Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.10.1982, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAÚGA'RÐAGUR 9. OKTÓBER 1982 María Bára Frí- mannsdóttir - Minning Fædd 14. nóvember 1933 Dáin 3. október 1982 í dafc verður borin til hinstu hvíldar frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, María Bára Frímannsdóttir, en hún lést sunnudaginn 3. október sl. eftir stutta legu. María var fædd í Reykjavík, 14. nóvember 1933 og voru foreldrar hennar hjónin Kristín Ólafsdóttir og Frí- mann Einarsson. María fluttist ung með foreldrum sínum austur fyrir fjall, fyrst að Borg í Eyrar- bakkahreppi og síðar að Selfossi og þar ólst hún upp. Kristín og Frímann áttu ellefu börn og var María níunda í röðinni í systkina- hópnum, öll systkini Maríu eru á lífi. María kvæntist Alfreð G. Al- freðssyni, fv. sveitarstjóra í Sand- gerði, nú deildarstjóra hjá varn- arliðinu, 1. janúar 1956. María og Alfreð settust að á ísafirði, en þar hafði Alfreð alist upp að mestu hjá ömmu sinni. A þessum fyrstu 'búskaparárum þeirra Maríu og Alfreðs var í mörgu að snúast, það var enginn dans á rósum að stofna heimili á þessum árum, húsbónd- inn nýkominn frá námi og að hon- um lagt úr ýmsum áttum að taka að sér tímafrek félagsstörf, stór og smá, en húsmóðirin unga ekki síður en húsbóndinn, var komin af kjarkmiklu dugnaðarfólki sem ekki lét sér allt fyrir brjósti brenna. Á þessum árum kynntist ég Maríu fyrst og við okkar fyrstu kynni urðu mér ljósir hinir miklu mannkostir sem hún var gædd. María og Alfreð bjuggu á ísafirði til ársins 1962 í sama húsi og móð- ir Alfreðs, Laufey Maríasdóttir og fósturfaðir hans, Ragnar heitinn Ásgeirsson, héraðslæknir. Mjög vel fór á með Maríu og tengdafor- eldrum hennar, enda hér um að ræða einstakt heiðurs- og gæða- fólk. Frá Isafirði flytjast María og Alfreð til Njarðvíkur og byggðu sér einbýlishús að Holtsgötu 19. Árið 1966 ræðst Alfreð sem sveit- arstjóri í Sandgerði og flytjast þau hjónin þangað og þar er heim- ili þeirra þar til Alfreð lætur af störfum að eigin ósk 1979 og flytja þau hjónin þá aftur í hús sitt í Njarðvík. I meira en fjórðung aldar hafa María og Alfreð lifað saman súrt og sætt, húsbóndinn mest allan þeirra búskap hlaðinn umfangs- miklum félagsmálastörfum og heimilið, uppeldi barnanna og ým- is skyldustörf sem hlaðast á konur sem giftast félagsmálamönnum, féllu því á herðar Maríu, öll þessi störf rækti Maríu með miídum sóma. Henni var ákaflega annt um hag barna sinna svo og annarra ættmenna og lagði sig í framkróka við að létta þeim lífsbaráttuna. Andlegur styrkur Maríu kom hvað best í ljós, þegar eiginmaður- inn fyrir um tveimur árum varð alvarlega veikur og hún fylgdi honum ein til Englands, þar sem hann gekkst undir mikla skurðað- gerð, sem tvísýnt var um hvort tækist. í framandi landi með nær + Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma, MARÍA BÁRA FRlMANNSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Ytri-Njarövíkurkirkju í dag laugardaginn 9. október kl. 14.00. Alfreö Georg Alfreöason, börn, tengdabörn og barnabörn. Utför, GUOMUNDAR G. GUOJÓNSSONAR, Alfhólsvegi 125, Kópavogi, fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 11. október, kl. 3. Garóar Jóhannesson, Elsa Ágústsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför, SOLVEIGAR MAGNÚSDÓTTUR. Ragnheióur Þóróardóttir, Magnús Hjálmarsson Halldóra Magnúsdóttir, Sólveig Magnúsdóttir, Halldóra Magnúsdóttir, Lára Magnúsdóttir, Þóróur Magnússon, Grímur Jónsson, Egill Arnaldur Ásgeirsson. + Einlægar þakkir færum viö öllum þeim, er auösýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför. EDVARDS FRIDJÓNSSONAR, verzlunarstjóra. Vesturgötu 68, Akranesí, Laufey Runólfsdóttir, Helga Jónsdóttir, Sigrún Edvardsdóttir, Eínar Þorgeirsson, Friöjón Edvardsson, Guörún Kristjónsdóttir, Helga Björk Edvardsdóttir, Guöjón Kristinsson, Berglind Edvardsdóttir, Þorgeir Jóhannsson, Ingi Þór Edvardsson, Eybjörg Guðmundsdóttir, Guörún Friójónsdóttir, Viöar Daníelsson, og barnabörn. enga kunnáttu í málinu, beið hún þess sem koma skal, heimsótti eig- inmanninn dag hvern á sjúkra- húsið og styrkti hann og studdi á allan hátt og flýtti þar með fyrir bata hans. María átti eina dóttur, Hervöru Lúðvíksdóttur, áður en hún giftist og gekk Alfreð dótturinni í föð- urstað, eiginmaður Hervarar er Óskar Guðjónsson. Börn Maríu og Alfreðs eru: Erna Lina, eiginmað- ur Bjarni Kristjánsson, Kristín Bára, eiginmaður Þórður Ólafsson og Alfreð Georg, ókvæntur í heimahúsum. Barnabörnin eru sjö og voru öll augasteinar ömmu sinnar. Við kveðjum í dag konu á besta aldri, líf hennar hefur haft sinn tilgang eins og líf okkar allra, hún skilur eftir sig spor í hjörtum okkar, við minnumst ánægju- stundanna, þegar heimurinn hló við okkur, hvort sem var á Isafirði eða Istanbúl, í Kairó eða Kara- bíska hafinu, í Rudesheim eða á rökkurkveldi. Ég og kona mín, sendum þér vinur minn, Alfreð og börnum, barnabörnum, tengdabörnum, systkinum og þér Laufey mín, innilegar samúðarkveðjur. Drott- inn blessi minningu Maríu Báru Frímannsdóttur. Albert K. Sanders" Sunnudagskvöldið 3. október sl. var mér og konu minni tilkynnt að Maja væri dáin. Okkur setti hljóð, við þessa harmafregn. Við vissum að hún var búin að vera nokkra daga á sjúkrahúsi í Reykjavík, en þetta var reiðarslag. Maja hét fullu nafni María Bára, og fyrst þegar ég man eftir henni átti hún heima á Borg í Eyr- arbakkahreppi en þangað fluttu foreldrar hennar, Kristín Ólafs- dóttir og Frímann Einarsson, og bjuggu þar. Ég man vel eftir því þegar ég var unglingur á Stokks- eyri, þegar börnin á Borg voru að labba í skólann á Stokkseyri. Seinna giftist ég Helgu systur hennar og þá var hún Maja allt í einu orðin mágkona mín. Hún átti stóran systkinahóp, sem öll uxu úr grasi og reistu sín heimili, þar á meðal hún sem rúmlega tvítug giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Alfreð Georg Alfreðssyni frá ísafirði. Þar bjuggu þau í nokkur ár en fluttu þaðan til Njarðvíkur, þar sem þau settust að. Þar byggðu þau einbýl- ishús að Holtsgötu 19. Um margra ára skeið bjuggu þau í Sandgerði en þar var Alfreð, eða Affi eins og hann er kallaður, sveitarstjóri. Ég man það að Maja var hálfkvíðin að flytja þangað, hún hélt að sér leiddist þar. Svo var þó ekki, hún var mjög ánægð að eiga þar heima. Þegar Affi hætti sem sveitar- stjóri fluttu þau aftur að Holts- götu 19 í Njarðvík og þar átti hún heima síðan. Börnin þeirra eru fjögur, þrjár dætur sem búa á Suðurnesjum, en þær eru: Hervör, gift Óskari Guð- jónssyni, Erna Lína, gift Bjarna Kristjánssyni, Kristín Bára, gift Þórði Ólafssyni, og sonur, Alfreð Georg, sem er í föðurhúsum. Margar ánægjustundir áttum við á heimili þeirra Maju og Affa og gaman var að sjá þegar Maja var að snúast kringum barnabörn- in sín sem voru svo hænd að henni. Við mágar hennar, mágkonur, systkini hennar og öldruð móðir vottum eiginmanni hennar, börn- um, barnabörnum og tengdason- um okkar dýpstu samúð, og biðj- um algóðan Guð að styrkja þau í sorginni. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Blessuð sé minning hennar. Engilbert Þórarinsson Það er margt sem flýgur í gegn- um hugskot manns, þegar manni eru sagðar harmafregnir, a.m.k. fór svo fyrir mér sem oftast áður við slíkar aðstæður, er kunningi minn hringdi í mig seint á sunnu- dagskvöld og sagði mér að Maja hans Alfreðs væri dáin, en svo var hún ávallt kölluð meðal kunn- ingja. Við þetta sviplega fráfall Maríu varð mér þó efst í huga hið forna spakmæli „Vegir Guðs eru órannsakanlegir" og hvað það æ ofan í æ sannar raunhæfni sína. I þessum fáu orðum er það ekki ætlun mín að rekja æviferil Maríu það munu aðrir mér kunnugri gera miklu betur, heldur aðeins að minnast þess tíma sem lífshlaup mitt og þeirra hjóna Maríu og Al- freðs lá saman. Ég kynntist þeim hjónum fyrst 1966 þegar Alfreð var ráðinn sveitarstjóri hér í Sandgerði. Þau kynni urðu að vísu ekki mikil fyrstu fjögur árin, þar sem ég var þá langdvölum úti á sjó og lítið heima, en síðustu níu árin í sveit- arstjóratíð Alfreðs var samstarf okkar mjög mikið og kynnin sömuleiðis, en þó finn ég það nú að kynni mín af Maríu hefðu mátt vera miklu meiri, svo ég hefði kynnst betur mannkostum henn- ar. Mest met ég Maríu fyrir það hvað ég heyrði ávallt og fann hve hún var manni sínum mikils virði og ómissandi og þá ekki síður hvað hún reyndist honum mikil stoð og stytta í hans erfiðu veikindum síð- astliðin ár. Á þessari sorgarstund vildi ég gjarnan eiga huggunarorð til Al- freðs vinar míns, barna þeirra og annarra ættingja, en orð eru víst til lítils megnug. En muna skal þó að fögur minn- Minning: Guðríður Guðmunds- dóttir Neskaupstað Fædd 14. ágúst 1903 Dáin 2. október 1982 í dag kveðjum við hinztu kveðju föðursystur okkar, Gurru frænku. Foreldrar hennar voru Guðlaug Bjarnadóttir og Guðmundur Sig- hvatsson. Ekki mun ég með þess- um fátæklegu orðum gera ævi frænku verðug skil. Þar hafa skipst á skin og skúrir, en Gurra stóð réttari eftir hvert högg og hafði ætíð nógan styrk til að miðla okkur hinum. Mér er minnisstætt sambýlið í Sólhól, þar bar aldrei skugga á. Alltaf gátum við leitað til frænku með stórt og smátt, ekkert var svo snúið að ekki mætti leysa úr. Aldrei verður fullþökkuð sú hlýja sem hún hefur auðsýnt okkur um dagana. Þó sum okkar flyttu burt rofnuðu ekki tengslin við Gurru frænku, söm var hlýjan og rausnin, er komið var austur í heimsókn. Allt þetta þökkum við nú elsku frænku okkar og biðjum Guð að gefa henni góða heimkomu. Fjöl- skyldu hennar sendum við innileg- ing um góðan vin og félaga lifir þó líkaminn deyi. Að endingu vil ég svo flytja innilegar samúðarkveðjur frá mér og konu minni til allra ættingja hinnar látnu. Jón H. Júlíusson I dag er kvödd hinstu kveðju tengdamóðir mín, María Bára Frí- mannsdóttir, sem andaðist á gjör- gæsludeild Borgarspítalans 3. okt. sl. Maja, eins og hún var ávallt kölluð af vinum sínum, fæddist í Reykjavík 14. nóvember 1933, dóttir hjónanna Kristínar Ólafs- dóttur og Frímanns Einarssonar. Kristín er enn á lífi, en Frímann er látinn. Maja ólst upp á Selfossi hjá for- eldrum sínum. Þann 1. janúar 1956 giftist hún eftirlifandi manni sínum Alfreð Georg Alfreðssyni. Þau byrjuðu búskap á ísafirði og bjuggu þar til ársins 1962, en fluttust þá til Njarðvíkur. Árið 1966 lá síðan leið þeirra hjóna til Sandgerðis er Al- freð réðst þangað til starfa sem sveitarstjóri. í Sandgerði áttu þau heimili sitt til ársins 1979, en fluttu þá aftur til Njarðvíkur. Börn þeirra eru fjögur, öll upp- komin. „En skjótt hefur sól brugð- ið sumri", og „sorgin gleymir eng- um“, sannleikur þessara ljóðlína varð mér að harmsárum raunveruleika er ég stóð við dán- arbeð Maju tengdamóður minnar, en jafnframt varð mér þá Ijóst að bjartar og hugljúfar minningar um horfinn vin eru gulli dýrmæt- ari, og slíkan sjóð minninga á ég um Maju. Kynni okkar hófust árið 1969 er ég trúlofaðist elstu dóttur hennar. Og frá fyrstu kynnum sýndi hún mér ávallt hlýju og ástúð sem aldrei gleymist. Maja var að eðlis- fari hæg og hlédræg kona, sem lét ekki mikið á sér bera. En hún átti þá hetjulund í hógværu hjarta, sem seint mun gleymast. Það sýndi hún á fagran hátt er maður hennar þurfti að gangast undir mikla skurðaðgerð á erlendu sjúkrahúsi. Hún fylgdi honum ein til framandi lands, stóð við hlið hans og studdi hann gegnum þessa eldraun, án þess þó að geta tjáð sig á annarri tungu en sínu móð- urmáli. Slík var hún. Maja bjó ástvinum sínum fal- legt heimiii, sem bar þess ljósan vott hve hönd hennar var hög í verki. Þar voru til prýðis margir fagrir munir, gerðir af henni. Um hver jól kom öll fjölskyldan sam- an á vistlegu heimili hennar, og þar ríkti gagnkvæm gleði, sem við nutum öll. En ekki síst barnabörn- in, sem dáðu sína góðu ömmu. En nú er heilög kveðjustund runnin upp. Söknuðurinn er djúpur og sár, en minningarnar bjartar og hlýjar. Ég bið algóðan Guð að hugga og styrkja eiginmann henn- ar, börn og aldraða móður í þeirra þunga harmi og leiða þau öll og blessa um ófarinn æviveg. Maju tengdamóður minni þakka ég af alhug allt serti hún var mér og fjölskyldu minni. Blessuð sé minning Maju tengdamóður minnar. Óskar Guðjónsson ar samúðarkveðjur og biðjum henni Guðs blessunar. G.G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.