Morgunblaðið - 12.10.1982, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1982
39
Helgi J. Theodórsson
verkstjóri — Minning
Fæddur 19. september 1920
Dáinn 3. október 1982
í dag kveðjum við góðan vin,
Helga Theodórsson, sem verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði. Helgi var fæddur að
Svalbarða á Álftanesi, en fluttist
13 ára gamall að Grund í Hafnar-
firði. Meðan móðir hans lifði
héldu þau heimili saman, seinni
árin að Álfaskeiði 42. Það hús
byRgði Helgi á árunum 1952—53.
Helgi var mikill hug- og dugn-
aðarmaður. Hann hljóp ekki á
torg með tilfinningar sínar, en
börnin okkar og við fjölskyldurnar
fengum að finna það heita hjarta
sem inni fyrir sló. Fyrir börnin
hafði hann ótakmarkaða þolin-
mæði, enda fannst þeim ekkert af-
mæli, engin hátíð án hans. Eins
hefði verið skrítinn fermingardag-
ur án Helga.
Eftir fráfall móður sinnar fór
Helgi að ferðast mikið. Fyrst um
landið, en síðan lá leiðin til ann-
arra landa. Hann var einn þeirra
fyrstu sem notaði sér ferðir Smyr-
ils. Þá gat hann ferðast frjáls eins
og fuglinn, með gamla góða bílinn
sinn.
Helgi tók mikið af myndum á
ferðum sínum og sýndi okkur þeg-
ar heim var komið. Einnig eigum
við ánægjulegar minningar frá
ferðum með Helga bæði hér að
heima og erlendis.
Um leið og við kveðjum Helga
að leiðarlokum, þökkum við fyrir
allar samverustundirnar og alla
hans hjálp í gegnum árin. Við er-
um þess fullviss að algóður Guð
tekur nú á móti honum og leysir
hann frá öllum þjáningum.
Benni, liulda, Gauja, Gunnar
og börnin.
Hér má með fyllsta sanni segja:
Góður drengur genginn, að vísu
nokkuð óvenjulegur maður, maður
sem hafði mótað sér sína hætti og
Minning:
Fæddur 27. september 1925
Dáinn 8. ágúst 1982
Reynir, eins og hann var ætíð
nefndur, fæddist í Hafnarstræti
79 á Akureyri, en þar bjuggu þá
foreldrar hans, Anna Jónatans-
dóttir (d. 12. febr. 1937) og Hjalti
Sigurðsson húsgagnasmiður (d. 3.
okt. 1979). Þau hjónin voru bæði
Eyfirðingar, hún frá Litla-Hamri
en hann frá Merkigili.
Reynir var þriðji í röð fimm
barna þeirra hjóna. Eldri eru Karl
og Rósa en yngri Anna og Hjalti.
Ung misstu þau móður sína og
hafði það áreiðanlega djúpstæð
áhrif á Reyni. Þó reyndist stjúp-
móðir þeirra systkina þeim öllum
sem besta móðir, en Hjalti heitinn
faðir þeirra giftist aftur. Seinni
kona hans er Ingileif Ágústa Jó-
hannesdóttir og eignuðust þau
eina dóttur, Guðrúnu.
Öll systkini Reynis eru búsett á
Akureyri með sínar fjölskyldur og
hefur ætíð ríkt mikil samheldni í
þeim hópi.
Hjalti faðir þeirra átti og lét
reisa húsið Hafnarstræti 85,
steinsnar frá miðbænum, fyrst
neðstu hæðina, sem hann notaði
sem verkstæði, en síðar þrjár
hæðir þar ofan á, sem urðu íbúð-
arhæðir. Efstu hæð þessa húss
keypti Reynir af föður sínum og
bjó þar síðan.
Þann 11. okt. 1947 giftist hann
eftirlifandi konu sinni, Guðríði
Önnu Friðriksdóttur frá Grenivík.
Þau eignuðust tvær dætur, önnu
Lilju og Ingu Hrönn. Þær eru báð-
ar giftar og búsettar á Akureyri,
rækti þá samviskusamlega sem
allt annað. Orsökin til kynningar
okkar hjóna við þennan góða
mann var, að hann vann hjá Vita-
málum ásamt einum af okkar fjöl-
skyldumeðlimum og fyrr á árum
var það greinilegt, að þann félags-
skap kaus hann sér helst, er hann
þurfti ekki að sinna móður sinni
er hann hélt heimili með. Það
leyndi sér samt ekki, að umhyggja
fyrir henni var alveg framar öllu
öðru.
Er hérvist hennar þraut fyrir
mörgum árum, varð það alveg
greinilegt, að ekkert tafði hann
frá því að vera með Rögnu okkar
og Valgeiri tengdasyni í ferðalög-
um sem fjölskyldufagnaði og
börnum þeirra. Það varð manni
því vel ljóst, að hann valdi sér ekki
stærri félaga- og vinahóp en hann
komst yfir að sinna af alhug og
njóta gagnkvæmrar umhyggju og
vináttu.
Það var alveg sama hvort það
var austur á Arnarstöðum í Flóa,
eða hér í bænum, ef eitthvað var á
seyði, þar voru hinar liðtæku
hendur Helga til taks, samhugur
sem hans eigin væri, ljúfmennska
í verki sem við börnin. Er maður
heyrði, að þau hjónin Unnur
Ragna og Valgeir höfðu skroppið
suður í Hafnarfjörð til Helga í
heiraboð, eða til einhverrar sam-
hjáipar, að neinn annar hefði ver-
ið þar fyrir né komið þar. Einn
leikbróðir Helga frá bernskuárum
mun að ég held vera sá eini er þar
kom oft. Á.m.k. einu sinni á ári fór
Helgi í ferðalag til nágranna- eða
fjarra landa, oftast á sama veg, í
sínum nosturhirta bíl og ekki
gleymdist myndatöku-úthaldið né
viðlegu-útbúnaðurinn svo að til
svefns gat hann lagst hvar sem
hann óskaði sér og taldi sér öryggi
til, í tjaldi sínu eða bílnum.
Ekki var erfitt að leita til Helga
til hverskonar hjálpar, koma með
myndavélina, taka myndir eða
sýna myndir, jafn vel fór hvort
Anna gift undirrituðum og Inga
Eiríki Óskarssyni. Barnabörnin
eru sex og voru öll mjög hænd að
afa sínum, enda lét hann sér mjög
annt um þau.
Reynir og Dúdda (eins og hún er
jafnan kölluð) voru mjög samhent
hjón. Þau bjuggu sér og börnum
sínum heimili af bestu gerð. Það
fundu þeir sem komu í heimsókn
og þeir voru ekki fáir.
Gott var að eiga Reyni að vini.
Jákvætt viðmót hans, lífsgleði og
hressilegt tal, allt var þetta svo
uppörvandi og innilegt, að ekki
var hægt annað en hrífast með.
Það átti ekki við Reyni neitt
hálfverk á hlutunum, hann vildi
gjarna hafa nóg fyrir stafni og við
nutum sannarlega góðs af því, sem
í kringum hann vorum. Að búa í
haginn fyrir fjölskylduna og hlúa
að henni á allan hátt var líf hans
og yndi.
Reynir vann við verslun alla
ævi. Fyrst við „Verslun Eyjafjörð-
ur“, sem rak umfangsmikil við-
skipti um langt skeið, síðan við
byggingarvöruverslun Kaupfé-
lagsins. í slíku starfi var hann
réttur maður á réttum stað, fljót-
ur til orðs og æðis, öruggur og
vandvirkur, enda í miklum metum
hjá þeim, sem höfðu saman við
hann að sælda.
Nálægðin við ys og þys miðbæj-
arins og hafnarinnar hefur eflaust
átt þátt í vali hans á ævistarfi.
Bærinn var honum kær og heima-
héraðið með sína fallegu náttúru.
Áhugamálin voru mörg og tengd-
ust flest útivist og ferðalögum.
Fyrst deildi hann þessum áhuga-
tveggja úr hendi sem í viðmóti.
Hvorki heyrði maður Helga
minnast neitt á sitt fólk, né
hnjóða í nokkurs manns garð.
Horfandi á þennan mann með
börn þessarar fjölskyldu í fang-
inu, rétt eins og hann ætti þau
sjálfur, umhyggjuna fyrir þeim,
heimilunum, dýrunum og öllu sem
eigið væri, hlaut manni að verða
hugsað sem svo: er þetta aleiga
hans, enda kom það skýrt í ljós, er
hann fann þrek sitt á þrotum,
þverrandi málfæri hvað þá hreyf-
ingar og friðleysi af kvölum, að
hann óskaði eftir þessum tvennum
hjónum til sín, börnum Rögnu og
Valgeirs sem komu oft, oft á degi
hverjum.
Vel vissi Ragna það, að ekki
mundi þurfa að hafa áhyggjur af
erfðamálum, hann hafði fyrir
löngu sagt henni, að hann hefði
fullgengið frá slíku, sem kom líka
í ljós.
Lögfræðingnum var kunnugt
um, að fatlaðir og lamaðir, van-
gefnir og blindir skyldu njóta, þ.e.
þessi líknarfélög, hreinir erfingjar
allra eigna hans, húss, bíls og
bankaeigna, þeim veikustu vildi
hann helst rétta sínar bróður-
hendur.
Þessar eignir voru vel fengnar,
fyrir þeim hafði hann sjálfur unn-
ið, lifað vel mannlega eins og
málum með systkinum og félög-
um, síðar með konu sinni. Saman
áttu þau margar góðar stundir á
ferðalögum bæði erlendis, en þó
sér í lagi hér innanlands. Að skoða
landið, renna fyrir silung, safna
fáséðum steinum og slá upp tjaldi
á friðsælum stað, þetta kunnu þau
að meta. Oft slógust í för með
þeim vinir eða vandamenn og dæt-
urnar eiga margar góðar minn-
ingar frá slíkum ferðalögum er
fjölskyldan fór saman.
Það var í réttu framhaldi af
þessum áhuga á útiveru, að þau
tóku sér fyrir hendur fyrir tveim-
ur árum að byggja sér sumarhús á
fallegum stað í heiðinni handan
við fjörðinn. I gamni sögðust þau
vera að byggja sér elliheimili, þar
gætu börnin og barnabörnin heim-
sótt þau í sveitina.
En glíman við „Elli kerlingu"
var ekki hafin er dauðann bar að
garði.
Nú er Reynir allur og missirinn
er sár, en eftir lifir minningin.
Það er mér mikils virði að hafa átt
samleið með honum.
Guð blessi minningu hans.
Magni Hjálmarsson
ferðalögin sýndu en farið vel með
allt, ekki einu sinni reykt hvað þá
veitt sér aðrar nautnir eða lakari
skemmtana tilraunir.
Allir kannast við svar móður-
innar, er sonur hennar lét lífið í
baráttu fyrir fagurt hugsjónamál,
að hún vildi bara að hún ætti fleiri
sonu til að fórna sér svo vel, slíkt
gæti verið ósk vorrar fósturjarðar,
slíkur lífsferill er dýrmætur sjóð-
ur hvers samfélags.
Náin kynning við slíka menn er
mannbætandi.
Að endingu þökkum við Helga
af alhug allar okkar skuggalausu
samverustundir, óskum honum
blessunarlegrar lausnar þraut-
anna og góðra vistaskipta og
blessunar Guðs á nýjum leiðum
eilífðarinnar.
llna og lngþór
í dag, 12. október kl. 1.30, fer
fram jarðarför Helga J. Theo-
dórssonar frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði.
Sunnudaginn 3. október lést á
Borgarspítalanum heimilisvinur
okkar og góðvinur Helgi J. Theo-
dórsson, verkstjóri, Álfaskeiði 42.
Okkur er efst í huga þegar við
minnumst Helga hvað honum
fylgdi hressandi andblær þegar
hann kom inn úr dyrunum. Dugn-
aðurinn, krafturinn í öllu fari
hans, prúðmennskan. Heilsteypt-
ur heiðursmaður sem vildi öllum
gott gera, var sannur vinur okkar
allra. Hann var alltaf tilbúinn til
að hjálpa, hvort sem var í Sigtúni
eða í sumarbústaðnum við Arn-
arstaði, þar sem Helgi átti mörg
handverk.
Helgi var mikill trúmaður, fór
oft í kirkju, fræddi litlu barna-
börnin okkar um Jesúm Krist og
fallegt hugarfar. Helgi var mikið í
KFUM sem drengur. Þar fékk
hann sína uppfræðslu sem hann
bar mikla virðingu fyrir. Helgi
kom aldrei á stórhátíðum í Sigtún
45 fyrr en eftir kirkjusókn. Þá
kom hann með Guðsblessun í bæ-
inn.
Helgi og Benedikt, sonur okkar,
voru miklir vinir, fóru saman í
ferðalög og tóku mikið af lands-
lagsmyndum sem þeir sýndu
okkur sameiginlega. Við fórum
víða um landið með Helga í ferða-
lög og einnig til útlanda og eru
okkur það ógleymanlegar ferðir.
Hvað hann vildi sýna okkur mikið
og fræða.
Helgi fór oft til útlanda. Hann
kom alltaf hress til baka og sýndi
allri fjölskyldunni mikið mynda-
safn.
8. ágúst kom Helgi í sumarbú-
staðinn á nýja Volvo-inum sínum
og bauð okkur með sér austur und-
ir Eyjafjöl). Þetta var gleðidagur
okkar allra. Þetta var hans síðasta
ferð.
I maí veiktist Helgi. Hann kom í
Sigtúnið og trúði okkur fyrir veik-
indum sínum, sem virtust ekki
mikil í fyrstu, en 12. júní fór Helgi
á St. Jósepsspítala. Þaðan átti
hann afturhvarf heim, mikið veik-
ur.
Hann keyrði sjálfur á milli spít-
alanna þangað til þrekið þraut. Þá
tókum við hjónin við. Slepptum
aldrei af honum hendinni. Við vor-
um hans fjölskylda eins og hann
sagði sjálfur á Borgarspítalanum.
Aftur komum við hjónin 4. sept-
ember á Álfaskeið 42 að sækja
okkar kæra vin og flytja hann á
Borgarspítalann þaðan sem hann
átti ekki afturkvæmt frá.
Helga er best lýst hvernig hann
ráðstafaði eignum sínum. Þeim
ráðstafaði hann til Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra, Blindravina-
félags Islands og Styrktarfélags
vangefinna.
Guðs blessun fylgi gjöfinni.
Blessuð sé minning hans.
Ragna og Valgcir, Sigtúni 45
Útför ástkærs eiginmanns míns og fööur okkar,
HERMUNDAR GUNNARS GUNNARSSONAR,
flugvirkja,
fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 14. október kl. 13.30.
Inga-Lill Gunnarsson, Helena Hermundsdóttir,
Elísabet Hermundsdóttir, Gunnar Friörik Hermundsson,
móöir og systkini hins látna.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuö, en þeir, sem vildu minn-
ast hans, vinsamlegast látiö Krabbameinsfólagið njóta þess.
t
Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUDLAUG BJÖRNSDÓTTIR OLSEN,
Nökkvavogi 34,
sem lést aö Hrafnistu, aöfaranótt 3. október, veröur jarösungin frá
Fossvogskirkju, miövikudaginn 13. október kl. 13.30.
Anna Olsen, Halldór Snorrason,
Borgþór Olsen, Þórunn Krístjánsdóttir,
Ásgeir Olsen, Unnur Ólafsdóttir,
Vigdis Danielsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
HALLDÓR ODDSSON,
Kárastíg 8,
lést á Hvítabandinu laugardaginn 9. október.
Stefán Halldórsson,
Oddrún Halldórsdóttir,
Óskar Halldórsson,
Aðalheiöur Halldórsdóttir,
Hanna Halldórsdóttir,
Oddgeir Halldórsson,
Guörún Halldórsdóttir,
Sigríður Tómasdóttir,
Guömundur Sígfússon,
Ragna Bjarnadóttir,
Þórir Guðmundsson,
Maria Eggertsdóttir,
Þorsteinn Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili.
Sigurður Reynir
Hjaltason