Morgunblaðið - 09.12.1982, Side 10
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982
Um kirkjueignir og
andvirði seldra kirkju-
jarða og prestssetra
— eftir sr. Jón
Einarsson prófast,
Saurbæ
í fréttatíma Ríkisútvarpsins
hinn 19. þessa mánaðar var viðtal
við séra Birgi Ásgeirsson, sókn-
arprest á Mosfelli. Tilefni viðtals-
ins mun hafa verið nýafstaðið
kirkjuþing, umfjöllun þess um
kirkjueignir og meðferð ríkisins á
kirkjujörðum og prestssetrum og
andvirði þeirra eigna, er seldar
hafa verið. í viðtalinu var því sleg-
ið föstu, að andvirði seldra kirkju-
jarða og prestssetra rynni beint í
ríkiskassann. Þar sem hér gætir
nokkurs misskilnings og er ekki að
öllu leyti rétt með farið, vil ég
leyfa mér með grein þessari að
vekja athygli á nokkrum þáttum
þessa máls.
í lögum um Kristnisjóð frá 9.
maí 1970 segir meðal annars, að
„andvirði kirkjujarða, annarra en
prestssetursjarða, sem seldar
verða eftir ( Idistöku laganna,"
skuli renna í sjóðinn. Með þessu
ákvæði mætti ætla, að ríkisvaldið
hefði viðurkennt eignarrétt kirkj-
unnar yfir téðum jörðum, en þó
verður vart talið, að svo hafi orðið
í reynd. Eftir gildistöku laganna
hefur andvirði seldra kirkjujarða
að vísu runnið í Kristnisjóð, en
ekki í ríkiskassann, og þar með
komið kirkjunni að haldi í þjón-
ustu hennar og starfi. Hins vegar
hefur stjórn Kristnisjóðs ekki ver-
ið kvödd til ráða eða ákvarðana-
töku í sambandi við sölu kirkju-
jarða. Hlýtur slíkt að teljast mjög
óeðlilegt, þar sem Kristnisjóður á
svo mikilla hagsmuna að gæta.
Oft hef ég hugleitt, hvers vegna
þessi lagaákvæði um andvirði
seldra kirkjujarða skyldu ekki
einnig vera látin taka til prests-
setursjarða og embættisbústaða
presta í þéttbýli, sem svo margir
hafa verið seldir á síðustu árum. í
áður nefndu útvarpsviðtali var
skýrt og réttilega á það bent, að
andvirði seidra prestsbústaða hef-
„l»að er skoðun mín, að nú-
verandi skipan á fjármála-
tengslum ríkis og kirkju
þurfi að breyta og setja skýr-
ari ákvæði um réttarstööu
kirkjunnar gagnvart ríkis-
valdinu.“
ur runnið beint í ríkiskassann,
þrátt fyrir eindregin mótmæli
kirkjulegra aðila og ítrekaðar til-
raunir til að fá þessu fjármagni
varið til kirkjulegs starfs.
Við, sem vinnum, og unnum
kirkjunni, teljum það mjög
ósanngjarnt, að ríkið skuli bein-
línis græða á því að selja embætt-
isbústaði, sem það hefur áður af-
hent kirkjunni og fjármagnað með
lögum frá Alþingi. Við teljum, að
það, sem kirkjunni hefur þannig
verið afhent, hljóti að vera hennar
eign.
Hins ber að gæta, að með tilvís-
un til áðurnefndra laga um
Kristnisjóð mun ríkið ekki vera
skuldbundið til að afhenda kirkj-
unni þá fjármuni, er fást fyrir seld
prestssetur. Ég tel það mjög mið-
ur, að lögin^skuli ekki vera skýr og
ótvíræð, hvað þetta snertir, og að
þar skyldi ekki strax í öndverðu
vera ákveðið, að andvirði allra
seldra kirkjueigna rynni í Kristni-
sjóð.
Ekki verður annað séð en að
kirkjuþing og kirkjuráð hafi látið
sér lynda, að lögin væru með þeim
hætti, sem þau eru. Að minnsta
kosti voru þau þannig afgreidd á
kirkjuþingi árið 1966. Ekki er mér
kunnugt um, að kirkjuráð hafi
reynt að fá þessu ákvæði laganna
breytt, eða flutt frumvarp þar um
á kirkjuþingum. Hins vegar hafa
prestar ítrekað gert samþykktir
til að mótmæla sölu á prestssetr-
um og meðferð ríkisins á andvirði
þeirra. Slíkar samþykktir hafa
einnig verið gerðar á kirkjuþing-
um og því jafnframt mótmælt, að
prestar í mesta þéttbýlinu skuii
ekki lengur njóta embættisbú-
staða. Samþykkt um að fá þessu
breytt til fyrra horfs var síðast
gerð á því kirkjuþingi, sem nú er
nýlokið.
í ávarpi sínu við setningu
kirkjuþings greindi kirkjumála-
ráðherra frá því, að hann hefði
ákveðið að skipa nefnd til að gera
könnun á eignum kirkjunnar.
Kirkjuþing kaus einum rómi dr.
Sigurbjörn Einarsson biskup til að
taka sæti í nefndinni. Ber að
fagna því, að hann skyldi fást til
að taka þetta að sér, því að fáir
eða engir búa yfir eins mikilli
þekkingu og reynslu í þessum efn-
um sem hann.
Við upphaf kirkjuþings lagði ég
fram eftirfarandi tillögu um
kirkjueignir, sem var samþykkt
óbreytt og einróma á þinginu:
„Kirkjuþing fagnar þeirri
ákvörðun kirkjumálaráðherra að
skipa nefnd til að gera könnun á
eignum kirkjunnar.
Það er álit kirkjuþings, að kirkj-
an skuli sjálf hafa eignarhald og
ráðstöfunarrétt á eignum sínum.
Því beinir þingið þeim eindregnu
tilmælum til ríkisstjórnar og Al-
þingis, að ekki verði sett lög eða
teknar ákvarðanir um sölu og
ráðstöfun kirkjueigna, þar á með-
al prestssetra og kirkjujarða,
nema að fengnu samþykki kirkju-
þings.
Þá skorar þingið á presta og
söfnuði landsins að standa trúan
vörð um eignir og rétt kirkju og
prestssetra."
Það er vissulega ærin ástæða
til, að kirkjuþing geri slíka álykt-
un. Staðreynd er, að ríkisvaldið
hefur haldið illa á eignum kirkj-
unnar, og prestar og söfnuðir hafa
ekki ávallt gætt þeirrar árvekni
sem skyldi í þeim efnum.
Sr. Jón Einarsson
Talið er, að árið 1907 hafi
kirkjujarðir í landinu verið að
minnsta kosti 700. Mikill meiri-
hluti þeirra hefur verið seldur, og
hefur sölugjald þeirra oftast verið
langt undir markaðsverði. Gerð
hefur verið skrá yfir seldar
kirkjujarðir á tímabilinu
1876—1974, eða um 100 ára skeið.
Á þessari tæpu öld voru seldar 527
jarðeignir kirkjunnar. Heildar-
söluverð allra þessara eigna nam
tæplega 9,5 milljónum gamalla
króna. Þar af voru fimm jarðeign-
ir seldar árin 1973—1974 fyrir
rúmlega 7,1 milljón. Hinar jarð-
STÍJDENTARÁÐ Háskóla íslands
hefur ályktað um kosningaþátttöku í
albönsku kosningunum, sem fram
fóru á dögunum, en þar studdu
1.627.968 manns kommúnistaflokk
landsins, 8 atkvæði voru ógild, en
einn var á móti. Ályktun Stúdenta-
ráðs, sem gerd var 18. nóvember, er
svohljóðandi:
„Stúdentaráð Háskóla íslands
lýsir yfir ánægju sinni með virki-
lega góða þátttöku albönsku þjóð-
arinnar í nýafstöðnum kosningum
þar í landi. SHÍ telur að með þessu
hafi albanska þjóðin sýnt öðrum
þjóðum þessa heims gott fordæmi.
Albanska þjóðin er sér greinilega
meðvituð um skyldu sína í sam-
bandi við kosningarétt. Væri vel ef
eignirnar allar, 522 að tölu, voru
því seldar fyrir aðeins rúmlega 2,3
milljónir. Má ljóst vera, hversu
lítið verð það er, þó að vissulega sé
erfitt að meta raungildi þess mið-
að við aðstæður og raungildi pen-
inga í dag.
Fleiri dæmi mætti nefna um
slælega ráðsmennsku ríkisins
varðandi eignir kirkjunnar. Það
gerðist til dæmis árið 1973, að 256
hektarar kirkjueignar í nágrenni
Reykjavíkur voru seldir fyrir að-
eins 3,4 milljónir króna, og var
augljóslega um smánarverð að
ræða. í blaðaskrifum um málið
var sýnt fram á, að með þessari
ráðstöfun hefði ríkisvaldið haft
stórfé af kirkjunni miðað við verð-
gildi peninga þá. Jafnframt lá það
í augum uppi, að ef téð land hefði
verið í einkaeign, þá hefði viðkom-
andi kaupandi þurft að greiða
fullt markaðsverð fyrir landið, en
af því að kirkjan átti í hlut, þá
mátti selja svona lágu verði. Slíkri
ráðsmennsku ríkisvaldsins getur
kirkjan ekki unað til lengdar.
Það er skoðun mín, að núver-
andi skipan á fjármálatengslum
ríkis og kirkju þurfi að breyta og
setja skýrari ákvæði um réttar-
stöðu kirkjunnar gagnvart ríkis-
valdinu. Nauðsynlegt er að efla og
auka frumkvæði og sjálfstæði
kirkjunnar og gera henni kleift,
bæði stjórnunarlega og fjárhags-
lega, að þjóna betur þeirri þjóð,
sem hún ber ábyrgð á og er kölluð
til að flytja fagnaðarerindið.
Með þökk fyrir birtinguna.
Saurha* á llvalfjarAarströnd,
22. nóvembvr 1982.
allar þjóðir myndu taka eins vel
til hendinni í kosningum eins og
albanska þjóðin hefur nú gert.
Einnig lýsir SHÍ ánægju sinni
með einhug albönsku þjóðarinnar.
Samstaða þjóðarinnar er í einu
orði sagt lofsverð. Það er greini-
legt að í Albaníu á sér ekki stað
óþarfa ágreiningur sem oft vill
verða hjá öðrum þjóðum þessa
heims. SHÍ þakkar af alhug alb-
önsku þjóðinni það fordæmi sem
hún hefur sýnt.
SHÍ hvetur albönsku ríkis-
stjórnina til að bæta um betur svo
að í næstu kosningum verði ekki
aðeins 100% þátttaka heldur og
100% kjósenda kjósi það sem í
boði er.“
Stúdentaráð ánægt með
kosningaþátttöku í Albaníu
Ö6VIKIN ÍSLENSK TONLIST LETT LEIKIN OSVIKIN ISLENSK TONLIST J.ET'i' LEIKIN 0SVIKIN ISLENSK TONLIST LETT LEIKIN ÓSVIKIN ÍSLENSK TONyST LE
wLr.Ntíh. TONLÍST LET'i
ras1 i.-w ffíf*? ; y.yns jo.v tj
Hljóm
otur
Árrii Johnsen
a lagvissu ogl
hlyomfögru tónfalii. Það ber votfl
um gamansem, Magga Kjlrtans
Saml. Ve !*r plðtunni nafnið
Samkvæmt iæknisráði, því ef
mönnurn íærist að hiuaU á
meta goða tónlist þýðir það í
raun minna álag á taugakerfi
manna og jafnvel Uugadeildir
spitaianna. Upptaka Jónasar R
hemr rndL num ÞannÍK að maður
hJ Zfn .ar Íti,fín”‘ngunni að
Mi«g, sitj, við hljóðfæri sitt í
firr>iírx,.r; *s » *<
SSS ’?*<•■ Mr")™
~~mt Magg!---------
mORGUNBLAPIÐ.
dagblaðið & VÍSIR.
j MANUDAGUR 19. JULl 1982.
■ I öllu þessu plötuflóð, sem dynur yfir
I þjóðina er Samkvæmt læknisráði virki-
J lega skemmtileg tilbreyting frá þeim
| frumsömdu tónUst sem hinar ýmsu
hljómsveitir eru að senda frá sér þessa
daeana w
Nýjar plötur
Fyrir alla þá sem finnst tilveran
stressandi vU ég benda á að Sam-
kvæmt læknisraði stendur vel undir
nafni sinu, þú slappar vel af við að
hlusta á plötuna.
HK.
IBV»»-
LAUGARDAGUR 2«. JÚLl 1»82
hljómplata & kassetta