Morgunblaðið - 12.10.1982, Síða 17
MORGUNBLAÐID’, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1982
17
Barnaverndarnefnd
Reykjavlkur 50 ára
Arið 1932 voru sett fyrstu ís-
lensku heildarlögin um barna-
vernd og leystu þau af hólmi ýmis
dreifð og sundurleit lagaákvæði,
sem vörðuðu þennan málaflokk.
Með þessum fyrstu lögum var leit-
ast við að koma festu á skipan
barnaverndarmála og var þar lagð-
ur grundvöllur að þeirri tilhögun
sem við búum við í meginatriðum
enn þann dag í dag. Um þessar
mundir eru því liðin 50 ár frá setn-
ingu fyrstu barnaverndarlaganna
og fyrsti fundur barnaverndar-
nefndar Reykjavíkur var haldinn
11. október 1932.
Núgildandi barnaverndarlög eru
frá árinu 1966. Skv. þeim eru
barnaverndaryfirvöld tvenns kon-
ar. Annars vegar staðbundnar
barnaverndarnefndir og hins vegar
barnaverndarráð, sem er áfrýjun-
ar- og eftirlitsaðili sem nær til
landsins alls.
Barnaverndarnefnir eiga að vera
í hverjum kaupstað og í hverjum
hreppi landsins og eru þær kosnar
af viðkomandi sveitarstjórn.
Verkefnum barnaverndarnefnda
skv. lögum má í stórum dráttum
skipta í þrennt, eftirlit, umsagnir
og fóstur.
Kftirlit:
a) Eftirlit með aðbúð og uppeldi
barna og ungmenna á heimil-
um.
b) Eftirlit með hegðun og hátt-
semi barna og ungmenna utan
heimilis.
c) Eftirlit með barnaheimilum og
uppeldisheimilum í umdæminu.
d) Eftirlit með leiksýningum, öðr-
um opinberum sýningum og
hvers kyns öðrum skemmtun-
um.
e) Eftirlit með að barni eða ung-
menni sé ekki ofþjakað við
þunga eða óholla vinnu með
löngum vinnutíma, vökum eða
óreglulegum vinnuháttum.
Ilmsagnir:
a) Umsagnir í ættleiðingarmálum,
áður en dómsmálaráðuneytið
gefur leyfi til ættleiðingar.
b) Umsagnir í forsjár- og um-
gengnismálum vegna hjónaskiln-
aðar eða sambúðarslita i þeim
tilvikum er foreldrar deila um
forsjá barnanna.
Fóstur
a) Fóstur skv. umsókn eða beiðni
foreldris. í þessu tilviki er
barnaverndarnefnd umsagnar-
aðili þvi enginn getur tekið
barn í fóstur nema að fengnu
samþykki barnaverndarnefnd-
ar.
b) Fóstur á vegum barnavendar-
nefndar er liður í úrræðum sem
barnaverndarnefnd getur gripið
til vegna vandræða á heimili.
Barnaverndarnefndum er fengið
mikið vald að lögum. Mál þau sem
þær fá til meðferðar eru og oft
mjög torveld og úrskurðir nefnd-
anna geta orðið miklir örlagavald-
ar bæði í lífi barnanna svo og for-
ráðamanna þeirra. Nauðsyn ber
því til að vanda málsmeðferð alla
eftir föngum og rasa ekki um ráð
fram. Sérstaklega á þetta við um
þau mál sem kölluð eru meiriháttar
barnaverndarmál en með því er átt
við töku barns af heimili, sviptingu
forsjárvalds, kröfu um að barn
skuli flutt frá fósturforeldrum eða
kröfu um að felldur sé úr gildi úr-
skurður um töku barns af heimili
eða sviptingu forsjárvalds. Til
tryggingar réttaröryggi eru gerðar
mjög auknar kröfur til meðferðar
mála af þessu tagi:
1) Aukinn meirihluti nefnar-
manna verður að samþykkja
ráðstöfunina.
2) Héraðsdómari tekur sæti í
barnaverndarnefnd ef lögfræð-
ingur á þar ekki sæti.
3) Foreldrum eða öðrum forráða-
mönnum skal gefið tækifæri til
að tjá sig um málið fyrir nefnd-
inni. Að jafnaði skal einnig gefa
barninu, sem málið varðar,
tækifæri til að koma á fund
nefndarinnar.
4) Málið skal ákveðið með skrif-
legum og rökstuddum úrskurði,
þar sem m.a. er vakin athygli á
því að bera megi úrskurðinn
undir fullnaðarúrskurð barna-
verndarráðs.
Að öðru leyti gera barnavernd-
arlög engar' sérstakar kröfur til
málsmeðferðar aðrar en þær að
aflað sé sem gleggstra upplýsinga
um alla hagi barnsins áður en
ákvörðun er tekin og að við
ákvörðun sé ennfremur haft að
leiðarljósi hvað barninu er fyrir
bestu.
Skv. barnaverndarlögum má fela
félagsmálaráðum vekefni barna-
verndarnefnda. Á árinu 1967 var
gerð sú skipulagsbreyting í
Reykjavík að verkefnum barna-
verndarnefndar skv. barnavernd-
arlögum var skipt milli nefndar-
innar og féiagsmálaráðs, sbr. rgj.
um þessa verkaskiptingu frá árinu
1970. Skv. reglugerðinni fer barna-
verndarnefnd Reykjavíkur með
umsagnir til dómsmálaráðuneytis í
ættleiðingar-, forsjár- og um-
gengnismálum, úrskurðarvald í
meiriháttar barnaverndarmálum
auk eftirlits með uppeldisstofnun-
um, skemmtunum, vinnu og útivist
barna og ungmenna. Meginverk-
efni félagsmálaráðs á sviði barna-
verndar eru aðstoð við fjölskyldur,
eftirlit með aðbúð harna, uppeldi
og hegðun utan heimilis, auk að-
stoðar og eftirlits með börnum sem
eiga í erfiðleikum.
Samstarf barnaverndarnefndar
Reykjavíkur og félagsmálastofn-
unar er einkum framkvæmdalegs
eðlis, því yfirmaður fjölskyldu-
deildar félagsmálastofnunar er
jafnframt framkvæmdastjóri
barnaverndarnefndarinnar.
Framkvæmdastjóri nefndarinn-
ar skipuleggur afgreiðslu og fram-
kvæmd barnaverndarmála í sam-
ráði við formann barnaverndar-
nefndar og lögfræðing nefndarinn-
ar, ef sérstaklega stendur á.
Að öðru leyti má lýsa vinnutil-
högun barnaverndarnefndar á
þann hátt að starfsmenn nefndar-
innar fá til meðferðar hin ýmsu
mál, sem upp koma. Þeir vinna síð-
an að undirbúningi þessara mála
og gefa skýrslu er málið er tekið á
dagskrá hjá nefndinni. Rétt er að
benda á að einstaka mál, sem ekki
cr ágreiningur um, eru afgreidd af
starfsmönnum án þess að nefndin
fjalli um þau sérstakiega.
Starfsmenn nefndarinnar eru
því undirbúnings- og fram-
kvæmdaaðilar, en nefndin sjálf
ákvörðunaraðili. Barnaverndar-
nefndarmenn hafa þannig tak-
mörkuð bein samskipti við þá ein-
staklinga sem 'eiga mál sín hjá
nefndinni, nema í þeim tilvikum er
forráðamenn barns koma á fund
nefndarinnar til að útskýra við-
horf sín. Auk þess er formaður
nefndarinnar með fasta viðtals-
tíma einu sinni í viku þar sem þeir,
sem mál eiga hjá nefndinni, geta
komið og rætt þau við formanninn.
(Frá FélaRsmálastofnun
ReykjavíkurborKar.)
Hef opnað
lögfræðiskrifstofu
aö Bankastræti 6, 2. hæö, Rvík, sími 28505.
Tryggvi Agnarsson,
lögfræöingur.
13í ilamalkadulinn
Colt GL 1982
Vínrauður, ekinn 7 þús. Útvarp.
(8 gíra kassi). Verð: 125 þúsund.
Honda Quintet 1981
Rauður, ekinn 12 þús. Útvar
Verð: 150 þúsund.
Fiat Ritmo 1981
Ljósbrúnn, ekinn 17 þús. Verð:
100 þúsund.
Citroen GSA 1982
Blásans., ekinn 6 þús. Útvarp,
segulband. Verð: 138 þús.
Mazda RX 1980
Silfurgrár, ekinn 20 þús. 5 gíra,
138 ha vél. Útvarp. Segulband.
Verð: 185 þús.
DaLsun Pick-up. Diesel 1981
Gulur, ekinn 50 þús. Útvarp,
snjó- og sumardekk. Verð: 140
þús.
Subaru 4x4 1800 1982
Rauður, ekinn 6 þús. Sílsalistar
og grjótgrind. Verð 190 þús.
Ilonda Accord EX 1982
Svartblár, ekinn 30 þús. Sjálf-
skiptur, aflstýri, útvarp. Bíll
eins og nýr. Verð: 160 þús.
GolfCL 1982
Svartur, ekinn 10 þús. (Skipti á
ódýrari bíl). Verð: 155 þúsund.
tth.: Gengisskráning 5.10 '82.
5 gíra var kr. 163.500.-.
5 gíra nú kr. 153.000.-.
Sjálfskiptur var kr. 168.000.-.
Sjálfskiptur nú kr. 157.000.-.
5 gíra EX var kr. 210.000.-.
5 gíra EX nú kr. 193.000.-.
Sjálfskiptur EX var kr. 216.000.-
Sjálfskiptur EX nú kr. 198.000.-
■
HONDA Á ÍSLANDI Vatnagöröum 24, sími 38772