Morgunblaðið - 09.12.1982, Blaðsíða 16
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982
49
Brádum koma blessuð jólin
og bækumar okkar komnar út!
ALLTUM
)NTUR
Alh um pottaplöntur 250 litmyndir af
blómstranui plöntum og blaðgróðri.
ítarlegar upplýsingar um öll vin-
sælustu stofublómin og fjölmörg
afbrigði þeirra. Með fágætum skýr-
ingamyndum sýnir bókin hvað get-
ur verið að og hvaða ráð eru til
úrbóta. Þýðandi er Fríða Björns-
dóttir.
HM á Spini 1982, saga heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu og
þátttaka íslands eftir Sigmund 0.
Steinarsson. Hér er allt það merki-
legasta sem skeð hefur frá upphafi;
atburðir, leikir og leikmenn. Öll
sagan á einum stað. Formála ritar
Brian Robson, dýrasti knattspyrnu-
maður Englands.
Ágrip af Jarðfræði Lslands eftir Ara
Trausta Guðmundsson. Bókin fjall-
ar um nýjustu hugmyndir og rann-
sóknir á íslenskri jarðfræði. land-
reks- og plötukenningin opnar ótal
nýja vegu og ísland gegnir lykil-
hlutverki. Fjöldi ljósmynda og
óvenjulega góðra auðskiljanlegra
skýringarteikninga.
P STEWAR J. LÚ0VÍKSSOH
I Þxaul
a
Þrautgóðir á rauuastund 14. bindi
björgunar- og sjóslysasögu íslands
eftir Steinar J. Lúðvíksson. Fjallar
um árin 1959—1961. Meðal annars
efnis Nýfundnalandsveðrið mikla
þegar togarinn Júlí fórst og margir
togarar voru hætt komnir. Einn
merkasti bókaflokkur landsins.
forn,
Forn frægðarsetur eftir séra Ágúst
Sigurðsson, 4. bindi. Kross í Land-
eyjum, Borg á Mýrum og Þöngla-
bakki í Fjörðum. Hér segir frá Ein-
ari skálaglamm sem skrifaði Eglu,
Snorra Sturlusyni og fjölda ann-
arra manna. Bókin er prýdd fjölda
mynda og teikninga.
„Sjómannsævi Karvels Ögmunds-
sonar. Karvel er maður prýðilega
ritfær, enda líka skáldmæltur. —
Vissulega efni í stórbrotna sögu.
Og þá sögu segir Karvel bæði vel
og skilmerkilega." Erlendur
Jónsson Mbl. 1.12.1982.
hér kynnum við nokkrar þeirra
Tré og runnar í fslandi eftir Ásgeir Svanbergsson. Uppsláttarrit ræktun-
armannsins gefið út að frumkvæði Skógræktarfélags Reykjavíkur. Þessi
bók er um tré og runna á íslandi, sögu þeirra og heimkynni ásamt
leiðbeiningum um ræktun og hirðingu. Höfundurinn hefur verið græði-
reitisstjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur í mörg ár og kynnst vand-
kvæðum garðeigenda. Hann er einnig kunnur fyrir mjög vandaða sjón-
varpsþætti um skógrækt. Á þriðja hundrað myndir og teikningar prýða
bókina, þar á meðal fjöldi litmynda teknar af Vilhjálmi Sigtryggssyni
framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur. Bók þessi, sem er
hin fyrsta í bókaflokknum íslensk náttúra, á erindi við alla sem unna
gróðri og ræktun.
Dömur, draugar og dándimenn
endurminningar Sigfúsar á Aust-
fjarðarútunni, skráðar af Vil-
hjálmi Einarssyni skólastjóra.
Landsfrægir menn og lítilmagnar
koma hér jafnt við sögu sem sögð
er af einlægni og hispursleysi.
I Bændur
i og 1
1 bæiarmenn
Bændur og bæjarmenn lokabindi
æviminninga Jóns Bjarnasonar
frá Garðsvík. Lifandi kímni og
leiftrandi frásagnargleði Garðs-
víkurbóndans bregst ekki fremur
en fyrri daginn. Þetta er bók sem
á erindi bæði við bændur og bæj-
armenn.
"/y- v/
Heitur snjór skáldsaga eftir Viktor
Arnar Ingólfsson. Segir frá ungu
fólki í Reykjavík sem ánetjast eit-
urlyfjum og þeim kaldrifjuðu
þrjótum sem lifa á því að eyði-
leggja líf annarra. Magnþrungin
saga sem á erindi til allra.
Bræður munu berjast skáldsaga
eftir Rónald Símonarson. Alþýðu-
bandalagið nær stjórnartaumun-
um með krötum og framsóknar-
mönnum, en taka síðan öll völd í
sínar hendur í skjóli vopna, með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum og
þá munu bræður berjast.
h'ásqpfntr
fortíoariwutr
Leiksoppur fortíðarinnar níunda
bók Snjólaugar Bragadóttur frá
Skáldalæk. Harmleikur frá stríðs-
árunum ópar hamingju ungrar
stúlku. Er Katrín Jónsdóttir e.t.v.
síðasti sprotinn á virðulegu,
skosku ættartré?
Sylvía önnur skáldsaga Aslaugar
Ragnars. Fyrri bók hennar,
Haustvika, vakti mikla athygli.
Þetta er örlagasaga ungrar komu
sem þarf að takast á við sjálfa sig
og umhverfið og finna lífi sínu
nýjan farveg.
Landið og Landnáma eftir dr. Har-
ald Matthíasson Laugarvatni.
„Þetta mikla verk verður best auð-
kennt með því að kalla það lykil að
Landnámu. Einum af mestu fjár-
sjóðum hennar staðfræðinni er
lokið upp fyrir lesendunum."
Steindór Steindórsson í Heima er
best, október 1982.
1981
Árbók íslands 1981 Hvað gerðist á
íslandi 1981 eftir Steinar J. Lúð-
víksson. „Þessi Árbók — fjögur-
hundruð síður í stóru broti — en
mikið verk og vandað, nokkurs
konar tuttugustualdar Skarðsár-
annáll. Árbókin hefur nú komið út
í nokkur ár og kemur vonandi
lengi enn. Saman munu bækurnar
þá verða aldarspegill". Erlendur
Jónsson Mbl. 1.12.1982.
Nautakjöt og salöt Tvær nýjar
bókaflokknum Litlu matreiðslu-
bækurnar, sem eru þá alls orðnar
10. Hver bók fjallar um afmarkað
svið matargerðar og hverjum rétti
fylgja litprentaðar myndir. Auð-
skildar bækur og aðgengilegar.
Þýðandi Ib Wessman.
c3egj®»V
5* ny"'
Eyjar gegnum aldirnar eftir Guðlaug Gíslason fyrrum alþingismann.
Frásagnir í annálsformi af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum.
Viðburðarík saga um upphaf og
þróun byggðar, tyrkjaránið, sjósókn
og fjölskrúðugt mannlíf.
í bókinni eru 300 myndir frá
gamalli tíð og nýrri.
Fróðleg, skemmtileg og
myndauðug bók.
Sól ég sá sjálfsævisag Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum, náttúru-
fræðings og fyrrum skólameistara. Steindór er þekktur fyrir að vera í
senn einlægur og einarður, sanngjarn en samt harður í horn að taka sé
að honum vegið, svo sem kaflinn um uppreisnartilraunina í MA á
skólameistaramárum hans ber glöggt vitni. Steindór hefur kynnst
mörgum manninum á langri ævi og hann kynnir þá fyrir lesendum jafnt
í hversdagsbúningi sem skartklæðum. Samfylgdin við Steindór svíkur
engan, hvort heldur hann hugar að samferðafólki, steinvölu í götunni,
blómi í vegarbrún eða móaflesju og mýrardragi í nágrenninu.
Trolls-tröll sögur og teikningar úr
íslenskri þjóðsagnaveröld eftir
Hauk Halldórsson. Ensk og ís-
lensk útgáfa. Stórbrotnar og þjóð-
legar teikningar. Tilvalin gjöf til
allra íslendinga og vina og við-
AUQLYSMGATBKMSTOFA SCUfltfKS
Spilabækurnar Hvernig á að leggja
kapla? og Tveggja manna spil.
Skemmtilegar og aðgengilegar
handbækur um vinsæla dægradvöl
sem veita jafnt ungum sem eldri
leiðsögn og ánægju í tómstundum.
skiptamanna erlendis.
GléiHíegjpí
méd góídum bókuml
ÖRN &ÖRLYGUR
Siðumúla 11, simi 84866