessa mánaðar eða byrjun þess
næsta. Frestur til að mótmæla
banninu rennur út þann 4. nóv-
ember næstkomandi. Verði svo
ekki gert verður íslenzka ríkis-
stjórnin að hlíta banninu.
Bankamenn
samþykktu
LOKIÐ er talningu i atkvæða-
greiðslu meðal félagsmanna Sam-
bands íslenzkra hankamanna, sem
fram fór um kjarasamning SÍB og
bankanna. Bankamenn samþykktu
samningana. 1.822 sögðu já, en nei
sögðu 330.
Hlutfallstölur eru þannig að já
sögðu 82,2%, en nei sögðu 14,9%.
Auðir og ógildir seðlar voru 63
eða 2,0%. A kjörskrá voru 2.621,
en þegar talningu lauk höfðu
borizt 2.216 atkvæði. 59 atkvæði
utan af landi höfðu ekki borizt
þegar talningu lauk.
LR sýnir
Hart í bak
næsta haust
ÁKVEÐIÐ hefur verið að taka leik-
rit Jökuls hcitins Jakobssonar,
llart í bak til sýningar hjá Leikfé-
lagi Keykjavíkur næsta haust í til-
efni þess að þá hefði höfundur orð-
ið fimmtugur. Þessar upplýsingar
fengust hjá Þorsteini Gunnarssyni
leikstjóra LR í gær. Þorsteinn kvað
þó enn óvíst hverjum yrði falið að
leikstýra leikritinu.
Þess má geta að Hart í bak var
frumsýnt á vegum Leikfélags
Reykjavíkur í nóvember 1962.
Súðavík:
Bessi með
110 tonn
Súðavík, 8. október.
TOGARINN Bessi kom til hafnar í
dag með 110 tonn af þorski. Var
fiskurinn sæmilegur. Þá hefur ver-
ið góð veiði hjá litlu bátunum.
1 fyrradag landaði Valurinn 4
tonnum eftir tvo sólarhringa,
Sigrún landaði 7 tonnum eftir 5
daga, uppistaða aflans var koli.
Hér hefur verið einstök blíða síð-
ustu daga.
Fréttaritari.
í bókun sjálfstæðismanna í
borgarstjórn um þetta mál segir
m.a. að menntamálaráðherra hafi
sett nýjan fræðslustjóra í Reykja-
vík gegn vilja fræðsluráðs. Rétt-
kjörinn meirihluti fræðsluráðs
hefir gert tillögu til ráðuneytisins
á grundvelli 13. gr. grunnskóla-
laga. Þar segir m.a.: „Við skipun í
starf fræðslustjóra er skylt að
taka tillit til kennslufræðilegrar
menntunar umsækjenda, stjórn-
unarreynslu innan skólakerfisins
og þekkingar þeirra á skólamálum
og skulu þeir umsækjendur að
öðru jöfnu ganga fyrir sem hafa
rétt til að vera skipaðir skólastjór-
ar við grunnskóla og hafa gegnt
starfi kennara eða skólastjóra í
a.m.k. þrjú ár.“
í bókuninni kemur fram að það
hafi vakið furðu og óánægju, þeg-
ar menntamálaráðherra hafi kos-
ið að hafa í raun frumkvæði að því
að slíta því sérstæða sambandi
sem verið hafi um rekstur
fræðsluskrifstofu í Reykjavik, „er
hann gekk í berhögg við vilja
meirihluta fræðsluráðs. Það er
auðvitað forsenda þess að slíkt
samstarf geti haldist, að gagn-
kvæmt traust sé á milli borgaryf-
irvalda og menntamálaráðuneyt-
isins, eins og verið hefur fram til
þessa,“ segir í bókuninni.
Mynd Mbl. Júlíus.
Lögreglumaður ræðir við túlk sem var í för með sovéska sendiráðsmanninum. Ljósmyndara Mbl. var síðan visað á
brott af lögreglumönnum að kröfu Rússans.
Sovéskur sendiráösmaður í ákeyrslu:
Neitaði samvinnu og
hugðist aka á brott
MIKIL rekistefna stóð yfir í tæpar
þrjár klukkustundir fyrir utan veit-
ingastaðinn Broadway i fyrrinótt eft-
ir að sovéskur sendiráðsmaður, sem
grunaður er um ölvun við akstur,
bakkaði á kyrrstæða bifreið og neit-
aði að verða við tilmælum lögreglu-
þjóna um að yfirgefa bifreiðina, en
veifaði í þess stað diplómatapassa
sínum í sífellu. Það var ekki fyrr en
yfirlögregluþjónn og aðalfulltrúi
lögreglustjórans í Reykjavík mættu
Ljósm. KÖE
Þrir háhyrningar bíða þess nú í laug Sædýrasafnsins i Hafnarfirði að
verða fluttir til útlanda, þar sem þeir eiga efiaust eftir að verða gestum
dýragarða til skemmtunar. Vélbáturinn Guðrún kom með dýrin til
Grindavikur á fimmtudagskvöld og virtust þau við góða heilsu, en
vegna flutninga, hnjasks og hitabreytinga voru þau smurð með feiti.
á staðinn, að Rússinn féllst á, að
lögreglumenn settust undir stýri og
keyrðu bifreiðina vestur i bæ.
Tildrög þessa máls eru þau, að
rétt um klukkan eitt í fyrrinótt
bakkaði Rússinn nýlegri Mitsu-
bishi Galant-bifreið á mannlausa
Mercedes Benz-bifreið fyrir utan
veitingastaðinn Broadway, þar sem
hann hafði verið boðsgestur á
hljómleikum hljómsveitar Björg-
vins Halldórssonar. Með honum í
bifreiðinni voru karlmaður, túlkur
í sovéska sendiráðinu, og tvær
stúlkur. Sjónarvottar voru að
ákeyrslunni. Rússinn bauð 10 doll-
ara í skaðabætur vegna skemmda á
Benzinum, en því var hafnað. Hann
gerði sig þá líklegan til þess að aka
á brott, en var stöðvaður og var
lögregla kölluð á vettvang.
Rússinn neitaði að stíga út úr
bifreið sinni þegar lögreglumenn
komu á staðinn. Hann dró rúðu bif-
reiðarinnar lítillega niður og sýndi
ökuskírteini sitt og diplómata-
passa, en neitaði að láta skilríkin
af hendi. Talsverðan áfengisþef
Iagði út úr bifreiðinni og vaknaði
grunur um að ökumaðurinn væri
undir áhrifum áfengis. Ljósmynd-
ara Mbl. bar þarna að garði og hóf
að taka myndir. Því reiddist Rúss-
inn og krafðist að ljósmyndaranum
yrði vísað frá. Það var gert.
Vegna diplómatískra réttinda
var ekki hægt að handtaka Rúss-
ann. Lögreglumenn buðu honum að
aka bifreiðinni heim, en túlkurinn,
sem hafði orð fyrir þeim, neitaði
boði þeirra og kvað þá fullfæra um
að aka bifreiðinni. Var nú málið
komið í hnút og því haft samband
við Bjarka Elíasson, yfirlögreglu-
þjón og William Möller, aðal-
fulltrúa lögreglustjóra, og fóru þeir
á vettvang.
Það var loks eftir komu þeirra að
Rússinn féllst á að framvísa öku-
skírteini sínu og að lögreglumenn
tækju við stjórn bifreiðarinnar.
Honum var ekið vestur í bæ og lauk
næturævintýri hans skömmu fyrir
klukkan fjögur um nóttina.
Dýrbítar í
Hafnarfirði
TVEIMUR hundum var lógað í
gær, þar sem einsýnt þótti að þeir
hefðu drepið lamb og bitið önnur
þrjú svo illa, að þeim varð að lóga.
Atvik þetta átti sér stað skammt
fyrir sunnan Hafnarfjörð á þriðju-
dag.
Hundarnir eru af Colly—kyni
og Labrador—kyni. Síðsumars
var Labradorhundi lógað eftir
að 12 lömb fundust dauð í
Krísuvík, en er 31 lambs saknað
af svæðinu.
Deilt um gæði kartaflna:
Yfirmat flokkar í 1. flokk það sem
áður hafði verið talið ómatshæft
„MÉR ER það óskiljanlegt, miðað
við þær athugasemdir sem fram
koma i yfirmati, hvernig þessi vara
náði því að teljast fyrsti fiokkur,"
sagði Eðvald B. Malmquist, yfirmats-
maður garðávaxta hjá Grænmetis-
verslun landbúnaðarins, i samtali við
hlaðamann Morgunblaðsins í gær.
Tilefnið var það, að yfirmatsmaður,
tilnefndur af landbúnaðarráðuneyt-
inu, úrskurðaði kartöflur í fyrsta
flokk, sem Eðvald hafði áður dæmt
ómatshæfar vegna frostskemmda.
Um var að ræða 30 poka af gull-
augakartöflum frá bónda einum í
Þykkvabæ, 50 kg hver poki. Land-
búnaðarráðuneytið tilnefndi Magn-
ús Óskarsson á Hvanneyri til yfir-
mats, og skilaði hann áliti 1. októ-
ber sl. Niðurstöður hans eru þær,
að samtals voru tekin þrjú safnsýni
úr níu pokum. Samtals voru sýnin
17,775 kg að þyngd, og varð niður-
staðan þessi:
Skcmmdir:
Rotnun 0,29%
Frostskemmdir 2,59%
Áverkar 2,21%
Grænar kartöflur 2,43%
Annað: 7,52%
Önnur afbrigði en
GuIIauga 0,75%
Útlitslýti 2,23%
Of litlar kartöflur 1,00%
Úrskurður:
Kartöflurnar skulu teknar sem 1.
flokkur.
Eðvald B. Malmquist sagði í
samtali við Morgunblaðið, að hann
hefði starfað við mat garðávaxta í
20 ár, og það hefði að sjálfsögðu
komið fyrir að menn óskuðu yfir-
mats, en það hefði aldrei fyrr en nú
leitt til breyttrar niðurstöðu. Mat
sagði Eðvald fara fram skv. reglu-
gerð frá 1962. Þar segir meðal ann-
ars, að í 1. flokki megi aðeins vera
kartöflur af þeim afbrigðum, sem
Tilraunaráð jarðræktar ákveður.
Þær skuli vera þurrar og heilbrigð-
ar, vel með farnar og fallegar út-
lits. Grænar og verulega hýðis-
skemmdar kartöflur
selja í 1. flokk.
megi ekki
Niðurstöðu þá er yfirmatsmaður
sendi frá sér, sagði Eðvald að bæri
að skoða í ljósi þessarar reglugerð-
ar, og þá væri erfitt að sjá hvernig
kartöflurnar hefðu komist í 1.
flokk.
Forsætisráðherra í ríkisfjölmiðlunum:
Falli bráðabirgðalögin,
fellur ríkisstjórnin ekki
GUNNAR Thoroddsen forsætis-
ráðherra sagði í samtölum við
rikisfjölmiðlana i gærkvöldi, að
fall bráðabirgðalaga ríkisstjórnar-
innar um efnahagsmál á Alþingi
hefði ekki í för með sér fall ríkis-
stjórnarinnar, hún hefði engu að
síður meirihluta í sameinuðu þingi,
31 þingmann af 60. Hins vegar
sagði forsætisráðherra, að fall
bráðabirgðalaganna gæti leitt til
þingrofs og nýrra kosninga.
Forsætisráðherra sagði sund-
urlyndi meðal stjórnarandstæð-
inga valda því að ekki hefði verið
afráðið af ríkisstjórninni hve-
nær og í hvorri deild Alþingis
bráðabirgðalögin yrðu lögð
fram. Auk þess tók Gunnar
Thoroddsen fram, að ekki væri
nauðsynlegt að Alþingi fjallaði
um eða afgreiddi bráðbirgðalög-
in fyrir 1. desember, þegar fyrir-
huguð vísitöluskerðing launa
kemur til framkvæmda, til
hennar myndi koma engu að síð-
ur. Þá tók ráðherrann fram, að
þótt lögin yrðu ekki afgreidd á
þessu þingi myndu ákvæði
þeirra halda gildi sínu, og einnig
ef frumvarpið yrði fellt eftir 1.
desember.