Morgunblaðið - 09.12.1982, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982
46
SÉRLEVFO ENOJRINÍÝJAO
SI\TTR AFTUR
Jqmes,
Bona
, . er
kominn.
atturl
James Bond þarf ekki að kynna, sögupersónuna sem breski rithöfundurinn Ian Fleming
gerði ódauðlega í bókum sínum. Aðdáendur Bonds skipta milljónum um allan heim, hvort
heldur kappinn birtist í bók eða kvikmynd. Ian Fleming lést hins vegar fyrir allmörgum
árum, svo ekki hafa verið skrifuð ný ævintýri Bond’s um nokkurt skeið. Nú geta aðdáendur
007 á hinn bóginn andað léttara, því erfingjar höfundarréttar að James Bond hafa samið við
rithöfundinn John Gardner, um að hann taki að sér að blása nýju lífi í kappann og finna
honum ný verkefni að glíma við.
Gardner var valinn úr stórum hópi rithöfunda, og ekki verður annað sagt en valið hafi tekist
vel, því tvær fyrstu Bond-bækur hans hafa náð feiknavinsældum bæði í Bandaríkjunum og
Bretlandi.
Hér birtist á íslensku fyrsta bók Gardners, þar sem
James Bond snýr aftur, umvafinn fögru kvenfólki og
harðsvíruðum þrjótum sem fyrr, og búinn að fá sér-
leyfi sitt til að drepa, númer 007, endurnýjað.
Barónsstíg 18, 101 Reykjavík.
Sími: 1 88 30.
HÚSGÖGN
Langholtsvegi 111, Reykjavik.
Sími 37010 — 37144.
Metsölublad á hverjum degi!
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgedeild Hún-
vetningafélagsins
Staðan eftir 4 umferðir í hrað-
sveitakeppninni:
Valdimar Jóhannsson 2373
Gunnlaugur Sigurgeirsson 2228
Haukur Isaksson 2149
A.m.k. einni umferð er ólokið
en það skýrist betur á nýja árinu
því næsta spilakvöld verður 12.
janúar 1983.
Reykjavíkurmótið í
sveitakeppni 1983
Fyrirkomulag Reykjavíkur-
mótsins í sveitakeppni 1983
verður með svipuðu sniði og ver-
ið hefur; fyrst er opið mót með
16 spila leikjum, og spila allir við
alla. Síðan spila 4 efstu sveitirn-
ar úr þessu móti til úrslita í sér-
stakri keppni.
Sú nýbreytni verður hins veg-
ar núna, að stigaflutningur verð-
ur frá opna mótinu yfir í úrslit-
in. Það er ekki endanlega frá
gengið með hvaða hætti það
verður gert, en það verður kynnt
síðar.
Opna mótið verður allt spilað í
janúarmánuði, á tímabilinu
5.-22. Þetta þýðir að skráningu í
mótið þarf að vera lokið fyrir ára-
mót. Fyrirliðar sveita eru beðnir
að tilkynna þátttöku til Guð-
mundar Páls Arnarsonar eða
Gests Jónssonar í stjórn BSR
sem fyrst.
Spiladagar og -staðir eru sem
hér segir:
1. umf. miðvikudag 5. jan.
kl. 19.30 Domus Medica.
2. umf. fimmtudag 6. jan.
kl. 19.30 Domus Medica.
3. umf. laugardag 8. jan.
kl. 13.00 Hreyfilshúsið.
4. umf. sunnudag 9. jan.
kl. 13.00 Hreyfilshúsið.
5. umf. miðvikudag 12. jan.
kl. 19.30 Domus Medica
6. umf. fimmtudag 13. jan.
kl. 19.30 Domus Medica
7. umf. miðvikudag 19. jan.
kl. 19.30 Domus Medica
8. umf. laugardag 22. jan.
kl. 13.00 Hreyfilshúsið.
Það er hugsanlegt að við bæt-
ist dagur, eða breyting verði á
spilatíma um helgar.
Úrslitin verða spiluð helgina
12,—13. feb. á Hótel Loftleiðum.
Keppnisstjóri verður Agnar
Jörgensen.
Reykjanesmót
í tvímenningi
Reykjanesmótið í tvímenningi
var spilað helgina 4.-5. des. í
Hafnarfirði. Mótið fór vel og
friðsamlega fram undir góðri
stjórn keppnisstjórans Vigfúsar
Pálssonar.
Mótið var allan tímann jafnt
og tvísýnt og skiptust pör á um
að leiða keppnina. Undir lokin
stóð baráttan milli feðganna
Vilhjálms Sigurðssonar og
Vilhjálms Vilhjálmssonar ann-
ars vegar Og Guðna Sigurbjarn-
arsonar og Ómars Jónssonar
hins vegar. Fóru leikar svo að
Guðni og Ómar sigu framúr og
urðu þar með Reykjanesmeistar-
ar 1982—1983. Röðin varð ann-
ars þessi:
Guðni Sigurbjarnarson —
Ómar Jónsson 169
Vilhjálmur Sigurðsson —
VUhjálmur Vilhjálmsson 150
Hrólfur Hjaltason —
Oddur Hjaltason 128
Aðalsteinn Jörgensen —
Kristján Blöndal 118
Kristófer Magnússon —
Guðbrandur Sigurbergssonll4
Ármann Lárusson —
Ragnar Björnsson 103
Sýning Guðmundar
Myndlist
Valtýr Pétúrsson
Guðmundur Pálsson er með
sína aðra einkasýningu í Ás-
mundarsal, en hann var þar á
ferð fyrir ári með frumraun sína
sem sýningaraðili. Þá reit ég um
hann hér í'blaðið ogóiafði nokk;
uð gaman af þeirri sýningu. í
dag er Guðmundur árinu eldri og
hefur gefið sér tíma til að stunda
málverkið af nokkrum eldmóði
ásamt því að leggja stund á
læknisfræði.
Þessi sýning Guðmundar Páls-
sonar sýnir, að hann hefur eflst í
átökum við hina dansandi línu,
en einmitt línan er aðal við-
fangsefni Guðmundar og var það
einnig á hans fyrstu sýningu.
Hann vinnur myndir sínar af
meiri öryggi nú árinu seinna, og
hann hefur miklu meiri tök á
litnum og nær í hann vissum til-
gangi, sem stundum minnir á
marga bestu menn á þessu sviði.
Ég held, að Guðmundur sé orð-
inn nokkuð sérstæður meðal
yngri manna, og hann eins og
öðlast meira öryggi við mynd-
gerð sína eftir því sem fram líð-
ur tíð. Það er líkur tilgangur í
þessum verkum Guðmundar og
fyrir ári síðan, en hann hefur
svo auðsjáanlega öruggari tök á
því, er hann ætlar sér, að ég verð
að endurtaka þetta atriði hér.
Það er að vísu nokkur munur á
þessum verkum, sem nú eru til
sýnis, en syndirnar eru svo smá-
ar og auðvirðilega, að ég nenni
ekki að tína þær til hér. Því
verður ekki að sinni gert upp á
milli þeirra mynda, sem Guð-
mundur sýnir frá seinasta ári.
Snotur sýningarskrá fylgir þess-
ari sýningu, og þar yrkir Guð-
mundur langt ljóð til hinnar
frjálsu línu, viðauki, sem verkar
skemmtilega og gefur hugmynd
um, að listamaðurinn viti, hvað
hann er að gera.
Eins og fyrri sýning Guð-
mundar, er þetta skemmtileg og
hressileg sýning. Hún er dálítið í
sama dúr og sú í fyrra, en eitt ár
er ekki langur tími í lífi skap-
andi listamanns. Það má því
segja með sanni, að ásamt erfiðu
námi, sé það merkilegt, að Guð-
mundi skuli hafa tekist að koma
þessari sýningu saman á jafn
viðunandi hátt og dæmin sanna.
Ég hvet fólk til að fylgjast með
framvindu mála hjá þessum
unga manni og vonast til, að
hann fái tækifæri til að halda
því striki, sem hann nú stýrir
eftir.