Morgunblaðið - 09.12.1982, Qupperneq 15
Besti vinur
blomanna
MORGUNBLAÐID, KIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982 ..... ' 47
Meðal upplýsinga
um hverja plöntu:
O Birta
J Hiti
Vatn
O Raki
■ Mold
Bókin 350 stoíublóm er traustur vinur
blómanna og ómissandi uppsláttarrit allra
blómaeigenda. Hún hjálpar þeim að þekkja
til hlítar einkenni, rœktun og umhirðu allra
algengustu blóma sem hœgt er að rœkta í
heimahúsum.
Ásamt íallegum litmyndum, sem auðvelda
fólki að greina tegundir blómanna, em í
bókinni nákvœmar upplýsingar um hverja
plöntu og í almennum leiðbeiningum um
blómarœkt er víða komið við. M.a. er fjallað
um hvemig koma má fyrir blómum í
gluggum, kerjum og blómaskálum, rœktun í
flöskum, vatnsrœkt, gróðurvinjar á skriístofum
o.s.frv.
Cróð bók fyrir sanna blómavini
Mál og menning
Orðabók um
slangur
komin út
SVART á hvítu hefur gefið út orða-
bók um slangur, slettur, bannorð og
annað utangarösmál, eftir Mörð
Árnason, Svavar Sigmundsson og
Örnólf Thorsson. Þeir hafa allir unn-
ið við Orðabók Háskólans, auk þess
sem Svavar hefur undanfarin ár
unniö að gerð samheitaorðabókar.
Bókin er skreytt teikningum eftir
Grétar Reynisson og Guðmund
Thoroddsen myndlistarmenn.
I frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Víða er leitað fanga og auk al-
menns slangurs hafa höfundar
lagt áherslu á söfnun orða úr sjó-
mannamáli, máli tónlistarmanna,
máli íþróttamanna, auk þess sem
leitast hefur verið við að safna
orðum úr orðaforða þeirra, sem
ástunda neyslu áfengis og fíkni-
efna.
Bók'sem þessi hlýtur að teljast
merkur viðburður og forvitnileg
öllum sem áhuga hafa á máli og
mannlegum samskiptum. Sam-
svarandi orðabækur hafa verið
gefnar út í öllum helstu menning-
arlöndum heims."
Dagatal
Snerru
BÓKAVERZLUNIN Snerra í
Mosfellssveit hefur gefið út alm-
anak fyrir árið 1983, segir í frétt
frá aðstandendum Snerru.
Dagatalið er prýtt 12 völd-
um langslagsmyndum úr öll-
um landshlutum. Þær eru all-
ar í lit og margar teknar úr
lofti.
Prentun dagatalsins fór
fram í Odda hf. og litgreining
í Myndamótum.
^/\skriftar-
síminn er 83033
4
bókatitlar
Opið til kl. 10 i kvöld.
MARKAÐS HÚStÐ ILAUGAVEGI39