Morgunblaðið - 09.12.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982
35
starfi Sjálfstæðisflokksins og var í
hreppsnefnd Keflavíkur frá 1938
til 1942 og eftir hreppaskiptin
oddviti í Njarðvík í 20 ár, frá 1942
til 1962, og þá var Sjálfstæðis-
flokkurinn alltaf í meirihluta. Þá
kynntist ég stjórnmálaskörungn-
um Ólafi Thors vel og átti engan
kærari vin. Ég dáðist að honum
sem manni enda var hann óum-
deilanlegur foringi eins og fram
kemur í bók Matthíasar Johann-
essens ritstjóra um Ólaf. Þar hef-
ur Matthíasi tekizt að móta meist-
araverk, sem þjóðin mun meta og
virða um aldir fram, um þann
mann, er hún elskaði og virti sem
einn af sínum mestu sonum. Ég er
ánægður að hinn stórbrotni per-
sónuleiki hans fær þar svo rétta
umfjöllun eins og raun ber vitni.
1963 kynntist ég Þórunni Guð-
mundsdóttur frá Keflavík og
bjuggum við saman í 13 ár og
eignuðumst einn son saman. Hún
er dóttir Guðmundar Kr. Guð-
mundssonar skipstjóra og Ingi-
bjargar Benediktsdóttur frá Isa-
firði. Hún var áður gift og átti
fimm börn, sem ég ól upp ásamt
henni. Við slitum síðan samvistum
og hún fluttist til Bandaríkjanna
og býr þar nú.
Ég hef kynnzt mörgu góðu fólki
og fátæku á uppvaxtarárum mín-
um og langri sjómannsævi. Gæfa
mín hefur verið fólgin í því að ég
hef átt góðar konur og góða fjöl-
skyldu og að hafa eignazt vináttu
margra góðra manna á lífsleiðinni
og verið svo lánsamur að halda
henni. Ég hef aldrei neytt tóbaks
eða áfengis, barnatrúin hefur ver-
ið mitt lífsankeri. Á allri minni
starfsævi hefur mér fundizt að yf-
ir mér hvíldi sú vernd er leiddi
mig farsællega út úr hverjum
vanda er að höndum bar. Manni
mun ætlað að ganga í gegnum
ýmsa lífsreynslu til frekari þroska
á langri lífsleið," sagði Karvel.
HG
Saga úr
helför
— eftir Simon
Wiesenthal
FJÖLNIR hf. hefur gefið út bókina
Max og Helena eftir Simon Wiesen-
thal.
Undirtitill bókarinnar er Sönn
saga úr helförinni miklu. Simon
Wiesenthal, pólskur Gyðingur, var
einn þeirra milljóna, sem nazistar
settu í fangabúðir, og einn þeirra
Simon Wiesenthal.
fáu, sem lifðu þá dvöl af. Frá
stríðslokum hefur hann helgað sig
leit að stríðsglæpamönnum naz-
ista og eru endalok Adolf Eich-
man m.a. árangur þess starfs.
I bókinni um Max og Helenu
segir Wiesenthal sanna sögu af
ungu pólsku pari, sem eins og
hann lifir af dvöl í fangabúðum
nazista. Þau komast síðan að þvi,
hvar fangabúðastjórinn fyrrver-
andi er niðurkominn og Wiesen-
thal og menn hans eru komnir á
slóðina. En svo fer, að Wiesenthal
fellst á beiðni þeirra Max og Hel-
enu um að þyrma nazistanum
fyrrverandi.
Sveinn Ásgeirsson islenzkaði
bókina og skrifar formála. Bókin
er 134 blaðsíður. Setningu, umbrot
og prentun annaðist Prentstofa G.
Benediktssonar, Bókfell sá um
bókand og Rósa Ingólfsdóttir
hannaði bókarkápu. Lestur próf-
arka annaðist Sveinn Sigurðsson.
Karvel ásamt Ögmundi syni sínum.
Á fákspori eftir
Sigurbjörn Bárðarson
EIÐFAXI hf. sendir frá sér bókina
„Á fákspori", umhiröa, þjálfun og
keppni eftir Sigurbjörn Bárðarson.
Bókin skiptist í þrjá megin-
þætti. í fyrsta hlutanum er fjallað
um reiðhestinn, þjálfun hans og
meðferð. I öðrum hlutanum er
rætt um þjálfun, uppbyggingu og
sýningu keppnishrossa, stökk-
hesta sem vekringa. I framhaldi af
því er fjallað um gæðingakeppni,
íþróttakeppni og sýningu kynbóta-
gripa, í síðasta hluta bókarinnar
er fjallað um umhirðu hesta og
aðbúnað, má t.d. nefna kafla um
hesthúsbyggingar, járningar og
fóðrun. I bókinni eru yfir eitt
hundrað Ijósmyndir og teikningar.
Sigurður Haraldsson í Kirkju-
bæ ritar forinála bókarinnar og
þar segir m.a.: „Að skapa gæð-
ing, á hvaða sviði hestamennsk-
unnar sem er, verður ekki gert
með því að beita þurrum formúl-
um eða þröngum fastbundnum að-
ferðum. Sífrjór og opinn hugur
reiðmannsins, sem alltaf kann að
láta sér detta í hug ráð við hverju
því sem að höndum ber, er reið-
mannsins besti fylginautur. Per-
sónuleg kynni mín við höfund bók-
arinnar gera alla framsetningu
hans og tilsögn mjög svo trúverð-
uga fyrir mér og auka á gildi
hennar sem kennslubókar í hesta-
mennsku almennt, að mínu mati“.
PEmFAXI
Bókin „Á fákspori" er þriðja
bókin í útgáfuröð Eiðfaxa. Fyrsta
bókin var „Á hestbaki" eftir Eyj-
ólf ísólfsson og önnur var „Að
temja" eftir Pétur Behrens.
Um hönnun bókarinnar sá
Auglýsingastofan hf., Gísli B.
Björnsson. Filmuvinna og prentun
er unnin í Prenttækni og bókband
í Arnarberg.