Morgunblaðið - 09.10.1982, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982
40
,, SerSu nó h\i<xb JoKJs-fc CXf c?f rnÖngurr>
göngotárxim!"
Ást er ...
... aö koma hon-
um til vib sig.
TM Rtg U.S Pat 0*1.—aM rights resarvwt
• 19U Los Angstes Ttmes Syndtcete
l»eg»r ég segi brostu, meina ég
brostu maður!
Með
morgimkaffínu
Pabbi minn sagði að námið hér í
skólanum hlyti að vera einhver
allsherjar misskilningur, eftir að
hann skoðaði einkunnabókina
mína!
HÖGNI HREKKVÍSI
Allar ættir manna
eiga sama uppruna
Jörundur Jóhannesson skrifar
25. sept.:
„Velvakandi.
Mitt í allri streitunni sem ein-
kennir samfélög mannanna hef-
ur nýlega verið stofnað glænýtt
streitu-félag með því virðulega
nafni Norrænt mannkyn. Mikill
skaði væri skeður ef illgresi
þetta fengi að festa rætur meðal
okkar. Stefnuskrá þessa félags
er beint gegn innflytjendum,
sem eiga þó nógu erfitt fyrir, þó
að ekki blási köldu til þeirra úr
enn einni áttinni.
Nokkrir stressaðir og lífsleiðir
bændur úr Árnessýslu hafa
fengið þá köllun eða hugsjón að
skapa helvíti á jörð fyrir vissa
hópa fólks, sem nær ekki þeim
lágmarkskröfum að vera náfölt á
hörund. Það vandamál sem þess-
ir menn vilja leysa er í raun að-
eins þeirra eigin streita og hæfi-
leikaleysi til að notfæra sér til
góðs ólík menningareinkenni.
Niðurrifsöfl hafa oft reynt að
villa á sér heimildir og bendi ég
á umrætt félag sem dæmi þar
um. Bændum og búaliöi væri þó
nær að hugsa meir um sínar ær
og kýr. Það er sjálfsagt notalegt
að sitja á einhverju höfuðbólinu
og skoða á sér naflann, meðan
fólk með annan hörundslit þarf
að horfast í augu við fordóma og
félagslegt misrétti. Stofnun
þessa fáránlega félags er verk
myrkraafla og stofnendum þess
til ævarandi skammar. Það ætti
löngu að vera orðið ljóst, öllum
vitibornum mönnum, að allar
ættir manna eiga sama uppruna.
Og nú veit hver maður að marg-
víslegur mismunur sem nú verð-
ur séður er ekki upprunalegur,
heldur fremur ungt fyrirbrigði í
þróuninni. Ofan á allt þetta bæt-
ist svo, að náttúran hefur bland-
að kynin svo mjög á fimmtíu
þúsundum ára, að ekki er nokkur
leið að finna svo mikið sem einn
fulltrúa nokkurs hugsanlegs
hreins kynþáttar. Vélabrögð fé-
lagsins eru sem sé að kerfa fá-
fræði, sem felur í sér flokkun á
fólki.
Lýðræðislega sinnuðum
mönnum ætti ekki að vera annað
en ánægjuefni að vita að þeir eru
af sömu blóðflokkum og Ástral-
íusvertingjar og frumbyggjar
Ameríku. Loks má þess geta til
þess að innsigla einingu mann-
kynsins, að sá hluti blóðsins,
sem er nauðsynlegastur til
blóðgjafa, plasmað, er það sama
í öllum mönnum.
Nú er ennfremur kunnugt, að
hörundslit valda tvö litarefni,
annað, karótín, veldur gula litn-
um; hitt, metanín, þeim dökka.
Einnig er vitað, að þessi efni eru
í hörundi allra manna, í misjöfn-
um hlutföilum. Þessi litatil-
brigði efnahlutfallanna ásamt
litnum í blóðæðunum undir húð-
inni valda öllum sýnilegum mis-
mun á hörundi. Við getum verið
svört, hvít eða gul, en við höfum
öll metanín og karótín.
Sannfæring min er sú að fé-
lagsskapurinn Norrænt mann-
kyn gæti aldrei leitt annað en
illt af sér fyrir menn og menn-
ingu hér á landi og annars stað-
ar. Það er að veikja en ekki
styrkja menningu eins lands, að
fávísir einstaklingar dundi við
það að smiða sér vopn í formi
félagsskapar, sem vísvitandi eða
óafvitandi grefur undan lýðræð-
inu, innflytjendum og reyndar
landsmönnum öllum til óheilla.
Ég þakka fyrir birtinguna."
Þessir hringdu . . .
Er grunur minn
á rökum reistur?
Hjörtur Geirsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Ég
hef verið að koma fram undan-
farna mánuði sem trúbador-gít-
arleikari og söngvari og þar á
meðal sungið lag eftir mig sem
heitir „Ég er fæddur rokkari".
Nokkrir popptónlistarmenn hafa
hlustað á mig og er ekkert nema
gott um það að segja. Nú fyrir
skemmstu kom út plata með
Björgvin Halldórssyni og eitt lag-
ið á þeirri plötu minnir á lag sem
ég hef verið að syngja undanfarið,
en ekki nóg með það, því að að-
ferðin minnir einnig á það sem ég
er að gera. Ég hef lengi haft at-
vinnutónlistarmenn hér grunaða
um að skrapa saman aðferðum hjá
trúbadorum okkar til að fleyta sér
áfram, halda sér á toppnum og
öðrum niðri. Nú langar mig til fá
svar við því hjá Björgvin, hvort
þessi grunur minn sé á rökum
reistur. Kannast hann við það, að
popptónlistarmenn sæki tónlist-
arlegar aðferðir til trúbadoranna,
útsetji þær síðan og gefi út á plöt-
um?
Vakti til
umhugsunar
Vigfús Ingvar Ingvarsson, Eg-
ilsstöðum, hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Mig langar til
að þakka fyrir erindi Helga Pét-
urssonar í útvarpinu á laugar-
dagskvöld. Mér fannst það dálítið
nýtt innlegg í annars einhæfar
umræður um þessi fjölmiðlunar-
mál. Þar kom ýmislegt fram sem
legið hefur í þagnargildi, en vakti
mann til umhugsunar um að rétt
Sigrún Benediktsdóttir skrifar:
„Velvakandi góður.
I minni sveit töluðu bændur um
að höggva hænsn sín, en fella
sé að skoða þessi mál betur. Það
virðist vera mikið óðagot á öllu í
þessu sambandi og viss þrýstingur
vegna hinnar ólöglegu mynd-
bandastarfsemi.
Þá væri e.t.v. rétt að nota tæki-
færið og koma á framfæri lítilli
ábendingu til sjónvarpsmanna. Á
sunnudögum er á dagskrá hjá
þeim þáttur sem nefnist Dagskrá
næstu viku. Það er eins og þeir
athugi það ekki, að vikan hefst
með sunnudegi, og því eðlilegra að
tala um Dagskrá vikunnar. Það er
öldungis óþarft að vera að rugla
fólk svona.
Sást ekki fyrr
„Gustur“ hringdi og hafði eftir-
farandi að segja. — í fréttatíma
nautpening og aðra stórgripi. Trú-
lega hafa þeir þýsku ekki ætlað
sér að ganga á milli bols og höfuðs
á Schmidt karlinum, eða hvað?"
Vestur-I
Samþykkt að fella
Schmidt á föstudai
v. AP.
Eða hvað?