Morgunblaðið - 09.12.1982, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982
39
það því geysilega góður árangur
hjá þeim félögum að þeir skyldu
lenda í 47. sæti. Voru þeir jafn-
framt einu útlendingarnir, sem
komust í mark. Hlutu þeir mikið
lof frá keppnisstjórn rallsins,
sem færði þeim bikar að gjöf
fyrir árangurinn og fengu þeir
einnig bikar fyrir að vera kepp-
endurnir, sem lengst voru komn-
ir að. Umboðsmaður Alfa Romeo
í Saluzzo varð svo himinlifandi
yfir árangri íslendinganna, að
hann færði þeim enn einn bikar-
inn. ítölsku áhorfendurnir héldu
mikið upp á Birgi og Magnús að
sögn Maríönnu Friðjónsdóttur,
sem fylgdi þeim félögum í rall-
inu. Hrópuðu þeir „Islandia, Is-
landia" hvar sem þeir óku fram-
hjá. Sigurvegarar þessarar
keppni voru kappar að nafni
Biasion og Siviera, en þeir óku
yfir 300 hestafla Opel Ascona.
Margir keppenda rallsins voru
styrktir af hinum ýmsu
bílaverksmiðjum, en rallið var
fjórða stærsta keppni Ítalíu og
því mikið í húfi.
Árangur Birgis Bragasonar og
Magnúsar Arnarssonar er mjög
lofsverður og mikið afrek að
ljúka keppni við svo gjörbreyttar
aðstæður. Lofuðu ítölsku blöðin
þá félaga fyrir mjög íþrótta-
mannslega framkomu. Vonandi
verður keppni þessi Birgi og
Magnúsi hvatning til frekari
dáða, en Birgir er einn af okkar
allra bestu rallökumönnum og
slíkt hið sama má segja um
Magnús, sem aðstoðarökumann.
Bilanir hafa hinsvegar sett stórt
strik í reikninginn hjá þeim
hérlendis, en hugsanlega var
þetta rall á Ítalíu vendipunktur í
þeim efnum.
GK
Launakröfur FÍH úti-
loka ekki þáttagerð
— segir Finnur Torfi Stefánsson hjá FÍH
„I'að hefur þvi miður engin
niðurstaða fengist enn“, sagði
Finnur Torfi Stefánsson hjá FIH,
Félagi íslcnskra hljómlistar-
manna, er Morgunblaðið innti
hann eftir því hvernig miðaði í
samningaviðræðum félagsins við
sjónvarpið um aukna hlutdeild ís-
lensks tónlistarefnis ■ sjónvarpi.
greiðslur til hljómlistarmanna
næmu aðeins tíunda hluta
kostnaðar við gerð tónlistar-
þátta. Hann bætti því einnig við
að til þessa hefðu hin 90% ekki
staðið í veginum, þannig að
tæpast væri réttmætt að segja
að ósanngjarnar launakröfur
FÍH útilokuðu þáttagerð.
Jólatrén
erukomín!
Falleg og fjölbreytileg
Gróðurhúsinu við Sigtún: Simar36770-86340
Nú ergaman að vera til. Allterfullt hjá okkur
af fallegum jólatrjám af öllum gerðum.
Norðmannsgreni eða Norðmannsþynur.
Lang-barrheldnasta jólatréð á markaðnum.
Dökkgrænt og fallegt á litinn.
Rauðgreni. Mikið úrval af þessum fallegu og
ódýru jólatrjám.
Eigum einnig gott úrval af öðrum tegundum
sem alltaf eru vinsælar, t.d. Omórika, blá-
greni, fjallafura ofl.
Komið í Blómaval, gangið um jólatré-
skóginn og veljið jólatréð við bestu
aðstæður inni sem úti.
Leggjum áherslu á góða þjónustu og
vandað val á jólatrjám.
an^*lla9s°*ámkkun-
^Pan«ð«'nana£°r9un.
blÓíFIOUCll
FÍH og sjónvarpið hafa að
undanförnu átt viðræður um
hvernig megi auka þátt ís-
lenskrar tónlistar í sjónvarpi.
Til þessa hefur sjónvarpið talið
greiðslukröfur FIH vera of háar
og því ekki talið sér fært að
standa undir þáttagerð með ís-
lenskum tónlistarmönnum.
Að sögn Finns Torfa eru taxt-
ar FÍH alls ekki hærri en geng-
ur og gerist hjá sambærilegum
félögum. Nefndi hann sem
dæmi, að greiðslur til fimm
manna hljómsveitar fyrir hálf-
rar klukkustundar þátt næmu
15.000 krónum, ef miðað væri
við sex tíma vinnu í upptökusal.
Væri þá gengið út frá því að
hljómsveitin kæmi með lög sín
fullæfð.
Viðræðurnar að undanförnu
hafa ennfremur snúist um ís-
lenskt efni í poppþættinum
„Skonrokki,,. Til þessa hefur
ekkert íslenskt efni verið í
þættinum, en fyrsta ísl.
hljómsveitin kom þar fram í
gær. Sagði Finnur Torfi, að ver-
ið væri að reyna að komast að
samkomulagi um að sjónvarpið
sæi aðeins um myndupptöku
fyrir Skonrokk og notaðist við
hljómplötur. Með því væri hægt
að stórminnka allan tilkostnað.
Taldi Finnur Torfi ekki ólíklegt,
að greiðslur til hljómlistar-
manna myndu við það aðeins
verða þriðjungur af áðurnefndri
upphæð.
Finnur Torfi sagði í lokin, að
ISLENSKAR BÆKUR
EBLENDAR BÆKUR
MYNDBÖND
Bókaverslun Snæbjamar ,
Hafnarstræti