Morgunblaðið - 09.10.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982
15
SAAB Turbo:
Eins og límdur við
hraðbrautirnar
SAAB Turbo er hægt að fá eftir
óskum hvers og eins þrennra,
fernra eða fimm dyra. Bílarnir,
sem við höfðum til umráða í
reynsluakstrinum, voru báðir
þrennra dyra, með stórri skut-
hurð. Ekki er um að ræða nein-
ar sérstakar breytingar frá
1982-árgerðinni.
Mjög gott er að ganga um
þrennra dyra bílinn, sem er með
tveimur mjög stórum fram-
hurðum. Innrétting bílsins er
öll til fyrirmyndar. Sætin eru
þægileg ísetu, en þau eru klædd
plussáklæði, nema viðskiptavin-
ir kjósi að fá leðuráklæði, sem
nú er fáanlegt. Rými fyrir öku-
mann og farþega frammi í er
ágætt og sömuleiðis er ágætt
rými fyrir tvo fullorðna aftur í.
Það eina sem mér fannst að,
þegar setzt var inn í bílinn, er
hversu lágt armpúðarnir liggja
í hurðunum.
Mælaborð bílsins er stílhreint
og smekklega hannað með það
fyrir augum, að stjórntæki séu
innan seilingar fyrir ökumann.
Það má í raun segja, að tekizt
hafi sérstaklega vel upp við
hönnun mælaborðsins hvað
þetta áhrærir.
Skipting er vel staðsett og til-
tölulega þægilegt er að skipta
bílnum, sem er fimm gíra. Það
sem vakti kannski mesta at-
hygli varðandi skiptinguna er
hversu hægt er hægt að aka
bílnum í 5. gírnum. Það virtist
ekkert tiltökumál að aka honum
á 30—40 km hraða á klukku-
stund. SAAB-menn segja
reyndar, að ef menn vilji eyða
sem allra minnstu benzíni, sé
heppilegast að aka bílnum á
sem allra minnstum snúningi.
Turbo-inn er knúinn 145 DIN
hestafla, fjögurra strokka vél,
sem kemur mjög vel út. Kraft-
inn vantar að sjálfsögðu alls
ekki og vakti það reyndar furðu
mína, að bíllinn virtist eiga þó
nokkuð eftir, þegar honum var
ekið vel yfir 200 km hraða á
klukkustund. Hámarkshraði er
reyndar gefinn upp 200 km á
klukkustund. Það er mjög auð-
velt að skjótast á bílnum í bæj-
arumferð og auk þess er ekkert
tiltökumál, að skjótast fram úr
á hraðbrautunum.
Um aksturseiginleika turbo-
bílsins þarf í sjálfu sér ekki að
fjölyrða mikið u. Þeir eru mjög
góðir. Bíllinn var hreinlega eins
og límdur við hraðbrautirnar,
þegar honum var ekið á miklum
hraða. Fjöðrunin er mjög stíf og
skemmtileg og bíllinn svarar á
allan hátt mjög vel.
Vélin úr turbo-bílnum, 143 DIN hestöfl.
Framleiddur lítt breytt-
ur allt frá árinu 1969
SAAB 99:
Eftirspurn eftir bílnum eykst eigi að síður
SAAB 99-bílarnir hafa verið
framleiddir án róttækra breyt-
inga allt frá árinu 1969, sem seg-
ir óneitanlega sína sögu um
ágæti bílsins. Þegar ég spurði
einn SAAB-mannanna hvenær
framleiðslu yrði hætt á bílnum
hló hann og sagði, að það væri
alls ekki á döfinni. Eftirspurn
hefði hreinlega aukizt sl. tvö ár
og í ár er gert ráð fyrir 20%
meiri framleiðslu en í fyrra.
Eina sjáanlega breytingin á
bílnum í ár er nýtt grill, sem
gefur honum betri svip að mínu
mati.
Viðskiptavinir geta valið milli
tvennra og fernra dyra bíla.
Mjög þægilegt er að ganga um
tvennra dyra bílinn, sem er með
stórum hurðum, en því er hins
vegar ekki að neita, að hurðirnar
mættu vera eilítið stærri á
fernra dyra bílnum.
Framsæti bílsins eru vel gerð
með plussáklæði og fyrir minn
smekk er stuðningur þeirra al-
veg ágætur, bæði bakstuðningur
og hliðarstuðningur. Rými er al-
veg ágætt frammi í bílnum, bæði
fyrir ökumann og farþega, og má
geta þess, að fyrir minn smekk
eru armpúðar í hurðum betur
staðsettir í 99-bílnum en stærri
bílnum.
Mælaborð bílsins hefur tekið
breytingum hægt og sígandi í
gegnum árin, en óneitanlega er
það frekar gamaldags í dag.
Mætti að ósekju breyta því í
svipað form og í stærri bílnum.
Stjórntæki eru ekki eins vel inn-
an seilingar og í stærri bílunum.
Um skiptinguna er það að
segja, að stöngin er vel staðsett
og tiltölulega stutt er milli gíra.
Bílarnir eru fjögurra eða fimm
gíra eftir óskum. Bíllinn, sem
reynsluekið var, var 5 gíra. Það
má segja, að fimmti gírinn hafi
gert gæfumuninn, þegar bílnum
var ekið hratt á hraðbrautum
Þýzkalands.
SAAB 99 er knúinn 100 DIN
hestafla, fjögurra strokka vél,
sem er ágætlega kraftmikil. Bíll-
inn virkar ágætlega í öllum gír-
um, þótt persónulega þyki mér
hann koma bezt út í þriðja gírn-
um.
Aksturseiginleikar bílsins eru
ágætir og fjöðrunin er hæfilega
stíf. Hún hefði að vísu mátt vera
stífari á miklum hraðakstri, en
það skiptir okkur hér uppi á ís-
landi kannski ekki sérlega miklu
máli.
Hefilbekkur
Skeljungsbúðin <
EINHELL vinnuborð,
sem varið er í
SíÖumúla33
símar 81722 oq 38125
Nýjar uppskriftir
Vorum aö fá 22 nýjar uppskriftir og
nýja liti í handprjónabandinu.
Á /Mossbúöin
VESTURGÖTU 2 - SÍMI 13404
fttflrripn is
J Meirn en þú geturímyndad þér!