Morgunblaðið - 09.12.1982, Síða 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982
r • •
HUOMPLOTUVERSLUNIN
LIST
KYNNIR
Sex meiriháttar
„Islandia
lslandia“
Vinsælar nýjar stórar plötur
Adam Anl — Friend or foe
Al di Meola — Tour de force
America Wiew from the ground
ABC — The Lexicon of love
Abba — The singles
Hlanchmange — llappy families
Bad Manners — Forgin Ahead
Barry Manilow — I wanna do it with
you
Bow wow wow — I want candy
Blue rondo a la turk — ('heving the fat
Chicago — 16
Culture (’lub — Kissing to be Clever
Casino Lights — tmsir flytja
J J. Cale — Crasshopper
Depeche Mode — Broken Frame
Dionne Warwick — Heartbreaker
Dire StraiLs — Love over Gold
Billy Joel — The nylon ('urtain
Dollar — Dollar Album
Donald Fagen — Nightfly
Daryll Hall & John Oates — H 2 0
The Damned — The black Album
Don jlenley — I cant stand still
Kddie (írant — Killer on the rampage
Kagles — Greatest Hits
Beatles — The 20 greatest hits
Foreigner — Kecords
Fame — The kids from ‘fame’
Joni Mitchell — Wild things run fast
Kool & the gang — As one
Lionel Richie — Lionel Richie
Mick Karn — Titles (bassaleikari
Jap an)
Michael Jackson — Thriller (This girl is
mine)
Marvin Gaye — Midnight Love
Madness — The rise and fall
Kiss — Creatures of the night
Nat King Cole — Love Songs
Ozzy Osborne — Talk of the devil
Phil Collins — Hello I must Be going
Pink Floyd - The Wall
Siouxie & the Banshees — A kiss in The
dreamhouse
Talk Talk — The party’s over
UB 40 - UB44
UB 40 — Signing off
Whitesnake — Saints & Sinners
Þrjár titrandi safnpltítur með fleatum
vinsælustu Itígunum siðustu vikur. Þið
finnið örugglega það sem ekki er ann-
arsstaðar í þessari kynningu á þessum
pltítum.
Við Suðumark —
Ymsir
Sprengiefni
Vinsælar stórar
2—4 laga
12“ (disco mix)
Auðvitað eru allar vinsælustu litlu plöturnar til og hér gefur
að líta smá sýnishorn af þeim.
A flock of seagulls
Wishing ----.........---........—...-
Hall & Oates
Maneater ........-...................
Kvelyn King
Back to love ........................
Jah Wobble
Body music Mokili ...................
Japan
Nightporter ----------------......---
Kool & the Gang
(K)h la la (let’s go dansi’n) -------
Musical Youth
Pass the dutchie --------------------
Phil Collins
You cant hurry love -----------------
Soft Cell
Where the heart is ..................
Ultrayox
Hymn ................................
Yazoo
The other side of love ..............
Kevin Kovland & Dexy’s
Ix*ts get this straight .............
John Lennon — Love
David Bowie & Bing Crosby
Peace on Karth
lluman League — Mirror Man
Kddie Grant — I don’t wanrfa dance
Wham — Young guns
Dionne Warwick — Heartbreaker
Blancmange — Living on the Ceiling
Kenee & Kenato — Save your love
Michael Jackson & P. McCartney
This girl is mine
A flock of Seagulls
Wishing
Lionel Richie — Truly
Yazoo — The other side of love
Modern Romance — Best years
Kool & The gang — Ooh la la
Barry Manilow — I wanna do it with you
Talk Talk — Talk Talk
Supertramp — It’s raining
Madness — Our house
Japan — Nightporter
Kvelyn King — Back to love
Abba — The day before you came
Anti nowhere league — for you
The jam — Beat surrender
(2 plötur í albúmi 5 lög)
Culture (’lub — Time
Pink Floyd - The Wall
Soft Cell - What
Duran Duran — Save a prayer
Abba — The day before you came
Larry Hagman (JR í Dallas)
My favourite sins
Viö vorum líka að taka upp mikið af bolum
og barmmerkjum og svo eru líka frábær
plaköt á leiðinni.
HUÓMPLÖTUVERSLUNIN
LIST
(Plötuklúbburinn Tón-List)
Aðalstræti 9 2. hæð sími 22 9 77. (Miðbæjarmarkaðurinn).
hrópuðu ítölsku
áhorfendurnir
þegar þeir sáu
íslensku rallöku-
mennina aka
í október sl. tóku raliökumenn-
irnir islensku þeir Birgir Bragason
og Magnús Arnarsson þátt í rall-
keppni á Ítalíu. Kepptu þeir í svo-
kölluðu 100.000 Tabbuchi-ralli,
sem var liður í Ítalíumeistara-
keppninni i rallakstri. Stóðu þeir
kappar sig mjög vel og luku
keppni, lentu í 47. sæti en alls hófu
123 keppendur rallið.
Upphaflega stóð til að Birgir
og Magnús kepptu á 120 hestafla
Opel Kadett, sem einn ítalanna
úr Ljómarallinu íslenska átti, en
þegar til kom var sá bíll kominn
í keppni í Afríku. Þurftu strák-
arnir því að leigja sér keppnisbíl
fyrir rallið, sem varð Alfa Rom-
eo Alfetta með 80 hestafla vél,
gegn hátt í 400 hestafla bílum
aðal keppendanna. „Ég vandist
ekki bílnum fyrr en undir lok
rallsins, fór m.a. í tvígang lítil-
lega út af,“ sagði Birgir í samtali
við Morgunblaðið. „Keppnin var
erfið, skyggnið var ekki nema
5—10 metrar mestan hluta ralls-
ins vegna þoku og það var ekki
fyrr en á lokaleiðunum, sem við
fórum að auka hraðann. ítölsku
áhorfendurnir settu okkur dálít-
ið út af laginu í byrjun, en þeir
stóðu alveg við bílana í mörgum
beygjum." Þess má geta i fram-
hjáhlaupi, að ítalskir ralláhorf-
endur eru þekktir meðal evr-
ópskra rallökumanna, sem
fífldjarfir oft á tíðum. Um
100.000 áhorfendur fylgdust með
rallinu, sem er mun færra en
venja er og setti veðrið þar stórt
strik í reikninginn. Akstursleið-
in var 1200 km löng og var keyrt
að næturlagi, tvær nætur í röð.
Fyrri nóttina heltust hvorki
meira né minna en 70 bílar úr
lestinni. Leiðin lá um þverhnípt
fjöll og klettabelti, en einnig var
ekið á þröngum vegum ýmissa
sveitaþorpa í nágrenni bæjarins
Saluzzo á norðvestur Ítalíu, þar
sem rallið hófst. Undirbúningur
Birgis og Magnúsar var í lág-
marki fyrir keppnina, en þeir
mættu tveim dögum fyrir hana,
en allflestir keppendanna voru
búnir að æfa sig á keppnisleið-
inni í allt að tvo mánuði. Þótti
Villi og Tóta búa að sárum Sigga líffræöings.
Leikfélag Akureyrar frum-
sýnir leikrit um tófuna
SUNNUDAGINN 5. desember frum-
sýndi Leikfélag Akureyrar nýtt leik-
rit fyrir börn og unglinga eftir Sig-
nýju Pálsdóttur leikhússtjóra, sem
jafnframt er leikstjóri. Það heitir
„Siggi var úti“ og rauði þráðurinn í
verkjnu er íslenski refurinn fyrr og
nú. Asgeir Jónsson söngvari BARA-
flokksins samdi tónlistina og flytur
hana ásamt Jóni Arnari Freyssyni,
hljómborösleikara og Sigfúsi Erni
Ottarssyni trommuleikara.
í fréttatilkynningu frá LA er sögu-
þræði svo lýst:
„í ónefndu íslensku hrauni hef-
ur líffræðingurinn Siggi búið um
sig í helli, sem hann notar sem
rannsóknarstöð fyrir rannsóknir
sínar á atferii íslenska refsins —
alopex lagopus. Þetta er gaman-
samur náungi sem gengur gjarnan
um gaggandi í tófubúningi til að
komas nær tófunum.
í hrauninu tjaldar fjölskylda í
útilegu, mamman, pabbinn, börn-
in Villi og Tóta og afinn Leiknir,
sem var fræg grenjaskytta. Aðal-
áhugamál barnanna, stjörnuskoð-
un og frummenn, eiga sinn þátt í
því hvernig þau skynja í byrjun
þær óvæntu uppákomur, sem þau
lenda í í útilegunni.
Fleiri eiga leið um hraunið. I
fyrsta lagi lítil tófa, sem líffræð-
ingurinn hefur hænt að sér og er
elskulegasta dýr, en svolítið þjóf-
ótt. Og í öðru lagi maður að nafni
Úlfur, sem leikur tveimur skjöld-
um — hann læst vinna fyrir líf-
fræðinginn en er í rauninni að
vinna fyrir tískudrottninguna
Stellu, sem ætlar sér að hagnast á
loðfeldasölu og misnota sér
grenjaskrár Sigga til að láta út-
rýma íslenska refnum með nýjum
aðferðum og smygla skinnunum
úr landi."
Leikmynd hefur Þráinn Karls-
son hannað og stjórnað smíði á.
Viðar Garðarsson er ljósameistari
sýningarinnar og Freygerður
Magnúsdóttir búningameistari.
Leikarar í „Siggi var úti“ eru 9,
þar af þrjú börn. Bjarni Ingvars-
son leikur líffræðinginn, Marinó
Þorsteinsson afann, Ragnheiður
Tryggvadóttir mömmuna, Jón-
steinn Aðalsteinsson pabbann,
Theodór Júliusson Úlf, Sunna
Borg Stellu, Melkorka Óiafsdóttir
stelpuna Tótu, Gunnlaugur Ingi-
valdur Grétarsson drenginn Villa
og Jóhanna Sara Kristjánsdóttir
litlu tófuna.
Næstu sýningar á Siggi var úti
verða fimmtudaginn 9. desember
kl. 18, laugardaginn 11. desember
kl. 17 og sunnudaginn 12. desem-
ber kl. 15. Miðasala leikhússins er
opin alla daga frá kl. 13. Ekki
verða fleiri sýningar fyrr en eftir
jól.