Morgunblaðið - 09.10.1982, Page 9

Morgunblaðið - 09.10.1982, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982 Umsjénarmaður Gísli Jónsson Snorri Bl. Siggeirsson í Reykjavík sendir mér elsku- legt bréf og boð um góða sam- vinnu. Ég þakka honum hið besta. Honum þykir sem þætt- ir þessir mættu vera efnis- meiri og lengri. Lýsir það lofs- verðum áhuga hans á móður- málinu, en ég held að þættirnir eigi ekki að vera lengri en þeir eru hverju sinni. Hitt er meira vafamál, hversu oft þeir ættu að birtast. Að svo skrifuðu, birtist hér bréf hans að öðru leyti: „Ég heiti Snorri Bl. Sig- geirsson og er nemi. Það sem vakir helst fyrir mér þessa stundina, er hvort maður eigi að segja, þegar gestir koma að kvöldlagi á skemmtistaði hér í borg: „Góða kvöldið" eða „Gott kvöld.“ Ég vinn sem dyravörður í Hollywood, ég býð ávallt „gott kvöld", en gestirnir flestir „góða kvöldið". Við erum með einn íslensku- kunnáttumann þar við vinnu, og hann segir að „gott kvöld" sé réttara, en hann veit ekki hvers vegna né af hverju. Þess vegna leita ég til þín í þeirri von að þú getir upplýst þetta fyrir okkur, svo að við getum leiðrétt sem flesta, íslenskunni til halds og trausts." Þetta mál er ekki mjög ein- falt og erfitt að fella dóm um hvað sé rétt og ekki rétt. Eig- um við að hafa greini eða ekki greini á orðum eins og ár, jól, dægur, nótt og kvöld í sam- böndum sem slíku, er Snorri Siggeirsson tilfærir? Ljóst er að merking breytist ekki, hvort sem við segjum: góðan dag eða góðan daginn. Oskin, sem í þessum orðum felst, er jafnótvíræð. Hér verður smekkur okkar að koma til og hefð málsins að einhverju leyti. Og eitt enn: það getur, finnst mér, verið blæbrigða- munur á því hvort við segjum „gott kvöld" eða „góða kvöld- ið“. Hér skiptir tónn orðanna miklu. Við skulum líka hyggja að fleiri orðum, sem tákna tíma, en þeim sem áður voru skráð. Bréfritari segir: „Það sem vakir helst fyrir mér þessa stundina“ (ekki þessa stund), sem auðvitað væri jafnrétt. Flestir munu kunna því bet- ur, að hafa ekki greini á þeim orðum og í þeim samböndum sem hér eiga við. Ég er einn af þeim. Ég set það fram sem al- menna reglu að segja frekar gleðileg jól og farsælt nýár, heldur en gleðileg jólin og far- sælt nýárið, fremur góðan dag, gott kvöld og einkum góða nótt, fremur en góðan daginn, góða kvöldið og góða nóttina. En, og það er stórt en, þessi „regla“ á ekki að mínu viti að vera án undantekninga. Orð- myndirnar með greini, góðan daginn og góða kvöldið, geta innifalið meiri alúð og jafnvel lítils háttar glettni, heldur en hinar. Góðan dag og gott kvöld getur verið kaldara, framand- legra en hitt. Ég mæli þó síst í gegn því, að Snorri taki á móti gestum sínum með þeim orð- um sem hann er vanur. En þegar sagt er við hann á móti: Góða kvöldið, getur falist í því vinsemd og von um góða skemmtun. Og ég endurtek: í slíkum ávarpsorðum skiptir tónninn afskaplega miklu máli, kannski meira en hvort orð eru höfð með greini eða ekki. Nú langar mig til þess að venda mínu kvæði í kross og víkja að vissri tegund mis- mæla, þótt sjaldan verði til annars en aðhláturs. Vera kynni þó að eitthvað af þvílíku hafi fest sig í málinu eða eigi það eftir. Ég tek fyrst einfalt dæmi. Glapyrðingur einn heyrði skipsflaut, þóttist viss um að það kæmi frá sbrand- ferðaskipinu Skálholti og hrópaði upp: Pípholtið er að skála; í staðinn fyrir Skálholt- ið er að pípa, auðvitað. Nærri má geta að íslend- ingar eru ekki einir um þess konar orðglöp. í Englandi var 167. þáttur prestur að nafni Spooner, ágætur fyrir flestra hluta sak- ir, en kunnur að þeirri tegund mismæla sem nú eru tíunduð. Af þeim sökum nefna Eng- lendingar þetta fyrirbæri spoonerism. Dæmi: Séra Spooner vildi biðja söfnuð sinn að syngja sálminn From Green- land’s icy mountains, en hann sagði óvart From Iceland’s greasy mountains. Nú er að finna nafn á þetta fyrirbæri sem enskumælandi menn nefna eftir sr. Spooner. Heldur þóttu það vafasöm meðmæli, þegar drengur nokk- ur sagðist hafa próf frá Hrúta- skóla í Reykjafirði, og ekki olli það lítilli kátínu, þegar maður nokkur taldi ol og kolíu allra beina mót fyrir efnahagslífið margþjakaða. Til eru svokall- aðir rakir steglumenn og steikja þó að raðaldri. Margt af þessu tagi er viðkvæmt og gróft og læt ég hér því staðar numið um þennan þátt máls- ins. Allt er þetta eðlisskylt sam- runa (contamination) eða nokkurs konar afbrigði hans. Menn leggja sig fram um eitthvað, líkingin tekin frá róðri eða reipdrætti, og menn lögðu ífram króka (= höfðu úti klærnar) og svo kemur sam- runinn og býr til hið forkostu- lega orðasamband að leggja sig í framkróka = hafa sig allan við. Auðvitað gera menn sér eitt og annað að leik af þessu tagi. Til er málshátturinn: Sjaldan er á botninum betra, og svo annar: Sjaldan er gíll (aukasól) fyrir góðu, nema úlf- ur á eftir renni. Úr þessu hefur orðið til fáránleikaklausan: Sjaldan er á botninum betra nema úlfur í undanrennu. Hitt er einfaldara, að hafa vaðið fyrir neðan nefið, að koma eins og þjófur úr heiðskíru lofti, eða jafnvel það, sem sagt er að mædd kerling tæki sér í munn einhverju sinni: Enginn veit sína ævina fyrr en í ausuna er kominn! SIMAR 21150-21370 SOLUSTJ LARUS Þ VALOIMARS LOGM JOH ÞOROARSON HOL Til aölu og sýnis auk annarra eigna: Vid Hlíöarveg í Kópavogi — skiptamöguleiki Til sölu í tvíbýlishúsi, hæð og rishæö um 150 fm með 5 herb. glæsilegri íbúð. Snyrting á báöum hæöum. Stór bílskur meö vinnukrók. Glæsilegur blóma- og trjágaröur. Útsýni. Skipti möguleg á raöhúsi eöa einbýlishúsi meö 4ra herb. íbúö. Endaíbúð meö bílskúr, í Hafnarfiröi 5 herb. úrvals ibúö um 130 fm í suöurenda vlö Breiövang. Sér þvotta- hús. Góö teppi. Vönduö innrétting. 4 góö svefnherb. Föndurherb. auk geymslu i kjallara. Góöur bílskúr. Frábært útsýni. 3ja herb. íbúöir viö: Álftamýri, á 4. hæö 90 fm. Suöursvalir. Góö smeign. Útsýni. Vesturberg, í háhýsi um 75 fm. Haröviöur, teppi, útsýni. Laus strax. Bergþórugötu, 1. hæö, 75 fm. Endurnýjuö í reisulegu steinhúsi. 4ra herb. íbúöir viö: Vesturberg, 3. hæö, 105 fm. Stór og góó. Sér þvottaöstaöa. Útsýni. Laugarnesveg, 2. hæö, 110 fm. 4 rúmgóö svefnherb. Nýtt gler. Stór geymsla Laus strax. Alfheima, 4. hæö, 118 fm. Mjög stór. Fatabúr. Góö sameign Mikió útsýni. Á vinsælum staö á Seltjarnarnesi: 5 herb. 3. hæö, 130 fm I þribýlishúsi viö Miöbraut. Teppalögö. Sér hitaveita. Rúmgóöar svalir. Bilskúr 43 fm. Mikiö útsýni. Skiptamöguleiki á minni íbúö. 2ja herb. íbúöir viö: Hrafnhóla, hæö í háhýsi um 50 fm. Úrvals góö einstaklingsíbúö. Bílskúr. Frábært útsýni. Laus strax. Freyjugötu, 2. hæö, 55 fm. Nokkuö endurnýjuð. Vinsæll staöur. lónaóar- eöa lagerhúsnæöi óskast á jaröhæö. Æskileg stæró 200—300 fm. Opiö í dag, laugardag, kl. 1—5. Lokaö á morgun, sunnudag. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 AIMENNA FASTEIGNASAHW Hafnarfjörður Opiö í dag frá kl. 2—4 Til sölu Arnarhraun Mjög falleg 2ja herb. íbúö á 2. hæð í fjölbýlishúsi. Gunnarssund 5 herb. steinhús, tvær hæöir og kjallari um 45 fm aö gr.fl. Breiövangur 3ja til 4ra herb. glæsileg íbúö á efstu hæð í fjölbýlishúsi. Góöur bflskúr. Laufvangur 4ra herb. falleg og vönduö endaíbúö á 3. hæð í fjölbýlis- húsi, á rólegum staö. Hraunkambur 4ra herb. íbúö á efri hæö • tví- býlishúsl. Laus sfrax. Lækjarfit Garöabæ 4ra herb. efri hæö og ris í timb- urhúsi. Bílskúrsréttur. Reykjavíkurvegur Nýstandsett 5—6 herb. stein- hús. Árnl Gunnlaugsson. hrl. Austurgötu 10. Hafnarfirði, simi 50764 9 Glæsilegt hús í Garðabæ Til sölu er vandaö, velbyggt og sér- stætt ca. 160 fm raöhús í Garðabæ. Húsiö, sem er á 2 hæöum, er meö sérhönnuðum og sérsmíöuöum inn- réttingum og er fullbúiö aö innan sem utan. Á efri hæö: Svefnherbergi, barnaherbergi, sjónvarpshol, eldhús, baöher- bergi og stofa. Á neöri hæö: 2 stór herbergi, baðherbergi með sturtu, hol og innbyggöur bílskúr. Húsiö veröur til sýnis um helgina. Allar nánari upplýsingar í síma 44808 til kl. 12—19 í dag. Neöangreindar eignir fást jatnt á óverðtryggöum og verötryggö- um kjörum. 2ja herb. Engjasel. Ca. 76 fm falleg íbúö á 4. hæö. Góöar innréttingar. Mikiö útsýni. ibúöin gefur möguleika á 3 herb. Fokhelt bílskýli. Boöagrandi. Mjög góö íbúö á 3. hæö i lyftuhúsi. Björt rúmgóö og vönduö eign. Sameign til tyrirmyndar. Bein sala. 3ja herb. Vesturbær. Óvenju stór ibúö sem gæti afhenst siöast i október. Tb. undir tréverk. íbúöin er mjög rúmgóö og er á 2. hæö i lyftuhúsi. Sér garóur fylgir þessari íbúö. Fæst á hagstæöum kjörum. Eyjabakki. Stór og falleg íbúö á 2. hæö. Þvottaherb. og búr innaf eldhúsi. Innréttingar í sérflokki. Suðursvalir. Útsýni. Ákveðin sala. Suöurgata Hf. Mjög falleg og björt íbúö á 1. hæö. Þvottaherb. innan íbúðar. Ákveöin sala. Hraunbær. Mjög rúmgóö eign á 2. hæð. Stórar suður svalir. Ákveö- in sala. 4ra herb. Fífusel. Óvenju falleg íbúö á 3. hæö. Þvottaherb. innan íbúöar. Öil herb. rúmgóö. Gott aukaherb. i kjallara. ibúö í sórflokki. Ákveöin sala. Hjaröarhagi. Ný endurbætt íbúö á 4. hæö. Nýjar innréttingar. Mikið útsýni. Eign i sérflokki. Gæti fengist i skiptum fyrir 2ja—3ja herb. íbúð í Vesturbæ. Kleppsvegur. Mikiö endurbætt íbúö á 2. hæö. Rúmgóö og skemmtileg eign. Eign í sórflokki. 5 herb. Miöbærinn. Um 160 fm hæö sem nú er nýtt sem vinnustofa arki- tekta en samþykkt sem ibúö meö vinnuaöstöðu. Husnæöiö er á 3. hæö. Áætlaöur afhendingartími um áramót. Ákveðln sala. Vesturborg. Rúmgóö íbúö á 2. hæö í góöu fjölbýlishusi. Aö veru- legu leyti ný standsett. Tengi fyrir þvottavél á baöl. Sunnuvegur Hf. Falleg eign og mikiö endurnýjuð á 1. hæö í þribýl- ishúsi. Ath.: Sunnuvegur er ein fallegasta og kyrrlátasta gatan í Hafnarfiröi. Stærri eignir Langholtsvegur. Góö hæö ásamt nýtanlegu risi í sænsku timbur- húsi. Bilskúrsréttur. Eign sem gefur mikla breytingamöguleika. Ránargata. Eignin er steinsteypt hús að grunnfleti um 80 fm og er kjallari og 3 hæöir. Gefur möguleika á þremur 3ja herb. íbúöum. einni 2ja herb. ibúö. Eignin er i góöu standi. Ægisgrund Garðabæ. Fullgert og failegt einingahús á friösælum staö. Lóö er fullfrágengin og afgirt. Rauöalækur, sér hæö. Stórglæsileg sér hæö í fjórbylishúsi, sem afhendist tilbúin undir tróverk á næstunni. Teikn. og nánari uppl. á skrlfstotunni. Kambasol, raöhús, sala — skipti. Húsiö er um 190 fm á tveimur hæðum meö innbyggöum bílskúr og er rúml. tb. undir tréverk. Gæti fengist í skiptum fyrir 4ra herb. íbúö. FasteignamarKaður Fjárfestingarfélagsins hf SKÓLAVÖRÐUSTlG 11 SÍMI 28466 (HÚS SRARISJÓÐS REYKJAVÍKUR) Lögfræðingur: Pétur Þór Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.