Morgunblaðið - 09.10.1982, Page 24

Morgunblaðið - 09.10.1982, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982 Hver verður næsti borgarlistamaður? Umsóknarfrestur um starfslaun iistamanns Reykjavíkurborgar rennur út um helgina. Stjórn Kjarvaisstaða hefur auglýst eftir umsóknum um starfslaun til lísta- manns. Þetta er í þriðja sinn sem slík starfslaun eru veitt. Áður hafa hlotið þau myndlistarmenn- irnir Magnús Tómasson og Bragi Ásgeirsson. Starfslaunin eru veitt í allt að 12 mánuði. Gítartónleikar á Austfjörðum Gítarleikararnir Símon ívars- son og Siegfried Kobiiza frá Aust- urríki eru nú á tónleikaferðalagi um landið. Hafa þeir þegar haldið þrenna tónleika. Þeir munu halda tónieika víða á Austfjörðum nú um helgina. Laugardaginn 9. okt. leika þeir í sal frystihússins á Breiðdalsvík, kl. 16.00. Sunnudag- inn 10. okt. leika þeir í Egilsstaða- kirkju kl. 17.00 og í Seyðisfjarð- arkirkju mánudaginn 11. okt. kl. 20.30. Á efnisskránni er tónlist sem ætti að höfða til margra hlust- enda, þ.e. flamenco og spönsk kiassísk tónlist. Kaffísala kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju ÁRLEG kaffisala Kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju fer fram í Góðtemlarahúsinu á morgun- sunnudag, og hefst hún kl. 15.00 að lokinni fjölskylduguðsþjónustu í kirkjunni, sem hefst kl. 14.00. Nú sem fyrr er kvenfélag kirkj- unnar ein styrkasta stoðin í öllu starfi hennar. Kvenfélagskonur hafa mjög borið hag kirkjunnar fyrir brjósti, unnið ötullega að því að bæta búnað kirkju sinnar og jafnan léð henni lið þegar þurft hefur. Er þær halda nú kaffisölu sína til að afla sér fjár til frekari starfa, skiptir miklu, að safnaðar- fólk og svo aðrir velunnarar Hafn- arfjarðarkirkju fjölmenni í Góð- templarahúsið, njóti þar ljúf- fengra veitinga og góðrar sam- veru. Síðumúla33 símar 81722 og 38125 Kjallari kirkjubyggingarinnar á Seltjarnarnesi. Ljósmynd Knstján Magnusson Seltirningar standa í kirkjubyggingu SELTIRNINGAR standa um þess- ar mundir í kirkjubyggingu. Er bú- ið að steypa upp kjallara, þar sem verður aðstaða fyrir söfnuðinn og jafnframt félagsaðstaða fyrir aldr- aða. Hafist var handa um bygging- una nú í vor og er nú stefnt að því, að gera kirkjuna fokhelda í einum áfanga. Vegna þess óskar sóknar- nefndin á Seltjarnarnesi eftir að- stoð bæjarbúa, annað hvort í formi sjálfboðaliðavinnu eða fjárstuðn- ings. Sóknarnefndin tekur við fjár- framlögum og eins er hægt að leggja inn á gíróreikning númer 0281—229100. Þá veröur farið með söfnunarbauka í hús á næst- unni. Athygii er vakin á því að fjár- framlög eru frádráttarbær til skatts. f fréttatilkynningu frá sóknar- nefnd Seltjarnarness segir svo mcðal annars: „Kirkjan sem bygg- ing er reisn hvers byggðarlags og sameiningarstaður í gleði og sorg. Með samstöðu allra kemst kirkjan i notkun innan skamms tima.“ Nauðsynlegt að bregðast með opnum huga við nýrri tækni Ávarp Mohamed Ibrahim Sobhi aöalforstjóra skrifstofu Alþjóöapóstsambandsins Fyrir 108 árum tók nokkur hóp- ur manna, fulitrúar 22 landa, sér fyrir hendur það metnaðarfulla verkefni að koma á fót aimennri sameinaðri póstþjónustu milli landa. Var þetta að frumkvæði Heinrich von Stephan, póstmála- stjóra ríkjasambands Norður- Þýskalands. Þeir komu saman í Bern í Sviss, þar sem samkomulag náðist fljótt og 9. október 1874 undirrituðu þeir „Samning um stofnun almenns póstsambands". Nafninu var 1878 breytt i „Alþjóðapóstsambandið", sem það ber með rentu, því aðildarlöndin eru nú 164 eða nánast öll lönd heimsins. Árið 1948 varð Alþjóða- póstsambandið ein af sérstofnun- um Sameinuðu þjóðanna. Aðsetur hefur það sem fyrr í Bern. Markmið Alþjóðapóstsam- bandsins snerta allt mannkynið, en þau eru að tryggja skipulega og fullkomna póstþjónustu og stuðla að samstarfi þjóða á miili á því sviði. í ár, hinn 9. október, höldum við enn hátíðlegan dag Alþjóðapóst- sambandsins og er hann helgaður samstarfi og þróun. Einkunnarorð hans eru: „Samstarf og þróun ein- kenna starf Alþjóðapóstsam- bandsins". Alþjóðasambandið var einmitt stofnað vegna þess hve þörfin fyrir samstarf var brýn og er sam- starfið einkennandi fyrir alla starfsemi sambandsins. Samstarf- ið er að finna í öilum þáttum póst- þjónustunnar og grundvallast á tvíhliða, fjölþjóðlegum eða svæð- isbundnum samningum og hefur þann tilgang að bæta þjónustuna með því að þróa og auka fjöl- ÞRIÐJUDAGINN 12. október nk. heldur dr. Áslaug Helgadóttir er- indi á vegum Líffræðifélags ís- lands um samkeppni miili gras- tegunda. Á síðustu árum hefur áhugi manna beinst í auknum mæli að sarnskiptum ræktaðra grastegunda og stofna, bæði með það fyrir augum að kanna sam- keppnishæfni einstakra tegunda svo og til þess að finna heppiiegar 9. OKTÓBER 1962 DAGUR U.P.U. Starf Alþjódapóstsambandsins -einkennist af samstarfi og þróun. breytni framboðinnar póstþjón- ustu. Enn fremur eykur Alþjóða- póstsambandið án afláts starf- semi sína í sambandi við tækni- aðstoð, svo að unnt sé að mæta þörfum póstþjónustunnar í þróun- arlöndunum. Starfsemi þessi bein- ist einkum að því að skipuleggja ferðir sérfræðinga og ráðunauta á sérhverju sviði póstþjónustunnar, fræðslu og þjálfun yfirmanna sem og að því að útvega kennslugögn og rekstrarbúnað. Annar þáttur alþjóðasamstarfs í póstmálum eru upplýsingaskipti póststjórnanna um starfsemi og framþróun hinna ýmsu greina póstþjónustunnar. Sérhvert land getur þannig fært sér í nyt reynslu annarra aðildarlanda sambandsins og notið góðs af framkvæmdum þeirra. Þetta starf er unnið í Ráðgjafaráði um rann- sókn póstmálefna (CCEP), en það er sú stofnun Alþjóðapóstsam- blöndur stofna og tegunda til ræktunar. í erindinu mun Áslaug greina frá rannsóknum sínum á samkeppni milli erlendra og inn- lendra stofna tveggja grasteg- unda, vallarsveifgrass og hálín- gresis. Erindið verður haldið í stofu 101 í Lögbergi og hefst kl. 20.30. Öllum er heimill aðgangur. bandsins, sem annast rannsóknir tæknilegra vandamáia sem snerta aiþjóðapóstþjónustuna og kemur niðurstöðum þeirra á framfæri við póststjórnirnar. CCEP var sett á laggirnar 1957 og er því 25 ára á þessu ári. í tilefni af degi Alþjóðasam- bandsins langar mig einnig að vekja athygli á öðrum atburði, al- þjóðasamgönguárinu. Allsherjar- þing Sameinuðu þjóðanna lýsti ár- ið 1983 alþjóðasamgönguár og við- urkenndi þannig jafnframt og lag- ði áherslu á grundvallarmikilvægi vel uppbyggðs samgöngukerfis bæði innanlands og milli landa fyrir fjárhags- og félagslega þróun allra landa. Alþjóðapóstsambandið hefur undirbúið nokkur undirstöðu- þróunarverkefni fyrir póstþjón- ustuna í þeim löndum, sem skemmst eru á veg komin og mun freista þess að leysa þau af hendi eða koma þeim á rekspöl á alþjóðasamgönguárinu 1983. Ennfremur mun Alþjóðapóst- sambandið leitast við að auka enn frekar skilning stjórnvalda og fjármálastofnana á mikilvægi póstþjónustunnar í allri fjárhags-, félags- og menningarlegri þróun, því að ijóst er, að ekki er tekið eðlilegt tillit til póstþjónustunnar í þróunaráætlunum. Þá er nauðsynlegt að bregðast með opnum huga við nýrri tækni á tímum póstflutninga eftir fjar- skiptakerfi. Alþjóðapóstsamband- ið fylgist náið með notkun þessara samgöngutækja og þróun. En jafnframt er Alþjóðapóstsam- bandinu ljóst, að forsendur fyrir lífi og gengi póstþjónustunnar eru endurbætur hefðbundinna greina hennar með því að gera þær ör- uggari, hraðvirkari og betur lag- aðar eftir þörfum viðskiptavina nú á dögum. Póststjórnirnar eiga sinn hlut í aiþjóðasamgönguárinu 1983 og munu innan ramma þess eflaust færa sér í nyt andrúmsloft það, sem skapast af hátíðahöldum inn- anlands og utan og leitast af fremsta megni við að fá nauðsyn- legar fjárveitingar til fjárfestinga sinna til þess þannig að geta hald- ið hlut sínum á samgöngu- mörkuðum, komið enn betur til móts við viðskiptavini sína og til- einkað sér nýja tæknibyltingu á traustum grundvelli. Fyrirlestur um sam- keppni grastegunda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.