Morgunblaðið - 09.10.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982
17
Kvikmyndin
Blade Runner
Eftir Björn
Sigurðsson
Myndin er byggð á bók Philip
K. Dick’s. „Do Androide Dream
of Electric Sheep?“, leikstýrð af
Ridley Scott (Alien), með um-
sjón tæknibrella í höndum
Douglas Trumbull (Close
Encounters of the Third Kind,
2001) og með Harrison Ford í að-
alhlutverki, er Blade Runner að
slá aðsóknarmet Raiders of the
Lost Ark við.
Ford leikur Rick Deckard
fyrrverandi leynilögreglu eða
öllu heldur fyrrverandi Blade
Runner. Áður en hann hætti, var
hann færasti Blade Runner í
borginni, og hafði það erfiða
viðfangsefni að atvinnu að elta
uppi og tortíma „kópíum" (fram-
leitt fólk sem er óþekkjanlegt frá
raunverulegu fólki) sem höfðu
sloppið. Þessi lifandi vélmenni
voru framleidd fyrir stríð og ný-
lendutökur í geimnum, en öðru
hverju tekst einu og einu að
komast til jarðar. Vandamálið er
að þau hafa engar tilfinningar,
eru miskunnarlaus og samvisku-
laus. Þau svífast einskis til að
vera frjáls, en einmitt þess
vegna urðu Blade Runners til.
Þeir eru eina yfirvaldið sem get-
ur greint á milli stríðsþrælanna
og fólks.
Blade Runner gerist um það
bil 40 árum á eftir okkar samtíð
í bandarískri borg sem líkist
einna helst ruglaðri stórborg á
okkar tímum. Öll auglýsinga-
skiltin eru á nokkrum tungumál-
um, stöðumælarnir gefa frá sér
banvænt raflost ef reynt er að
ræna úr þeim og símaklefarnir
eru með sjónvarpsskerma svo
eitthvað sé nefnt. Flestar dýra-
tegundir eru útdauðar, en hægt
er að kaupa tilbúin gæludýr ef
peningar eru fyrir hendi, og eini
ferski maturinn sem fæst er
fiskur. Þetta er öld gervifæðunn-
ar. Himinninn er gulur af eitr-
aðri mengun og það er stanslaus
súr rigning. Það er sett hvað sem
er á bílana og byggingarnar til
að halda þeim í lagi. Sómasam-
legt fólk býr ekki undir fertug-
ustu hæð og flottustu íbúðirnar
eru á allt að 400. hæð. Og ef þú
ert lögregla eða hátt settur póli-
tíkus færðu að keyra spuna, sem
er fljúgandi ríkisbifreið, búin
þeim eiginleika að geta hafið sig
lóðrétt á loft og svifið um borg-
ina.
Blade Runner er byggð á sömu
formúlu og Raiders of the Lost
Ark, þ.e.a.s spennandi ævintýr-
amynd, með Harrison Ford í að-
alhlutverki.
Þeir sem sáu Chariots of Fire
og Raiders of the Lost Ark hafa
eflaust tekið eftir þeim
skemmtilega blæ sem ríkti yfir
myndunum. Ástæðan fyrir þessu
er ný filmuvinnsla, en hún verð-
ur einnig notuð í Blade Runner,
þó svo að hún muni að öllum lík-
indum ekki njóta sín sem skyldi
þar sem myndin er öll tekin í
stúdíói.
Að baki framleiðslu myndar-
innar standa Warner Brothers,
þannig að hún mun þá að öllum
líkindum verða sýnd í Austur-
bæjarbíói, þegar að því kemur.
Haustlauka-
utsala
15—40 %
afsláttur af
öllum haustlaukum
Þetta tilboð
stendur
aðeins yfir
helgina
Gerið gód kaup,
strax í dag
blómcmol
BUIÐ I AMERIKU
EINHLEYPIR KARLMENN TAKIÐ EFTIR
Mates International er stærsta hjónabandsmiölun í Norður-Ameríku og
Kanada. Viö erum meö 50.000 konur á skrá hjá okkur, sem bíða eftir að
hitta rétta eiginmanninn — og það gæti verið þú. Konurnar munu skrifa
upp á 90 daga vegabréfsábyrgð, til Bandaríkjanna eða Kanada, greiða
flugfar og útvega húsnæði, allt sem þú þarft að gera er að senda okkur góða
Ijósmynd af þér litmynd eða svart/ hvíta mynd og stutt bréf meö upplýsing-
um um sjálfan þig: aldur, þyngd, heimilisfang, áhugamál, menntun og starfs-
grein og allar þær upplýsingar, sem þér finnst máli skipta. Umsóknir frá
karlmönnum á aldrinum 18—55 ára, verður veitt móttaka, verða að geta
talað eitthvað í ensku, og vera einhleypir (fráskildir — OK) verða að hafa
áhuga á að kvænast og vilja búa í Bandaríkjunum eða Kanada. Sendið svar
viö þessari auglýsingu eins fljótt og auöiö er við gefum út bækling eftir 6
vikur og við verðum að fá mynd af þér og persónulegar upplýsingar ef þú vilt
vera með. Þú velur þá sem þú vilt úr öllum hópnum og hefur samband við.
Allt þetta er ókeypis. Svariö í dag og sendiö okkur mynd og persónulegar
upplýsingar á neöangreint heimilisfang: Við endurtökum — svarið í dag.
MATES INTERNATIONAL
Hudsons Bay Center
2 BloorSt. E.
Suite 2612
Toronto, Ontario,
Canada. M4W 1A6
Einnig óskum við eftir sambandi við einhleypar
konur — sendið mynd og bréf til Mates International.
TÖLVUSKÓLINN
ftRKUrfTELES
ER TEKINN TIL STARFA
Áhersla er lögð á raunverulega
tölvukennslu með röð af sex sam-
hæfðum námskeiðum.
Byrjendanámskeið
Framhaldsnámskeið
Forritun —
Forritun —
Skráavinnsla — IJ
Skráavinnsla — II
■^ar*to
Kerfisfrædi
Kerfisfræði
Húsnæði skólans aö Laugavegi 97 (2. h.) er opið öllum í dag kl. 10—17 og sunnudag kl. 13—17.
Sérstakt kynningarverð á námskeiðum þennan mánuð.
Glæsilegar Luxor-tölvur m. litastýringu.
Ný íslensk kennsluforrit.
Fallegar kennslustofur.
Opiö hús.
Komið og sjáið.
ftRK3f!TEBE§
Tölvuskóli, Laugavegi 97.
Athugið
Kennari
Steinþór Diljar
Kristjánsson
Áralöng
reynsla í tölvu-
kennslu.
Þú getur haldiö
áfram hjá
ftRKUriTELES
Innritun sýn-
ingardaga og í
síma 50615 á
kvöldin.