Morgunblaðið - 09.10.1982, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGURð. OKTÓBER 1982
25
Hörpuútgáfan:
Borgfirzk blanda
og tíu bækur aðrar
HÖRPUÚTGÁFAN á Akranesi gefur út ellefu bækur á þessu hausti; þar af
fimm eftir íslenzka höfunda. Eftirfarandi er unnið upp úr fréttatilkynningu
frá útgáfunni:
í haust kemur sjötta bindið af Borgfirzkri blöndu í samantekt Braga
Þórðarsonar. í tilkynningu Hörpuútgáfunnar segir, að upphaflcga hafi verið
ætlunin að bækurnar í þessum flokki yrðu fimm, en vegna fjölda áskorana
verði útgáfunni haldið áfram. Efni þessa bindis sé eins og hinna fyrri blanda
af þjóðlífsþáttum, persónuþáttum og gamanmálum.
Annað ritsafn með þjóðlegu efni
frá Hörpuútgáfunni er Leiftur frá
liðnum árum, sem séra Jón Kr. ís-
feld hefur safnað. Nú kemur ann-
að bindið í þessum bókaflokki.
Hver einn bær á sína sögu heitir
bók eftir Hallgrím Jónsson frá
Ljárskógum í Dölum. I þessari bók
segir Hallgrímur sögu Ljárskóga,
og segir í tilkynningu útgefanda,
að fjölmargar ljósmyndir séu í
bókinni.
Glampar í fjarska á gullin þil
heitir bók, sem í eru frásöguþættir
Þorsteins Guðmundssonar á
Skálpastöðum í Lundarreykjadal.
Kvæði og greinar eftir Þorstein
hafa birzt í blöðum og tímaritum,
en í þessari bók segir hann frá
ýmsum atburðum úr eigin lífi.
Leikir og létt gaman, sem séra
Sveinn Víkingur tók saman, kem-
ur nú út á nýjan leik og önnur bók
kemur út öðru sinni hjá Hörpu-
útgáfunni, Draumráðningar og
spilaspá.
Norski rithöfundurinn Asbjörn
Oksendal heimsótti Island í sumar
og ferðaðist þá á vegum Hörpu-
útgáfunnar um söguslóðir Borg-
arfjarðar. Nú gefur Hörpuútgáfan
út þriðju bók hans og nefnist hún
Föðurlandsvinir á flótta, en fyrri
bækur hans, sem Hörpuútgáfan
hefur gefið út, hétu Þegar neyðin
er stærst og Gestapo í Þránd-
heimi.
Hættuför á norðurslóð heitir
önnur bókin, sem Hörpuútgáfan
gefur út eftir bandaríska rithöf-
undinn Duncan Kyle.
Loks eru nefndar til þrjár þýdd-
ar ástarsögur; fjórtánda bók Bodil
Forsberg, sem heitir, Þú ert ástin
mín, sjöunda bókin í bóka-
flokknum Rauðu ástarsögurnar og
heitir hún Elskaðu mig og er eftir
Erling Poulsen og ný bók eftir
Nettu Muskett, sem heitir Njóttu
mín.
SvartilHauks
Hjaltasonar
eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson
fyrir hönd Neytendasamtakanna
Niðurstöður af
hamborgarakönnun
Neytendasamtakanna
1. sæti Svarta pannan
2. sæti Tommaborgarar
3. sæti Brautargrill
4. sæti Trillan
5. sæti Texas Snack Bar
6. —7. sæti Askur, Breiðholti
6.—7. sæti Winnies
8. sæti Brauðbær
9. sæti Góðborgarinn
Haukur Hjaltason á miklar
þakkir skildar fyrir þá rækilegu
auglýsingu sem hann hefur kosið
að gefa hamborgarakönnun Neyt-
endasamtakanna (sjá úrslit í
töflu).
í fyrra bréfi gerir Haukur ör-
væntingarfulla tilraun til að gera
könnunina tortryggilega og nefnir
alls sex atriði sem hann telur
gagnrýnisverð. Hefur því bréfi
verið svarað lið fyrir lið.
í síðara bréfi hefur það nú gerst
að Haukur gerir enga tilraun til
að verja fyrri gagnrýni og fer í
stað að hnýta í þá skilgreiningu á
hugtakinu hamborgari sem notuð
var.
I stuttu máli finnur Haukur að
því að ekki hafi verið mæld gæði
hamborgarans sem réttar, þ.e.
með sósum, brauði o.þ.h., heldur
fyrst og fremst gæði kjötkökunnar
sjálfrar.
Þessu er fljótsvarað (og kom
raunar fram í fyrra bréfi): kjötið
er langdrýgsti hlutinn og auðvelt
fyrir framleiðanda að breiða yfir
léleg hráefni með sósum, brauði
o.fl.
Það skýtur því skökku við, svo
ekki sé meira sagt, þegar Haukur
leggur til í lok bréfs síns að ég og
hann ættum að „rannsaka betur"
gæði hráefnisins og á þá einungis
við kjötið sjálft.
Engin könnun eða rannsókn af
þessu tagi getur nokkru sinni orð-
ið fullkomin. Hitt er ljóst orðið að
Haukur Hjaltason hefur enga
annmarka fundið á þessari könn-
un sem hagga niðurstöðum.
Um frekari rannsókn á kjötgæð-
um vil ég aðeins segja: Haukur,
þessari könnun er lokið. En
kannski komum við aftur. Þá ættu
allir framleiðendur að kappkosta
að koma vel út.
Reykjavík,
8. október 1982.
Þegar Bragi Þórðarson hóf söfnun í
Borgflrzka blöndu var ætlunin að
gefa út flmm bindi. Nú kemur það
sjötta í haust.
Séra Jón Kr. ísfeld er höfundur
Leifturs frá liðnum árum.
Hallgrímur Jónsson segir sögu
Ljárskóga í Dölum í bók frá Hörpu-
útgáfunni.
KL. 14-18 BÁÐA DAGANA
BOSCH
ernco
MdottcraU
Hr. Baumgartner frá Emco og
Hr. Genz frá Wolfcraft munu
sýna tækin í notkun.
Nýtið þetta einstaka tækifœri.
Komið í Volvosalinn Suðurlands-
braut 16 og kynnist Emco,
Wolfcraft og Bosch.
„BLÁA LÍNAN"
FYRIR IÐNAÐAR-
MANNINN. „GRÆNA
LÍNAN" FYRIR
ÁHUGAMANNINN
4600
Nr. 4000
4200
TRÉSMÍÐAVÉLAR
TRÉ- OG
JÁRNRENNIBEKKIR
FYLGIHLUTIR
FYRIR FLESTAR
BORVÉLAR
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Síml 9135200