Morgunblaðið - 12.10.1982, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1982
23
Stewart Johnson lék mjög vel ( liöi KR. Hér leggur hann boltann í
körfuna. Ljósm. rax.
KR ekki í erfiðleikum
með Fram í Hagaskóla
KR SIGRAOI Fram örugglega í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik é
laugardag meö tíu stiga mun.
Viðureign liðanna í Hagaskóla
endaði 93—83 KR í vil eftir aö
vesturbæjarliðið haföi leitt 47—43
í leikhléi. Fram, sem var én
þriggja leikmanna sem settu svo
mjög svip sinn á liðið síðastliöinn
vetur, þeirra Símonar Ólafssonar,
Guösteins Ingimarssonar og Viö-
ars Þorkelssonar, átti ávallt undir
högg aö sækja og er greinilegt,
að líöið er ekki líkt eins sterkt og
• fyrra. En ef til vill lagast þaö
þegar á veturinn líöur.
Jafnræði var meö liðunum í
byrjun og um miðjan fyrri hálfleik
haföi Fram fjögurra stiga forustu,
26—22, en KR náði að jafna,
30—30. Yfirburöir KR komu síöan
hægt og bítandi í Ijós, og smám
saman lagöi KR grunn aö öruggri
forustu í leikhléi. Þaö voru öörum
fremur tveir leikmenn, sem lögöu
Þór vann
ÞÓR VANN öruggan sigur á
Keflvíkingum, 24—18, í 3. deild í
handknattleik á Akureyri á föstu-
dagskvöldið. ÍBK byrjaöi leikinn
af miklum krafti og komst í 3—1 á
fyrstu mínútunum og um miðjan
f.h. var staðan 7—5 IBK í vil.
Þórsarar fóru nú aöeins aö
vakna til lífsins og skoruöu næstu
5 mörk og staöan orðin 10—7 Þór
í vil. Staðan i hálfleik var 13—9
Þór í vil. i síðari hálfleik hélst síöan
þessi munur og var leikurinn aldrei
spennandi, Þór ávallt 4—5 mörk
yfir, en lokatölur uröu 24—18.
Bestu menn Þórs voru Siguröur
Pálsson og Guöjón Magnússon, en
hjá ÍBK Jón Ólsen og Björgvin
Björgvinsson.
KR —
Fram
93—83
grunn aö forustu KR. Bandaríkja-
maöurinn Stuart Johnson og hinn
ungi og skemmtilegi leikmaöur
Páll Kolbeinsson. Hvaö eftir annaö
stal hann knettinum af þungum
leikmönnum Fram og brunaöi upp.
Páll, sonur Kolbeins Pálssonar,
þess kunna körfuknattleikskappa
á árum áöur, er mikiö efni og fram-
tíöarmaöur, bæöi í landsliði og KR.
Staöan í leikhléi var 47—43 og
þessi munur hélst lengi framan af
síðari hálfleik. Þannig skildu enn
fimm stig um miðjan siðari hálfleik,
68—63, en þá tóku KR-ingar góö-
an sprett, skoruöu sex stig gegn
aöeins tveimur og níu stig skildu
liöin. Eftir þaö var sigur KR aldrei i
hættu, aðeins spurning um hve
stór hann yröi. Lokatölur, 93—83.
Það var öðru fremur sterk liös-
heild, sem lagði grunn að sigri KR.
Stuart Johnson var gifurlega
sterkur, skoraöi 41 stig og hirti auk
þess mörg fráköst. Páll Kol-
beinsson sýndi skemmtileg tilþrif.
Drjúgir leikmenn þeir Ágúst Líndal
og Stefán Jóhannsson, sem þó er
kunnari af því aö verja mark KR í
knattspyrnunni þar sem hann er í
alfremstu röö. Lítið bar á Jóni Sig-
urðssyni, en hann er engu aö síður
mjög mikilvægur hlekkur í liði KR,
skorar ekki eins mikiö og á árum
áöur, en leggur upp margar körfur.
Þaö hefur komið illa niöur á leik
Fram aö Símon Ólafsson, einn af
buröarásum liösins, meiddist fyrir
skömmu. Þar er skarö fyrir skildi
og illilega vantar breidd í liö Fram.
Þeir Douglas Kintzenger og Þor-
valdur Geirsson báru af í liði Fram,
svo og átti Ómar Þráinsson þokka-
legan leik en lítið bar á öörum leik-
mönnum.
Mörk Þórs: Jón Sig. • (3). Siggi Pált 4, Guó-
jón 4, Gunni Gunn 4, Oddur H. 2, Svarrir ö. 2,
Sölvi 1, Gestur 1.
Mörk ÍBK: Björgvin B. 5 (2), Jón Ó. 5 (2),
Snorri J. 3, Björn J. 2, Sigurbjörn G. 1.
Leikinn daemdu Ólafur Hereldaaon og Stetán
Arneldsson og daemdu vel.
AS
HandknalllelKur
Stig KR skoruöu: Stuart John-
son 41, Páll Kolbeinsson 15, Ágúst
Líndal 10, Stefán Jóhannsson 8,
Gunnar Jóakimsson og Kristján
Rafnsson 6 stig hvor, Þorsteinn
Gunnarsson 4 stig.
Stig Fram skoruöu: Douglas
Kintzenger og Þorvaldur Geirsson
29, Ómar Þráinsson 13, Jóhannes
Magnússon 7, Lárus Thorlacius 4
og Guömundur Guöjónsson 2.
— H.Halls.
Hörkuleik lauk með
sigri Valsmanna
SL. LAUGARDAG léku í íþrótta-
húsinu í Njarövík Njarövíkingar
og Valur. Var leikurinn bráö-
skemmtilegur og svo hnífjafn all-
an tímann að aidrei munaöi meira
en fimm stigum á liðunum, en
oftast var munurinn 1—3 stig eða
stóð jafnt. Aö sigurinn lenti Vals
megin að lokum má miklu fremur
rekja til nokkurra furöudóma í
lokakafla leiksins, en aö Valsliöiö
hafi verið betra, svo jöfn eru
þessi lið, aö sigurinn heföi alveg
eins geta orðið Njarövíkinga, ef
dómaravitleysurnar heföu veriö
þeim í hag. Eitt hið skemmtileg-
asta við þennan leik var þó, að
þarna var um uppgjör á milli
tveggja góðra liða aö ræða, en
ekki einvígi á milli tveggja
Bandaríkjamanna, eins og svo oft
hefur viljaö brenna viö.
Valsmenn hófu leikinn af miklum
krafti og skoruöu fyrstu 4 stigin á
tæpri mínútu, en Njarðvíkingar
voru fljótir aö jafna, og á þriöju
mínútu var staöan oröin 8:6 fyrir
Njarövík. Á fjóröu mínútu var svo
jafnt, 10:10, á tólftu mínútu 25:25
og í lok hálfleiksins 43:43, og mun-
urinn aldrei meiri en 3 stig. Þessar
tölur segja mikið um gang leiksins,
sem var eins og áöur segir hnífjafn
og spennandi frá fyrstu til síöustu
mínútu. Varnarleikur beggja liö-
anna var mjög góöur og baráttan í
algleymingi, enda fóru villuvand-
ræöin fljótlega aö segja til sín og
t.d. var Torfi kominn meö 3 villur
strax á 7. mínútu. Dwyer hitti illa
framan af, en sótti sig er á leiö og
var ásamt þeim Jóni og Kristjáni
mjög sterkur í vörninni, aö vísu
grófur að vanda, en eftir aö hafa
fengiö tæknivíti á 17. mín. róaöist
hann og átti allt aö þvi prúöan leik
sem eftir var. Viö skorunina voru
þeir drýgstir Kristján og Dwyer í
fyrri hálfleik, en Ríkharður, Torfi og
Jón voru einnig mjög goöir.
í Njarövíkurliöinu var Valur Ingi-
mundarson áberandi bestur og
skoraöi 14 stig í hálfleiknum, og
Árni, Gunnar og Júlíus áttu allir
mjög góöan leik. Alex Gilbert var
mjög sterkur í vörninni en hitti illa
körfu andstæöinganna. Hann
skoraöi aö visu 11 stig í hálfleikn-
um, en misheppnuö skot hans
voru a.m.k. jafn mörg.
i síðari hálfleiknum hélst sama
baráttan áfram. Njarövíkingar
komust aö visu 5 stig yfir á 4. mín-
útu, 56—51, en Valsarar voru fljót-
ir aö minnka þann mun og voru
komnir 3 stig yfir á 8. min., 63:60,
en á 10. mínútu var staðan jöfn,
64:64. En nú fóru villuvandræöi
fljótlega aö segja til sín, einkum
hjá Njarövíkingum, og eftir rúmar
6 mínútur hálfleiksins fór Júlíus út
af meö 5 villur og tæpri mínútu
síðar Kristján Ágústsson úr Vals-
liöinu. Viö brottför Kristjáns, sem
verið haföi einna atkvæöamestur í
Valsliöinu, færöist Torfi Magnús-
son allur í aukana. Torfi, sem haföi
hitt fremur illa framan af hálfleikn-
um, skoraöi nú hverja körfuna á
fætur annarri og var í leikslok
stigahæstur þeirra Valsmanna,
ásamt Dwyer, meö 24 stig, þar af
18 í síðari hálfleik. i Njarövíkurliö-
inu héldu sömu menn uppi
merkinu og í fyrri hálfleik. Alex fór
að hitta betur og var frábær í vörn-
inni, og Valur hélt áfram sínu striki
viö skorunina og eftir 12 mínútur
haföi hann skoraö 14 stig, en þá
kom fyrsti furðudómurinn. Eftir aö
Valur haföi skorað gullfallega
körfu, þrátt fyrir aö brotiö væri á
honum, var dæmd villa á hann og
karfan dæmd af, og þar sem þetta
var hans 5. villa uröu Njarðvíkingar
aö leika án hans þaö sem eftir var
leiksins. Eftir 15 mínútur fór svo
Gunnar út af meö 5 villur, og voru
þá aðeins tveir eftir úr byrjunarliöi
Njarðvíkinga. A 16. mínútu hálf-
leiksins voru Valsmenn komnir 5
stig yfir, 77:82, en Njarövíkingum
tókst á næstu 2 mínútum aö
minnka muninn í 1 stig, 81:82, en
þá geröist þaö atvik, sem jafnvel
hefur skipt sköpum í leiknum. Árni
Lárusson var meö knöttinn í
hraöaupphlaupi, er Ríkharöur
Hrafnkelsson hljóp í veg fyrir hann.
Bjuggust nú allir viö aö Árni fengi 3
vitaskot, en nei, dómararnir
dæmdu villu á Árna??? Eftir þetta
virtist Njarövíkurliöiö brotna og
sigu Valsmenn fram úr og sigruðu
með 88:83.
Dómarar leiksins voru Sigurður
og Gunnar Valgeirssynir. Þeir
dæmdu ágætlega framan af leikn-
um, en síðustu 10 mínúturnar fór
allt í handaskol. Sem eitt dæmi
enn um dómgæsluna mætti nefna,
aö á 15. mínútu síöari hálfleiks
sparkaði og lamdi Torfi Magnús-
son Ástþór Ingason í gólfiö. Heföi
veriö full ástæöa til aö sýna Torfa
rauða spjaldiö, en dómararnir létu
nægja aó dæma víti, en gula
spjaldið heföi þarna veriö algert
lágmark.
UMFN:
Valur Ingimundarsson ***
Ámi Lárusson ★★
Gunnar Þorvaröarson ★
Júlíus Valgeirsson ★
Stigin:
Valur 28, Alex 25, Gunnar 13, Árni
9, Júlíus 7 og Ástþór 1.
Valur:
Torfi Magnússon **★
Kristján Agústsson ★★
Ríkharður Hrafnkelsson ★★
Leifur Gústafsson ★
Stigin:
Torfi 24, Dwyer 24, Ríkharöur 13,
Kristján 12, Jón 6, Siguröur 4,
Leifur 3 og Tómas 2.
ÓT.
Basl á báða bóga
í leik ÍR og ÍBK
KEFLVÍKINGAR unnu ÍR-inga í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
Hagaskólahúsinu á sunnudag
meó 70 stigum gegn 64, en í hléi
var staðan 35—31 fyrir ÍBK. Leik-
urinn var ekki sérlega skemmti-
legur fyrir augað, en var þó allan
tímann spennandí, þar sem jafn-
an var mjög mjótt á munum. Ein-
kenndist leikurinn af mikilli bar-
áttu beggja liöa en talsvert var
um misheppnuð körfuskot og
hittnin lengst af í ólagi hjá báó-
um.
Sennilega hafa Keflvíkingar
mætt sigurvissir til leiks eftir aó
hafa burstaó KR um fyrri helgi.
En ÍR-ingar voru ekki á þeim bux-
unum að láta í minnipokann og
með mikilli baráttu leiddu þeir
leikinn lengst af meö 2—3 stig-
um, en oft var þó aö sjá jafnt skor
á stigatöftunni. Keflvíkingar sigu
fram úr þegar sex mínútur voru
eftir, komust í 24—21, en síðan
skora ÍR-ingar og ná forystunni,
25—24. Þá taka Keflvíkingar aftur
vió og komast í 29—25, en aftur
jafna IR-ingar, 29—29 þegar þrjár
mínútur voru til hálfleiks. Keflvík-
ingar skoruöu síðan sex stig á
lokamínútunum gegn tveimur
stigum ÍR-inga.
ÍR-ingar byrjuöu vel í seinni hálf-
leik og brátt var aftur jafnt,
37—37, og stuttu seinna 41—40
fyrir Keflavík og baráttan í al-
gleymingi. ÍBK kemst þá í 46—40,
en ÍR jafnar og staöan 46—46
þegar 12 mínútur eru eftir. Enn er
hart barist og þótt Keflvíkingar
væru jafnan fyrri til aö skora
minnka ÍR-ingar jafna muninn og
þegar fimm mínútur voru eftir var
staðan 58—56 fyrir ÍBK. En þá
sigu Keflvíkingar smátt og smátt
fram úr, þótt spennan héldist svo
til alveg út leikinn.
Þaö sem fyrst og fremst fleytti
IBK var sæmilegur varnarleikur.
Keflvíkingar högnuöust einnig á
slakri dómgæzlu Eiríks Sturlu,
einkum í seinni hálfleik. En þaö er
ekki réttlátt að kenna ósigur ÍR-
inga slakri dómgæzlu, því dómarar
eru mannlegir og geta átt misjafn-
an dag eins og leikmenn. Þaö sem
geröi útslagið er aö ÍR-ingar eru
Kana-lausir, Tim Higgins skoraöi
nákvæmlega annaö hvert stig
Keflvíkinga, 35 af 70, þar af 22 af
35 í fyrri hálfleik, en var þó ekki
meö síöustu mínútur leiksins
vegna villuvandræða.
Hjá ÍBK voru beztir, auk Higg-
ins, þeir Jón Kr. Gíslason og Axel
Nikulásson, en hjá IR munaöi mest
um baráttu Kristins Jörundssonar
og Kolbeins Kristinssonar, og Gylfi
hirti mörg fráköst og átti góöa
spretti í sókninni.
Þaö var fyrst og fremst sóknar-
leikurinn sem var í ólagi hjá báöum
liðum, ekki sérlega beittur og
hittnin slæm, en vonandi lagast
þaö þegar á veturinn líöur. Hvort
liö um sig missti þrjá menn út af
meö fimm villur, hjá ÍR Jón Jör-
unds og bræðurnir Hreinn og Gylfi
Þorkelssynir, en Björn V. Skúla-
son, Óskar Þ. Nikulásson og Tim
Higgins hjá ÍBK.
Stig ÍR: Gylfi Þorkelsson 16,
Hjörtur Oddsson 12, Kristinn Jör-
undsson 12, Kolbeinn Kristinsson
12, Kristján Oddsson 4, Jón Jör-
undsson 3, Hreinn Þorkelsson 2 og
Ragnar Torfason 2.
Stig ÍBK: Tim Higgins 35, Jón
Kr. Gíslason 11, Axel A. Nikulás-
son 9, Einar 0. Steinsson 7, Óskar
Þ. Nikulásson 4 og Björn V. Skúla-
son 4.
— ágás.
Firmakeppni Gróttu
í knattspyrnu innanhúss veröur í íþróttahúsi Seltjarn-
arness helgarnar 16. og 17., og 23. og 24. okt.
Keppt verður um Gróttubikarinn sem nú er í vörslu
Pósts og síma. Þátttökugjald er kr. 1.000. Þátttaka
tilkynnist í síma 25769 milli kl. 13 og 15 (Sigrún).
Knattspyrnudeild Gróttu.